32020R1054
Regulation (EU) 2020/1054 of the European Parliament and of the Council of 15 July 2020 amending Regulation (EC) No 561/2006 as regards minimum requirements on maximum daily and weekly driving times, minimum breaks and daily and weekly rest periods and Regulation (EU) No 165/2014 as regards positioning by means of tachographs
Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/1054 frá 15. júlí 2020 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 561/2006 að því er varðar lágmarkskröfur um daglegan og vikulegan hámarksaksturstíma, lágmarksvinnuhlé og daglegan og vikulegan hvíldartíma og reglugerð (ESB) nr. 165/2014 að því er varðar staðarákvörðun með aðstoð ökurita
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 13 Flutningar, 13.02 Flutningar á vegum |
| Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 078/2022 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Með gerðinni á að bæta vinnuskilyrði atvinnu bílstjóra með því að gera gildandi reglur um hvíldartíma, ökurita o.fl. skýrari. Kostnaður óverulegur fyrir Samgöngustofu en gæti verið einhver fyrir lögregluna.
Nánari efnisumfjöllun
Markmið sem að er stefnt: Með gerðinni á að bæta vinnuskilyrði atvinnu bílstjóra með því að gera gildandi reglur um hvíldartíma, ökurita o.fl. skýrari.
Aðdragandi: Góð vinnuskilyrði bílstjóra og sanngjörn skilyrði fyrir fyrirtæki sem stunda flutninga á vegum eru afar mikilvæg til að skapa örugga, skilvirka og samfélagslega ábyrga flutninga. Því er nauðsynlegt að tryggja að fyrirtækjum sé ekki mismunað.
Misræmi í beitingu ákvæða reglugerðar nr. 561/2006/EB er komin til vegna þess að reglurnar eru óskýrar. Af þeim sökum er meðal annars lagt til að skýra betur undanþágur frá gildisviði reglugerðar 561/2006 um flutninga sem ekki eru í atvinnuskyni. Reglurnar um hvíldartíma henta t.d. illa ökumönnum sem aka í teymi. Því þarf að útfæra þær nánar svo þær þjóni öllum og nái tilgangi sínum, þ.e. að tryggja öryggi og heilsu ökumanna.
Núgildandi reglur um hvíldartíma auka einnig á fjarveru ökumanna frá heimili sínu og því er verið að breyta reglunum þannig að þær verði sveigjanlegri. Sem dæmi geta ökumenn vöruflutningabifreiða ekið meira eina viku að því tilskyldu að þeir hvílist meira þá næstu. Hvorki verður heimilt að taka þær hvíldar lotur sem reglugerðin kveður á um og eru lengstar í bílnum né á bílastæði. Þær verður að taka á viðeigandi gististað. Framkvæmdastjórnin þarf að gera þannig kröfur til bílastæða fyrir flutningabíla að þau séu af háum gæðum auk þess að mikið öryggi ríki.
Að því er fram kemur í leiðbeiningum með Trans European Networks – Transport, TEN-T, áætlun Evrópusambandsins er sett fram sú framtíðarsýn gera eigi bílastæði fyrir ökumenn stærri bíla á 100 km fresti.
Þá vill Evrópusambandið að núverandi ökutæki sem notuð eru til flutninga innan sambandsins verði búinn snjall-ökuritum innan hæfilegs tíma.
Efnisútdráttur:
Með 1. gr. er breytt reglugerð nr. 561/2006/EB. Verið að skýra hvaða hluti flutninga er utan gildisviðs reglugerðarinnar. Einnig er verið að skýra betur hvaða svigrúm er í sambandi við hvíldartíma þegar tveir ökumenn vinna saman sem teymi. Skýrðar eru þær reglur sem gilda um hvíldartímann þegar litið er til tveggja vikna vinnu lota í senn. Heimilaður er minni hvíldartíma í ákveðnum tilvikum ef um alþjóðlegan flutning er að ræða.
8. gr. er skipt út fyrir grein þar sem kveðið er á um reglulega hvíldartíma í hverri viku. Þá er kveðið á um aðra hvíldartíma sem taka þarf í hverri viku til að bæta upp skort á hvíld í vikunni á undan og eiga að vara lengur en 45 klst. Þar er jafnframt kveðið á um þá breytingu að sú hvíld má ekki fara fram í ökutækinu sjálfu. Hvíldin þarf að eiga sér stað á viðeigandi gististað. Með viðeigandi gististað er meðal annars átt við stað þar sem gert er ráð fyrir aðstöðu fyrir bæði karla og konur. Allur kostnaður sem fellur til vegna gistingar utan ökutækisins lendir á vinnuveitandanum.
Framkvæmdastjórnin á að tryggja aðgang að öruggum bílastæðum eða hvíldarstæðum þar sem ökumenn fái aðgang að öllum helstu nauðsynjum og á listi með slíkum stæðum að vera aðgengilegur á sameiginlegri vefsíðu sem er reglulega uppfærð.
1. mgr. 10. gr. er skipt út fyrir aðra grein þar sem kveðið er á um að flutningsaðila sé hvorki heimilt að umbuna ökumönnum fyrir ekna vegalengd, hraða í flutningum né magn.
Aðildarríkin mega veita undanþágu frá þessum reglum sé þörf á. Slíkar undanþágur þurfa að vera vel rökstuddar og ekki veittar lengur en til 30 daga. Tilkynna þarf slíkar undanþágur til framkvæmdastjórnarinnar. Í tilviki EFTA ríkjanna er það Eftirlitsstofnun EFTA.
Aðildarríkin eiga að setja reglur um viðurlög vegna brota á þessari reglugerð og reglugerð nr. 165/2014. Aðildarríkin skulu upplýsa framkvæmdastjórnina, Í tilviki EFTA ríkjanna er það Eftirlitsstofnun EFTA.
Gerð er aukin krafa um snjall-ökurita, sér í lagi þegar keyrt er á milli landa og yfir landamæri.
Þá er ný 7. gr. komin inn sem fjallar um verndun gagna.
Umsögn: helstu breytingar, mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Samgöngustofa gefur út ökumannskort en hefur ekki um eftirlit með ökuritum. Lögreglan fer með vegaeftirlit. Þessar breytingar hafa væntanlega í för með sér aukinn kostnað fyrir aðila sem stunda flutninga og þurfa að nota ökurita. Ekki er um að ræða aukinn kostnað fyrir Samgöngustofu nema við uppfærslu á kennsluefni. Þá þarf að bera þessa gerð undir Vegagerðina vegna ákvæðis um gististaði á 100 km fresti á hraðbrautum og lögregluna vegna vegaeftirlits.
Þessar upplýsingar sem eiga að vera aðgengilegar á sameiginlegri vefsíðu þyrftu væntanlega að vera hjá lögreglu. Aðildarríkin eiga að setja reglur um viðurlög vegna brota á þessari reglugerð og upplýsa ESA um þessar reglur og aðgerðir en vegaeftirlit lögreglu þarf að svara fyrir þá framkvæmd.
Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Breyta þarf umferðarlögum þar sem breyta þarf gildissviði. Gerðin á við bifreiðar allt niður í 2,5 tonn. Fyrri gerð tók eingöngu til bifreiða niður í 3,5 tonn.
Innleitt í reglugerð um um aksturs- og hvíldartíma ökumanna, notkun ökurita og eftirlit nr. 605/2010.
Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitar-félaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Mögulegur kostnaður hjá lögreglu og Vegagerðinni og hjá Samgöngustofu við uppfærslu á kennsluefni.
Skörun við starfssvið annarra ráðuneyta: Skörun við starfssvið lögreglunnar/vegaeftirlitið og Vegagerðina.
Tilgreining á hagsmunaaðilum: Ökurita verkstæði, Skoðunarstofur, flutningsaðilar sem nota ökurita og þurfa að uppfæra búnað, lögregla, Vegagerðin.
Horizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES:
Þörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: Tilkynningar sem eiga að fara til framkvæmdastjórnarinnar eiga að fara til ESA.

Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Já |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
| Sent til Alþingis |
Innleiðing
| Innleiðing | Lagasetning/lagabreyting |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Breyta þarf umferðarlögum vegna breytinga á gildissviði. Innleitt í reglugerð um um aksturs- og hvíldartíma ökumanna, notkun ökurita og eftirlit nr. 605/2010. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur | Hugsanlegur kostnaður fyrir lögregluna |
|---|---|
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Aukakostnaður |
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Innviðaráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Samgöngustofa |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32020R1054 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 249, 31.7.2020, p. 1 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| COM numer | COM(2017) 277 |
|---|---|
| Dagsetning tillögu ESB | |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Stjórnskipulegum fyrirvara aflétt (Ísland) | |
|---|---|
| Stjórnskipulegum fyrirvara aflétt (Noregur) |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
|---|---|
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 45, 7.7.2022, p. 53 |
| Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L 182, 7.7.2022, p. 65 |
Staða innleiðingar samkvæmt ESA
| Staða innleiðingar á Íslandi samkvæmt ESA | Rauð: ESA hefur ekki móttekið Form 1 |
|---|
Breytt af (Modified by)
| 32020C0731(01) | work related to work |
Breytir (Modifies)
| COM(2017) 277 52017PC0277 |
adopts | Regulation (EU) 2020/1054 of the European Parliament and of the Council of 15 July 2020 amending Regulation (EC) No 561/2006 as regards minimum requirements on maximum daily and weekly driving times, minimum breaks and daily and weekly rest periods and Regulation (EU) No 165/2014 as regards positioning by means of tachographs | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 32014R0165 | amends | Regulation (EU) No 165/2014 of the European Parliament and of the Council of 4 February 2014 on tachographs in road transport, repealing Council Regulation (EEC) No 3821/85 of the European Parliament and of the Council on recording equipment in road transport and amending Regulation (EC) No 561/2006 of the European Parliament and the Council on the harmonisation of certain social legislation relating to road transport | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 32006R0561 | amends | Regulation (EC) No 561/2006 of the European Parliament and of the Council of 15 March 2006 on the harmonisation of certain social legislation relating to road transport and amending Council Regulations (EEC) No 3821/85 and No 2135/98 and repealing Council Regulation 3820/85 | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 12016E091 | based on |