32023L2661

Directive (EU) 2023/2661 of the European Parliament and of the Council of 22 November 2023 amending Directive 2010/40/EU on the framework for the deployment of Intelligent Transport Systems in the field of road transport and for interfaces with other modes of transport


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn
Svið (EES-samningur, viðauki) 13 Flutningar, 13.02 Flutningar á vegum

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Fyrirhugaðar breytingar á tilskipun 2010/40/EU, miða að því að festa í sessi stefnu Evrópusambandsins um samræmda snjallvæðingu innviða innan sambandsins. Því er kveðið á um að aðildarríki sem kjósa að safna tilteknum gögnum og upplýsingum skuli gera þau aðgengileg með tilteknum hætti og á tilteknu formi. Ekki er miðað við að gögnum sé safnað sérstaklega heldur er miðað við gögn sem þegar eru til eða til stendur að safna. Áhrif jákvæð. Ekki vandkvæði á að framfylgja tilskipuninni. Kostnaður mun hljótast af. Hann mun að hluta falla undir reglubundna starfsemi Vegagerðarinnar.

Nánari efnisumfjöllun

Almennt: Fyrirhugaðar breytingar á ITS tilskipun 2010/40/EU, eins og þær birtast í tilskipun 2023/2661, miða að því að festa í sessi stefnu Evrópusambandsins um samræmda snjallvæðingu innviða innan sambandsins með tímasettum aðgerðum á fjórum forgangssviðum. Því er kveðið á um að aðildarríki sem kjósa að safna tilteknum gögnum og upplýsingum skuli gera þau aðgengileg með tilteknum hætti og á tilteknu formi. Miðað er við að gögnin verði notuð af opinberum aðilum og einkaaðilum til að koma upplýsingum til ökumanna.Þau gögn sem um ræðir eru m.a. um aðgangsskilyrði; hámarkshraðatakmarkanir; framúrakstur vörubifreiða bannaður; takmarkanir um þunga/lengd/breidd/hæð; einstefnu; reglur um vöruflutninga; gögn um umferðaráætlanir, þ.e.a.s varanlegar umferðarstjórnunarráðstafanir; varanlegar aðgangstakmarkanir; vegalokanir; akreinalokanir; vegavinna; tímabundnar umferðarstjórnunaraðgerðir; föst gögn um bílastæði; upplýsingar um öryggi og búnað bílastæða; breytileg gögn um framboð bílastæða; tímabundin hálka; dýr, fólk, hindranir, rusl á vegi; óvarið slysasvæði; skammtíma vegavinna; óviðráðanleg teppa á vegi; skert skyggni; óvenjulegar veðuraðstæður, auk annarra atriða.Aðildarríki skulu tryggja að gögn samkvæmt viðauka III og IV, sem annað hvort er safnað eða eru þegar til í dag verði tiltæk og aðgengileg í gagnatengipunkti sérhvers lands, e. National Access Point. Tilteknar eru dagsetningar í þessu sambandi og settar fram í viðauka III og IV. Gögnin skulu ná a.m.k. til Evrópuvega (TERN) og þéttbýlistengipunkta, s.s. flugvalla, samgöngu- og flutningsmiðstöðva, ferjuhafna og flutningahafna.Forgangssviðin eru eftirfarandi:I: Upplýsinga- og fjarskiptatækni vegna ferðaupplýsinga- og hreyfingar;II: Upplýsinga- og fjarskiptatækni vegna ferða-, flutninga- og umferðarstjórnunar;III: Upplýsinga- og fjarskiptatækni vegna umferðaröryggis og verndar;IV: Upplýsinga- og fjarskiptatækni vegna samvirkra, tengdra og sjálfvirkra hreyfanleika lausna, e. ITS services for cooperative, connected and automated mobility.Helstu áskoranir tengdar innleiðingu: Það ætti ekki að vera erfiðleikum bundið fyrir Ísland að uppfylla ákvæði tilskipunar 2010/40/EU vegna þeirra breytinga sem verið er að leggja til. Rétt er þó að huga að undirbúningi. Rétt er að benda á að ákvæði um gagnaskil gilda einungis fyrir gögn sem verða til, er verið að safna eða verður safnað.Rétt er að benda á að óljóst orðalag er í tilskipuninni um umfang verkefnisins. Til að mynda er í viðauka III, 4. lið vísað til alls flutningakerfis ESB, e. the entire transport network of the EU. Að öðru leyti er umfangið í öðrum liðum að mestu bundið við vegi á samevrópska vegakerfinu, TEN-T og þéttbýlistengipunkta. Því er ekki fullkomlega ljóst hvaða vegi er átt við.Vegagerðin býr nú þegar yfir hluta þeirra upplýsinga sem vísað er til í tilskipuninni. Það sem helst vantar eru upplýsingar um viðhald á stafrænu vegakerfi á staðlaðan máta og föstum gögnum sem þar heyra til.Rétt er að benda á að formgera þarf og skipuleggja, annars vegar landstengipunkt og hins vegar ábyrgð og umsjón með gögnum á Íslandi. Þar fyrir utan þarf að setja vinnu í að auðvelda farþegum að nálgast tímatöflur o.þ.h. s.s. fyrir ferjur, flug, áætlunarbíla og hafa þær upplýsingar aðgengilegar í landstengipunkti.Fyrstu gögn þurfa að vera aðgengileg í lok árs 2025. Þau síðustu undir lok árs 2028. Mikilvægt er að mótuð verði stefna, teknar viðeigandi ákvarðanir og tryggt fjármagn til þeirra verkefna sem að ofan eru rakin í tæka tíð þannig að unnt sé að standa við tímafresti.Kostnaður: Ekki liggur fyrir nánari greining á þeim verkefnum sem ráðast þarf í vegna innleiðingar og þróunar og er mikilvægt að teknar verði ákvarðanir og ráðist í greiningu á þeim verkefnum og kostnaði sem þeim fylgir. Gert er ráð fyrir að um sé að ræða verkefni sem falla muni undir reglubundna starfsemi stofnunarinnar og að kostnaði vegna innleiðingar, s.s. vegna aukinna krafna, búnaðar og vinnu við einstök verkefni verði fundinn staður innan fjárheimilda stofnunarinnar.Niðurstaða: Ekki er ástæða til að ætla annað en að unnt sé að innleiða umræddar reglur á Íslandi. Það er þó háð því að mótuð sé stefna og teknar ákvarðanir um landstengipunkt auk þess sem vinna þarf að því að gera viðeigandi undirbúningsráðstafanir þannig að gögn sem um ræðir verði aðgengileg á því formi sem krafist er. 

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Lagastoð er að finna í 45. gr vegalaga. Innleiðing í reglugerð 342/2023
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Aukakostnaður

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Innviðaráðuneytið
Ábyrg stofnun Samgöngustofa

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32023L2661
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2023/2661, 30.11.2023
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

COM numer COM(2021) 813
Dagsetning tillögu ESB
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Breytt af (Modified by)

72024L1385CZE_26936 measure national implementing implements
72024L1265CZE_26936 measure national implementing implements
72024L1260CZE_26936 measure national implementing implements
72024L1226CZE_26936 measure national implementing implements
72023L2661SVK_197456 measure national implementing implements

Breytir (Modifies)

COM(2021) 813
52021PC0813
adopts Directive (EU) 2023/2661 of the European Parliament and of the Council of 22 November 2023 amending Directive 2010/40/EU on the framework for the deployment of Intelligent Transport Systems in the field of road transport and for interfaces with other modes of transport Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum
32010L0040 amends Directive 2010/40/EU of the European Parliament and of the Council of 7 July 2010 on the framework for the deployment of Intelligent Transport Systems in the field of road transport and for interfaces with other modes of transport Tekin upp í EES-samninginn og í gildi