Reglugerð (ESB) um samræmdar reglur fyrir markaðssetningu byggingarvara - 32024R3110

Regulation (EU) 2024/3110 of the European Parliament and of the Council of 27 November 2024 laying down harmonised rules for the marketing of construction products and repealing Regulation (EU) No 305/2011


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun hjá ESB og EFTA-ríkjunum innan EES
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.21 Byggingarvörur

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Reglugerð (ESB) 2024/3110 setur fram samræmdar reglur um markaðssetningu byggingarvara innan EES og kemur í stað reglugerðar (ESB) nr. 305/2011. Reglugerðin er hluti af stefnu Evrópusambandsins um aukna samræmingu innri markaðarins, stafræna umbreytingu byggingargeirans og stuðning við markmið um sjálfbærni og hringrásarhagkerfi. Markmið með endurskoðun er annars vegar að bæta virkni innri markaðarins fyrir byggingarvörur og hins vegar að laga regluverkið að auknum kröfum um sjálfbærni, stafræna upplýsingagjöf og að tryggja skilvirkara markaðseftirlit. Gildissvið gerðarinnar er víðtækara en þeirrar sem hún á að leysa af hólmi og hefur skýrari tengingu við áherslur ESB í umhverfismálum og stafræna varðveislu og skil gagna.  Hún hefur því þýðingu fyrir innleiðingu og eftirlit á sviði byggingarvara í aðildarríkjum EES, þar sem hún getur haft áhrif á kröfur til framleiðenda, innflytjenda, dreifingaraðila og opinbers markaðseftirlits.

Nánari efnisumfjöllun

Ný CPR felur í sér mjög umfangsmikla endurskoðun á regluverki byggingarvara. Markmið með endurskoðun var annars vegar að bæta virkni innri markaðarins fyrir byggingarvörur og hins vegar að laga regluverkið að auknum kröfum um sjálfbærni, stafræna upplýsingagjöf og tryggja skilvirkara markaðseftirlit. Gildissvið nýrrar CPR er víðtækara en áður og hefur skýrari tengingu við áherslur ESB í umhverfismálum og stafræna varðveislu og skil gagna. Innleiðing hennar mun hafa í för með sér mikil áhrif á stjórnvöld, rekstraraðila, fagaðila í mannvirkja gerð og neytenda.Áherslur ESB á sjálfbærni og hringrásarhagskerfi eru smám saman að koma inn í regluverk allra vöruflokka og raunar inn í regluverk um hráefni og iðnað líka. Með nýrri CPR er einmitt gert ráð fyrir því að kröfur um samræmda upplýsingagjöf muni taka til eiginleika byggingarvara sem snerta umhverfis- og sjálfbærni eiginleika. Ný reglugerð og samhæfðar tækniforskriftir munu að sama skapi vonandi auðvelda endurnýtingu byggingarvara, endurbætur á þeim og endurvinnslu þeirra og efla þannig hringrás í mannvirkjagerð. Hér er um að ræða mikla breytingu frá eldri CPR, þar sem höfuðáhersla var lögð á ramma um hina tæknilegri eiginleika vara og öryggiskröfur. Í nýjum samhæfðum tækniforskriftum undir nýrri CPR verður gert ráð fyrir því að hægt verði að meta og staðfesta nothæfi byggingarvara m.t.t. eiginleika sem samræmast breyttum áherslum. Gera má ráð fyrir því að kröfur sem leiðir af áherslum í umhverfismálum geti bæði komið fram undir merkjum nýrrar CPR og jafnvel annarra gerða sem snerta sérstaklega á sjálfbærnimálum sem þarf þá að vera hægt að taka inn í sk. samræmismat. Samræmismat sem er einmitt skjal sem kemur nýtt inn í gögn sem liggja eiga að baki byggingarvöru skv. nýrri CPR (DoPC í stað DoC).Önnur breyting, sem er einmitt það sem samræmd upplýsingagjöf hvílir á, er innleiðing stafræns vöruvegabréfs (Digital Product Passport, eða DPP). Með slíku vegabréfi er stefnt að því að tryggja að upplýsingar um byggingarvörur, s.s. yfirlýsingar um nothæfi, samræmisyfirlýsingar, tækniskjöl o.fl., verði aðgengilegar á stafrænu formi. Markmiðið er að tryggja eins og kostur er auðvelda upplýsingagjöf í öllum viðskiptum og notkun byggingarvara og styðja jafnframt við markaðseftirlit stjórnvalda. Ný CPR felur einnig í sér verulegar breytingar á þróun samhæfðra tækniforskrifta til framtíðar. Með henni er aukin áhersla lögð á þær sem meginverkfæri reglugerðarinnar með það fyrir augum að auka fyrirsjáanleika regluverksins og bæta framkvæmd þess. Með þessum áherslum reynir ESB að bregðast við töfum sem einkennt hafa gerð staðla undir eldri CPR og framkvæmdastjórn ESB í því augnamiði veitt fleiri úrræði til að tryggja gerð samhæfðra tækniforskrifta og fylgni við þær ef staðlavinna gengur ekki samkvæmt áætlun. Í því samhengi er rétt að geta þess að evrópsk tæknimatsskjöl (EADs) eru, eftir gildistöku gerðarinnar, ekki lengur skilgreind sem samhæfðar tækniforskriftir og verða aðeins gefin út sem grundvöllur að útgáfu tæknimats og löglegrar CE-merkingar ef engin samhæfð tækniforskrift á við um vöruna og sú skilgreining í nýju CPR er þrengri en í þeirri eldri. Rétt er að geta þess m.t.t. upplýsingakrafna sem hvíla munu á miðlægum tengiliðum og vörutengiliðum að vegna breyttrar stöðu tæknimatsskjalana gefur framkvæmdastjórn ESB ekki lengur út lista yfir ný slík skjöl eða breytt skjöl. Það er því mikilvægt fyrir Ísland að tileinka sér annað verklag en hefðbundna innleiðingu slíkra gerða í gegnum EFTA-kanalinn til þess að tryggja upplýsingar um notkun þessara skjala. Skyldur rekstraraðila í aðfangakeðju byggingarvara eru útfærðar með ítarlegri hætti í nýrri CPR en í þeirri eldri. Nýjum rekstraraðilum er einnig bætt við til þess að tryggja að ábyrgð á markaðssetningu byggingarvara sé órofin til þess sem ber að lokum ábyrgð á vali þeirra. Meiri kröfur eru gerðar til varðveislu gagna og aðgengis að upplýsingum sem varða nothæfi byggingarvöru og samræmi hennar við kröfur, þ.m.t. kröfur sem snerta visthönnun og sjálfbærni. Sérstök áhersla er lögð á að upplýsingaflæði milli mismunandi rekstraraðila sé tryggt og betur skjalfest. Verulegar breytingar eru gerðar á sviði markaðseftirlits o.fl. og samskipta milli EES-ríkjanna og framkvæmdastjórnar ESB. Í fyrsta lagi þurfa öll ríki innan EES-svæðisins að tilnefna miðlægan tengilið (e. Single Liaison Point), sem er m.a. samskiptaaðili innan hvers ríkis við framkvæmdastjórnina vegna kvartana sem henni berast í gegnum sérstaka gátt um möguleg brot gegn gerðinni. Slíkur aðili þarf þá líka að miðla upplýsingum frá markaðseftirlitsstjórnvaldi innan síns ríkis til framkvæmdastjórnarinnar, ef markaðseftirlitsstjórnvald telur að markaðssetning byggingarvöru sem er metin í ósamræmi við kröfur gerðarinnar sé ekki bundin við það ríki. Í öðru lagi er sá greinarmunur sem gerður er á ágalla og viðbrögðum markaðseftirlitsstjórnvalda skv. eldri CPR, eftir því hvort um formgalla eða efnisgalla a byggingarvöru er að ræða, gerður að engu. nýju ákvæði 69. gr. er t.a.m. kvaðið á um að ef byggingarvara sé metin í ósamræmi við kröfur reglugerðarinnar, skuli markaðseftirlitsstjórnvöld geta krafið þann rekstraraðila sem setti hana á markað eða gerði hana aðgengilega á markaði um kostnað vegna skjalaskoðunar og prófana, ef hægt er að rökstyðja þann kostnað. Almennt má þá segja að réttarúrræði markaðseftirlitsstjórnvalda séu gerð skýrari og kröfur til rekstraraðila við eftirlit einnig. Í þriðja lagi eru gerðar kröfur á markaðseftirlitsstjórnvöld um að skrá í ICSMS gagnagrunninn upplýsingar um öll mál sem eru talin til stjórnsýslumála hérlendis (þarfnast nánari skoðunar). Á fjögurra ára fresti metur framkvæmdastjórn ESB þessar upplýsingar í tilviki sambandsríkja og skrifar skýrslu um þær og ráðgefandi lágmörk fyrir markaðseftirlitsstjórnvöld m.t.t. tíðni úttekta og eðli og alvarleika viðurlaga sem beitt hefur verið (hér vegast á fælingarmáttur viðurlaga og meðalhófsregla). Rétt er að vekja sérstaka athygli á kröfum sem gerðar eru til ríkja innan EES-svæðisins til upplýsingagjafar. Í fyrsta lagi verða þau að setja á fót upplýsingakerfi eða tölvupóstþjónustu sem dreifir upplýsingum til stjórnvalda innanlands, rekstraraðila sem starfa innan hlutaðeigandi ríkis o.fl. aðila, um allt efni sem máli skiptir fyrir rétta túlkun og beitingu reglna sem fram koma í reglugerðinni eða í afleiddum gerðum. Í kaflanum um markaðseftirlit o.fl. er þá í öðru lagi rétt að nefna að nýjar kröfur um upplýsingamiðlun ríkja og vörutengiliði kalla á nánari greiningu á því hvort og að hvaða marki hlutverk vörutengiliða verði víðtækara en samkvæmt eldri CPR. 

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Á ekki við
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Já

Innleiðing

Innleiðing Engar laga- eða reglugerðabreytingar
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Félags- og húsnæðismálaráðuneyti
Ábyrg stofnun Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32024R3110
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2024/3110, 18.12.2024
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

COM numer COM(2022) 144
Dagsetning tillögu ESB
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar

Tillögur að breytingum (Proposed amendments)

COM(2026) 100
52026PC0100
Proposal for a Regulation of the European Parliament and of the Council establishing a framework of measures for the acceleration of industrial capacity and decarbonisation in strategic sectors and amending Regulations (EU) 2018/1724, (EU) 2024/1735 and (EU) 2024/3110 Tillaga sem gæti verið EES-tæk

Breytt af (Modified by)

COM(2026) 100
52026PC0100
proposes to amend Proposal for a Regulation of the European Parliament and of the Council establishing a framework of measures for the acceleration of industrial capacity and decarbonisation in strategic sectors and amending Regulations (EU) 2018/1724, (EU) 2024/1735 and (EU) 2024/3110 Tillaga sem gæti verið EES-tæk
COM(2025) 772
52025DC0772
based on
32026R0387 based on Commission Implementing Regulation (EU) 2026/387 of 23 February 2026 establishing the format of the European technical assessment pursuant to Regulation (EU) 2024/3110 of the European Parliament and of the Council Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum

Breytir (Modifies)

COM(2022) 144
52022PC0144
adopts Regulation (EU) 2024/3110 of the European Parliament and of the Council of 27 November 2024 laying down harmonised rules for the marketing of construction products and repealing Regulation (EU) No 305/2011 Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
32024R2769 implicitly repeals Commission Delegated Regulation (EU) 2024/2769 of 30 May 2024 supplementing Regulation (EU) No 305/2011 of the European Parliament and of the Council by laying down the applicable systems to assess and verify constancy of performance of construction products in relation to the essential characteristics on environmental sustainability and amending that Regulation as regards the assessment and verification of constancy of performance of construction products based on a modelling approach Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32024R2748 implicitly repeals Regulation (EU) 2024/2748 of the European Parliament and of the Council of 9 October 2024 amending Regulations (EU) No 305/2011, (EU) 2016/424, (EU) 2016/425, (EU) 2016/426, (EU) 2023/988 and (EU) 2023/1230 as regards emergency procedures for the conformity assessment, presumption of conformity, adoption of common specifications and market surveillance due to an internal market emergency Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum
32019R1020 implicitly repeals Regulation (EU) 2019/1020 of the European Parliament and of the Council of 20 June 2019 on market surveillance and compliance of products and amending Directive 2004/42/EC and Regulations (EC) No 765/2008 and (EU) No 305/2011 Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
32014R0574 implicitly repeals Commission Delegated Regulation (EU) No 574/2014 of 21 February 2014 amending Annex III to Regulation (EU) No 305/2011 of the European Parliament and of the Council on the model to be used for drawing up a declaration of performance on construction products Tekin upp í EES-samninginn og í gildi