32024R1230
Regulation (EU) 2024/1230 of the European Parliament and of the Council of 24 April 2024 amending Regulations (EC) No 80/2009, (EU) No 996/2010 and (EU) No 165/2014 as regards certain reporting requirements in the fields of road transport and aviation
Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2024/1230 frá 24. apríl 2024 um breytingu á reglugerðum (EB) nr. 80/2009, (ESB) nr. 996/2010 og (ESB) nr. 165/2014 að því er varðar tilteknar kröfur um skýrslugjöf á sviði flutninga á vegum og flugs
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð hefur ekki öðlast gildi þar sem beðið er afléttingar stjórnskipulegs fyrirvara |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 13 Flutningar, 13.06 Almenningsflug |
| Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 311/2025 |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Markmiðið með gerðinni er að auka gagnsæi og skilvirkni í miðlun upplýsinga til hagsmunaaðila og draga úr umsýslu og kostnaði. Þetta á að gera með því að einfalda kröfur til skýrslugjafar í samgöngum á vegum og til þeirra sem starfrækja loftför. Þetta er gert til að tryggja betra eftirlit og leiðrétta framkvæmd laga, án þess að leggja óþarfa byrðar á hagsmunaaðila. Gerðin felur í sér breytingar á fyrri reglugerðum sem voru orðnar úreltar eða óþarflega flóknar. Breytingarnar eru í samræmi við stefnumótun Evrópusambandsins um samkeppnishæfni til lengri tíma. Ekki kostnaður. Eðlileg áhrif til einföldunar.
Nánari efnisumfjöllun
Markmið sem að er stefnt: Markmiðið með gerðinni er að auka gagnsæi og skilvirkni í miðlun upplýsinga til hagsmunaaðila og draga úr umsýslu og kostnaði. Þetta á að gera með því að einfalda kröfur til skýrslugjafar í samgöngum á vegum og til þeirra sem starfrækja loftför. Þetta er gert til að tryggja betra eftirlit og leiðrétta framkvæmd laga, án þess að leggja óþarfa byrðar á hagsmunaaðila. Gerðin felur í sér breytingar á fyrri reglugerðum sem voru orðnar úreltar eða óþarflega flóknar. Breytingarnar eru í samræmi við stefnumótun Evrópusambandsins um samkeppnishæfni til lengri tíma.Efnisútdráttur: Kröfur til skýrslugjafar á vegum og í lofti voru orðnar flóknar. Þörf var á að einfalda kröfur til þess að gera reglurnar skilvirkari. Sumar reglur voru orðnar úreltar þar sem þær aðstæður urðu til að þær voru settar höfðu breyst. Gerðin er hluti af stefnu ESB til að tryggja samkeppnishæfni sambandsins fram yfir árið 2030. Það felur meðal annars í sér að stuðla að skilvirkni og gagnsæi í stjórnsýslu og reglusetningu.Breytingar á reglugerð 80/2009(flug):Með breytingunni er felld niður skylda til þeirra sem reka bókunarkerfi (CRS) til að gefa skýrslu á fjögurra ára fresti. Framkvæmdastjórninni er veitt heimild til að óska eftir skýrslum ef þörf krefur til að fylgjast með og framfylgja ákvæðum sem skipta máli við aðilaskipti.Breytingar á reglugerð 996/2010(flug):Með breytingunni er felld niður skylda til að gefa út öryggisskýrslur á hverju ári til almennings til þess að upplýsa um öryggi í flugmálum. Evrópusambandið birtir nú árlega yfirlit yfir öryggisstöðu í flugi í öllum aðildarríkjum. Með tilkomu reglugerðar (EU) 2018/1139 er tekið á þessum málum og greinin sem vísað er til er felld úr gildiBreytingar á reglugerð 165/2014(umferð):Um er að ræða breytingu á fyrirkomulagi á birtingu lista yfir verkstæði sem hafa verið samþykkt af aðildarríkjunum til þess að setja upp aksturstímamæla prófa þá, hafa með þeim eftirlit og gera við þá auk þess að hafa eftirlit með þeim skilríkjum sem útgefin eru á þeim grundvelli. Ekki er lengur gerð sú krafa að yfirvöld aðildarríkjanna sendi framkvæmdastjórninni skýrslu árlega. Í staðinn er mælt fyrir um að aðildarríkin skuli birta og uppfæra þessar upplýsingar á opinberum vefsvæðum árlega.Umsögn: helstu breytingar, mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Samgöngustofa hefur hingað til ekki sent ráðinu þær upplýsingar sem mælt er fyrir um í reglugerð 165/2014. Stofnunin telur eðlilegt að birta þær á vefsíðu stofnunarinnar og upplýsa ráðið um þær ef þess er óskað. Áhrif því óveruleg hér á landi og falla innan reglubundinnar starfsemi stofnunarinnar.Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Lagastoð er að finna í:200. gr. laga um loftferðir nr. 80/202240. gr. laga um rannsókn samgönguslysa nr. 18/201354. gr. umferðarlaga nr. 77/2019Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitarfélaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Enginn kostnaðurSkörun við starfssvið annarra ráðuneyta: NeiTilgreining á hagsmunaaðilum: viðeigandi opinberar stofnanir.Horizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: NeiÞörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: Nei
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Á ekki við |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Lagastoð er að finna í: 200. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022, 40. gr. laga um rannsókn samgönguslysa nr. 18/2013 og 54. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Innan fjárhagsáætlunar |
|---|
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Innviðaráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Rannsóknarnefnd samgönguslysa |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32024R1230 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2024/1230, 29.4.2024 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| COM numer | COM(2023) 591 |
|---|---|
| Dagsetning tillögu ESB | |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
|---|---|
| Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 26, 16.4.2026, p. 104 |
| Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2026/609, 16.4.2026 |
Breytir (Modifies)
| COM(2023) 591 52023PC0591 |
adopts | Regulation (EU) 2024/1230 of the European Parliament and of the Council of 24 April 2024 amending Regulations (EC) No 80/2009, (EU) No 996/2010 and (EU) No 165/2014 as regards certain reporting requirements in the fields of road transport and aviation | Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi |
| 32014R0165 | amends | Regulation (EU) No 165/2014 of the European Parliament and of the Council of 4 February 2014 on tachographs in road transport, repealing Council Regulation (EEC) No 3821/85 of the European Parliament and of the Council on recording equipment in road transport and amending Regulation (EC) No 561/2006 of the European Parliament and the Council on the harmonisation of certain social legislation relating to road transport | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 32010R0996 | amends | Regulation (EU) No 996/2010 of the European Parliament and of the Council of 20 October 2010 on the investigation and prevention of accidents and incidents in civil aviation and repealing Directive 94/56/EC | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 32009R0080 | amends | Regulation (EC) No 80/2009 of the European Parliament and of the Council of 14 January 2009 on a Code of Conduct for computerised reservation systems and repealing Council Regulation (EEC) No 2299/89 | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 12016E100 | based on |
