Starfsréttindi rúmenskra hjúkrunarfræðinga á EES-svæðinu. - 32024L0505

Directive (EU) 2024/505 of the European Parliament and of the Council of 7 February 2024 amending Directive 2005/36/EC as regards the recognition of professional qualifications of nurses responsible for general care trained in Romania


iceland-flag
Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2024/505 frá 7. febrúar 2024 um breytingu á tilskipun 2005/36/EB að því er varðar viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi hjúkrunarfræðinga í almennri hjúkrun sem hlutu menntun sína í Rúmeníu
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 07 Viðurkenning á faglegri menntun og hæfi
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 132/2025
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Breyting sem gerir hjúkrunarfræðingum menntuðum í Rúmeníu kleift að njóta viðurkenningar til starfa innan EES-svæðisins á sömu skilmálum og aðrir hjúkrunarfræðingar.

Nánari efnisumfjöllun

 Breytingin miðar að því að uppfæra tilskipunina svo að hún endurspegli breytingar sem orðið hafa á menntun hjúkrunarfræðinga í Rúmeníu. Við inngönguna í ESB 2007 voru rúmenskir hjúkrunarfræðingar ekki taldir uppfylla skilyrði tilskipunarinnar um viðurkenningu til starfa þar eð námið þar var ekki á háskólastigi, heldur fagháskólastigi. Frá þeim tíma hefur verið unnið að umbótum á náminu og starfandi hjúkrunarfræðingum gefinn kostur á viðbótarnámi til þess að þeir geti uppfyllt sett skilyrði. Breytingatilskipunin staðfestir þessa þróun og gerir ráð fyrir afléttingu takmarkana sem voru á viðurkenningu starfsréttinda hjúkrunarfræðinga frá Rúmeníu á EES-svæðinu. Ákvæði hér að lútandi er að finna í 13. gr. reglugerðar nr. 510/2020 um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi heilbrigðisstarfsmanna frá öðrum EES-ríkjum eða Sviss til að starfa hér á landi, og fylgiskjali IV með þeirri reglugerð. Tilskipunin verður tekin í íslenskan rétt með breytingu á þeirri reglugerð. 

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Alþingi hefur lokið mati sínu Á ekki við
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Breyting á reglugerð 510/2020 um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi heilbrigðisstarfsmanna frá öðru EES-ríkjum eða Sviss til að starfa hér á landi.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Heilbrigðisráðuneytið
Önnur ráðuneyti sem hafa aðkomu Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti
Aðrar stofnanir sem hafa aðkomu Embætti landlæknis

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32024L0505
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2024/505, 12.02.2024
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

COM numer COM(2023) 502
Dagsetning tillögu ESB
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 61, 2.10.2025, p. 32
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2025/1826, 2.10.2025