Innleiðingar breytinga á gerð samevrópskra hagtalna um orku - 32019R2146

Commission Regulation (EU) 2019/2146 of 26 November 2019 amending Regulation (EC) No 1099/2008 of the European Parliament and of the Council on energy statistics, as regards the implementation of updates for the annual, monthly and short-term monthly energy statistics


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun hjá ESB og EFTA-ríkjunum innan EES
Svið (EES-samningur, viðauki) 21 Hagskýrslugerð

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Reglugerðin felur í sér breytingu á reglugerð (EB) nr.1099/2008 um samevrópskar hagtölur um orku. Helstu breytingarnar með gerðinni felast í frekari sundurliðun á endanlegri orkunotkun í iðnaðargeira og breytingu á fresti fyrir skilum mánaðarlegrar tölfræði yfir fast jarðefnaeldsneyti (kol) og raforku. Í fyrri útgáfu gerðarinnar var frestur fyrir skilum innan þriggja mánaða frá viðmiðunarmánuði, en í þessari útgáfu er fresturinn lækkaður í tvo mánuði.  

Nánari efnisumfjöllun

 Helstu áhrif gerðarinnar felast í því að kynntur er spurningalisti fyrir ítarlega sundurliðun á endanlegri orkunotkun fyrir mismunandi geira. Gerðin hefur aðallega í för með sér kröfu um frekari sundurliðun á orkunotkun iðnaðargeirans. Helstu áhrif gerðarinnar eru því að Ísland þyrfti að sundurliða frekar endanlega orkunotkun iðnaðargeirans og skila sérstökum spurningalista um endanlega orkunotkun þar sem ítarlegri upplýsingar koma fram en í árlegu orkuvörulistunum (kol, raforka o.s.frv.).  Ákveðnar undanþágur fengust hvað varðar nokkra flokka orkugjafa sem lítið sem ekkert eru í notkun á Íslandi og muni skila sáralitlum niðurstöðum og munu ekki mæta innlendum þörfum. Þetta eru árleg tölfræði yfir jarðgas og kjarnorku, mánaðarleg tölfræði yfir fast jarðefnaeldsneyti (kol) og jarðgas, og skammtíma tölfræði varðandi birgðastöðu hráolíu.   Ástæðurnar að baki þeirra liggur í því að þessir orkugjafar; jarðgas, kjarnorka og kol eru í mjög takmarkaðri notkun á Íslandi. Varðandi mánaðarleg skil um birgðastöðu hráolíu myndu gögn einnig skila litlu þar sem engin hráolía er unnin á Íslandi og aðeins er flutt inn lítið magn. Einnig er Ísland algerlega einangrað frá orkudreifikerfi Evrópu og hafa því minni merkingu fyrir evrópska notendur.  

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Alþingi hefur lokið mati sínu Á ekki við
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Uppfæra þarf reglugerð nr. 777/2016 um gildistöku og innleiðingu tiltekinna gerða Evrópusambandsins á sviði hagskýrslugerðar en gerðin á sér stoð í lögum 163/2007 um Hagstofu Íslands og opinbera hagskýrslugerð
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur Kostnaður við gerð evrópskar orkutölfræði fellur á Hagstofu Íslands. Nánari greiningu á þeim kostnaði má sjá í umfjöllun um gerð 32016R1952 um evrópska verðlagstölfræði orku.
Áætlaður kostnaður hins opinbera Aukakostnaður

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Forsætisráðuneytið
Ábyrg stofnun Hagstofa

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32019R2146
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 325, 16.12.2019, p. 43
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar