Innleiðingarreglugerð um evrópska fyrirtækjatölfræði 2020 - 32020R1197

Commission Implementing Regulation (EU) 2020/1197 of 30 July 2020 laying down technical specifications and arrangements pursuant to Regulation (EU) 2019/2152 of the European Parliament and of the Council on European business statistics repealing 10 legal acts in the field of business statistics


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn
Svið (EES-samningur, viðauki) 21 Hagskýrslugerð

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Þetta er innleiðingarreglugerð við reglugerð (EU) 2019/2152 um evrópska fyrirtækjatölfræði (FRIBS). Reglugerðin útfærir tæknilega framkvæmd grunnreglugerðarinnar og skilgreinir nánar þær breytur, flokkanir, gagnaskil, skilafresti, gæðakröfur og tæknilega staðla sem þarf að fylgja við framleiðslu fyrirtækjatölfræði innan Evrópska hagskýrslukerfisins. Helstu breytingar frá eldra fyrirkomulagi eru að nú er sameiginlegt og samræmt tæknilegt regluverk sett fyrir nær alla fyrirtækjatölfræði innan Evrópska hagskýrslukerfisins. Með reglugerðinni eru eldri framkvæmdarreglugerðir felldar úr gildi og sameinaðar í eitt umfangsmikið tæknilegt regluverk. Auk þess eru ítarlegar tæknilegar kröfur um utanríkisverslun og þjónustuviðskipti þar sem skilgreind eru nákvæm gagnaskil, lágmarksþekja og verklag við skipti á gögnum milli aðildarríkja. Gerðin mun fera í sér aukinn kostnað fyrir Hagstofu Íslands við framleiðslu fyrirtækjatölfræði.

Nánari efnisumfjöllun

Innleiðingarreglugerðin er mjög umfangsmikil og felur í sér ítarlegar tæknilegar kröfur um: Skammtímahagstærðir fyrirtækja (Short-term business statistics) Árlega fyrirtækjatölfræði og lýðfræði fyrirtækja Tölfræði um rannsóknir og þróun (R&D) Tölfræði um nýsköpun og upplýsingatækni Tölfræði um alþjóðaviðskipti með vörur og þjónustu Tölfræði um erlent eignarhald og fjölþjóðafyrirtæki Svæðisbundna fyrirtækjatölfræði Fyrirtækjaskrá til hagskýrslugerðar og EuroGroups Register  Reglugerðin skilgreinir jafnframt í smáatriðum: Hvaða breytur skuli safna og miðla Hvaða atvinnugreinar og flokkanir skuli notaðar (NACE, CPA, MIGs) Viðmiðunartímabil og skilafresti Gæðaskýrslur og metadata SDMX staðla fyrir gagnaskil Reglur um trúnað og örugg gagnaskipti Skipti á micro-gögnum milli landa og við Eurostat  Innleiðingarreglugerðin er mjög umfangsmikil og felur í sér ítarlegar tæknilegar kröfur um: Skammtímahagstærðir fyrirtækja (Short-term business statistics) Árlega fyrirtækjatölfræði og lýðfræði fyrirtækja Tölfræði um rannsóknir og þróun (R&D) Tölfræði um nýsköpun og upplýsingatækni Tölfræði um alþjóðaviðskipti með vörur og þjónustu Tölfræði um erlent eignarhald og fjölþjóðafyrirtæki Svæðisbundna fyrirtækjatölfræði Fyrirtækjaskrá til hagskýrslugerðar og EuroGroups Register  Reglugerðin skilgreinir jafnframt í smáatriðum: Hvaða breytur skuli safna og miðla Hvaða atvinnugreinar og flokkanir skuli notaðar (NACE, CPA, MIGs) Viðmiðunartímabil og skilafresti Gæðaskýrslur og metadata SDMX staðla fyrir gagnaskil Reglur um trúnað og örugg gagnaskipti Skipti á micro-gögnum milli landa og við Eurostat  Auknar kröfur eru gerðar um: Gæði og samræmingu fyrirtækjaskrár Skráningu fyrirtækjahópa og eignatengsla Samræmda auðkenningu fyrirtækja  Reglugerðin er nauðsynleg tæknileg útfærsla á grunnreglugerð (EU) 2019/2152 og er lykilþáttur í samræmingu og nútímavæðingu evrópskrar fyrirtækjatölfræði. Upptaka hennar í EES-regluverk mun styrkja samræmingu fyrirtækjatölfræði, bæta gæði hagtalna og efla samhæfingu við þjóðhagsreikninga og aðra hagtöluframleiðslu. Þó er mikilvægt að Ísland haldi áfram að leggja áherslu á meðalhóf í gagnakröfum og taki mið af smæð hagkerfisins við upptöku og framkvæmd reglugerðarinnar, sérstaklega hvað varðar: svarbyrði fyrirtækja, svæðisbundna tölfræði, tíðni ICT rannsókna, tæknilega framkvæmd gagnaskila, og skilgreiningar fyrirtækjahópa. Jafnframt er mikilvægt að tryggja að eldri EES-aðlaganir og undanþágur varðandi fyrirtækjatölfræði haldi gildi sínu eftir upptöku nýrrar fyrirtækjatölfræði í EES.Samræmingu við þjóðhagsreikninga Skipti á trúnaðargögnum milli landa 

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Alþingi hefur lokið mati sínu Á ekki við
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Uppfæra þarf reglugerð nr. 777/2016 um gildistöku og innleiðingu tiltekinna gerða Evrópusambandsins á sviði hagskýrslugerðar en gerðin á sér stoð í lögum 163/2007 um Hagstofu Íslands og opinbera hagskýrslugerð
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing í vinnslu

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur Reglugerðin fjallar um framkvæmd reglugerðar (EB) 2019/2152 og er kostnaður við þá gerð nátengdur þessari. Sú gerð og þessi nær til fjölbreyttrar fyrirtækjatölfræði og felur í sér endurhönnun á fyrirtækjatölfræði þannig að tekið sé mið af rekstrarumhverfi samtímans. Fyrirtækjatölfræðin, byggð á rammareglugerðinni, veitir upplýsingar um uppbyggingu, efnahagslega starfsemi og afkomu fyrirtækja, ásamt rannsókna- og þróunarstarfsemi þeirra og nýsköpun. Einnig eru birtar tölur um notkun upplýsinga- og fjarskiptatækni (ICT) og rafræn viðskipti, sem og um þátttöku í alþjóðlegum virðiskeðjum. Þá nær fyrirtækjatölfræði yfir framleiðslu á iðnaðarvörum og þjónustu, alþjóðaviðskipti með vörur og þjónustu, auk grunninnviða tölfræði á borð við landsbundnar fyrirtækjaskrár og evrópskrar fyrirtækjaskrár. Þessi tölfræði er mikilvæg fyrir stefnumótendur og aðra notendur sem byggja ákvarðanatöku og greiningar á gögnum um fyrirtæki og atvinnulíf.

Áskoranir sem tengjast alþjóðavæðingu og starfsemi fjölþjóðlegra fyrirtækjahópa verða sífellt meira íþyngjandi fyrir efnahagstölfræðina og ljóst að byggja þarf upp aukna þekkingu á starfsemi fjölþjóðafyrirtækja. Töluvert vantar upp á gagnaöflun varðandi umsvif erlendra fyrirtækja á Íslandi og útibú íslenskra fyrirtækja erlendis. Nauðsynlegt er að afla gagna árlega beint frá þeim fyrirtækjum sem tilheyra fjölþjóðlegum fyrirtækjahópum samhliða kortlagningu á því hvaða stjórnsýslugögn eru tiltæk fyrir þessa vinnslu. Starfsemi fjölþjóðlegra fyrirtækjahópa hefur einnig bein áhrif inn í þjóðhagsreikninga í gegnum framleiðsluuppgjör og utanríkisviðskipti. Það er því nauðsynlegt að byggja upp meiri þekkingu á þessum viðskiptum.

Efla þarf fyrirtækjaskrá til hagskýrslugerðar til að halda utan um það sem fjallað er um hér að ofan. Bæta þarf upplýsingar um eignarhald fyrirtækja en þær upplýsingar eru ekki til í miðlægri stjórnsýsluskrá. Kortleggja þarf tiltækar upplýsingar um eignarhald íslenskra fyrirtækja, íslensk fyrirtæki í erlendri eigu og erlend fyrirtæki í íslenskri eigu. Ráðast þarf í könnun meðal fyrirtækja tengt eignarhaldi fyrirtækja til að fá betri upplýsingar um dótturfélög erlendis og erlent eignarhald fyrirtækja hérlendis.
Nauðsynlegt er að kortleggja starfsstöðvar fyrirtækja en þær upplýsingar eru ekki tiltækar í dag. Hérlendis væri best að safna þessum upplýsingum með því að koma á fót miðlægri skráningu á starfsstöðvum í stjórnsýsluskrám Skattsins með reglulegri innsöfnun með staðgreiðsluskilum launagreiðenda. Annars þarf að ráðast í þýðisrannsókn hjá fyrirtækjum með starfsemi á fleiri en einum stað.

Forsendur kostnaðarmats
Kostnaðarmat tekur til þess hluta reglugerðarinnar sem ekki er uppfyllt í dag. Það þarf að bæta fyrirtækjaskrá til hagskýrslugerðar þannig að hún geti haldið utan um eignarhald fyrirtækja. Það þarf að efla gagnaöflun til að ná utan um þau gögn sem ekki eru í stjórnsýsluskrám. Einnig þarf að efla greiningar á fjölþjóðlegum fyrirtækjahópum og miðlun upplýsinga um umsvif þessara fyrirtækja.
Gert er ráð fyrir átaki í byrjun við að uppfæra fyrirtækjaskrá þannig að hún haldi utan um þessar viðbótarupplýsingar og varanlegum kostnaður við reglubundnar uppfærslur, gæðaleiðréttingar og eftirlit með skránni. Einnig er gert ráð fyrir varanlegum kostnaði við gagnamál, úrvinnslu, greiningu og miðlun upplýsinga sem fylgir innleiðingu reglugerðarinnar.


Kostnaðarmat
Gert er ráð fyrir 58 m.kr. varanlegum kostnaði við gerð tölfræði fyrirtækja við framleiðslu á þeirri fyrirtækjatölfræði sem (EB) 2019/2152 og (EB) 2020/1197 kveða á um.

Áhrif
Efnahagslegt umhverfi hefur gjörbreyst á síðustu áratugum og mikilvægt að fyrirtækjatölfræði endurspegli áskoranir samtímans. Landamæri hafa orðið óljósari þar sem fjölþjóðafyrirtæki leita leiða til að lágmarka alheimsskattbyrði. Til að tryggja gæði efnahagstölfræði er mikilvægt að auka skýrleika á því hvar efnahagslegt eignarhald liggur þannig að viðkomandi einingar teljist með í tölfræði um efnahag einstakra ríkja.

Haghafar
Stjórnvöld, Seðlabankinn, atvinnulíf, fjárfestar, alþjóðastofnanir, rannsakendur og almenningur.
Áætlaður kostnaður hins opinbera Aukakostnaður

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Forsætisráðuneytið
Ábyrg stofnun Hagstofa

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32020R1197
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 271, 18.8.2020, p. 1
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D067840/01
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB