COM(2022) 305
Proposal for a Regulation of the European Parliament and of the Council on the sustainable use of plant protection products and amending Regulation (EU) 2021/2115
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.

Gerð ekki til á íslensku
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | Tillaga dregin til baka af ESB |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Með þessari reglugerð er verið að fella niður tilskipun 2009/128/EB og setja fram reglur sem verða bindandi í hverju aðildarríki fyrir sig um sjáfbæra notkun plöntuverndarvara til þess að unnt verði að setja fram og ná ákveðnum markmiðum fyrir árið 2030 um að dregið verði úr notkun plöntuverndarvara og áhættu sem stafar af notkun þeirra. Einnig fjallar reglugerðin um kröfur að því er varðar notkun, geymslu, markaðssetningu og förgun plöntuverndarvara, sem og búnað til þess að dreifa plöntuverndarvörum, þjálfun, fræðslu og innleiðingu á samþættum vörnum gegn skaðvöldum í plöntuvernd.
Nánari efnisumfjöllun
Reglugerðinni er skipt upp í 12 kafla og 7 viðauka.Kafli 1. Almenn ákvæði.Fjallar um almenn ákvæði eins og gildissvið reglugerðarinnar, markmið og skilgreiningar.Kafli 2. Landsbundin 2030 markmið um samdrátt í notkun plöntuverndarvara.Aðildarríki skulu setja sér og innleiða landsbundin markmið í landslög um að fyrir árið 2030 verði ákveðnum samdrætti náð, samanborið við meðaltal áranna 2015, 2016 og 2017, fyrir:notkun og áhættu af plöntuverndarvörum eins og skilgreint er í viðauka I (landsbundið 2030 markmið 1)notkun hættumeiri plöntuverndarvara eins og skilgreint er í viðauka II (landsbundið 2030 markmið 2).Aðildarríki skulu ná settum landsbundnum markmiðum fyrir árið 2030. Landsbundnu 2030 markmiðin skulu stuðla að minnsta kosti 50% samdrætti í notkun fyrir árið 2030 samanborið við meðaltal áranna 2015-2017. Þó hafa aðildarríki ákveðið svigrúm til þess að ákvarða landsbundið 2030 markmið m.t.t. sögulegrar þróunar og notkunar plöntuverndarvara, sem byggir á útreikningum í 5. og 6. mgr. í 5. gr. reglugerðarinnar. Landsbundið 2030 markmið getur því falið í sér 35-70% samdrátt í notkun plöntuverndarvara miðað við útreikninga í hverju aðildarríki og samanborið við samdrátt um notkun í Evrópusambandinu. Útreikningur á landsbundu 2030 markmiði byggir m.a. á upplýsingum um markaðssetningu á virkum efnum í plöntuverndarvörum og hættumeiri plöntuverndarvörum, nytjuðu landbúnaðarlandi í aðildarríkinu sem og á samanburði við sambærilegar upplýsingar á vettvangi Evrópusambandsins.Kafli 3. Landsbundin aðgerðaáætlun.Aðildarríkin skulu útbúa og birta aðgerðaáætlun sem inniheldur m.a.:landsbundin 2030 markmið,upplýsingar er varða landsbundin 2030 markmið eins og fram kemur í 9. gr.,ítarlegar upplýsingar um hvernig árangri skal náð varðandi þá þætti sem nauðsynlegir eru fyrir innleiðingu reglugerðarinnar og fram koma í 2. hluta í II. viðauka,tilvísun í viðeigandi hluta sameiginlegu landbúnaðarstefnunnar (CAP), samanber reglugerð (ESB) nr. 2021/2115, þar sem sett er fram áætlun um að auka hlutdeild lífræns landbúnaðar í 25% af nytjuðu landbúnaðarlandi fyrir árið 2030,lista yfir búnað sem notaður er til dreifingar á plöntuverndarvörum í atvinnuskyni þar sem aðildarríki hafa heimilað önnur skilyrði um eftirlit sbr. 1. mgr., 32. gr.,upplýsingar um ólöglegar plöntuverndarvörur,landsbundnar aðgerðir til þess að hvetja notendur í atvinnuskyni til að taka upp aðrar aðferðir í plöntuvernd en notkun efna með styrkjarkerfi, í samræmi við Evrópulöggjöf um ríkisaðstoð,áætlaðar og innleiddar aðgerðir til þess að styðja við, eða tryggja með bindandi skilyrðum í landslögum, nýsköpun og þróun aðferða sem byggjast ekki á notkun efna,aðrar áætlaðar og innleiddar aðgerðir til þess að styðja við, eða tryggja með bindandi skilyrðum í landslögum, sjálfbæra notkun plöntuverndarvara í samræmi við meginreglur um samþættar varnir gegn skaðvöldum í plöntuvernd, þ.m.t. þeim meginreglum sem fram koma í reglum um ræktun sérstakra nytjaplantna, sbr. 1. mgr., 15. gr. reglugerðarinnar.Aðgerðaáætlunin skal þar að auki innihalda ákveðnar upplýsingar um landsbundin 2030 markmið og aðferðir sem ekki byggja á notkun efna, notkun líffræðilegra varna, ráðstafanir vegna mögulegra áskorana, tímasettum áföngum og hvaða stjórnvald er ábyrgt fyrir hverjum áfanga sbr. 1. og 2. mgr., 9. gr.Aðgerðaáætlunin skal einnig innihalda landsbundin leiðandi markmið um að auka hlutfall plöntuverndarvara sem innihalda ekki efnafræðilega virk efni.Aðgerðaáætlunin skal vera tekin til endurskoðunar á þriggja ára fresti og hana skal uppfæra ef ástæða er til.Aðildarríki skal skila skýrslu til framkvæmdastjórnarinnar um árlegan árangur sem inniheldur þær upplýsingar sem fram koma í viðauka II. Þær upplýsingar eru m.a. þróun að settu landsbundnu 2030 markmiði, þróun við að ná landsbundnum leiðandi markmiðum, allar megindlegar upplýsingar sem fram koma í 2. hluta í viðauka II, útkomu samræmdra áhættuvísa 1 og 2, þróun varðandi aukningu á hlutdeild lífræns landbúnaðar af nytjuðu landbúnaðarlandi. Aðildarríki skal birta skýrsluna á vefsetri og tilkynna um það til framkvæmdarstjórnarinnar.Kafli 4. Samþættar varnir gegn skaðvöldum.Þeir sem nota plöntuverndarvörur í atvinnuskyni skulu styðjast við samþættar varnir gegn skaðvöldum í samræmi við eftirfarandi:a) með því að styðjast við ákvæði 13. gr. í þeim tilfellum þar sem reglur um ræktun sérstakra nytjaplantna hafa ekki verið settar í samræmi við 15. gr. í viðeigandi aðildarríki.b) með því að styðjast við reglur um ræktun sérstakra nytjaplantna settar af aðildarríkinu fyrir viðeigandi nytjaplöntu og svæði í samræmi við 15. gr. og framkvæma þær aðgerðir sem fram koma í 8. mgr. í 13. gr.Ráðgjafar skulu veita ráðgjöf sem er í samræmi við gildandi reglur um ræktun sérstakra nytjaplanta og meginreglum um samþættar varnir gegn skaðvöldum.Þeir sem nota plöntuverndarvörur í atvinnuskyni skulu ekki notast við efnafræðilega virkar plöntuverndarvörur nema að hafa fyrst notast við aðferðir sem byggja ekki á notkun efna til þess að koma í veg fyrir eða takmarka tjón af völdum skaðvalda og ef ákveðin skilyrði eru uppfyllt.Aðildarríki skulu gefa út reglur um ræktun sérstakra nytjaplanta sem byggja á meginreglum um samþættar varnir gegn skaðvöldum. Taka skal tillit til þeirra við ræktun og geymslu á hverri tegund nytjaplöntu fyrir sig og skulu reglurnar sjá til þess að plöntuverndarvörur séu eingöngu notaðar eftir að öðrum aðferðum sem byggja ekki á notkun efna hafi verið beitt og þegar ákveðnum viðmiðunargildum hefur verið náð sem réttlæta íhlutun. Reglur um ræktun sérstakra nytjaplantna skulu vera bindandi og settar í landslög. Aðildarríki skulu tilnefna lögbært yfirvald sem er ábyrgt fyrir því að reglur um ræktun sérstakra nytjaplantna séu vísindalega traustar og uppfylli ákvæði 15. gr. Aðildarríki skulu árlega endurskoða reglur um ræktun á sérstökum nytjaplöntum og uppfæra ef þörf er á. Aðildarríki skulu innan tveggja ára frá gildistöku reglugerðarinnar vera búin að gefa út reglur um ræktun sérstakra nytjaplantna fyrir nytjaplöntur sem þekja a.m.k. 90% af nytjuðu landbúnaðarlandi.Aðildarríki skal tilnefna lögbært yfirvald til að koma á fót og viðhalda stafrænum gagnagrunni fyrir skráningu á samþættum vörnum gegn skaðvöldum og notkun plöntuverndarvara. Í stafræna gagnagrunninn skal skrá eftirfarandi upplýsingum og viðhafa í þrjú ár:allar fyrirbyggjandi aðferðir og rökstuðning fyrir beitingu þeirra sbr. 1. mgr., 14. gr.nafn ráðgjafans, dagsetningu og um hvað ráðgjöfin fól í sér sbr. 2. mgr., 14. gr.hvers konar meðhöndlun plöntuverndarvara sbr. 67. gr. í reglugerð (EB) nr. 1107/2009 og skýrslu um dreifingu með loftförum.Stafræni gagnagrunnurinn skal vera aðgengilegur fyrir notendur í atvinnuskyni þannig að þeir geti skráð upplýsingar. Aðildarríki skulu einnig sjá til þess að landsbundnar hagstofur hafi aðgang að stafræna gagnagrunninum til að þær geti nálgast nauðsynleg tölfræðileg gögn.Notandi í atvinnuskyni skal skrá í stafrænan gagnagrunn upplýsingar um samþættar varnir gegn skaðvöldum og notkun plöntuverndarvara, upplýsingar um hverja meðhöndlun með plöntuverndarvöru sbr. 67. gr. í reglugerð EB nr. 1107/2009. Notendur skulu skrá í stafrænan gagnagrunn hvaða aðferðir hafi verið notaðar áður en plöntuverndarvöru eru beitt. Ef notandi í atvinnuskyni hefur ekki tekið tillit til aðferða sem ekki byggja á notkun efna skal rökstyðja ástæðu þess og skrásetja. Notendur skulu einnig skrá upplýsingar um virkni plöntuverndarvörunnar.Aðildarríki skulu sannreyna að notendur í atvinnuskyni uppfylli skyldur sínar gagnvart skráningum.Kafli 5. Meðferð, varðveisla og förgun plöntuverndarvara.Notendur plöntuverndarvara sem samkvæmt markaðsleyfi er eingöngu heimilt að nota í atvinnuskyni skulu hafa aflað sér þjálfunar og vera með vottun því til staðfestingar og þeir skulu nýta sér þjónustu sjálfstæðs ráðgjafa sbr. 3. mgr. 26. gr. Búnaður til dreifingar á plöntuverndarvörum má eingöngu vera notaður af notendum í atvinnuskyni sem hafa aflað sér þjálfunar og eru með vottun því til staðfestingar. Nýr búnaður skal vera tekinn til skoðunar innan þriggja ára frá kaupum og í framhaldi af því á þriggja ára fresti.Óheimilt er að nota plöntuverndarvörur á viðkvæmum svæðum og innan þriggja metra frá þeim. Lögbær yfirvöld geta veitt leyfi fyrir notkun plöntuverndarvara á viðkvæmum svæðum að uppfylltum ákveðnum skilyrðum sbr. 18. gr.Óheimilt er að nota plöntuverndarvörur á yfirborðsvatn og innan þriggja metra frá því. Aðildarríki skulu sjá til þess að viðeigandi ráðstafanir séu gerðar til þess að vernda vatnsumhverfi og drykkjarvatn fyrir áhrifum frá notkun plöntuverndarvara.Óheimilt er að dreifa plöntuverndarvörum úr lofti. Lögbær yfirvöld geta veitt leyfi fyrir dreifingu plöntuverndarvara úr lofti að uppfylltum ákveðnum skilyrðum sbr. 20. gr. Ómönnuð loftför geta þó verið undanskilin banni ef skilyrði í 21. gr. eru uppfyllt.Aðildarríki skulu sjá til þess að viðeigandi ráðstafanir séu gerðar varðandi örugga förgun þynntra og óþynntra plöntuverndarvara og umbúða þeirra til þess að vernda heilbrigði manna og umhverfi. Tryggja skal að geymsla, meðhöndlun, blöndun, hreinsun og förgun plöntuverndarvara hjá notendum í atvinnuskyni sé fullnægjandi.Ráðgjöf varðandi notkun plöntuverndarvara til notenda í atvinnuskyni skal eingöngu vera í höndum þeirra sem hafa aflað sér þjálfunar og eru með vottun því til staðfestingar, sbr. 25. gr.Kafli 6. Markaðssetning plöntuverndarvara.Dreifandi má eingöngu selja og afhenda plöntuverndarvörur til notkunar í atvinnuskyni til notenda í atvinnuskyni sem hafa aflað sér þjálfunar og eru með vottun því til staðfestingar. Ef kaupandi er lögaðili skal dreifandi ganga úr skugga um að fulltrúi lögaðilans hafi aflað sér þjálfunar og sé með vottun því til staðfestingar. Dreifandi skal sjá til þess að starfsfólk með fagþekkingu, sbr. 25. gr., sé til staðar og veiti upplýsingagjöf til notenda í atvinnuskyni og almennings.Kafli 7. Þjálfun, upplýsingagjöf og vitundarvakning.Lögbært yfirvald skal tilnefna einn eða fleiri aðila til þess að sjá um eftirfarandi:a) grunn- og viðbótarþjálfun fyrir notendur í atvinnuskyni og dreifandendur um námsþætti í viðauka III,b) þjálfun fyrir notendur í atvinnuskyni um notkun búnaðar til dreifingar á plöntuverndarvörum,c) ítarlega þjálfun fyrir ráðgjafa um námsþætti sem fram koma í Viðauka III, með sérstakri áherslu á notkun samþættra varna gegn skaðvöldum.Aðildarríki skal tilnefna lögbær yfirvöld sem bera ábyrgð á skipulagningu þjálfunar skv. stafliðum a-c hér að framan, sem og vottunarkerfi og stafrænum gagnagrunni fyrir notendur í atvinnuskyni.Aðildarríki skal tilnefna lögbært yfirvald til að koma á fót, hafa umsjón og eftirlit með kerfi sjálfstæðra ráðgjafa fyrir notendur í atvinnuskyni.Notendur í atvinnuskyni skulu hafa samráð við ráðgjafa a.m.k. einu sinni á ári og afla sér ráðgjafar sem felur í sér þætti sem fram koma í 4. mgr., 26. gr.Aðildarríki skal tilnefna lögbært yfirvald sem fer með upplýsingagjöf og vitundarvakningu til almennings varðandi áhættu sem stafar af notkun plöntuverndarvara. Lögbært yfirvald skal koma á fót og viðhalda vefsetri þar sem fram koma upplýsingar um slíka áhættu ásamt upplýsingum um þá þætti sem fram koma í 3. mgr., 27. gr.Aðildarríki skal tilnefna lögbært yfirvald til þess að sjá um tilkynningar vegna tilvika um bráð eiturhrif og langvinn eiturhrif af völdum plöntuverndarvara.Kafli 8. Búnaður til að dreifa plöntuverndarvörum.Þeir sem eiga búnað til að dreifa plöntuverndarvörum skulu skrá eignarhald á búnaði í stafrænan gagnagrunn, sem og breytingu á eignarhaldi ef búnaður er seldur og ef búnaður er ekki lengur í notkun.Aðildarríki skal tilnefna lögbært yfirvald til þess að koma á fót stafrænum gagnagrunni til að viðhalda öllum upplýsingum um búnað, til þess að nota gagnagrunninn til að taka á móti og vinna úr gögnum frá þriðja aðila, hafa eftirlit og umsjón með því eftirliti sem fer fram á búnaði og vottunum sem gefnar eru út. Ef lögbært yfirvald fer ekki sjálft með eftirlit með búnaði er heimilt að tilnefna einn eða fleiri aðila til þess að sjá um það. Aðildarríki skulu framkvæma innra eftirlit með þeim sem hafa verið tilnefndir til þess að sjá um eftirlit með búnaði.Lögbær yfirvöld skulu framkvæma eftirlit með búnaði á þriggja ára fresti og tryggja að nauðsynlegt starfsfólk, tækjabúnaður og aðrir innviðir fyrir eftirlitið séu aðgengilegir. Eftirlit með búnaði skal tryggja að búnaður uppfylli skilyrði sem fram koma í IV. viðauka og skrá skal þær upplýsingar sem fram koma í 2. mgr. 33. gr. Allar upplýsingar um eftirlit og niðurstöður eftirlits með búnaði skal færa inn í stafrænan gagnagrunn.Vottun vegna eftirlits skal vera gefin út til eiganda um að búnaður hafi staðist skoðun og uppfylli skilyrði í IV. viðauka og skal vottunin einnig vera skráð í stafrænan gagnagrunn.Kafli 9. Aðferðafræði við útreikninga á landsbundnum markmiðum og samræmdum áhættuvísumLeiðbeiningar um útreikninga fyrir landsbundin 2030 markmið koma fram í I. viðauka.Leiðbeiningar um útreikninga fyrir samræmda áhættuvísa 1, 2 og 2a koma fram í VI. viðauka.Aðildarríki skal leggja mat á og greina niðurstöður útreikninga fyrir landsbundin 2030 markmið og samræmda áhættuvísa árlega.Kafli 10. Stjórnsýsla og sektirKafli 11. Framsal og nefndirKafli 12. Umbreytinga og loka ákvæði
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Tæknilegri aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Nei |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Nei |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Nei |
Innleiðing
| Innleiðing | Lagasetning/lagabreyting |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta |
Endurskoða þarf efnalög, nr. 61/2013, með síðari breytingum, til að innleiða megi þessa reglugerð í íslenskan rétt. Sérstaklega þarf að endurskoða ákvæði efnalaga sem fjalla um plöntuverndarvörur. Horfa þarf til þess hvernig önnur ráðuneyti hafa skipulagt innleiðingu á ESB reglugerð sem tekur við af tilskipun, t.d. hvort rétt sé að vísa að einhverju leiti beint í tiltekin ákvæði reglugerðarinnar í frumvarps- og síðar lagatexta. Endurskoða þarf sérstaklega skilgreiningu á lögbærum yfirvöldum og hlutverki þeirra. Í reglugerðinni er vísað til CAP (Sameiginlegu landbúnaðarstefnunnar) þar sem gert er ráð fyrir þeim möguleika að ræktendur geti sótt sum styrk til þess að taka upp samþættar varnir gegn skaðvöldum. Íslensk stjórnvöld þurfa að meta hvort vilji er fyrir sambærilegu kerfi hér á landi. Einnig þarf að meta innan hvaða regluverks slíkar styrkveitingar ættu að vera, t.a.m. má nefna að reglugerðir nr. 430/2021 um almennan stuðning við landbúnað og nr. 1273/2020 um stuðning við garðyrkju falla undir matvælaráðuneytið. Þessi reglugerð fjallar eingöngu um plöntuverndarvörur, en í efnalögum er í flestum tilfellum fjallað um plöntuverndarvörur og sæfivörur samtímis. Endurskoða þarf hvort aðgreina skuli plöntuverndarvörur og sæfivörur í texta efnalaga. Eftirfarandi kafla og/eða ákvæði efnalaga þarf að endurskoða: - 3. gr. um skilgreiningar. - II. kafla um verkaskiptingu stjórnvalda. - 11. gr. um reglugerðarheimildir. - 14. gr. um skyldu til að afla og varðveita upplýsingar. - 16. gr. um varðveislu. - 19. gr. um förgun hættulegra efna og notuð ílát. - 24. gr. um markaðssetningu eiturefna og notendaleyfisskyldra vara. - VII. kafla um plöntuverndarvörur og sæfivörur (áætlun um notkun plöntuverndarvara, búnaður, takmörkun á notkun). - X. kafla um notendaleyfi. - XI. kafla um eftirlit. - XII. kafla um gjaldtöku. - XIII. kafla um þvingunarúrræði og bráðabirgðaúrræði. - XIV. kafla um viðurlög. - XV. kafla um innleiðingu og gildistöku. Lagastoð gæti skort fyrir: - Landsbundin markmið um samdrátt í notkun plöntuverndarvara. - Meginreglur um samþættar varnir gegn skaðvöldum, þ.m.t. reglur um ræktun sérstakra nytjaplantna. - Ráðgjöf fyrir þá sem nota plöntuverndarvörur í atvinnuskyni. - Samræmdum áhættuvísum. - Takmarkanir á notkun plöntuverndarvara á viðkvæmum svæðum. - Skyldu yfirvalda og notenda að skrá tilteknar upplýsingar í stafræna gagnagrunna varðandi: - Skráningu um notkun á samþættum vörnum gegn skaðvöldum og notkun plöntuverndarvara. - Þjálfun og vottun fyrir þá sem nota plöntuverndarvörur í atvinnuskyni. - Skráningu á öllum upplýsingum um búnað, til þess að taka á móti og vinna úr gögnum frá þriðja aðila, allar upplýsingar um eftirlit með búnaði, niðurstöðu eftirlits og útgáfu á vottun fyrir búnað. Fella þarf úr gildi reglugerð nr. 677/2021 um meðferð plöntuverndarvara og útrýmingarefna eða breyta henni á þann hátt að hún fjalli eingöngu um meðferð útrýmingarefna. Setja þarf nýja reglugerð um sjálfbæra notkun plöntuverndarvara. Lagaheimild er í 3. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur | Ekki er unnt að gera nákvæma greiningu á kostnaði fyrr en lokið er við að tilnefna lögbær yfirvöld skv. reglugerðinni og skilgreina verkaskiptingu stjórnvalda. |
|---|---|
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Aukakostnaður |
| Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands |
Reglugerðin hefur talsverð áhrif á stjórnvöld og hagaðila á Íslandi. Með reglugerðinni er verið að setja auknar skyldur á stjórnvöld, umfram það sem gildir nú, að því er varðar stefnumótandi markmið, aðgerðir og ráðstafanir sem stuðla að minni notkun plöntuverndarvara og áhættu af notkun þeirra, uppsetningu kerfis sem stuðlar að sjálfbærri notkun plöntuverndarvara með áherslu á samþættar varnir gegn skaðvöldum, aukið eftirlit og umsjón með að ákvæðum reglugerðarinnar sé framfylgt. Reglugerðin felur í sér útgáfu á reglum og leiðbeiningum, öflun og miðlun upplýsinga, skýrslugjöf, að koma á fót ráðgjafarkerfi, uppsetningu og viðhald á stafrænum gagnagrunnum. Stjórnvöld þurfa einnig að koma á fjárhagslegum stuðningi og hvatningu til ræktenda í landbúnaði og garðyrkju. Gera má ráð fyrir auknum kostnaði hjá stjórnvöldum sem fellur til við að framfylgja kröfum reglugerðarinnar. Með reglugerðinni er verið að setja auknar skyldur á notendur plöntuverndarvara í atvinnuskyni og aukin skilyrði við ræktun í landbúnaði og garðyrkju, þ.m.t. garðaúðun. Notendur í atvinnuskyni eru skilgreindir í reglugerðinni sem „hver sá aðili sem notar plöntuverndarvörur við atvinnustarfsemi sína“. Reglugerðin felur í sér ítarlegar reglur og skilyrði sem ræktendur skulu uppfylla, að notendur í atvinnuskyni taki upp samþættar varnir gegn skaðvöldum og noti ekki plöntuverndarvörur nema að ákveðnum skilyrðum uppfylltum, aukin skráningarskylda um ráðstafanir og aðgerðir sem og um notkun plöntuverndarvara. Krafa er gerð til notenda í atvinnuskyni að þeir afli sér ráðgjafar um ræktunina, samþættar varnir gegn skaðvöldum og notkun plöntuverndarvara árlega frá viðurkenndum ráðgjafa. Gera má ráð fyrir auknum kostnaði hjá notendum í atvinnuskyni sem fellur til við að framfylgja kröfum reglugerðarinnar og í vissum tilfellum má einnig gera ráð fyrir tímabundnu tjóni við ræktun nytjaplantna á meðan verið er að taka upp samþættar varnir gegn skaðvöldum. Í reglugerðinni er kveðið á um að notkun plöntuverndarvara sé óheimil á viðkvæmum svæðum. Viðkvæm svæði eru skilgreind í reglugerðinni m.a. sem almenningssvæði eins og almenningsgarðar, útivistar og íþróttasvæði eða almenningsstígar. Plöntuverndarvörur eru notaðar hér á landi á ýmsum íþróttasvæðum til þess að viðhalda gæðum svæðanna, t.a.m. á golfvöllum. Gera má því ráð fyrir bann við notkun plöntuverndarvara á tilteknum svæðum geti haft í för með sér neikvæð áhrif. |
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Umhverfis- og orkustofnun |
Vinnslustig (pipeline stage)
| COM numer | COM(2022) 305 |
|---|---|
| Dagsetning tillögu ESB | |
| Dagsetning tillögu |
