Reglugerð um bætta aðferðafærði verðvísitalna húsnæðisverðs - 32023R1470
Commission Implementing Regulation (EU) 2023/1470 of 17 July 2023 laying down the methodological and technical specifications in accordance with Regulation (EU) 2016/792 of the European Parliament and of the Council as regards the house price index and the owner-occupied housing price index, and amending Commission Regulation (EU) 2020/1148
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.

Gerð ekki til á íslensku
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 21 Hagskýrslugerð |
| Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 110/2026 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Reglugerðin kveður á um aðferðarfræðilegar og tæknilegar kröfur varðandi samræmda samantekt og gerð vísitölu húsnæðisverðs og vísitölu verðlags á eigin húsnæði í samræmi við reglugerð (ESB) 2016/792. Markmiðið er að tryggja samræmda og áreiðanlega gagnasöfnun og útreikninga á verðbreytingum húsnæðis, með það að leiðarljósi að bæta samanburð milli ríkja innan EES og stuðla að bættri efnahagslegri greiningu innan EES. Með reglugerðinni eru einnig gerðar nýjar eða uppfærðar kröfur um tilkynningar og framkvæmd gagnasöfnunar, sem og gerðar breytingar á fyrri framkvæmdarreglugerð (ESB) 2020/1148. Þetta stuðlar að stöðluðu eftirliti og meginreglum við vinnslu og miðlun gagna, sem eru nauðsynlegar fyrir stefnumótun á sviði húsnæðismarkaðar og hagstjórnar. Gerðin kallar á talsverða vinnu hjá Hagstofu Íslands við að innleiða og aðlaga samræmda evrópska aðferðafræði fyrir íslenskar aðstæður.
Nánari efnisumfjöllun
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1470 setur fram nákvæmar aðferðafræðilegar og tæknilegar forskriftir sem fyrirmæli í reglugerð (ESB) 2016/792 gera ráð fyrir varðandi vísitölu húsnæðisverðs (e. house price index, HPI) og verðvísitölu fyrir búsetu í eigin húsnæði (e. owner-occupied housing price index, OOHP). Regugerðin er mikilvægur þáttur í samræmingu og bættum gæðum hagskýslugerðar á þessum sviðum og tryggir samanburðarhæfni gagna milli aðildarríkja ESB og ríkja á EES-svæðinu. Reglugerðin kveður á um ítarlega aðferðafræði varðandi gagnasöfnun, útreikninga og framsetningu vísitölu húsnæðisverðs (HPI) og verðvísitölu fyrir búsetu í eigin húsnæði (OOHP). Þar eru nánar skilgreindar kröfur til gagnaheimilda, tíðni og umfang gagnaöflunar, flokkun og skilgreining upplýsinga eftir eiginleikum fasteigna (svo sem stærð, staðsetningu og byggingarári), auk fyrirmæla um hvernig eigi að leiðrétta og samræma gögn með það að markmiði að koma í veg fyrir skekkjur. Lögð er áhersla á notkun heildstæðra og áreiðanlegra heimilda, það að beita vandaðri úttaksgerð, og að fylgja viðurkenndum reikniaðferðum, til dæmis þegar meta þarf áhrif endurbóta eða breytinga á eigendum. Í reglugerðinni eru jafnframt lagðar skyldur á hagstofur aðildarríkja um skil á lýsigögnum til Eurostat, þar sem fram kemur hvernig gagnaöflun, flokkun, reikning og samsetningu vísitölunnar er háttað. Áhersla er lögð á gagnsæi og að hægt sé að rekja allar breytingar eða endurmat niðurstaðna. Með reglugerðinni er einnig framkvæmdarreglugerð (ESB) 2020/1148 breytt að því leyti sem þessar tvær vísitölur eru viðurkenndar og samþættar inn í viðmið ESB um tölfræðilegar upplýsingar á sviði húsnæðis. Á heildina litið eykur reglugerðin samræmi, gæði og gagnsæi í öflun og úrvinnslu tölfræðilegra upplýsinga um húsnæðisverð og markað fyrir húsnæði í eigu eigenda. Hún auðveldar þannig stjórnvöldum, hagfræðingum og stefnumótendum að greina þróun húsnæðismarkaða og veita viðeigandi upplýsingagrundvöll fyrir ákvarðanatöku og eftirfylgni með þróun húsnæðisverðs og aðgengi almennings að húsnæði.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Á ekki við |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Uppfæra þarf reglugerð 777/2016 um um gildistöku og innleiðingu tiltekinna gerða Evrópusambandsins á sviði hagskýrslugerðar sem á sér stoð í lögum nr. 163/2007 um Hagstofu Íslands og opinbera hagskýrslugerð |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur | Framkvæmd gerðarinnar mun kalla á vinnuframlag sem samsvarar tveimur fullum störfum í tvö ár þar sem fram færi skoðun gagnalinda, uppsetning á gagnasöfnun, þróun á aðferðum til útreikninga og uppsetning á heildstæðu úrvinnslukerfi fyrir gagnavinnslu, greiningu og birtingu niðurstaðna. Einnig þarf að innleiða og aðlaga samræmda evrópska aðferðafræði fyrir íslenskar aðstæður þannig að þarfir innlendra notenda væru fyllilega uppfylltar en málefnasviði kallar á sérstaklega varfærna og vandaða nálgun þar sem húsnæðisverðsútreikingar snerta mjög breiða hagsmuni og þar á meðal almennings. Rekstur og viðhald á þessari hagskýrslugerð að innleiðingu lokinni væri varanlega eitt fullt starf sérfræðings. Miðað við kostnaðarforsendur Hagstofu Íslands er því kostnaður 52 milljónir króna við innleiðingu fyrstu tvö árin og fastur kostnaður við einn sérfræðing til að verkefninu til framtíðar væru 26 milljónir. |
|---|---|
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Aukakostnaður |
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Forsætisráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Hagstofa |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32023R1470 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L 181, 18.7.2023, p. 1 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| Dagsetning tillögu ESB | |
|---|---|
| C/D numer | D089855/01 |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
|---|---|
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 41, 25.6.2026, p. 109 |
| Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2026/1302, 25.6.2026 |
Breytir (Modifies)
| 32020R1148 | amends | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 32016R0792 | based on | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
