32025L0002

Directive (EU) 2025/2 of the European Parliament and of the Council of 27 November 2024 amending Directive 2009/138/EC as regards proportionality, quality of supervision, reporting, long-term guarantee measures, macro-prudential tools, sustainability risks and group and cross-border supervision, and amending Directives 2002/87/EC and 2013/34/EU


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð hefur ekki öðlast gildi þar sem beðið er afléttingar stjórnskipulegs fyrirvara
Svið (EES-samningur, viðauki) 09 Fjármálaþjónusta, 09.01 Vátryggingar
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 317/2026

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Tilskipun (ESB) 2025/2 Evrópuþingsins og ráðsins frá 27. nóvember 2024 um breytingu á tilskipun 2009/138/EB að því er varðar meðalhóf, gæði eftirlits, skýrslugjöf, langtímaábyrgðarráðstafanir, þjóðhagsvarúðartæki, sjálfbærniáhættu og eftirlit með hópum og yfir landamæri, og um breytingu á tilskipunum 2002/87/EB og 2013/34/ESB.

Nánari efnisumfjöllun

Meðal breytinga má nefna að meðalhófsreglan á oftar við en áður. Skilgreind verður ný flokkun vátryggingafélaga sem teljast „smá og einföld“ en slík flokkun gerir þeim kleift að beita einfaldari útreikningum auk þess sem stjórnarháttakröfur eru takmarkaðri og skýrslugjöf umfangsminni.  Markmið tilskipunarinnar er að styrkja langtímaábyrgðarráðstafanir og draga úr sveifluaukandi áhrifum fjármálamarkaða á eiginfjárkröfur vátryggingafélaga. Leitast er við að tryggja að eiginfjárkröfur endurspegli raunverulega áhættu til lengri tíma og að þær séu ekki óhóflega viðkvæmar fyrir skammtímasveiflum fjármálamarkaða.  Vátryggingafélög skulu við eigið áhættu- og gjaldþolsmat taka tillit til þjóðhagsvarúðar og mögulegrar þróunar á fjármálamörkuðum, þ. á m. stýrivaxta og verðbólgu. Vátryggingafélög skulu setja upp áætlun til að bregðast við lausafjáráhættu og uppfæra hana reglulega.  Tilskipunin felur í sér breytingar á eftirliti með samstæðum, samvinnu eftirlitsstjórnvalda og reglum um starfsemi yfir landamæri. Heimildir eftirlitsstjórnvalda til að grípa inn í þegar áhætta safnast upp innan samstæðu eru auknar og settar eru skýrari reglur um starfsemi yfir landamæri og upplýsingagjöf um hana. Gerðar eru kröfur um aukna samvinnu og upplýsingaskipti milli eftirlitsaðila heimaríkis og gistiríkis vátryggingafélags ef starfsemi félagsins yfir landamæri telst veruleg.  Tilskipunin innleiðir sjálfbærniáhættu í áhættustýringu og stjórnarhætti. Vátryggingafélög þurfa að taka kerfisbundið tillit til loftslagsáhættu, umbreytingaráhættu og annarra sjálfbærniþátta í ákvörðunum sína og meta fjárhagslega áhættu vegna þessara þátta.  Einnig eru gerðar breytingar á skýrslugjöf og gagnsæi, þar sem dregið er úr óþarfa upplýsingagjöf án þess að draga úr gæðum eftirlits eða vernd vátryggingataka. Eftirlitsstjórnvöld hafa í vissum tilvikum heimild til að kveða á um örari eða lægri tíðni skýrsluskila ef það er talið nauðsynlegt eða tiltekin skilyrði eru uppfyllt. Eftirlitsstjórnvöld þurfa sérstaklega að meta hvort tiltekin skýrsluskil séu of íþyngjandi fyrir lítil og einföld vátryggingafélög sem og önnur félög sem ekki teljast lítil og einföld. 

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Tæknilegri aðlögun, Efnislegri aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Já
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Já
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Lagasetning/lagabreyting
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Breyta þarf að lágmarki lögum um vátryggingastarfsemi, nr. 100/2016 og lögum um vátryggingasamstæður, nr. 60/2017.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32025L0002
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2025/2, 8.1.2025
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

COM numer COM(2021) 581
Dagsetning tillögu ESB
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Stjórnskipulegur fyrirvari skv. 103. grein (Ísland) Ísland

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar

Breytir (Modifies)

COM(2021) 581
52021PC0581
adopts Directive (EU) 2025/2 of the European Parliament and of the Council of 27 November 2024 amending Directive 2009/138/EC as regards proportionality, quality of supervision, reporting, long-term guarantee measures, macro-prudential tools, sustainability risks and group and cross-border supervision, and amending Directives 2002/87/EC and 2013/34/EU Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
32013L0034 amends Directive 2013/34/EU of the European Parliament and of the Council of 26 June 2013 on the annual financial statements, consolidated financial statements and related reports of certain types of undertakings, amending Directive 2006/43/EC of the European Parliament and of the Council and repealing Council Directives 78/660/EEC and 83/349/EEC [Accounting] Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32009L0138 amends Directive 2009/138/EC of the European Parliament and of the Council of 25 November 2009 on the taking-up and pursuit of the business of Insurance and Reinsurance (Solvency II) Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32002L0087 amends Directive 2002/87/EC of the European Parliament and of the Council of 16 December 2002 on the supplementary supervision of credit institutions, insurance undertakings and investment firms in a financial conglomerate and amending Council Directives 73/239/EEC, 79/267/EEC, 92/49/EEC, 92/96/EEC, 93/6/EEC and 93/22/EEC, and Directives 98/78/EC and 2000/12/EC of the European Parliament and the Council Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
12016E053 based on