32016R0799
Commission Implementing Regulation (EU) 2016/799 of 18 March 2016 implementing Regulation (EU) No 165/2014 of the European Parliament and of the Council laying down the requirements for the construction, testing, installation, operation and repair of tachographs and their components
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/799 frá 18. mars 2016 um framkvæmd reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 165/2014 þar sem mælt er fyrir um kröfur um smíði, prófun, uppsetningu, virkni og viðgerðir ökurita og íhluta þeirra
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 13 Flutningar, 13.02 Flutningar á vegum |
| Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 211/2016 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Með þessari reglugerð eru sett fram nánari skilyrði fyrir smíði, prófun, uppsetningu, notkun og eftirliti á ökuritum og íhlutum þeirra til viðbótar við þær kröfur sem gerðar eru í reglugerð ESB. nr. 165/2014. Eru þar m.a. ákvæði sem eru nauðsynleg til að tryggja samræmda notkun ökurita, s.s. upptaka af staðsetningu ökutækis á vinnutíma ökumanns, koma upp um misnotkun og stjórnunar- og tæknilegar kröfur fyrir gerðarviðurkenningarferli ökurita.
Nánari efnisumfjöllun

Með reglugerð ESB nr. 165/2014 var kynnt til sögunnar önnur kynslóð rafrænna ökurita. Tilgangurinn var að tryggja skýrleika ásamt því að einfalda meginreglur og að bregðast við þeim tæknilegu framförum sem orðið höfðu. Meðal þess sem bættist þá við þær reglugerðir sem giltu áður um ökurita var að komið var á tengingu ökurita við GPS-staðsetningartæki. Slíkt var talið mikil hagræðing ekki síst við umferðareftirlit. Í reglugerð ESB 165/2014 má finna þær skyldur og kröfur sem fylgja smíði, ísetningu, notkun, prófun og eftirliti með ökuritum sem notaðir eru við flutninga á vegum í þeim tilgangi að uppfylla kröfur sem gerðar eru í reglugerð EB nr. 561/2006, tilskipun þingsins og ráðsins nr. 2002/15/EC og tilskipun ráðsins nr. 92/6/EEC. Reglugerð 165/2014 er orðinn hluti af EES-samningnum.
Ekki er að fullu ljóst hversu miklar breytingar þetta nýja ökuritakerfi mun hafa í för með sér hér á landi eða umfangi þessi á næstu árum þar sem þeir ökuritar sem eru í notkun í dag má nota á meðan þeir endast svo fremi að þeir séu notaðir í bifreiðum í innanlandsflutningum. Þau ökutæki sem notuð eru í alþjóðaflutningum þurfa að vera útbúin ökuritum af annarri kynslóð innan 15 ára frá gildistöku reglugerðar 2016/799
Þegar settir eru nýir ökuritar í bifreiðar skulu þeir vera af þeirri gerð sem fjallað er um í reglugerð 2016/799, þ.e. af annarri kynslóð ökurita eða smart tachographs. Frá júní 2019 skulu aðildarríkin einungis gefa út kort í annarrar kynslóðar ökurita. Verða þau hönnuð svo að einnig sé hægt að nota þau í fyrstu kynslóðar ökurita í því skyni að einfalda aðlögun að þessu nýja kerfi.
Einhver minniháttar kostnaður mun hljótast af því að tekin verða upp ný og breytt ökuritakort og mögulega getur orðið einhver stofnkostnaður fyrir Samgöngustofu. Engar nákvæmar upplýsingar er þó enn að fá í þeim efnum frá framleiðanda kortanna en útgáfa þeirra hefst ekki fyrr en árið 2019.
Í dag er tekið gjald fyrir ökuritakort hjá Samgöngustofu og er því ætlað að standa undir kostnaði við að framfylgja gildandi EES-reglum þar um og má gera ráð fyrir að svo verði áfram með tilkomu nýrra ökuritakorta. Gjaldtaka hjá Samgöngustofu mun því að öllu óbreyttu hækka í samræmi við þann kostnað sem fellur til vegna útgáfu nýrra ökuritakorta.
Þá má gera ráð fyrir að kostnaður falli til hjá þeim sem setja ökuritana í bifreiðar og sjá um að veita þjónustu við hann auk kostnaðar þeirra sem sjá um eftirlit með búnaðinum á vegum úti. Ekki liggja fyrir tölur um þennan kostnað í dag.

Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Á ekki við |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Nei |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Með reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 605/2010 um aksturs- og hvíldartíma ökumanna, notkun ökurita og eftirlit |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur | Sjá efnisumfjöllun |
|---|---|
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Innan fjárhagsáætlunar |
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Innviðaráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Samgöngustofa |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32016R0799 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 139, 26.5.2016, p. 1 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| Samþykktardagur i ESB |
|---|
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
|---|---|
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 22, 5.4.2018, p. 6 |
| Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L 89, 5.4.2018, p. 14 |
Staða innleiðingar samkvæmt ESA
| Staða innleiðingar á Íslandi samkvæmt ESA | Græn: Innleitt |
|---|---|
| Viðeigandi lög/reglugerði |
Breytt af (Modified by)
| 32018R0502 | amends | Commission Implementing Regulation (EU) 2018/502 of 28 February 2018 amending Implementing Regulation (EU) 2016/799 laying down the requirements for the construction, testing, installation, operation and repair of tachographs and their components | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
Breytir (Modifies)
| 32014R0165 | based on | Regulation (EU) No 165/2014 of the European Parliament and of the Council of 4 February 2014 on tachographs in road transport, repealing Council Regulation (EEC) No 3821/85 of the European Parliament and of the Council on recording equipment in road transport and amending Regulation (EC) No 561/2006 of the European Parliament and the Council on the harmonisation of certain social legislation relating to road transport | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
Flokkun (Classifications)
| EUROVOC | approval, European standard, road transport, technical standard, digital technology, data recording, satellite navigation, technical specification, speed control, driving period |
|---|---|
| Subject matter | Transport |