32018R2005

Commission Regulation (EU) 2018/2005 of 17 December 2018 amending Annex XVII to Regulation (EC) No 1907/2006 of the European Parliament and of the Council concerning the Registration, Evaluation, Authorisation and Restriction of Chemicals (REACH) as regards bis(2-ethylhexyl) phthalate (DEHP), dibutyl phthalate (DBP), benzyl butyl phthalate (BBP) and diisobutyl phthalate (DIBP)


iceland-flag
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/2005 frá 17. desember 2018 um breytingu á XVII. viðauka (viðvíkjandi bis(2-etýlhexýl)þalati (DEHP), díbútýlþalati (DBP), bensýlbútýlþalati (BBP) og díísóbútýlþalati (DIBP)) við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH))
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 066/2019
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

51. færsla í XVII. viðauka REACH inniheldur í dag takmarkanir á innihaldi tiltekinna þalata (DEHP, DBP og BBP) í leikföngum og hlutum til umönnunar barna. Í þessum drögum er færslunni skipt út fyrir nýja.

Nánari efnisumfjöllun

Helstu breytingar eru:
• Þalatinu DIBP er bætt við færsluna þar sem sambærileg áhætta fylgir notkun þess og hinna þalatanna og það kann að vera notað í stað DBP í leikföngum og hlutum til umönnunar barna.
• Styrkmörk, sem áður voru 0,1 % á efni, eru þrengd í 0,1 % samanlagt af massa plastefnis (skilgreint nánar í færslunni) í hlutnum.
• Takmarkanirnar taka nú til allra hluta í skilningi REACH, ekki aðeins leikfanga og hluta til umönnunar barna. Veittar eru undanþágur vegna hluta sem eingöngu eru ætlaðir til notkunar í iðnaði eða landbúnaði eða sem aðeins eru notaðir utandyra, að því gefnu að plastefni hlutarins komi ekki í snertingu við slímhúð eða langvarandi snertingu (skilgreint nánar í færslunni) við húð fólks. Að auki eru veittar undanþágur vegna notkunar í loftför, bíla, mælitæki til notkunar á tilraunastofum, lækningatæki og fleira.

Reglugerðin tekur gildi á 20. degi eftir birtingu hennar í stjórnartíðindum Evrópusambandsins.

Gildistöku tiltekinna ákvæða er frestað, ýmist um 18 mánuði eða 60 mánuði frá gildistöku gerðarinnar, til að gefa iðnaðinum færi á að bregðast við hertum reglum.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Alþingi hefur lokið mati sínu Á ekki við
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Breyta þarf reglugerð nr. 888/2015. Lagastoð er í í 1. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfis- og orkustofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32018R2005
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 322, 18.12.2018, p. 14
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D057230/02
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 44, 2.7.2020, p. 36
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 210, 2.7.2020, p. 32

Staða innleiðingar samkvæmt ESA