Nýfæði - 32023R0948

Commission Implementing Regulation (EU) 2023/948 of 12 May 2023 authorising the placing on the market of 6′-Sialyllactose sodium salt produced by derivative strains of Escherichia coli BL21(DE3) as a novel food and amending Implementing Regulation (EU) 2017/2470


iceland-flag
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/948 frá 12. maí 2023 um leyfi til að setja á markað 6''-síalýllaktósanatríumsalt, sem er framleitt með afleiddum stofnum Escherichia coli BL21(DE3), sem nýfæði og um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2017/2470
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.12 Matvæli
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 224/2023
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Framkvæmdareglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/948 frá 12. maí 2023 um leyfi til að markaðssetja sem nýfæði natríum salt af 6′-Síalýllaktósa, sem framleiddur er með afleiddum stofni af Escherichia coli BL21(DE3) og um breytingu á framkvæmdareglugerð (ESB) 2017/2470

Nánari efnisumfjöllun

Framkvæmdareglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/948 frá 12. maí 2023 um leyfi til að markaðssetja sem nýfæði  natríum salt af 6′-Síalýllaktósa, sem framleiddur er með afleiddum stofni  af Escherichia coli BL21(DE3) og um breytingu á framkvæmdareglugerð (ESB) 2017/2470 Gerðin varðar reglugerð (ESB) nr. 2015/2283 um markaðssetningu og notkun á nýfæði innan Evrópusambandsins og framkvæmdareglugerð 2017/2470 sem kveður á um lista Sambandsins yfir leyfilegt nýfæði. Sótt hefur verið um leyfi framkvæmdastjórnar ESB til að markaðssetja natríum salt af 6′-Síalýllaktósa (6′-SL) sem framleiddur er með örverufræðilegri gerjun þar sem notaðir eru tveir erfðabreyttir stofnar af Escherichia coli BL21(DE3),  á sameiginlega markaðnum sem nýfæði.Sótt var um leyfi til að nota natríum salt af 6′-SL í ýmis matvæli, m.a. ungbarnablöndu og stoðblöndu  og í fæðubótarefni sem ætluð eru almennum neytendum að undanteknum ungbörnum og börnum. Framkvæmdastjórnin óskaði umsagnar Matvælaöryggisstofnunar Evrópu. Í áliti sínu taldi stofnunin að sellóbíósi væri öruggur til notkunar í þær afurðir og í því magni sem sótt var um leyfi fyrir. Umsækjandi fór fram á að hluti af rannsóknunum sem umsóknin byggist á njóti gagnaverndar, sbr. gr. 26.1 í reglugerð 2015/2283 og að umsækjandi hafi einkarétt á að vísa í hluta af þeim rannsóknum sem umsóknin byggir á, sbr. gr.  26.2 í reglugerð 2015/2283. Eftir að hafa skoðað gögn málsins ákvað framkvæmdastjórnin að fallast á beiðnina og veitti umsækjanda einkarétt á að vísa til fyrrgreindra rannsókna. Einkaleyfið gildir í fimm ár frá gildistöku þessarar reglugerðar. Því er umsækjenda veitt einkaleyfi á að markaðssetja nýfæði byggt á þessari reglugerð til fimm ára. Einkarétturinn kemur hins vegar ekki í veg fyrir að aðrir aðilar geti sótt um leyfi fyrir sama nýfæði ef umsókn er byggð á löglega fengnum gögnum. Framkvæmdastjórnin fellst á umsóknina og viðauka við framkvæmdareglugerð (ESB) 2017/2470 er breytt í samræmi við viðauka við þessa reglugerð og með þeim skilyrðum sem þar koma fram. 

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Gerðin verður innleidd sem breyting við reglugerð nr. 900/2018, og með stoð í lögum um matvæli, nr. 93/1995.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32023R0948
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L 128, 15.5.2023, p. 52
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 35, 25.4.2024, p. 59
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2024/944, 25.4.2024