32018R0213
Commission Regulation (EU) 2018/213 of 12 February 2018 on the use of bisphenol A in varnishes and coatings intended to come into contact with food and amending Regulation (EU) No 10/2011 as regards the use of that substance in plastic food contact materials
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/213 frá 12. febrúar 2018 um notkun á bisfenóli A í lökk og yfirborðsmeðferðarefni sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli og um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 10/2011 að því er varðar notkunina á því efni í efnivið úr plasti sem kemst í snertingu við matvæli
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
|---|---|
| Tegund gerðar | Reglugerð |
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.12 Matvæli |
| Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 136/2018 |
| Samþykktardagur ákvörðunar sameiginlegu nefndarinnar | |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/213 um breytingu og leiðréttingu á reglugerð (ESB) nr. 10/2011 um efnivið og hluti úr plasti sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli.
Nánari efnisumfjöllun
Gerðin varðar breytingar á reglugerð (ESB) nr. 10/2011 um efnivið og hluti úr plasti sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli.
Reglugerð 10/2011 setur sérstakar reglur um plast sem ætlað er til snertingar við matvæli. Reglugerðinni fylgir skrá Evrópusambandsins yfir efni sem leyfilegt er að nota við framleiðslu á plasti.
Í reglugerð 2018/213 er kveðið á um eftirfarandi breytingar á rg. 10/2011:
1. Breyting á sértækum flæðimörkum (SML) fyrir bisfenól A (BPA) í plasti. Flæðimörk fyrir BFA eru lækkuð úr 0,6 mg/kg matvæli í 0,05 mg/kg matvæla.
2. Nýtt ákvæði - sett eru flæðimörk fyrir BPA úr lökkum og yfirborðsmeðhöndlunarefnum sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli, t.d. lakk á niðursuðudósum. Sértæk flæðimörk eru 0,05 mg/kg matvæla.
3. Nýtt ákvæði - BPA skal ekki flæða frá lakki og yfirborðsmeðhöndlunarefnum matvælasnertiefna sem ætlað er börnum og ungbörnum, eins og skilgreint er í reglugerð (ESB) nr. 609/2013.
BPA er notað sem einliða í framleiðslu á polycarbonat plasti og í lökk og yfirborðsmeðhöndlunarefni sem notuð eru m.a. inni í niðursuðudósir. EFSA hefur nokkrum sinnum gert áhættumat á BPA. EFSA hefur nú endurskoðað áhættumatið og gefið út nýtt viðmiðunargildi fyrir þolanlega daglega inntöku (TDI) á bisfenol A.
Ný sértæk flæðimörk (SML) eru sett í samræmi við þetta gildi og einnig er tekið tillit til að BPA getur borist eftir öðrum leiðum en frá matvælasnertiefnum, s.s. hitanæmum pappír (kassastrimlum). Því hefur verið ákveðið að einungis 20% af TDI megi koma frá matvælasnertiefnum.
Bisfenol A er í dag bannað að nota í pela sem gerðir eru úr polycarbonat plasti. Þetta er gert í samræmi við varrúðarregluna.
Af sömu ástæðu hefur nú verið ákveðið að þetta bann gildi einnig um flæði á BPA frá lökkum og yfirborðsmeðhöndlunarefnum sem notuð eru í matvælasnertiefni sem er ætlað börnum.

Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Á ekki við |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Reglugerðin verður innleidd sem breytingarreglugerð við reglugerð nr. 374/2012 og með stoð í lögum nr. 93/1995 um matvæli. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Enginn |
|---|
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Atvinnuvegaráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Matvælastofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32018R0213 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 41, 14.2.2018, p. 6 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| Dagsetning tillögu ESB | |
|---|---|
| C/D numer | D052935/03 |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
|---|---|
| Samþykktardagur | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 13, 25.2.2021, p. 24 |
| Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L 67, 25.2.2021, p. 24 |
Staða innleiðingar samkvæmt ESA
| Staða innleiðingar á Íslandi samkvæmt ESA | Græn: Innleitt |
|---|---|
| Viðeigandi lög/reglugerði |
Breytt af (Modified by)
| 32024R3190 | repeals | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
Breytir (Modifies)
| 32011R0010 | amends | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
Lagagrundvöllur (Legal basis)
Acts, treaties and agreements this act is based on, according to EUR-Lex.
| 32004R1935 | Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1935/2004 frá 27. október 2004 um efni og hluti sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli og niðurfellingu á tilskipunum 80/590/EBE og 89/109/EBE Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
Flokkun (Classifications)
| EUROVOC | plastics, health control, foodstuff, toxic substance, health risk, market approval, food safety, packaging product, organic chemical |
|---|---|
| Subject matter | Foodstuffs, Consumer protection |