32023R2381

Commission Implementing Regulation (EU) 2023/2381 of 29 September 2023 amending Implementing Regulation (EU) 2016/480 establishing common rules concerning the interconnection of national electronic registers on road transport undertakings


iceland-flag
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2381 frá 29. september 2023 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2016/480 um sameiginlegar reglur varðandi samtengingu rafrænna landsskráa yfir flutningafyrirtæki á vegum
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 13 Flutningar, 13.02 Flutningar á vegum
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 032/2025
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Verið er að breyta reglum um skrá yfir þau fyrirtæki sem hafa hlotið leyfi til flutninga á vegum. Gerð var breyting á reglugerðinni sem skráin byggir á og í framhaldi af því þarf að breyta reglum um skrána sjálfa. Lítil áhrif hér á landi og ekki kostnaður tengdur þessari gerð sérstaklega.

Nánari efnisumfjöllun

Markmið sem að er stefnt: Verið er að gera breytingar á framkvæmdareglugerð (ESB) 2016/480 um sameiginlegar reglur varðandi skuldbindingu á samtengingu rafrænna landsskráa í Evrópu fyrir flutning á vegum.Aðdragandi: Gerð er sú krafa í 16. gr. reglugerðar EB nr. 1071/2009 að aðildarríkin haldi rafræna landsskrá yfir fyrirtæki sem stunda flutninga á vegum og hlotið hafa leyfi yfirvalda til að stunda flutninga á vegum í atvinnuskyni. Skráin; European Register of Road Transpor Undertakings, hefur í daglegu tali verið nefnd ERRU. Í 5. og 6. mgr. 16. gr. reglugerðarinnar er gerð sú krafa að innlendar rafrænar skrár séu samtengdar. Framkvæmdastjórninni er falið það hlutverk að samþykkja sameiginlegar reglur um slíka samtengingu.Með framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2016/480 er sett upp rafrænt kerfi fyrir samtengingu innlendra rafrænna skráa (ERRU). Með því að samtengja allar rafrænu landsskrárnar eru upplýsingarnar aðgengilegar lögbærum landsyfirvöldum allra aðildarríkjanna.Reglugerð EB nr. 1071/2009 hefur verið breytt með reglugerð 2020/1055. Með breytingunni var þess krafist að landsskráin innihaldi viðbótarupplýsingar um flutningafyrirtæki á vegum. Þessar viðbótarupplýsingar verða einnig að vera aðgengilegar lögbærum landsyfirvöldum aðildarríkjanna við vegaeftirlit. Þar af leiðandi ætti að uppfæra reglur um landsskrána og gera upplýsingarnar aðgengilegar. Því er framkvæmdarreglugerð (ESB) 2016/480 hér með breytt til samræmis við þessar breytingar.Umsögn: helstu breytingar,  mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Þetta er nánari útfærsla á landsskrá (ERRU) sem hefur ekki verið komið upp á Íslandi. Þessar breytingar hafa því ekki áhrif en það verður tekið tillit til þeirra þegar landsskráin verður sett upp.Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Lagastoð er að finna í 34. gr. laga um farþegaflutninga og farmflutninga á landi nr. 28/2017.Rétt væri að reglugerðin yrði innleidd með breytingu á í reglugerð um leyfi til að stunda farþegaflutninga og farmflutninga á landi nr. 474/2017.Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitarfélaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Þessi tiltekna gerð ætti ekki að valda frekari kostnaði við uppsetningu kerfisins í heild sinni.Skörun við starfssvið annarra ráðuneyta: Nei.Tilgreining á hagsmunaaðilum: Nei.Horizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: Nei.Þörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: Nei.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Alþingi hefur lokið mati sínu Á ekki við
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Lagastoð er að finna í 32. gr. og 34. gr. laga um farþegaflutninga og farmflutninga á landi nr. 28/2017. Rétt væri að reglugerðin yrði innleidd með breytingu á í reglugerð um leyfi til að stunda farþegaflutninga og farmflutninga á landi nr. 474/2017.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Innviðaráðuneytið
Ábyrg stofnun Samgöngustofa

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32023R2381
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2023/2381, 05.10.2023
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 30, 8.5.2025, p. 57
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2025/760, 8.5.2025