Nánari efnisumfjöllun
Í viðauka II er mælt fyrir um kröfur varðandi merkingar sem gilda um ESB-áburðarvörur. Upplýsingar skulu veittar á efnislegum merkimiða sem fest er á umbúðirnar eða í sérstökum fylgiseðli ef umbúðir eru of litlar. Merkingarnar varða þætti sem tengjast ræktunarfræðilegri virkni ESB-áburðarvara, s.s. næringarefnainnihaldi þeirra og aðra mæliþætti. Kröfur um merkingar ná einnig yfir upplýsingar sem eru nauðsynlegar til að vernda heilbrigði manna og umhverfið við notkun áburðarvara, s.s. upplýsingar sem eru nauðsynlegar fyrir rétta beitingu tilskipunar ráðsins 91/676/EBE og upplýsinga sem eru nauðsynlegar fyrir rétta meðhöndlun og notkun slíkra vara eftir kaup, t.d. um geymsluskilyrði.Aðlaga ætti merkingarkröfur ESB-áburðarvara í reglugerð (ESB) 2019/1009 að tæknilegum og samfélagslegum breytingum á sviði stafrænnar væðingar. Þetta skal gert án þess að það komi niður á gæðum eða aðgengi að upplýsingum og vera til ávinnings fyrir rekstraraðila og endanlega notendur.Stafræn merking ESB-áburðarvara hefur skýran ávinning. Bæði með því að forðast yfirfulla efnislega merkimiða og gera þannig notendum kleift að reiða sig á ýmsa lestrarvalkosti sem aðeins eru í boði fyrir rafræn snið, s.e. stærri leturstærð, sjálfvirka leit, hlustun eða þýðingu yfir á önnur tungumál. Auk þess geta stafrænar merkingar stuðlað að áframhaldandi framförum að því er varðar stafræna og græna umbreytingu evrópska landbúnaðargeirans með því að draga úr umbúðaúrgangi og auðvelda skyldur bænda um skýrslugjöf að því er varðar notkun áburðarvara.Stafræn merking getur einnig leitt til markvissari upplýsingagjafar frá rekstaraðila til notenda. En forðast þarf ónauðsynlegar upplýsingar til að tryggja að nauðsynlegar upplýsingar komist til skila til notenda. Auk þess geta stafrænar merkingar stuðlað að því að draga úr kostnaði við merkingar í allri aðfangakeðjunni, að því gefnu að hægt sé að breyta merkimiðum ESB-áburðarvara í kjölfar viðskipta milli rekstraraðila, áður en þær koma til endanlegra notenda.Áskoranir geta einnig komið fram með stafrænum merkingum og geta skapað vandamál fyrir einstaklinga með enga eða ófullnægjandi stafræna færni eða aðgang að stafrænum tækjum sem eru nauðsynleg eru til að sækja stafrænu merkingarnar. Stafrænar merkingar gætu gert þessum hópum erfiðara fyrir að hafa greiðan aðgang að nauðsynlegum upplýsingum um ESB-áburðarvörur, sem og leiðbeiningar um örugga notkun og vernd fyrir heilbrigði manna, dýra og plantna og umhverfið. Því ætti að innleiða stafrænar merkingar með tilteknum skilyrðum og stafrænir merkimiðar ættu að vera auðskiljanlegir og aðgengilegir fyrir viðkvæma hópa og fatlað fólk. Mikilvægt er að öryggi notenda sé ekki stofnað í hættu við að gera merkingar notendavænni með stafrænum hætti og að tekið sé tillit til möguleika og færni lítilla og meðalstórra fyrirtækja til að gera merkimiðana stafræna.Rekstraraðilum ætti að vera frjálst að velja hvort þeir noti stafræna eða efnislega merkingu. Það tryggir að þeir hafi sveigjanleika til að velja þær reglur sem henta þeirra aðstæðum best. Einkum er mikilvægt að skapa ekki óréttmætan kostnað fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Jafnframt er mikilvægt að veita stuðning í formi leiðbeininga- og þjálfunaráætlana til að gera slíkum fyrirtækjum kleift að þróa þá færni og getu sem nauðsynleg er til að fara að þessari reglugerð.Val á stafrænum merkimiða liggur fyrst og fremst hjá framleiðendum og innflytjendum sem bera ábyrgð á að uppfylla kröfur um merkingar sem settar eru fram í III. viðauka við reglugerð (ESB) 2019/1009. Þetta er mikilvægt til að tryggja að þeir geti tekið upplýstar ákvarðanir sem eru sniðnar að vöruframboði þeirra og ætluðum viðskiptavinum. Til að hámarka notkun stafrænna merkimiða ættu dreifingaraðilar líka að geta stafrænt merkimiða ESB-áburðarvara, fyrir vörur sem þeir bjóða fram á markaði, á grundvelli upplýsinga sem framleiðandinn veitir. Notkun stafrænna merkimiða ætti að tryggja samræmt flæði nákvæmra upplýsinga um alla aðfangakeðjuna. Umfang stafrænna merkinga skal vera háð tveimur þáttum: hvort ESB-áburðarvörurnar séu gerðar aðgengilegar rekstraraðilum eða endanlegum notendum og hvort vörurnar eru afhentar með eða án umbúða.Rekstraraðilum ætti að vera heimilt að láta í té öll merkingaratriðin, sem um getur í III. viðauka við reglugerð (ESB) 2019/1009, á stafrænum merkimiða fyrir ESB-áburðarvörurnar sem eru afhentar öðrum rekstraraðilum, með eða án umbúða. Innflytjendur eða dreifingaraðilar geta sett merkimiða á ESB-áburðarvöruna beint á þau opinberu tungumál sem eru nauðsynleg. Auk þess er hægt að komast hjá kostnaði við merkingar ef ESB-áburðarvörur eru blandaðar, pakkaðar eða þeim umpakkað þar sem einungis er hægt að merkja vörurnar með efnislegan merkimiða einu sinni, áður en þær koma til endanlegra notenda. Ef rekstraraðilar velja að afhenda efnislegan merkimiða til viðbótar við stafrænan merkimiða ætti þeim að vera frjálst að ákveða hvaða merkingaratriði skuli koma fram í þessum efnislega merkimiða í samræmi við reglugerð (ESB) 2019/1009.Efnislegir merkimiðar eru ákjósanlegasta leiðin fyrir endanlega notendur til að fá lykilupplýsingar um notkun ESB-áburðarvara vegna þess að þeir veita tafarlausan og áreiðanlegan aðgang að upplýsingum. Að auki eru langflestar ESB-áburðarvörur sem fáanlegar eru á markaðnum notaðar af fagfólki, svo sem bændum og verktökum í landbúnaði. Þó að fagmenn séu vel vanir notkunar á áburðarvörum og treysta oft á ráðgjöf um áburðaráætlanir sínar, hafa þeir tilhneigingu til að tilheyra aldurshópum, með minni stafræna færni og gætu lent í erfiðleikum með að fá aðgang að stafrænum merkimiðum. Að auki gætu dreifbýlissvæði lent í því að hafa skertan aðgang að interneti á akri sínum eða sveitabæ.Ef rekstraraðilar velja stafrænar merkingar á ESB-áburðarvörum, sem eru afhentar endanlegum notendum í umbúðum, ættu þeir að tryggja að lágmarksupplýsingar um landbúnaðarhagkvæmni og notkun vörunnar séu einnig aðgengilegar á efnislega merkimiðanum. Í þessu samhengi og að því er varðar aðrar reglur sem eiga sérstaklega við um vörur sem eru boðnar fram í umbúðum ættu umbúðir ekki að innihalda meira en 1 000 kg í samræmi við reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 142/2011 til að tryggja að meira magn, sem venjulega er notað við iðnaðaraðstæður, sé meðhöndlað á annan hátt en pakkningar sem venjulega eru seldar smærri neytendum. Vörur sem eru afhentar í umbúðum yfir þessum mörkum ættu að teljast afhentar án umbúða að því er varðar reglugerð (ESB) 2019/1009. Í reglugerðinni ætti að koma skýrt fram hvaða upplýsingar er einungis hægt að veita á stafrænan hátt.Rekstraraðilar sem afhenda ESB-áburðarvörur án umbúða skulu láta merkingaratriðin fylgja í fylgiseðli til að tryggja að nauðsynlegar upplýsingar séu aðgengilegar notandanum. Stafræna sniðið ætti að vera sveigjanlegt, samræmt og uppfært í rauntíma og tryggja að notendur geti nálgast nýjustu upplýsingar. Því ætti rekstraraðilum að vera heimilt að leggja fram öll merkingaratriðin, sem um getur í III. viðauka við reglugerð (ESB) 2019/1009, á stafrænum merkimiða eingöngu fyrir ESB-áburðarvörur sem eru afhentar án umbúða. Ef rekstraraðilar kjósa að leggja fram fylgiseðil til viðbótar við stafrænan merkimiða skal þeim frjálst að ákveða hvaða merkingaratriði þeir vilja hafa í fylgiseðlinum.Til að tryggja að notendur fái öll nauðsynleg merkingaratriði á stafræna merkimiðanum, bæði frá efnislegum og stafrænum merkimiða, ætti að krefjast þess að rekstraraðilar, sem nota stafrænan merkimiða, innihaldi öll slík merkingaratriði á stafræna merkimiðanum, jafnvel þótt þau séu einnig á efnislega merkimiðanum til að tryggja að allar nauðsynlegar upplýsingar séu veittar á einum stað. Það gerir endanlegum notendum kleift að hafa samband við framleiðanda og innflytjanda ESB-áburðarvörunnar. Rekstraraðilar ættu að eiga þess kost að tilgreina ekki magnið á stafræna merkimiðanum, ef það er þegar látið í té á efnislegu formi, að því gefnu að sá þáttur gæti breyst í aðfangakeðjunni eða verið breytilegur eftir öllum viðskiptum ef um er að ræða vörur sem eru afhentar án umbúða. Minnt er á að það er einnig nauðsynlegt fyrir endanlegan notanda að hafa nauðsynlegar upplýsingar, sem um getur í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/988, til að vera fær um að bera kennsl á og hafa samband við ábyrgðaraðilann fyrir vörur sem settar eru á markað Sambandsins.Rekstraraðilar skulu tryggja frjálsan aðgang að stafrænum merkimiðum í 10 ár frá þeim degi sem viðkomandi ESB-áburðarvara var sett á markað. Til að auka líkurnar á að notendur sæki upplýsingarnar skulu stafrænar merkingar vera aðgengilegar notendum í sambandinu með víðtækri stafrænni tækni í öllum helstu stýrikerfum og vöfrum og tryggja ætti aðgang að merkimiðanum án nokkurs aðgangsorðs, skráningar eða sérstakrar notkunar og taka ætti tillit til þarfa viðkvæmra hópa. Gagnakóðinn ætti að leiða beint til stafræna merkimiðans án allrar fyrirhafnar. Stafrænir merkimiðar hafa engin rýmistakmörk sem gefur tækifæri til að veira viðbótarupplýsingar varðandi notkun ESB-áburðarvörunnar, s.s. ráðleggingar og bestu starfsvenjur til að takmarka næringarefnatap. Rekstraraðilar ættu því að geta veitt slíkar upplýsingar á stafræna merkimiðanum.Til að daga úr líkum á því að stafræni merkimiðinn sé ekki tiltækur fyrir viðkvæma hópa, sérstaklega þegar ESB-áburðarvörur eru afhentar endanlegum notendum án umbúða, ættu rekstraraðilar að bera ábyrgð á að láta endanlegum notendum í té merkingaratriði með öðrum hætti, sé þess óskað. Mögulegir endanlegir notendur ættu að fá upplýsingar með öðrum hætti til að taka upplýsta ákvörðun.Aðlaga þarf kröfurnar sem settar eru fram í IV. viðauka við reglugerð (ESB) 2019/1009 til að taka tillit til innleiðingar stafrænna merkimiða. Í ljósi þess að stafrænir verkvangar eru í þróun og þess að þörf er á stöðugu aðgengi að þeim ætti að endurskoða reglulega þessar breytingar.Þegar framkvæmdastjórnin setur fram ítarlegri reglur um stafrænar merkingar ætti hún að gefa öðrum reglum Sambandsins sérstakan gaum um veitingu upplýsinga um vörur eða efni og blöndur á stafrænu formi. Það ætti að vera mögulegt að nálgast allar upplýsingar sem krafist er samkvæmt ýmsum reglum Sambandsins á einu stafrænu rými þannig að notendur hafi greiðan aðgang að öllum nauðsynlegum upplýsingum. Það myndi einfalda upplifun notenda og hvetja til trausts á stafrænum upplýsingaveitum. Enn fremur myndi það skapa víðtækara og notendavænt viðmót sem stuðlar að gagnsæi neytenda og upplýstri ákvarðanatöku.Við ákvörðun á því hvaða merkingar geta einungis verið stafrænar ætti framkvæmdastjórnin að taka tillit til þess hversu vel notendur ESB-áburðarvara eru tilbúnir fyrir slíkar merkingar og að halda notkun á slíkum vörum öruggum fyrir heilbrigði manna, dýra, platna og fyrir umhverfið ásamt því að tryggja aðgengi þeirra í tíu ár frá þeim degi sem þær eru settar á markað. Að auki skal taka tillit til breytts, stafræns landslags og tryggja að stafrænar merkingar séu áfram aðgengilegar og notendavænar í samræmi við tækniframfarir. Mikilvægt er að meta endurgjöf frá endanlegum notendum og hagsmunaaðilum til að tryggja að stafræna merkingarkerfið uppfylli þarfir þeirra og taki á öllum vandamálum sem koma upp.Með þessari reglugerð er einungis gefinn upp sá möguleiki að setja fram allar kröfur um merkingar eða hluta þeirra, sem settar eru fram í III. viðauka við reglugerð (ESB) 2019/1009, á stafrænum merkimiðum og fresta ætti beitingu hennar til að veita nægan tíma til að þróa viðbótarkröfur varðandi stafrænar merkingar.Þar eð aðildarríkin geta ekki fyllilega náð markmiðum þessarar reglugerðar, þ.e. að bæta læsileika merkimiða ESB-áburðarvara og greiða fyrir stjórnun rekstraraðila á slíkum merkimiðum til að tryggja starfsemi innri markaðarins, og þeim verður betur náð á vettvangi Sambandsins vegna umfangs þeirra og áhrifa, er Sambandinu heimilt að samþykkja ráðstafanir í samræmi við nálægðarregluna eins og kveðið er á um í 5. gr. sáttmálans um Evrópusambandið. Í samræmi við meðalhófsregluna, eins og hún er sett fram í þeirri grein, er ekki gengið lengra en nauðsyn krefur í þessari reglugerð til að ná þessum markmiðum.