32018R0981

Commission Implementing Regulation (EU) 2018/981 of 11 July 2018 amending the list of Brazilian establishments from which imports into the Union of fishery products intended for human consumption are permitted


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
Finna má upplýsingar um stöðu gerðar neðar

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB-gerð á sviði dýraheilbrigðismála tekin upp í EES-samninginn með einfaldaðri málsmeðferð
Svið (EES-samningur, viðauki) 01 Heilbrigði dýra og plantna, 01.01 Dýr

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Reglugerð (ESB) 2018/981, breytir skránni yfir starfsstöðvar sem um getur í 12. gr. reglugerðar (EB) nr. 854/2004, þannig að fjarlægðar eru allar færslur yfir starfsstöðvar í Brasilíu þaðan sem innflutningur til Sambandsins á lagarafurðum, sem eru ætlaðar til manneldis, er leyfður.

Nánari efnisumfjöllun

Í reglugerð (EB) nr. 854/2004 er mælt fyrir um sértækar reglur um skipulag opinbers eftirlits með afurðum úr dýraríkinu. Er m.a. kveðið á um að einungis megi flytja afurðir úr dýraríkinu inn til Sambandsins ef þær eru upprunnar frá starfsstöðvum í þriðju löndum sem er að finna í skrám sem samdar eru og uppfærðar í samræmi við þá grein. Reglugerðin gerir þá kröfu að slíkar starfsstöðvar séu einungis færðar inn í þessar skrár ef lögbær yfirvöld þriðja landsins ábyrgjast þessar starfsstöðvar, ásamt öllum starfsstöðvum sem meðhöndla hráefni úr dýraríkinu sem er notað við framleiðslu á viðkomandi afurðum úr dýraríkinu, fari að viðeigandi kröfum Sambandsins.

Eftirlitsúttekt framkvæmdastjórnarinnar í Brasilíu í september 2017 leiddi í ljós tiltekna annmarka er varða frumframleiðslustöðvar, sem afhenda til starfsstöðva í Brasilíu þaðan sem innflutningur á lagarafurðum er leyfður, eru ekki auðkenndar og falla ekki undir opinbert eftirlit.

Af þeim sökum var niðurstaða úttektarinnar að lögbært yfirvald í Brasilíu væru hvorki í aðstöðu til að leggja fram þær ábyrgðir sem settar eru fram í reglugerð (EB) nr. 854/2004, né gæti það lagt fram allar þær ábyrgði sem um getur í heilbrigðisvottorði fyrir lagarafurðir sem mælt er fyrir um í viðbæti við reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 2074/2005. Auk þessa leiddi úttektin í ljós alvarlega annamarka að því er varðar innviði og kröfur um hollustuhætti í fjölmörgum starfsstöðvum í Brasilíu sem voru skoðaðar, þaðan sem innflutningur á lagarafurðum er leyfður.

Þrátt fyrir að Brasilísk yfirvöld hafi upplýst framkvæmdastjórnina í svari við tilmælum þeim er fram komu í bráðabirgðaeftirlitsskýrslunni að þau hefðu stöðvað tímabundið útgáfu heilbrigðisvottorða fyrir allar lagarafurðir sem eru ætlaðar til útflutnings til Sambandsins (frá og með 3. janúar 2018), komu tilkynningar frá aðildarríkjunum til framkvæmdastjórnarinnar um að sendingar af lagarafurðum sem eru upprunnar í Brasilíu hafi verið framvísað á landamærum Sambandsins ásamt vottorðum sem gefin voru út eftir dagsetningu vegna tímabundinnar stöðvunar.

Í ljósi þessara atriða og meðan nýjar upplýsingar frá yfirvöldum í Brasilíu hafa ekki borist eru engar fullnægjandi tryggingar fyrir því að neinar þessara stöðva, sem hafa leyfi til að flytja lagarafurðir inn til Sambandsins frá Brasilíu uppfylli skilyrði reglugerðar (EB) nr. 854/2004 og því skapa afurðir þeirra áhættu fyrir lýðheilsu. Því eru allar þessar starfsstöðvar í Brasilíu fjarlægðar af skránni og missa þær leyfi til útflutnings til Sambandsins.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Á ekki við
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Á ekki við
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Reglugerðin er innleidd sem ný reglugerð með heimild í lögum nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Enginn

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Atvinnuvegaráðuneyti
Ábyrg stofnun Matvælastofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32018R0981
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 176, 12.7.2018, p. 11
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D057092/01
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB