Útdráttur
Reglugerð Evrópusambandsins nr. 2023/2869, samþykkt 13. desember 2023, er í beinum tengslum við reglugerð Evrópusambandsins nr. 2023/2859 (ESAP-reglugerðin). Reglugerð þessi breytir ýmsum núverandi reglugerðum til að stuðla að stofnun og starfsemi eins evrópsks aðgangsstaðar fyrir miðlægan aðgang að upplýsingum (ESAP). Þetta er hluti af áætlun um samband fjármagnsmarkaða (CMU), sem hefur það markmið að bæta aðgengi að fjármála- og sjálfbærniupplýsingum innan ESB.
Nánari efnisumfjöllun
Reglugerðin felur í sér breytingar á eftirfarandi reglugerðum Evrópusambandsins og þar með viðeigandi íslenskum lögum til þess að koma á einum evrópskum aðgangsstað (ESAP):Reglugerð (EB) nr. 1060/2009 um lánshæfismatsfyrirtæki – lög um lánshæfismatsfyrirtæki, nr. 50/2017.Reglugerð (ESB) nr. 236/2012 um skortsölu og ákveðna þætti lánshæfismats – lög um skortsölu og skuldatryggingar, nr. 55/2017.Reglugerð (ESB) nr. 345/2013 um evrópska áhættufjármagnssjóði og reglugerð (ESB) nr. 346/2013 um evrópska félagslega framtakssjóði – lög um evrópska áhættufjármagnssjóði og evrópska félagslega framtakssjóði, nr. 31/2022.Reglugerð (ESB) nr. 575/2013 um um varfærniskröfur að því er varðar lánastofnanir og verðbréfafyrirtæki (CRR-reglugerðin) – innleidd skv. 1. gr. c laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002.Reglugerð (ESB) nr. 537/2014 um sérstakar kröfur í tengslum við lögboðna endurskoðun á einingum sem tengjast almannahagsmunum – lög um endurskoðendur og endurskoðun, nr. 94/2019.Reglugerð (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR-reglugerðin) – lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021.Reglugerð (ESB) nr. 600/2014 um markaði fyrir fjármálagerninga (MiFIR-reglugerðin) – lög um markaði fyrir fjármálagerninga, nr. 115/2021.Reglugerð (ESB) nr. 1286/2014 um um lykilupplýsingaskjöl fyrir pakkaðar og vátryggingatengdar fjárfestingarafurðir fyrir almenna fjárfesta – Lög um lykilupplýsingaskjöl vegna tiltekinna fjárfestingarafurða fyrir almenna fjárfesta, nr. 55/2021.Reglugerð (ESB) 2015/760 um evrópska langtímafjárfestingarsjóði – lög um evrópska langtímafjárfestingarsjóði, nr. 115/2022.Reglugerð (ESB) 2015/2365 um gagnsæi í fjármögnunarviðskiptum með verðbréf (SFTs móðurgerð) – lög um fjármögnunarviðskipti með verðbréf, nr. 41/2023.Reglugerð (ESB) 2016/1011 um viðmiðunarvísitölur á fjármálamarkaði – lög um fjárhagslegar viðmiðanir, nr. 7/2021.Reglugerð (ESB) 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði – lög um lýsingu verðbréfa sem boðin eru í almennu útboði eða tekin til viðskipta á almennum markaði, nr. 14/2020.Reglugerð (ESB) 2017/1131 um peningamarkaðssjóði – lög um peningamarkaðssjóði, nr. 6/2023.Reglugerð (ESB) 2019/1238 um persónulegar eftirlaunasparnaðaráætlanir – Ekki tekið upp í samninginn, beðið afléttingar stjórnskipulegs fyrirvaraReglugerð (ESB) 2019/2033 (um fjárfestingarfyrirtæki) – Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunumReglugerð (ESB) 2019/2088 um upplýsingagjöf tengda sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu – lög um upplýsingagjöf um sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu og flokkunarkerfi fyrir sjálfbærar fjárfestingar, nr. 25/2023.Reglugerð (ESB) 2023/1114 um markaði með sýndareignir (MiCA-reglugerðin) – gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum.Reglugerð (ESB) 2023/2631 um skilyrði fyrir útgáfu evrópskra grænna skuldabréfa og valkvæð sniðmát fyrir skuldabréf sem eru markaðssett sem umhverfislega sjálfbær - gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum.