32022R1253
Commission Implementing Regulation (EU) 2022/1253 of 19 July 2022 correcting Regulation (EU) No 748/2012 as regards derogations from certain requirements introduced by Delegated Regulation (EU) 2022/201
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1253 frá 19. júlí 2022 um leiðréttingu á reglugerð (ESB) nr. 748/2012 að því er varðar undanþágur frá tilteknum kröfum sem innleiddar voru með framseldri reglugerð (ESB) 2022/201
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 13 Flutningar, 13.06 Almenningsflug |
| Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 131/2023 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Markmið með gerðinni er annars vegar að leiðrétta rangar tilvísanir. Hins vegar að veita tilteknum hönnunarfyrirtækjum undanþágu frá kröfum sem eiga ekki við um þau. Það er gert með því að breyta reglugerð (ESB) nr. 748/2012 um undanþágur frá tilteknum kröfum samkvæmt reglugerð (ESB) 2022/201. Lítil áhrif hér á landi og kostnaður takmarkaður.
Nánari efnisumfjöllun
Markmið sem að er stefnt: Markmið með gerðinni er annars vegar að leiðrétta rangar tilvísanir. Hins vegar að veita tilteknum hönnunarfyrirtækjum undanþágu frá kröfum sem eiga ekki við um þau. Það er gert með því að breyta reglugerð (ESB) nr. 748/2012 um undanþágur frá tilteknum kröfum samkvæmt reglugerð (ESB) 2022/201. Aðdragandi: Í reglugerð (ESB) 748/2012 er mælt fyrir um sameiginlegar tæknikröfur til hönnunar og framleiðslu borgaralegra loftfara sem og hreyfla, skrúfa og búnaðar til að setja í þau. Samkvæmt reglugerð (ESB) 2018/1139 skulu samþykkt hönnunar- og framleiðslufyrirtæki hafa stjórnkerfi sem tryggir samræmi við kröfur sem settar eru í reglugerðinni, stjórna öryggisáhættu. Fyrirtækin skulu einnig vinna stöðugt að því að bæta þetta kerfi. Með reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/201 voru settar reglur um stjórnkerfi fyrir öll samþykkt hönnunar- og framleiðslufyrirtæki sem falla undir gildissvið I. viðauka við reglugerð (ESB) 748/2012. Þá var með reglugerð (ESB) 2022/203 innleitt stjórnkerfi vegna atvikatilkynninga, e. management system and occurrence-reporting systems, sem lögbærum yfirvöldum ber að koma á fót. Efnisútdráttur: Með reglugerðum (ESB) 2022/201 og (ESB) 2022/203 var 8. og 9. gr. reglugerðar (ESB) 748/2012 breytt þannig að hönnunar- og framleiðslufyrirtækjum var gefinn aðlögunartími til 7. mars 2025 til að uppfylla endanlega kröfur um innleiðingu kerfanna sem komið var á samkvæmt reglugerð (ESB) 2022/201.Við samþykkt reglugerðar 2022/201 voru gerðar villur við breytingar á 9. gr. reglugerðar (ESB) nr. 748/2012. Ranglega var vísað til framkvæmdareglugerðar 2022/203 í stað 2022/201. Þetta er nú leiðrétt með reglugerð 2022/1253.Þessu til viðbótar var ekki gert ráð fyrir því við breytingu á 9. gr. að tilteknar kröfur um atvikatilkynningar og varðveislu gagna eiga aðeins að takmörkuðu leyti við um fyrirtæki sem framleiða vörur, hluti og búnað án samþykkisvottorðs en með samningsbréfi, e. LoA. Aðlögunartíminn til 7. mars 2025 var því ekki viðeigandi fyrir þau fyrirtæki. Samkvæmt breytingu sem fram kemur með þessari gerð þurfa fyrirtæki með LoA útgefið 7. mars 2023 eða fyrr því ekki að uppfylla kröfurnar sem settar eru fram með reglugerð (ESB) 2022/201. Er reglugerð (ESB) 748/2012 leiðrétt til samræmis við þetta. Umsögn: helstu breytingar, mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Reglugerðin hefur mjög takmörkuð áhrif þar sem engin framleiðslufyrirtæki eru á Íslandi og Samgöngustofa hefur nú þegar innleitt stjórnunar- og atvikatilkynningakerfi í gegnum aðrar ESB kröfur.Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Lagastoðin er 72. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022.Rétt væri að innleiða reglugerðina með breytingu á reglugerð nr. 380/2013 um lofthæfi- og umhverfisvottun loftfara og tilheyrandi framleiðsluvara, hluta og búnaðar og vottun hönnunar- og framleiðslufyrirtækja. Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitarfélaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Enginn kostnaður við innleiðingu reglugerðarinnar. Skörun við starfssvið annarra ráðuneyta: NeiHagsmunaaðilar: Framleiðslufyrirtæki.Horizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: Nei. Þörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: Gerðin inniheldur tilvísanir í gerðir sem hafa ekki verið teknar upp EES samninginn.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Nei |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Lagastoðin er 72. gr. laga um loftferðir, nr. 80/2022. Innleiðing með breytingu á reglugerð nr. 380/2013 um lofthæfi- og umhverfisvottun loftfara og tilheyrandi framleiðsluvara, hluta og búnaðar og vottun hönnunar- og framleiðslufyrirtækja. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Innan fjárhagsáætlunar |
|---|
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Innviðaráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Samgöngustofa |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32022R1253 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 191, 20.7.2022, p. 45 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| Dagsetning tillögu ESB | |
|---|---|
| C/D numer | D082511/01 |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
|---|---|
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 81, 9.11.2023, p. 98 |
| Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2023/02274, 9.11.2023 |
Breytir (Modifies)
| 32018R1139 | based on | Regulation (EU) 2018/1139 of the European Parliament and of the Council of 4 July 2018 on common rules in the field of civil aviation and establishing a European Union Aviation Safety Agency, and amending Regulations (EC) No 2111/2005, (EC) No 1008/2008, (EU) No 996/2010, (EU) No 376/2014 and Directives 2014/30/EU and 2014/53/EU of the European Parliament and of the Council, and repealing Regulations (EC) No 552/2004 and (EC) No 216/2008 of the European Parliament and of the Council and Council Regulation (EEC) No 3922/91 | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 32012R0748 | amends | Commission Regulation (EU) No 748/2012 of 3 August 2012 laying down implementing rules for the airworthiness and environmental certification of aircraft and related products, parts and appliances, as well as for the certification of design and production organisations | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
Flokkun (Classifications)
| EUROVOC | civil aviation, safety standard, technical standard, Community certification, environmental standard, air safety, aircraft, quality standard, product design |
|---|---|
| Subject matter | Transport |
