Tilskipun (ESB) 2025/1892 um framlengda framleiðendaábyrgð á textíl og matarsóun - 32025L1892

Directive (EU) 2025/1892 of the European Parliament and of the Council of 10 September 2025 amending Directive 2008/98/EC on waste


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn
Svið (EES-samningur, viðauki) 20 Umhverfismál, 20.05 Úrgangur

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Tilskipunin breytir rammatilskipun Evrópusambandsins um úrgang og fjallar aðallega um tvö efnisatriði – textíl og matarsóun. Aðildarríkjum er gert að koma á framlengdri framleiðendaábyrgð á textíl og skyldum vörum, til dæmis skóbúnaði. Fjallað er um hvernig slíkt kerfi á að virka, sett eru ákvæði um skráningarkerfi framleiðenda, skyldur aðildarríkja og sitthvað fleira praktískt.Settar eru reglur um forvarnarskyldu aðildarríkja hvað varðar matarsóun, hvernig fjalla skuli um matarsóun í úrgangsforvarnarstefnu, sett eru töluleg markmið um matarsóun og gagnaskil.Ákvæði er í tilskipuninni um að undanskilja koldíoxíð sem ætlað er til varanlegrar geymslu í jarðlögum frá ákvæðum rammatilskipunar um úrgangsmál.

Nánari efnisumfjöllun

Tilskipunin er lögð fram í fjórum greinum. Öll helstu efnisatriðin eru í fyrstu grein. Önnur grein kveður á um að umrita skuli tilskipunina yfir í landsrétt í síðasta lagi þann 17. júní 2027 og fjallað er um hvernig tilkynna skuli innleiðinguna til Evrópusambandsins. Þriðja og fjórða grein fjalla um hvenær tilskipunin tók gildi fyrir aðildarríki.Um bakgrunn tilskipunarinnarTilskipunin á rætur að rekja til European Green Deal og the New Circular Economy Action Plan þar sem kveðið er á um sjálfbærni textíl- og matvælageirans. Textíll: Í áætlun Evrópusambandsins the EU Strategy for Sustainable and Circular Textiles frá 2022 er hluti af framtíðarsýn Sambandsins að koma á framlengdri framleiðendaábyrgð á textíl til þess að neytendur njóti ágóðans af því að textílvörur endist lengur og verði af meiri gæðum. Framlengd framleiðendaábyrgð á að standa undir sérstakri söfnun á textíl og fyrirséð er að stór hluti ábyrgðarinnar felist í aðgerðum á sviði úrgangsforvarna og undirbúnings fyrir endurnotkun.Innan við 1% af öllum fataúrgangi í Evrópu er notaður til þess að búa til ný föt. Þetta er álitið vandamál því sá fatnaður framleiddur er úr endurunnum hráefnum í Evrópu er yfirleitt framleiddur úr öðrum hráefnum en textílúrgangi, til dæmis PET-plasti. Hvað endurvinnslu varðar, er í tilskipuninni lögð sérstök áhersla á að efla „lokaða“ hringrás textíls þannig að textílþræðir séu endurunnir í nýja textílþræði (e. fibre-to-fibre recycling).Um 88% textílframleiðenda í Evrópu eru örfyrirtæki og til að gæta meðalhófs og leggja ekki of miklar kröfur á slíka framleiðendur, eru örfyrirtæki undanþegin frá reglum um framlengda framleiðendaábyrgð. Sömuleiðis er ætti ekki að þurfa að greiða ábyrgðargjöld fyrir endurnotaðar vörur eða vörur sem unnar eru úr notuðum vörum með lengingu líftíma þeirra. Vörur sem geta valdið öryggis-, heilsu eða hreinlætisógnum við sérstaka söfnun, til dæmis herfatnaður og fatnaður sumra fagstétta, eru undanþegnar framlengdri framleiðendaábyrgð. Framleiðendur ættu ekki að þurfa að greiða kostnað við söfnun og úrgangsmeðhöndlun vara sem settar hafa verið á markað áður en ábyrgðin tók gildi. Þess vegna mun ábyrgðin ekki gilda fyrir þær vörur sem settar eru á markað áður en tilskipunin tekur gildi í Evrópusambandinu.Sumar vörur fara milli aðildarríkja. Að almennri reglu ætti framleiðandi ekki að þurfa að greiða gjöld vegna framlengdrar framleiðendaábyrgðar í mörgum ríkjum heldur ætti hann að greiða kostnað vegna framlengdrar framleiðendaábyrgðar í þeim ríkjum þar sem varan er líklegust til að verða að úrgangi.Aðildarríki halda úti framleiðendaskrá, veita ábyrgðarsamtökum framleiðenda heimild til að starfa og í aðfararorðum tilskipunarinnar eru aðildarríki sérstaklega hvött til þess að skoða þann möguleika að leyfa mörg ábyrgðarkerfi framleiðenda sem starfa í samkeppni hvert við annað, því slíkt geti skilað betri árangri, bæði fyrir neytendur og fyrir umhverfið. Ábyrgðarsamtök framleiðenda eiga að starfa í samkeppni við hvert annað á grundvelli samkeppnisregluverks Evrópusambandsins. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins varar sérstaklega við því að ábyrgðarkerfi sem opinberir aðilar taka virkan þátt í með beinum fjárframlögum geti auðveldlega talist til ósanngjarnrar ríkisaðstoðar og hafa þurfi varann á.Ýmsar kröfur varðandi framlengda framleiðendaábyrgð fyrir textíl eru umfram þá innviði sem eru til staðar á Íslandi. Það er gert að skyldu að nota visthönnunarviðmið (e. Ecodesign) til að ákvarða þrepaskiptingu úrvinnslugjalda. Reglugerðin um visthönnun hefur hins vegar ekki verið tekin upp í EES-Samninginn og viðmiðin hafa heldur ekki enn verið gefin út. Þó er strax orðið augljóst á þessum tímapunkti að það kerfi sem Úrvinnslusjóður býr við núna getur ekki lagt á úrvinnslugjöld eftir ákvæðum reglugerðar um visthönnun, né í raun eftir ákvæðum þessarar tilskipunar. Ekki er hægt að innleiða tilskipunina í því kerfi sem er við lýði á Íslandi núna án þess að gera á því veigamiklar breytingar.Umhverfis- og orkustofnun telur að fýsilegt sé að skoða að fara þá leið að heimila ábyrgðarsamtökum textílframleiðenda að fara með framlengda framleiðendaábyrgð á Íslandi. Slík leið sé líkleg til þess að ná markmiðum tilskipunarinnar og skila ávinningi fyrir neytendur og umhverfi. Annar kostur við að fara slíka leið er að þá er hægt að bregðast hratt við kostnaðarbreytingum með breytingu gjalda í stað þess að leggja skatt sem aðeins er hægt að breyta með lögum. Sama hvaða leið verður fyrir valinu er um kerfisbreytingu að ræða. Matvæli: Matarsóunarmarkmiðin sem tilskipuninni er ætlað að styðja við eru tvenn: Númer 1: Að skerpa á ábyrgð aðildarríkja við að hraða á samdrætti í matarsóun á sínu svæði og leggja þannig sitt að mörkum til að heimsmarkmið 12.3 náist.Númer 2: Að efla aðgerðavilja aðildarríkja í baráttunni gegn matarsóun til samræmis við þau ríki sem gengur best. Hvað varðar mælingar á matarsóun, hefur verið skekkja í ríkjum þar sem mikið er um ferðamenn því þeir mælast ekki sem hluti af höfðatölu. Til að leiðrétta fyrir fjölda ferðamanna mun framkvæmdastjórnin koma á leiðréttingarstuðli í útreikningana. Tilskipuninni er ekki ætlað að útrýma umbúðum utan um matvæli heldur er tekið fram í aðfararorðum að hvatt er til nýsköpunar í umbúðum sem vernda matvöru og lengja líftíma hennar, sérstaklega við flutning og geymslu vörunnar. Með tilskipuninni er aðildarríkjum gert að endurskoða forvarnastefnu sína með það fyrir augum að hraða aðgerðum gegn matarsóun.Annað: Gerð er breyting á gildissviði rammatilskipunar um úrgangsmál þannig að koldíoxíð sem fangað er til varanlegrar geymslu í jarðlögum fellur ekki undir rammatilskipun um úrgangsmál. UMFJÖLLUN UM INNIHALD 1. GREINARAð neðan er umfjöllun um innihald fyrstu greinar en megnið af innihaldi tilskipunarinnar er í henni.Efnisumfjöllun – TextíllÍ tilskipuninni er fjallað um textíl, skóbúnað og ýmsar skyldar vörur. Þar sem talað er um textíl í umfjölluninni hér að neðan er í öllum tilvikum átt við um textíl, skóbúnað og skyldar vörur.Undirliggjandi markmiðin með tilskipuninni eru að bæta meðhöndlun textílvara og textílúrgangs, til samræmis við forgangsröðun úrgangsþríhyrningsins, og að innleiða mengunarbótaregluna fyrir textíl.Tilskipunin útlistar nokkuð ítarlega hvaða skyldur textílframleiðendur, ábyrgðarsamtök textílframleiðenda og stjórnvöld ríkja hafa. Vert er að taka fram að hlutverk allra þessara aðila er veigamikið, ekki síst eftirlitshlutverk stjórnvalda sem eiga að sjá til þess að bæði framleiðendur og ábyrgðarsamtök starfi eftir ákvæðum tilskipunarinnar.Grein 1(2) Nýjar skilgreiningar bætast við sem skýra hlutverk í framlengdri framleiðiendaábyrgð textíls, til dæmis "framleiðandi textílvöru," "textílvörur, skóbúnaður og skyldar vörur," "netverslun," "almannaheillafélög (e. social economy entity)," "neytendi," "síðasti notandi," "óseldar neytendavörur" og "ábyrgðarsamtök framleiðenda (e. PROs)."Grein 1(7) Fjórar nýjar greinar, greinar 22a, 22b, 22c og 22d bætast við rammatilskipun (EB) 2008/98 um úrgangsmál. Í grein 22a er kveðið á um skyldu aðildarríkja til að sjá til þess að textílvörur, skóbúnaður og skyldar vörur séu undir kerfi framlengdrar framleiðendaábyrgðar. Lista yfir þær vörur sem falla undir kerfi framlengdrar framleiðendaábyrgðar er að finna í nýjum viðauka IVc.Aðildarríkjum er gert heimilt, en ekki skylt, að koma á kerfi framlengdrar framleiðendaábyrgðar fyrir dýnur. Umhverfis- og orkustofnun leggur til, eftir samráð við hagaðila, að það verði ekki gert til að byrja með heldur verði það metið út frá reynslu annarra ríkja Evrópu hvort tilefni sé til að færa dýnur undir kerfi framlengdrar framleiðendaábyrgðar eða ekki. Þar sem ríki Evrópu munu hafa innleitt tilskipunina þann 17. júní 2027 og ákvæði hennar munu hafa tekið gildi í síðasta lagi þann 17. apríl 2028, leggur Umhverfis- og orkustofnun til að eftir þann tíma verði lagt mat á hvort tilefni sé til að færa dýnur undir kerfi framlengdrar framleiðendaábyrgðar eða ekki. Það mætti til dæmis gera ári eftir gildistöku tilskipunarinnar, sem væri ekki síðar en þann 18. júní 2028.Aðildarríkjum er gert skylt að sjá til þess að framleiðandi sem skráður er í öðru Evrópuríki en setur vörur á markað í aðildarríkinu tilnefni fulltrúa sinn sem fer með skyldur framleiðandans. Aðildarríkjum er heimilt að fara fram á að framleiðendur í þriðju ríkjum sem setja vöru á markað í aðildarríkinu skipi fulltrúa sem fer með skyldur framleiðandans.Aðildarríki eiga að sjá til þess að framleiðendur geti, ef þeir óska þess, fengið samtök framleiðenda til að fara með skyldur sínar frekar en að gera það sjálfir.Aðildarríki eiga að sjá til þess að hagaðilar sem taldir eru upp í grein 22a(7) komi að vinnunni við að koma textíl undir kerfi framlengdrar framleiðendaábyrgðar.Fjallað er um lágmarkskröfur sem gerðar eru til framlengdrar framleiðendaábyrgðar og varða fjárhagslegar greiðslur. Meðal lágmarkskrafna er fjármögnun eftirfarandi: sérstakrar söfnunar, frekari úrvinnslu sérsafnaðs textílúrgangs, framkvæmd samsetningarkönnunar blandaðs úrgangs, ýmis upplýsingagjöf sem fjallað er um í greininni, gagnasöfnun og gagnaskil til lögbærs yfirvalds og stuðningur við rannsóknir og þróun til að auka endurvinnslu textíls í nýja textílþræði.Valkvætt er fyrir aðildarríki hvort þau ákveði að skylda framleiðendur til að greiða fyrir hluta blandaðs heimilisúrgangs eða ekki. Skoða þarf kosti og galla hvorrar leiðar fyrir sig.Fjallað er um skyldur aðildarríkja sem varða markaðseftirlit með vörum sem ekki eru matvæli og kveðið er á um í reglugerð (ESB) 2019/1020 sem hefur verið tekin upp í EES-Samninginn en hefur ekki öðlast gildi. Einnig er fjallað um skyldur aðildarríkja sem varða sanngirni og gegnsæi fyrir fyrirtækjanotendur miðlunarþjónustu á netinu sem kveðið er á um í reglugerð (ESB) 2019/1150 sem hefur ekki verið tekin upp í EES-Samninginn en drög að ákvörðun eru í skoðun hjá sameiginlegu EFTA-nefndinni.Í grein 22b er fjallað um skráningarkerfi fyrir textílframleiðendur sem aðildarríkjum er skylt að koma á fót og tilkynna framkvæmdastjórninni um. Stjórnvöld eiga að sjá til þess að framleiðendur séu skyldugir til að skrá sig og að þeir megi ekki markaðssetja vöru nema þeir, eða fulltrúi þeirra, hafi skráð sig, eða samtök framleiðenda hafi skráð sig í þeirra umboði.Skráningarkerfið á að safna upplýsingum um atriðin sem talin eru upp í grein 22b(4). Upplýsingar um skráða aðila í kerfinu eiga að vera aðgengilegar öllum, þær skulu vera véllæsilegar, ókeypis að skoða, notandinn á að geta flokkað upplýsingar um skráða aðila og leitað í þeim.Í grein 22c er fjallað um ábyrgðarsamtök textílframleiðenda.Aðildarríki skulu sjá til þess að textílframleiðendur tilnefni ábyrgðarsamtök til að fara með framlengda framleiðendaábyrgð fyrir sína hönd. Lögbært yfirvald veitir ábyrgðarsamtökum framleiðenda heimild til að starfa og skal gefa út kröfur sem gerðar eru til slíkra samtaka, til dæmis hvað varðar þekkingu á úrgangsmálum og sjálfbærni.Aðildarríki skulu skylda ábyrgðarsamtök framleiðenda til að innheimta gjöld eftir vigt eða magni vöru sem sett er á markað. Gjöldin skulu byggja á ákvæðum sem ekki hafa verið gefin út en verða sett eftir reglugerð (ESB) 2024/1781 um visthönnun, sem hefur ekki verið tekin upp í EES-Samninginn. Gjöldin eiga að vera í samræmi við úrgangsþríhyrninginn, taka mið af verðmætasköpun við endurnotkun og endurnýtingu úrgangs og þau skulu vera sanngjörn að því leyti að framleiðendum skal ekki mismunað.Aðildarríkjum er heimilt að hafa áhrif á þau gjöld sem ábyrgðarsamtök framleiðenda innheimta í því skyni að stemma stigu við háhraðatísku (e. ultra fast fashion) eða hraðtísku (e. fast fashion). Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins getur einnig haft takmörkuð áhrif á gjöldin.Aðildarríki skulu sjá til þess að ábyrgðarsamtök framleiðenda komi á fót sérstakri söfnun á textíl, skóbúnaði og skyldum vörum sem uppfyllir þær kröfur sem lagðar eru fram í grein 22c(8). Aðildarríki skulu einnig sjá til þess að ábyrgðarsamtök miðli ýmsum upplýsingum um úrgangsforvarnir og úrgangsmeðhöndlun til notenda, og að þau birti slíkar upplýsingar á heimasíðum sínum, á söfnunarstöðvum, í almannarýmum, í fræðsluefni og vitundarvakningum og með einföldum ábendingum (e. signposting).Ábyrgðarsamtök framleiðenda skulu safna tölfræðigögnum og birta á heimasíðum sínum. Meðal þeirra gagna sem þau skulu safna er endurvinnsla textíls í nýja textílþræði. Þetta er í fyrsta sinn sem söfnun slíkra gagna er gerð að skyldu á Íslandi.Sveitarfélög, almannaheillafélög og aðrir aðilar sem stunda undirbúning fyrir endurnotkun eiga að geta tekið þátt í söfnunarkerfi ábyrgðarsamtaka framleiðenda. Almannaheillafélögum má hygla við úthlutun plássa í söfnunarkerfi og þau eiga rétt á því að halda úti sinni eigin sérstakri söfnun á textíl. Almannaheillafélög skulu skila árlegri skýrslu til stjórnvalda um úrgangsmeðhöndlun, þar á meðal um textílþræði sem sendir eru til endurvinnslu í nýja textílþræði, en heimilt er að undanskilja almannaheillafélög frá kröfum um skýrsluskil. Umhverfis- og orkustofnun telur að ekki sé fýsilegt til að undanskilja almannaheillafélög frá ákvæðum um gagnasöfnun því gögn frá þeim eru nauðsynleg til að fá góða heildarmynd af textílmeðhöndlun á Íslandi og árangri af gildandi stefnumiðum.Aðildarríki skulu sjá til þess að ábyrgðarsamtök framleiðenda þjónusti allt landsvæði ríkisins, að ábyrgðarsamtök birti lýsitölur að minnsta kosti árlega á heimasíðum sínum auk þess að birta upplýsingar um hvernig valferlið er við val á þjónustuaðila, en valferlið á að vera gegnsætt og gæta jafnræðis. Ríki skulu skipa lögbært stjórnvald til að fara með framkvæmd málaflokksins og sjá til þess að ábyrgðarsamtök fari með viðkvæm gögn með leynd. Í grein 22d er fjallað um meðhöndlun textílúrgangs. Í greininni eru lagðar fram nýjar skyldur á aðildarríki, til dæmis að tryggja að við sérstaka söfnun sé textílúrgangur varinn gegn veðri og mengun og að flokkun hans sé yfirfarin „faglega“ (e. professional screening).Lagðar eru fram kröfur sem aðildarríki skulu gera til flokkunaraðila textílúrgangs sem samræmast núgildandi lögum og hægt er að innleiða með reglugerð og samræmdum starfsleyfisskilyrðum. Kröfurnar fela meðal annars í sér að sortera þarf textíl áður en hann er fluttur úr landi, pökkun og merking þarf að vera viðunandi og eftirlitsaðilar fylgist með málum.Aðildarríki skulu gera samsetningarrannsókn á úrgangi til að meta hlutfall textíls í úrganginum. Skylt er að birta niðurstöður opinberlega. Aðildarríkjum er heimilt að skylda textílframleiðendur til að greiða fyrir rannsóknina, að hluta til eða í heild.Grein 1(10) Nýjar skyldur í úrgangstölfræði eru lagðar fram. Aðildarríki skulu árlega skila inn til Umhverfisstofnunar Evrópu tölulegum upplýsingum um textílúrgang og ábyrgðarsamtök framleiðenda. Grein 1(12) Örfyrirtæki (

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Tæknilegri aðlögun, Efnislegri aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Nei
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Lagasetning/lagabreyting
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Lög um meðhöndlun úrgangs nr 55/2003:
• Breyta þarf 2. grein um gildissvið laganna með því að bæta við einni málsgrein sem kemur í veg fyrir að koldíoxíð sem fangað er til niðurdælingar falli undir lög um meðhöndlun úrgangs.
• Kveða þarf á um skyldu ráðherra til að setja stefnu um matarsóun í 5. grein. Færa þarf kröfur sem gerðar eru til aðildarríkja um aðgerðir gegn matarsóun sem fjallað er í nýrri grein 9a í rammatilskipun um úrgang, inn í 5. grein þannig að þær verði útfærðar í stefnu ráðherra.
• Bæta þarf inn ákvæðum um skyldur framleiðenda textílvara, skráningarkerfi framleiðenda textílvara, tilkynningu ábyrgðarkerfa textílframleiðenda og skyldur slíkra kerfa.
• Breyta þarf grein 24.a því lágmarkskröfur sem gerðar eru til framlengdrar framleiðendaábyrgðar fyrir textíl eru ekki þær sömu og gerðar eru varðandi aðrar vörur.
• Færa þarf ábyrgð á söfnun og tölulegum markmiðum um textíl, skv. 8. grein, frá sveitarstjórn til ábyrgðarfélaga framleiðenda.
• Bæta þarf inn ákvæði um gerð samsetningarrannsóknar á úrgangi, hver skuli gera slíka rannsókn, hversu oft (ekki sjaldnar en 5 ára fresti), heimild til að ákveða að ábyrgðarsamtök textíls greiði fyrir rannsóknina að hluta eða í heild og að niðurstöður hennar skuli birtar opinberlega.
• Bæta þarf við reglugerðarheimildum í lögin, til dæmis:
o til að færa dýnur og aðra vöruflokka undir kerfi framlengdrar framleiðendaábyrgðar
o til þess að ákveða hvort, og þá að hversu miklu marki, framleiðendur skuli taka þátt í kostnaði við samsetningarrannsókn á úrgangi
o ítarlegar útfærslur á skyldum framleiðenda og ábyrgðarkerfa þeirra til að fjármagna söfnun, úrvinnslu og undirbúning fyrir endurnotkun á textílúrgangi sbr. greinar 22c og 22d í tilskipuninni. Skoða þarf hvort einhver ákvæði í greinum 22a og 22b þarfnist reglugerðarheimildar.
o til að innleiða framseldar gerðir (sjá umfjöllun um framseldar gerðir neðar í greiningunni)
• Ákvæði verði fært í lögin um að ráðherra skuli leggja mat á það hvort færa skuli dýnur undir kerfi framlengdrar framleiðendaábyrgðar (til dæmis fyrir þann 18. júní 2028).
• Líklega þarf að rýna og breyta fleiri atriðum.

Lög um hollusthætti og mengunarvarnir nr 7/1998
• Yfirfara þarf gildissvið og skilgreiningar laganna með það fyrir augum að ýmsar textílvörur eru plastvörur í skilningi laganna. Sérstaklega þarf að horfa til skilgreininga, ákvæða 2.mgr. 37.gr.h um ábyrgð framleiðenda á plastvörum, ákvæða 51. greinar og að ákvæði greinanna tali við ákvæði laga um meðhöndlun úrgangs.

Reglugerð 803/2023 um meðhöndlun úrgangs
• Ákvæði í grein 22d(5) sem aðildarríki skulu gera til flokkunaraðila textílúrgangs samræmast lögum um meðhöndlun úrgangs og má innleiða beint inn í reglugerðina með lagastoð í lögum um meðhöndlun úrgangs nr 55/2003 og taka upp í gegnum samræmd starfsleyfisskilyrði.
• Ákvæði um flokkun og pökkun textíls sem fluttur er úr landi og hvernig skuli útbúa fylgiskjöl fyrir hann. Ákvæðin eru í töluliðum 7-9 í hinni nýju grein 22d en einhver þeirra þarf að innleiða í reglugerð 822/2010 til að tryggja valdheimildir allra eftirlitsaðila. Lagastoð er í lögum um meðhöndlun úrgangs nr 55/2003.
• Setja þarf ný töluleg markmið sem finna má í hinni nýju grein 9a(4) um matarsóun inn í 7. grein reglugerðar 803/2023 um meðhöndlun úrgangs. Lagastoð í lögum um meðhöndlun úrgangs nr 55/2003.

Reglugerð 822/2010 um flutning úrgangs milli landa
• Innleiðing sérstakra ákvæða um flutning milli landa á textílúrgangi og textíl sem farið hefur í gegnum undirbúning fyrir endurnotkun. Ákvæðin eru í töluliðum 7-9 í hinni nýju grein 22d en einhver ákvæði eru innleidd í reglugerð 803/2023. Lagastoð er í lögum um meðhöndlun úrgangs nr 55/2003.

Gjaldskrá Umhverfis- og orkustofnunar nr. 1033/2025
• Breyta þarf 35. grein gjaldskrárinnar til að heimila gjaldtöku fyrir sýnatöku og eftirlit með ótilkynningarskyldum flutningi textílúrgangs milli landa, sbr. grein 22d(7) samkvæmt tilskipuninni.

Úrgangsforvarnastefna ráðherra
• Rýna þarf stefnuna með tilliti til ákvæðanna sem gerð eru í grein 29a.
• Sjá þarf til þess að aðgerðir sem styðja við innleiðingu hringrásarhagkerfisins fyrir textíl verði fjármagnaðar af framlengdri framleiðendaábyrgð þegar tilskipunin tekur gildi.

Innleiðing Evrópugerða
• Vísað er til ákvæða í reglugerð (ESB) 2024/1157 um hvernig skuli standa að flutningi textílúrgangs til þriðju ríkja. Innleiða þarf reglugerð (ESB) 2024/1157 til að virkja þessi ákvæði.
• Vísað er til ákvæða í reglugerð (ESB) 2022/2065 (e. Digital Services Act) um skyldur aðildarríkja til að sjá til þess að netverslanir uppfylli ákvæði tilskipunarinnar, sjá grein 1(13). Reglugerðin hefur ekki verið tekin upp í EES-Samninginn.
• Vísað er til ákvæða í reglugerð (ESB) 2019/1020 sem hefur verið tekin upp í EES-Samninginn en hefur ekki öðlast gildi.
• Vísað er til ákvæða í reglugerð (ESB) 2019/1150 um að efla sanngirni og gagnsæi fyrir fyrirtækjanotendur miðlunarþjónustu á netinu. Drög að ákvörðun eru í skoðun hjá sameiginlegu EFTA-nefndinni.
• Innleiða þarf reglugerð (ESB) 2024/1781, oft kölluð „Ecodesign-reglugerðin,“ því viðmið fyrir þrepaskiptingu úrvinnslugjalda byggir á framkvæmdareglugerðum sem settar verða samkvæmt þeirri reglugerð.

Framseldar gerðir
Víða í tilskipuninni eru heimildir til að setja framseldar gerðir, sjá hvar framseldar gerðir er að finna og um hvað þær fjalla:
• Grein 1(4), 9a(3) um samevrópskar mælingar á matarsóun,
• Grein 1(4), 9a(6) um leiðréttingarstuðul við mat á matarsóunarmarkmiðum vegna ferðamanna
• Grein 1(7), 22a(5) um breytingu á lista yfir vörur sem bera framlengda framleiðendaábyrgð. Ath að í listanum er vísað til evrópsku tollskrárinnar sem hefur ekki gildi á Íslandi.
• Grein 1(7), 22b(10) um fyrirkomulag skráninga framleiðenda hjá aðildarríkjum.
• Grein 1(7), 22c(7) um hvernig ábyrgðarsamtök framleiðenda skuli leggja á gjöld.
• Grein 1(7), 22c(20, 3.mgr) um breytingu á framkvæmdaákvörðun 2019/1004 um söfnun úrgangstölfræði.
• Grein 1(7), 22c(20, 3.mgr) um breytingu á framkvæmdaákvörðun 2021/19 um söfnun ganga um endurnotkun.
• Grein 1(10)c um skil á tölfræðilegum gögnum um úrgang og úrgangsforvarnir.
• Grein 1(11) um ýmsar heimildir til að setja framseldar gerðir.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Já
Hvaða hagsmunaaðilar Úrvinnslusjóður, Samtök verslunar- og þjónustu
Niðurstöður samráðs Úrvinnslusjóður:
Úrvinnslusjóður telur að leita ætti lausna með því að horfa til erlendra fyrirmynda við tilhögun framlengdrar framleiðendaábyrgðar á textíl. Tækifæri felast í öðrum útfærslum en með álagningu úrvinnslugjalda í núverandi kerfi. Draga þurfi lærdóm af innleiðingu hringrásarlaganna, þar á meðal að flýta sér ekki um of við innleiðingu á tilskipuninni og forðast gullhúðun. Sjóðurinn telur einnig ástæðu til að skoða hvort Ísland geti farið í samstarf við erlend framleiðendakerfi fyrir textíl.
Sjóðurinn telur að þrepaskipt álagning úrvinnslugjalda í núverandi kerfi sé mjög flókið úrlausnarefni. Kerfið bjóði aðeins upp á álagningu á óþrepaskiptum gjöldum í gegnum tollskrá og slík gjöld eru skattur sem verður aðeins lagður á, breytt eða felldur niður með lögum. Skatturinn hafi áður skoðað möguleikann á þrepaskiptingu gjalda í tollskrá með Úrvinnslusjóði og niðurstaðan hafi verið að það sé ekki mögulegt.
Viðmið varðandi þrepaskiptingu textílgjalda liggi ekki fyrir en þegar þar að kemur þarf að skoða vel útfærslu varðandi skráningarkerfi framleiðenda, kostnaðarmeta útfærsluna, rýna ákvæði fulltrúa framleiðenda (e. Authorative representative) og fleira..

Samtök verslunar- og þjónustu
Samtök verslunar og þjónustu telja að áhrifin af innleiðingu hér á landi muni verða umtalsverð. Því er nauðsynlegt að vandað verði til verka og nauðsynlegar greiningar liggi fyrir. Fullt tilefni er til að telja að umfang þessarar tilskipunar sé slíkt að viðamikið samráð sé nauðsynlegt áður en afstaða íslenskra stjórnvalda er gefin upp út fyrir landsteinana. Ekki liggur fyrir hvernig stjórnvöld sjá fyrir sér að kröfur séu útfærðar, en nauðsynlegt er að sviðsmyndagreining liggi fyrir og samtökin lýsa sig reiðubúin að aðstoða ráðuneytið við þá vinnu.
Um textíl: Ekki ætti að ganga lengra í innleiðingu en lágmarkskröfur segja til um. Ekki ætti að taka upp valkvæða flokka fyrr en við getum horft til þess hvernig önnur ríki leysa úr áskorunum sem í því felst.
Það skipti máli að huga að því að innleiðingin verði sem minnst íþyngjandi fyrir íslenskt efnahagslíf og að skoðað verði hvernig verða megi við því.
Að því marki að aðlagana er þörf telja samtökin ástæðu til að koma eftirfarandi atriðum á framfæri:
Í aðfararorðum (2) og (10) sé vísað til þess að horfa eigi til lífsferilsnálgunar og taka tillit til jaðarsvæða Evrópusambandsins. Þar séu tilefni til að leita aðlagana.
Horfa megi til umsagnar SVÞ um umbúðareglugerð (ESB) 2025/40 hvað varðar séreinkenni íslensk efnahagslífs, einkum hversu smátt hagkerfið er hindrar stærðarhagkvæmni, hversu dreifðir neytendur eru yfir stórt landsvæði og hversu landfræðilega einangrað Ísland er frá öðrum markaðssvæðum. Aukinn kostnaður sé íslenskum fyrirtækjum og almenningi byrði. Nauðsynlegt sé að greina áhrif tilskipunarinnar á Ísland, þar á meðal áhrif á vísitölu neysluverðs, og óska eftir aðlögunum á grundvelli greiningarinnar til að varna því að innleiðingin verði hlutfallslega þyngri fyrir hið íslenska hagkerfi samanborið við önnur hagkerfi á innri markaði EES.
Gæta þurfi þess við innleiðinguna að íslensk netverslun tapi ekki samkeppnishæfni gagnvart erlendum netverslunum.
Samtökin velta upp hvort meðalhófs hafi verið gætt í samræmi við 5. gr. sáttmálans um stofnun Evrópusambandsins (TFEU) að því leyti að ekki hafi verið tekið fyllilega tillit til eyríkja og smárra hagkerfa. Ómögulegt sé að fullyrða að ekki sé gengið lengra en nauðsyn krefur í tilfelli Íslands.
Um matarsóun: Óvissa ríki um grunnviðmið fyrir matarsóun sem Ísland miðar markmið sín við árið 2030 því viðmiðunargilda hafi verið aflað í COVID-faraldrinum, ekki hafi verið tekið tillit til fjölda ferðamanna og að íslenskar verslanir hafi þegar náð árangri í að draga úr matarsóun.

Samráð Evrópusambandsins
Tilskipunin var framan af tvískipt, þar sem annar hlutinn fjallaði um matarsóun en hinn hlutinn fjallaði um textíl. Samráð fór fram í nokkrum skrefum, þar sem sum skrefin fjölluðu aðeins um annan hluta tilskipunarinnar. Fyrsta var kallað eftir úrbótaóskum (e. Call for Evidence) við uppfærslu á rammatilskipun Evrópusambandsins um úrgangsmál, þar sem 197 umsagnir bárust, og síðar í gegnum samráðsgátt Evrópusambandsins (e. Have Your Say Portal), þar sem 731 umsögn barst. Áhrifamatsskýrsla fyrir matarsóunarhluta tilskipunarinnar hlaut 85 viðbrögð. Tekin voru 27 viðtöl við hagaðila í textílgeiranum. Almennt var stuðningur við að færa textíl undir framlengda framleiðendaábyrgð, bæði meðal hagaðila í iðnaðinum og annarra. Minnihluti stjórnvalda, fyrirtækja og almennings var ánægður með þágildandi söfnunarkerfi textíls. Einhugur var um mikilvægi endurnotkunar textíl og uppbyggingar innviða til að endurnota textíl. Ágreiningur var um hvort skór og textíll sem ekki er heimilsúrgangur ættu að vera innan kerfi framlengdrar framleiðendaábyrgðar eða ekki.

Áhrif

Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur Kostnaðargreiningin hér að neðan er ætluð til þess að gefa hugmynd um stærðargráðu fjárhæða. Hún miðar við stöðuna þegar greiningin er gerð og byggir að mestu leyti á grófu mati en ekki fjárhagslegum gögnum.
Greiningin er gerð út frá forsendum í söfnunarkerfinu eins og það er þegar greiningin er gerð. Þar sem tilskipunin felur í sér breytingar á söfnunarkerfinu, fjárhagslegum hvötum, framboði og eftirspurn eftir textílúrgangi, er nokkuð víst að þessi greining mun ekki standast tímans tönn. Enn fremur eru aðeins teknir til skoðunar liðir sem tilskipunin hefur bein áhrif á.
Í greinargerð með frumvarpi COM(2023) 420 kemur fram að áætlaður heildarkostnaður vegna framlengdrar framleiðendaábyrgðar á textíl verði að meðaltali 17,3 krónur á hverja textílvöru (athugið þó að gjöldin eru lögð á vörur eftir þyngd, ekki í stykkjatali). Ekki eru gefnir útreikningar á þessari tölu í samantektinni en líklega er að finna frekari upplýsingar í áhrifamati sem fylgir tillögunni. Þó kemur fram að kostnaðurinn sé hærri fyrir vörur með rennilás og hnappa en lægri fyrir litlar vörur og vörur úr einsleitu efni. Að öðru leyti var kostnaðargreiningin í greinargerðinni ekki nógu ítarleg til að koma að gagni hér.
Niðurstöður greiningarinnar eru að ef miðað er við að flutt séu inn 7.000 tonn af textíl á ári, má ætla að ábyrgðargjöld framleiðenda verði 198 krónur á hvert kíló.
Samantekt (sjá sundurliðun í texta)
Framleiðendur textílvara:
Kostnaður 1.387 milljónir kr. á ári
Einskiptiskostnaður árið 2028: 600 milljónir kr.

Sveitarfélög:
Sparnaður 655 milljónir króna á ári.

Ríki:
Sparnaður 26 milljónir króna á ári.

Atvinnulíf (vegna koldíoxíðs):
Sparnaður 45 milljónir króna á ári.

Ýmis önnur áhrif, bæði bein og óbein (sjá texta).

Koldíoxíð
Sparnaður sem hlýst af tilskipuninni kemur til vegna umfangsminni stjórnsýslu í kringum flutning á koldíoxíði milli landa ef það heyrir ekki undir lög um meðhöndlun úrgangs. Ekki er vitað hvert umfangið er. Útgefnar áætlanir gera ráð fyrir um milljón tonnum af innflutningi á koldíoxíði á ári. Ef um helmingur þess er úrgangur má ætla að sparnaður sé um 45 milljónir á ári.
Matarsóun
Nýr kostnaðarliður verður til vegna stuðnings ríkisins við nýskapandi aðgerðir gegn matarsóun. Áætlaður kostnaður er 15 milljónir á ári.
Nýr kostnaðarliður verður til vegna nýrrar gagnasöfnunar um matarsóun. Áætlaður kostnaður er um 2 milljónir á ári.
Textíll
Með tilskipuninni mun kostnaður við söfnun, flutning, flokkun, böggun og útflutning textílúrgangs færast frá sveitarfélögum til framleiðenda. Gera má ráð fyrir að sá kostnaður sé á milli 500-750 milljónir árlega á öllu landinu.
Fræðslukostnaður færist frá ríki og sveitarfélögum til framleiðenda. Umfang slíks kostnaðar er óljóst en mögulega um 10 milljónir á ári sem skiptist jafnt á milli aðilanna.
Nýr kostnaðarliður verður til vegna ábyrgðarfélaga framleiðenda. Þar verða til nokkur stöðugildi sem fjármögnuð verða af framleiðendum. Kostnaður gæti verið um 250 milljónir á ári.
Nýr kostnaðarliður verður til vegna stjórnsýslu í málaflokknum við uppsetningu og rekstur skráningarkerfis og vinnslu gagna og tölfræðiupplýsinga. Ætla má að til verði um eitt nýtt stöðugildi sem fjármagnað verður að helmingi af ríki og að helmingi af framleiðendum. Kostnaður gæti verið um 24 milljónir á ári.
Nýr kostnaðarliður verður til vegna flokkunar þess textílúrgangs sem ekki er flokkaður nú. Sá kostnaður leggst alfarið á framleiðendur og erfitt er að áætla hann en gróft mat er 500 milljónir króna á ári. Áætlað er að 50 milljónir af því skili sér aftur til ríkis og og 50 milljónir til sveitarfélaga.
Nýr kostnaðarliður verður til vegna stuðning við þróun og innleiðingu nýrrar tækni. Að einhverju leyti hefur slíkur kostnaður verið greiddur af hinu opinbera sem mun láta af slíkum stuðningi en sú upphæð er ekki metin hér. Ætla má að nýr kostnaður sem fellur á framleiðendur verði um 10 milljónir á ári.
Gera má ráð fyrir að framleiðendur þurfi að ráðast í einskiptiskostnað vegna innviða, til dæmis stækkunar aðstöðu og endurnýjunar söfnunargáma svo þeir standist ákvæði tilskipunarinnar. Áætlað er að kostnaður við það sé 600 milljónir sem fellur á árið 2028.
Flokkun textíls til undirbúnings fyrir endurnotkunar er mannfrek og hún á að eiga sér stað áður en textíll er fluttur úr landi, helst sem næst upprunanum. Líklegt er að þar sem flokkunarstöðvar og endursölustöðvar verða settar upp muni fjöldi starfa skapast og tekjur sveitarfélaganna vegna útsvars og vegna þeirra fyrirtækja sem taka til starfa muni aukast til samræmis. Þetta eru tekjur sem hafa að mestu leyti farið úr landi hingað til.
Ætla má að kaup á vörum sem heyra undir háhraðatísku (e. ultra-fast fashion) og hraðtísku (e. fast fashion) muni minnka vegna áhrifa tilskipunarinnar. Gera má ráð fyrir að heildarmagn textíls sem keypt er inn í landið muni minnka, flokkun á textílúrgangi verði betri, verðmætasköpun úr textílúrgangi muni aukast og verð fyrir textílúrgang muni hækka.
Bætt sérstök söfnun og aukin endurnýtingu textílúrgangs mun minnka það magn sem fer í blandað sorp, sem er um 4 kg á íbúa á ári í dag og það magn sem fer í urðun. Slíkt mun hafa bæði jákvæð og neikvæð áhrif á sveitarfélög.
Valkvæðir kostnaðarliðir eru ekki metnir, fyrst og fremst því þeir fela ekki í sér kostnað eða sparnað heldur einfaldlega breytingu á greiðanda.
Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað
Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands Fyrirvarar og aðlaganir
Semja þarf um hver viðmiðunartími fyrir matarsóunarmarkmið Íslands muni vera því Ísland á ekki til gögn fyrir öll ár viðmiðunartímabilsins. Umhverfis- og orkustofnun hefur gert tillögu að því að viðmiðunartímabilið verði það sama og fyrir önnur ríki Evrópu og að Íslandi verði gert heimilt að reikna matarsóun sína árið 2021 út frá tölum ársins 2022 með þeim aðferðum sem lagðar eru fram í viðauka IV, en ekki viðauka III, við framkvæmdaákvörðun (ESB) 2019/1597. Sjá nánari umfjöllun í kaflanum Nánari efnisumfjöllun.
Vísað er til tollkóða Evrópusambandsins þegar meta á hvaða vörur falla undir framlengda framleiðendaábyrgð. Þeir eru í viðauka við reglugerð ráðsins (EEC) No 2658/87 sem hefur ekki verið tekin upp í EES-Samninginn.
Aðildarríkjum er gert skylt að taka þátt í EU Platform on Food Losses and Food Waste. EFTA-Ríkin eru ekki aðilar að þessum samráðsvettvangi heldur hafa þau áheyrnarfulltrúa svo því þarf að breyta.
Ræða þarf innleiðingartíma vegna gerða sem vísað er til í tilskipuninni sem hafa ekki verið teknar upp í EES-Samninginn.

Áhrif á Íslandi
Ákvæði um að undanskilja koldíoxíð sem fangað er til varanlegrar geymslu í jarðlögum kemur sér einstaklega vel fyrir atvinnulíf á Íslandi vegna einfaldari stjórnsýslu við flutning koldíoxíðs milli landa.
Áhrif af matarsóunarhluta tilskipunarinnar eru þau að auðvelda stjórnvöldum og atvinnulífi að takast á við matarsóun með skipulögðum hætti. Ísland hefur ekki sérstaka hagsmuni af þeim hluta tilskipunarinnar. Í tilskipuninni er boðað að uppgjör matarsóunarmarkmiða verði byggt á tölum sem eru leiðréttar fyrir fjölda ferðamanna, en slíkt er líklegt til að auðvelda Íslandi að ná tölulegum markmiðum.
Tilskipunin fer fram á kerfisbreytingu á ábyrgð, söfnunarkerfum og úrvinnslu textílúrgangs á Íslandi. Með tilskipuninni færist ábyrgðarhlutverk og kostnaður við söfnun textílúrgangs og úrvinnslu hans frá sveitarstjórnum til framleiðenda. Mörg ákvæða tilskipunarinnar eru þegar í gildi á Íslandi og unnið er eftir þeim á meðan önnur eru ný.
Ísland hefur í sjálfu sér lítilla beinna hagsmuna að gæta því hér eru bæði fáir og smáir framleiðendur textílvara sem heyra undir framlengda framleiðendaábyrgð, þó t.d. Ístex hf., Víkurprjón ehf., Icewear og líklega fleiri. Stór meirihluti textíls á Íslandi er innfluttur.
Sérstaklega er tekið fram að framlengd framleiðendaábyrgð á textíl felur í sér að framleiðendur eru ábyrgir fyrir sérstakri söfnun alls staðar í Evrópu, ekki aðeins þar sem hún er fjárhagslega fýsileg eða arðbær. Aðildarríki eiga í því samhengi að sjá til þess að ábyrgðarsamtök framleiðenda stuðli að söfnun sem sé jafngóð á öllum svæðum ríkisins, ekki aðeins í borgum eða nálægt móttökustöðvum fyrir textílúrgang.
Skýr skylda er lögð úrgangsmeðhöndlunaraðila að yfirfara textíl sem safnað hefur verið sérstaklega til að meta hvort hann sé endurnotkunarhæfur eða ekki. Slík skylda hefur ekki verið orðuð með svo beinum hætti áður. Þessi skylda er líkleg til að auka kostnað við flokkun sérsafnaðs textílúrgangs verulega en einnig að stórauka framboð á notuðum textílvörum og lækka verð á þeim. Hún er þess vegna kostnaðarsöm en kemur til með að bæta meðhöndlun eftir forgangsröðun úrgangsþríhyrningsins.
Aðildarríkjum er í sjálfsvald sett að ákveða ýmis atriði. Eitt þeirra er hvort þau felli dýnur innan þeirra vöruflokka sem ábyrgð framleiðenda nær yfir eða ekki. Annað atriði er hvort þau undanskilja almannaheillasamtök frá kröfum um gagnaskil. Það þriðja nær til hvort, og þá að hversu miklu marki framleiðendur skuli greiða fyrir gerð samsetningarrannsóknar á blönduðum úrgangi. Að flestu leyti eru þessi atriði spurning um hvort fjármagna skuli þessi atriði með fé frá hinu opinbera eða með fé frá framleiðendum. Þar sem er praktískur munur á útfærslunni hefur Umhverfis- og orkustofnun dregið þann mun fram í greiningunni og lagt til þá útfærslu sem hún telur skila bestri heildarniðurstöðu. Tilskipunin hefur boðað að fleiri valkvæð atriði þessum lík muni verða lögð fram í framseldum gerðum.

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfis- og orkustofnun
Aðrar stofnanir sem hafa aðkomu Matvælastofnun, Ríkisskattstjóri, Samband íslenskra sveitarfélaga

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32025L1892
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2025/1892, 26.9.2025
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

COM numer COM(2023) 420
Dagsetning tillögu ESB
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Breytt af (Modified by)

72025L1892ROU_202601092 measure national implementing implements
COM(2025) 848
52025DC0848
work related to work

Breytir (Modifies)

COM(2023) 420
52023PC0420
adopts Directive (EU) 2025/1892 of the European Parliament and of the Council of 10 September 2025 amending Directive 2008/98/EC on waste Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum
32008L0098 amends Directive 2008/98/EC of the European Parliament and of the Council of 19 November 2008 on waste and repealing certain Directives Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
12016E192 based on