32019R0343

Commission Regulation (EU) 2019/343 of 28 February 2019 providing derogations from Article 1(3) of Regulation (EC) No 1924/2006 of the European Parliament and of the Council on nutrition and health claims made on food for the use of certain generic descriptors


iceland-flag
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/343 frá 28. febrúar 2019 um undanþágur frá 3. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1924/2006 um næringar- og heilsufullyrðingar er varða matvæli vegna notkunar á tilteknum almennum lýsingum
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.12 Matvæli
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 150/2019
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu Já

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/343 um undanþágu frá grein 1(3) í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1924/2006 frá 20. desember um næringar- og heilsufullyrðingar er varðar almennar lýsingar.

Nánari efnisumfjöllun

Gerðin varðar reglugerð (EB) nr. 1924/2006 um næringar og heilsufullyrðingar, einkum greinar 1(3) og 1(4) þeirrar reglugerðar.

Samkvæmt reglugerð 1924/2006 er sérhver fullyrðing þar sem er fullyrt, látið að því liggja eða gefið í skyn að tengsl séu milli tiltekins matvælaflokks, tiltekinna matvæla eða eins af innihaldsefnum þeirra og heilbrigðis talin heilsufullyrðing og lýtur því ákvæðum reglugerðarinnar.

Í 4. mgr. 1. gr. reglugerðar (EB) nr. 1924/2006 er kveðið á um hugsanlega undanþágu frá ákvæðum 3. mgr. 1. gr. þeirrar reglugerðar fyrir almennar lýsingar sem eru venjulega notaðar til að gefa til kynna sérstaka eiginleika fyrir flokk matvæla eða drykkja og sem gæti gefið til kynna áhrif á heilbrigði manna.

Stjórnandi matvælafyrirtækis getur sent umsókn um heiti sem nota skal sem almenna lýsingu til lögbærs yfirvalds viðkomandi aðildarríkis sem framsendir hana tafarlaust til framkvæmdastjórnarinnar og allra aðildarríkja EB. Þau ríki sem umsóknin snertir skulu senda framkvæmdastjórninni umsögn sína.

Þegar framkvæmdastjórnin hefur móttekið gilda umsókn og umsagnir aðildarríkja getur hún samþykkt almenna lýsingu í samræmi við ákvæði reglugerðar 1924/2006.

Framkvæmdastjórn EB, hefur á árunum 2015 og 2017 móttekið umsóknir um notkun á almennum lýsingum frá aðildarríkjunum.

Umsóknirnar varða, í fyrsta lagi, ýmsar gerðir af hálsbrjóstsykri, hálstöflum og hóstasaft frá Austurríki, Þýskalandi og Finnlandi. Sótt er um leyfi fyrir almennu lýsingunum: Brust-Caramellen, Hustenbonbon, Halsbonbon, Hustenmischung, Hustenperle, Hustenstopper, Hustenzuckerl, Cough drops, Hoestbonbon, Keelpastille, Rebuçados para a tosse, Kurkkupastilli, Halspastill og Hustensirup.

Álit umsagnaraðila staðfestu að hefð væri fyrir notkun þessara heita í viðkomandi löndum og að ekki væri gefið í skyn að þessi tegund matvæla hafi áhrif á heilsu og að það væri jafnframt að skilningur hins almenna neytenda.

Því samþykkti framkvæmdastjórnin að veita undanþágu frá reglugerð 1924/2006 og leyfi fyrir þessum almennu lýsingum.

Í öðru lagi umsóknir frá Bretlandi og Rúmeníu varðandi gosdrykki sem innihalda beiska efnið quinine í formi eftirfarandi bragðefna FL 14.011, FL 14.152 eða 14.155 skv. bragefnalista reglugerðar um bragðefni nr. 1334/2008. Sótt er um leyfi fyrir heitinu tonic (Enska) í samsettum nöfnum s.s. tonic water og sambærilegra nafn á öðrum tungumálum: Tоник, tonik, tónica, tonica og tonică.

Álit umsagnaraðila staðfestu að hefð væri fyrir notkun heitanna í þessum löndum og að ekki væri gefið í skyn að þau hafi áhrif á heilsu og að það væri jafnframt að skilningur hins almenna neytenda.

Því samþykkti framkvæmdastjórnin að veita undanþágu frá reglugerð 1924/2006 og leyfi fyrir þessum almennu lýsingum í öllum aðildarríkjum EB.

Loks umsókn frá Ítalíu um notkun á almennu heiti fyrir tiltekna tegund af bökunarvöru (kexi) Biscotto salute.

Álit umsagnaraðila staðfestir að hefð sé fyrir notkun heitisins á Ítalíu sem almenn lýsing á tiltekinni gerð bökunarvöru og að ekki væri gefið í skyn að það hafi áhrif á heilsu og að það væri jafnframt að skilningur hins almenna neytenda.

Því samþykkti framkvæmdastjórnin að veita undanþágu frá reglugerð 1924/2006 og leyfi fyrir þessu heiti sem almennri lýsingu.

Almennar lýsingar sem er að finna í viðauka við þessa reglugerð eru undanþegnar ákvæðum 3. mgr. 1. gr. reglugerðar (EB) nr. 1924/2006 samkvæmt þeim skilyrðum sem sett eru í viðaukanum.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Á ekki við
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Já

Innleiðing

Innleiðing Engar laga- eða reglugerðabreytingar
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Reglugerðin verður innleidd sem breyting á reglugerð nr. 406/2010 um gildistöku reglugerðar Evrópusambandsins nr. 1924/2006 um næringar- og heilsufullyrðingar er varða matvæli, og með stoð í lögum um matvæli nr. 93/1995, með síðari breytingum.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Atvinnuvegaráðuneyti
Ábyrg stofnun Matvælastofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32019R0343
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 62, 1.3.2019, p. 1
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D058835/02
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 74, 10.11.2022, p. 27
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L 291, 10.11.2022, p. 26

Staða innleiðingar samkvæmt ESA

Staða innleiðingar á Íslandi samkvæmt ESA Græn: Innleitt
Viðeigandi lög/reglugerði

Breytir (Modifies)

32006R1924 based on, derogates Regulation (EC) No 1924/2006 of the European Parliament and of the Council of 20 December 2006 on nutrition and health claims made on foods Tekin upp í EES-samninginn og í gildi