32016R1185

Commission Implementing Regulation (EU) 2016/1185 of 20 July 2016 amending Implementing Regulation (EU) No 923/2012 as regards the update and completion of the common rules of the air and operational provisions regarding services and procedures in air navigation (SERA Part C) and repealing Regulation (EC) No 730/2006


iceland-flag
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1185 frá 20. júlí 2016 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 923/2012 að því er varðar uppfærslu og fullvinnslu sameiginlegra flugregla og rekstrarákvæða varðandi þjónustu og verklagsreglur fyrir flugleiðsögu (SERA C-hluti) og um niðurfellingu á reglugerð (EB) nr. 730/2006
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 13 Flutningar, 13.06 Almenningsflug
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 247/2016
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu Já

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 923/2012 um sameiginlegar flugreglur og rekstrarákvæði vegna þjónustu og verklags í flugleiðsögu hefur einnig verið nefnd Single European Rules of the Air, SERA. Markmiðið er að samræma hvernig aðildarríki ESB uppfylla ICAO viðauka 2 auk ákveðinna ákvæða úr öðrum viðaukum og verklagi ICAO. Með því á að samræma hvernig flugi og flugleiðsöguþjónustu skuli háttað innan samevrópska loftrýmisins. Gildissvið 923/2012 er EUR og AFI svæði ICAO. Hún gildir því ekki á NAT svæðinu sem íslensk flugleiðsöguþjónusta er starfrækt á. Þess ber að geta að 923/2012 gildir um þau loftför sem flogið er til, innan og frá Evrópusambandinu beri loftförin ríkis- og

Nánari efnisumfjöllun

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 923/2012 um sameiginlegar flugreglur og rekstrarákvæði vegna þjónustu og verklags í flugleiðsögu hefur einnig verið nefnd Single European Rules of the Air, SERA. Markmiðið er að samræma hvernig aðildarríki ESB uppfylla ICAO viðauka 2 auk ákveðinna ákvæða úr öðrum viðaukum og verklagi ICAO. Með því á að samræma hvernig flugi og flugleiðsöguþjónustu skuli háttað innan samevrópska loftrýmisins. Gildissvið 923/2012 er EUR og AFI svæði ICAO. Hún gildir því ekki á NAT svæðinu sem íslensk flugleiðsöguþjónusta er starfrækt á. Þess ber að geta að 923/2012 gildir um þau loftför sem flogið er til, innan og frá Evrópusambandinu beri loftförin ríkis- og skráningarfang aðildarríkis EES-svæðisins, og hafi þau flugrekstur í því loftrými að því marki sem reglurnar eru ekki í mótsögn við reglur þess ríkis hvers lögsögu er flogið um. Þannig þurfa íslenskir flugrekendur sem fljúga inn í ESB að hafa tiltekið verklag og kerfi sem passa við verklag og kerfi sem reglugerð (ESB) nr. 923/2012 með síðari breytingum, kveður á um. Sú krafa á flugrekendur kemur þó ekki inn með þessari reglugerð heldur með öðrum reglum á sviði flugrekstrar, reglugerð nr. 965/2012 sem dæmi.
Með reglugerð 2016/1185 eru gerðar breytingar á reglugerð (ESB) nr. 923/2012. Með henni eru tekin upp tiltekin ákvæði í ICAO viðaukum 2, 3, 10 og 11, auk ákvæða úr ICAO PANS-ATM. Þegar vinna hófst við gerð sameiginlegra flugreglna var frá upphafi ákveðið að verkið skyldi unnið í skrefum og var því skipt upp í A, B og C hluta. Með reglugerð (ESB) nr. 923/2012 voru A og B hlutar innleiddir og nú er komið að C hluta með reglugerð (ESB) no. 2016/1185. Með C hlutanum er lögð lokahönd á sameiginlegar flugreglur. Reglurnar verða ítarlegri, ákveðin ákvæði úr PANS-ATM sem almennt má líta á sem viðurkenndar aðferðir til að uppfylla kröfur er sett skör ofar með því að setja þau ákvæði í reglugerðina. Með C hluta er einnig verið að tryggja betra samræmi við reglugerðir (ESB) 965/2012, 139/2014 og ákvæði úr reglugerð (ESB) 730/2006 eru færð í heild sinni yfir í reglugerð 923/2012.
Þrátt fyrir að 923/2012 gildi ekki á Íslandi hafa komið fram sjónarmið þess efnis að hún væri látin gilda hér. Yrði af því þarf að skoða hvort og hvernig aðlaganir Ísland þyrfti að fá. Verði tekin sú ákvörðun að beita reglugerð (ESB) 923/2012 hér þarf að hafa í huga að C-hlutinn felur í sér ákveðin atriði sem eru á skjön við flugleiðsöguna eins og hún er rekin í dag. Meðal annars er þar krafa um flokkun loftrýmis og kröfur til sérlegs sjónflugs. Þegar ákveðið var við upptöku 923/2012 í EES-samninginn að hún yrði ekki látin gilda hér var horft til þess að yfir úthafi eru ríki skuldbundin til að beita ICAO Annex 2 án frávika og ekki var á þeim tímapunkti vilji til að vera með ólíkar flugreglur innan og utan lofthelgi Íslands, þ.e. innan íslenska flugupplýsingasvæðisins, auk þess sem Danir hafa ákveðið að beita skuli ákvæðum ICAO Annex 2 með þeim frávikum sem Danir hafa birt yfir lofthelgi Grænlands.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Á ekki við
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Reglugerð um tæknilegar kröfur og stjórnsýslumeðferð fyrir skírteini og þjálfun flugumferðarstjóra.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Enginn

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Innviðaráðuneytið
Ábyrg stofnun Samgöngustofa

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32016R1185
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 196, 21.7.2016, p. 3
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 56, 23.8.2018, p. 58
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 215, 23.8.2018, p. 44

Staða innleiðingar samkvæmt ESA

Staða innleiðingar á Íslandi samkvæmt ESA Græn: Innleitt

Breytt af (Modified by)

32016R1185R(07) does replacement of

Breytir (Modifies)

32012R0923 amends, implicitly repeals Commission Implementing Regulation (EU) No 923/2012 of 26 September 2012 laying down the common rules of the air and operational provisions regarding services and procedures in air navigation and amending Implementing Regulation (EU) No 1035/2011 and Regulations (EC) No 1265/2007, (EC) No 1794/2006, (EC) No 730/2006, (EC) No 1033/2006 and (EU) No 255/2010 Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32008R0216 based on Regulation (EC) No 216/2008 of the European Parliament and of the Council of 20 February 2008 on common rules in the field of civil aviation and establishing a European Aviation Safety Agency, and repealing Council Directive 91/670/EEC, Regulation (EC) No 1592/2002 and Directive 2004/36/EC Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32006R0730 repeals Commission Regulation no 730/2006 of 11 May 2006 on airspace classification and access of flights operated under visual flight rules above flight level 195 Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
32004R0551 based on Regulation 551/2004 of the European Parliament and of the Council of 10 March 2004 on the organisation and use of the airspace in the Single European Sky Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

Flokkun (Classifications)