Útdráttur
Reglugerð (ESB) 2023/857 um breytingu á reglugerð (ESB) 2018/842 og reglugerð (ESB) 2018/1999 sem varða skuldbindingar og uppgjörsreglur vegna losunar á beinni ábyrgð ríkja (e. effort-sharing) frá 2021 til 2030. Í þessari reglugerð um breytingu á reglugerð (ESB) 2018/842, er helsta breytingin að hvert ríki fær nýja og herta kröfu um samdrátt fyrir 2030. Einnig er verið að breyta hversu mikið af AEA heimildum ríkjum er heimilt að „lána“ sjálfu sér milli ára. Með uppfærði reglugerð er verið að rýmka það magn sem ríki mega selja til annarra ríkja. Á tímabilinu 2021-2025 var ríkjum heimilt að millifæra 5% af AEA heimildum til annars ríkis samkvæmt núgildandi reglugerð (ESB) 2018/842, en það hlutfall hækkar í 10% með uppfærði reglugerð. Fyrir tímabilið 2026-2030 er verið að hækka þetta hlutfall úr 10% í 15%. Að lokum verður ríkjum heimilt að endurskoða ákvörðun sína um nýtingu á ETS sveigjanleikaákvæði tvívegis yfir heildartímabil gildistíma gerðarinnar.
Nánari efnisumfjöllun
Reglugerð (ESB) 2023/857 var samþykkt 19. apríl 2023 en fyrri reglugerðir (ESB) 2018/842 og 2018/1999 voru teknar inn í EES samninginn árið 2019 með JCD 269/2019, og voru skuldbindingar vegna þessara reglugerðar innleiddar í íslenskan rétt með 9. tölul. 1. mgr. 47. gr. laga um loftslagsmál.Í reglugerð 2018/842 er mælt fyrir um skuldbindingar aðildarríkjanna, að því er varðar lágmarksframlag þeirra á tímabilinu frá 2021 til 2030, til að uppfylla markmið ESB um að draga úr losun sinni á gróðurhúsalofttegundum fram til 2030. Heildarmarkmið reglugerðarinnar hækkar úr því að stefna á 30% samdrátt gróðurhúsalofttegunda árið 2030 miðað við 2005, í markmið um 40% samdrátt.Stærstu breytingar reglugerðarinnar varða sveigjanleikaákvæði (5. gr.) sambandsríkjanna um heimild þeirra til tilfærslu á AEA heimildum milli tímabila. :Í núgildandi reglugerð (ESB) 2018/842 er ríkjum heimilt að færa 10% af AEA heimildum frá árinu á eftir en samkvæmt reglugerðinni mun það hlutfall lækka niður í 7,5%. Þessi lækkun á bara við um tilfrærslur fyrir árin 2021-2025. Möguleiki á tilfærslum milli ára fyrir árin 2026-2030 helst óbreytt í 5%.· Breytingar verða á 3. og 4. mgr. varðandi sveigjanleikja ríkja sem eru undir árlegri úthlutaðri losun viðeigandi árs. Fyrir árið 2021 mega ríki færa 75% af úthlutaðri árlegri losun þess árs á önnur ár til ársins 2030, sem er lækkun úr 100%. Fyrir tímabilið 2022-2029 er ríkjum heimilt að færa 25% af árlegri úthlutaðri losun viðeigandi árs á önnur ár til ársins 2030, sem er lækkun úr 30%.· Þá er verið að rýmka heimild um hversu mikið hlutfall heimilda megi færa milli aðildarríkja. Í fyrri breytingartillögu máttu ríki einungis færa 5% af útistandandi AEA heimildum en samkvæmt breytingu þessari verður ríkjum heimilt að færa 10% af útistandandi heimildum sínum á tímabilinu 2021-2025 til annara ríkja. Á seinna tímabilinu 2026-2030 verður ríkjum aftur á móti heimilt að færa 15% af heimildum sínum, sem er breyting úr 10% frá fyrri reglugerð.· Ný málsgreingrein (5. a) kemur inn í nýju reglugerðinni sem skyldar ríki til að skila til Climate Change Commitee, sbr. reglugerð (ESB) 2018/1999 eyðublaði um áform þeirra um tilfærslur á AEA heimildum.· Orðalagi er breytt í 6. mgr. 5. gr. með þeim hætti að ríki gætu þurft að eyrnamerkja afkomu gjaldanna sem verða til vegna reglugerðarinnar í loftslagsmál. Þá er gerð krafa um að skila skýrslu til framkvæmdastjórnarinnar um hvernig fjármagnið skal nýtt. Breytingar verða á sveigjanleikaákvæði hvað varðar notkun ETS heimilda (6. gr.). Þar kemur inn ný málsgrein (3. mgr. 6. gr.) sem gefur aðildarríkjum heimild til að endurskoða notkun á ETS heimildum fyrir skuldbindingar á grundvelli þessarar gerðar tvisvar sinnum yfir heildartímabilið 2021-2030, einu sinni árið 2024 og aftur árið 2027.Þá á einnig að þrengja taumhaldið gagnvart ríkjum og markmiðum þeirra með breytingum á 8. gr. reglugerðarinnar. Í uppfærðri reglugerð kemur fram að ef framkvæmdastjórnin kemst að þeirri niðurstöðu að ríki eru ekki að vinna til hlítar að því að ná markmiðum sínum, sbr. 29. gr. reglugerðar (ESB) 2018/1999 þurfa þau að senda aðgerðaráætlun til stjórnarinnar. Þá er efnið afmarkað með nánari hætti, þ.e. hvað þurfi að koma fram í aðgerðaráætluninni o.fl. Jafnframt þurfa ríki þá að rökstyðja opinberlega af hverju þau eru ekki að ná markmiðum sínum. Með reglugerð (ESB) 2023/857 er einnig verið að skilgreina betur atriði í viðauka V í reglugerð (ESB) 2018/1999 sem varðar upplýsingagjöf til Framkvæmdarstjórnarinnar á millifærslum á AEAs losunarúthlutunum milli ríkja. Nú þarf að upplýsa Framkvæmdarstjórnina ítarlegra um magn, verðbil og tegund millifærslna fyrir þær millifærslur sem ríki ætla sér að framkvæma.