Nánari efnisumfjöllun
Til greiningar hér er reglugerð (ESB) 2023/2917 (hér eftir reglugerðin eða þessi reglugerð) um vottunarstörf, faggildingu vottunaraðila og samþykki stjórnvalds á vöktunaráætlunum skipafélaga sem fellur undir reglugerð 2015/757 um vöktun, upplýsingagjöf og vottun losunar gróðurhúsalofttegunda frá skipafyrirtækjum sem falla undir tilskipun 2003/87/EB (hér eftir ETS-tilskipunin). Með reglugerðinni er reglugerð (ESB) 2016/2072 (hér eftir fyrri reglugerð) felld úr gildi, sem fjallar um sama efni en í þessari reglugerð eru viðbætur sem snúa m.a. að skýrslum innan félags (e. reports at company level) og samþykki stjórnvalds á vöktunaráætlunum. Flestar önnur ákvæði reglugerðarinnar eru að miklu eða einhverju leyti sambærileg ákvæðum í fyrri reglugerð.Reglugerð þessi er sambærileg reglugerðum (ESB) 2018/2066 og 2018/2067 sem fjalla um vottunarstörf, faggildingu vottunaraðila og samþykki lögbærs stjórnvalds á vöktunaráætlunum flugrekenda og rekstraraðila í staðbundnum rekstri í ETS-kerfinu. Reglugerð þessi er sett á grundvelli 8. mgr. 6. gr., 5. mgr. 7. gr., 6. mgr. 13. gr., 5. mgr. 15. gr. og 3. mgr. 16. gr. reglugerðar (ESB) 2015/757. Kafli 1 – Almenn ákvæði 1. gr. Efni reglugerðar.Reglugerðin setur fram ákvæði um mat á vöktunaráætlum og vottun losunarskýrslna og skýrslna um samantekin losunargögn innan félags auk skilyrða hvað varðar hæfni og verklag. Til viðbótar koma fram aðferðir við faggildingu vottunaraðila af faggildingarstofu aðildarríkis og reglur um upplýsingaflæði og reglur um samþykkt vöktunaráætlana og breytingar á vöktunaráætlunum sem viðeigandi yfirvald sér um.Breytingar frá fyrri reglugerð snúa að því að við hafa bæst ákvæði um samantekin losunargögn innan félags auk reglna um upplýsingaflæði og samþykkt á vöktunaráætlunum og breytingum á þeim. 2. gr. Skilgreiningar.Í 2. grein koma fram skilgreiningar á viðeigandi efnistökum fyrir reglugerðina. Skilgreiningarnar eru alls 27 og ná m.a. utan um viðeigandi skýrslur og hlutverk.Nokkrar skilgreiningar hafa bæst við frá fyrri reglugerð. 3. gr. Fyrirframætlað samræmi.Ef vottunaraðili getur sýnt fram á að hann uppfylli viðmiðanir í viðeigandi samhæfðum stöðlum, skv. 9. lið 2. gr. reglugerðar (EB) nr. 765/2008, eða hlutum þeirra, telst hann uppfylla þær kröfur sem settar eru fram í 4. – 45. gr. þessarar reglugerðar.3. gr. er sú sama og í fyrri reglugerð að öllu leyti nema þar vísað er í ákveðna kafla en ekki ákveðnar greinar við vísan í kröfur. Kafli 2 – VottunarstarfsemiKaflinn fjallar um hvernig vottunaraðilar skulu sinna mati á vöktunaráætlunum skipafélaga, vottun á losunarskýrslum og skýrslum um hluta losunar og vottun á skýrslum innan félaga. Meðal annars er talið upp hvaða gögnum skipafélög skulu veita vottunaraðilum aðgang að, hvernig vettvangsheimsóknum skuli háttað og hvernig brugðist skuli við séu rangfærslur eða ósamræmi í vöktunaráætlun eða skýrslum sem vottunaraðili fer yfir. Hluti 1 – Mat á vöktunaráætlunum. 4. gr. Upplýsingar sem skipafélög þurfa að veita.Greinin fjallar um hvaða gögn skipafélög skulu veita vottunaraðila aðgang að til að vottunaraðili geti lagt mat á vöktunaráætlanir.1. mgr. segir að skipafélag skuli veita vottunaraðila aðgang að vöktunaráætlun sem hefur verið gerð í samræmi við viðauka I framkvæmdarreglugerðar (ESB) 2016/1927 sem þarf að vera á ensku eða a.m.k. þýdd á ensku.2. mgr. telur upp hvaða gögnum skipafélag skuli veita vottunaraðila áður en mat á vöktunaráætlun hefst, til að hægt sé að meta vöktunaráætlunina.(a) viðeigandi gögn eða lýsingu á búnaði skips sem vísað er til í vöktunaráætluninni,(b) áhættumat sem vísað er til í kafla C 1. viðauka reglugerðar (ESB) 2015/757,(c) viðeigandi uppfærslur ef breytingar hafa verið gerðar á vöktunar- og tilkynningakerfi,(d) ef skipafélagið hefur tekið við rekstri skips frá öðrum skipseiganda og samþykkti við það að taka yfir allar skyldur og ábyrgð samkvæmt ISM-kóða (sjá viðauka I við reglugerð (EC) nr. 336/2006) þarf skipafélagið að færa sönnur á því að það fékk fyrirmæli frá skipeiganda um að fylgja eftir þeim skyldum sem fram koma í reglugerð (ESB) 757/2015 auk þess að fara eftir framkvæmdareglugerð 2003/87/EB (ETS-tilskipunin) og skila inn losunarheimildum eftir því sem við á.3. mgr. fjallar um hvaða upplýsingar félagið eða manneskjan sem vísað er til í (d) lið 2. mgr. þarf að veita vottunaraðilanum sem gefa skýrt í skyn að eigandi skips starfi í samræmi við reglugerð (ESB) 2015/757 og ETS skyldur þar sem við á.4. mgr. segir að skipafélag þurfi að veita aðrar viðeigandi upplýsingar að fenginni beiðni.Breytingar á 4. gr. frá fyrri reglugerð eru að liðum (b) og (d) 2. mgr. og allri 3. mgr. hafa verið bætt við. 5. gr. Mat á vöktunaráætlun.Greinin segir til um hvaða þætti vottunaraðili þarf að skoða við mat á vöktunaráætlun.1. mgr. segir að vottunaraðili þurfi að athuga hvort upplýsingar í vöktunaráætlun séu heildstæðar, nákvæmar, viðeigandi og í samræmi við reglugerð (ESB) 2015/757.2. mgr. telur upp hvaða þætti vottunaraðili þarf a.m.k. að meta við mat á vöktunaráætlun. Um er að ræða sjö undirpunkta, (a) til (g) og eru punktar (b) til (d) nýir frá fyrri reglugerð en (f) og (g) hefur verið breytt í samræmi við breytingar á reglugerð 757/2015, þ.a. tekið sé tillit til fleiri gróðurhúsalofttegunda en koltvísýrings við vöktun losunar.Vottunaraðili þarf að (a) meta að rétt sniðmát hafi verið notað, (b-c) tryggja að skipseigandi og skráð land sé það sama og skráð eru í gagnagrunna Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar, (d) tryggja að ef skipafélag er ekki eigandi skips að skipseigandi hafi upplýst skipafélag um skyldur þess hvað varðar reglugerð (ESB) 2015/757 og ETS skyldur, (e) sannreyna að upplýsingar í vöktunaráætlun lýsi losunaruppsprettum og mælingatækjum auk verkferla af nákvæmni og heildstæðni, (f) tryggja að ef skipafélag hyggst njóta góðs af frávikum á skilum losunarheimilda fyrir hverja ferð í samræmi við 9. gr. 2. mgr. reglugerðar (ESB) 2015/757 með tillit til k-liðar 10. gr. sömu reglugerðar. 6. gr. Vettvangsheimsóknir.1. – 3. mgr. eru óbreyttar frá fyrri reglugerð og segja að vottunaraðili skuli fara í vettvangsheimsóknir til að átta sig á verklagi sem lýst er í vöktunaráætlunum og sannreyna að þær upplýsingar séu réttar, vottunaraðili skuli ákveða staðsetningu eða staðsetningar heimsókna m.t.t. hvar stór hluti gagna er geymdur og hvar gagnaflæði- og eftirlitsstarfsemi fer fram og ákvarða hvenær heimsókn verður auk þess hvað skal gert í þeirri heimsókn.4. mgr. er ný og segir að skipafélag skuli veita vottunaraðila aðgang að starfsstöðvum, þ. á m. viðeigandi starfsstöðvum á landi og skipum.5. mgr. er sambærileg 4. mgr. 6. gr. fyrri reglugerðar en öllu sem kemur á eftir c-lið hefur verið bætt við. Hún segir að vottunaraðili megi sinna vettvangsheimsókn í gegnum fjarfundabúnað (e. virtual site visit) ef ákveðin skilyrði eru uppfyllt, þ.e. (a) ef vottunaraðili hefur nægan skilning á vöktunar- og tilkynningarkerfum, (b) flækjustig vöktunar- og tilkynningarkerfa skipsins er þess eðlis að ekki er þörf að mæta á staðinn, (c) vottunaraðili getur fengið aðgang að og metið allar upplýsingar úr fjarlægð og (d) ef alvarlegar, óvenjulegar og ófyrirsjáanlegar aðstæður, sem skipafélag hefur ekki stjórn á gera það að verkum að vottunaraðili getur ekki mætt á staðinn.Ef vottunaraðili sinnir heimsókn í gegnum fjarfundabúnað skal hann tryggja að vottunaráhættu sé haldið við viðunandi mark. Ekki skal tekin ákvörðun um að heimsókn sé í fjarfundabúnaði fyrr en eftir að ákvarðað hefur verið að skilyrði þess séu uppfyllt og skal vottunaraðili strax tilkynna skipafélagi um ákvörðun sína.6. mgr. er ný og segir að vottunaraðili megi falla frá vettvangsheimsókn ef liðir a-c 5. mgr. eru allir uppfylltir. Sömu skilyrði eru um vottunaráhættu og tilkynningarskyldu vottunaraðila og í 5. mgr.7. mgr. er ný og segir að vottunaraðili megi ekki falla frá vettvangsheimsókn ef (a) vöktunaráætlun skips er metin í fyrsta skipti af vottunaraðila eða (b) ef breytingar hafa verið gerðar á vöktunaráætlun á skýrslutímabilinu sem vísað er til í liðum b-e í reglugerð (ESB) 2015/757.8. mgr. segir að ef vottunaraðili sinnir vettvangsheimsókn í gegnum fjarfundabúnað eða fellur frá heimsókn skuli hann rökstyðja þá ákvörðun í innri vottunargögnum. 7. gr. Ósamræmi í vöktunaráætlun.Greinin er alveg eins og í fyrri reglugerð. Hún segir að ef vottunaraðili uppgötvi ósamræmi í vöktunaráætlun skuli það tilkynnt skipafélagi strax, félagið skuli leiðrétta ósamræmi í uppfærðri útgáfu vöktunaráætlunar og að vottunaraðili skuli taka fram í innri vottunargögnum allt leiðrétt ósamræmi. 8. gr. Óháð endurskoðun mats á vöktunaráætlun.Eina breytingin frá fyrri reglugerð er að í stað þess að vísað sé til 1. hluta 2. kafla reglugerðarinnar í 3. mgr. er vísað til 4. – 9. gr. Greinin segir að vottunarteymi skuli skila innri vottunargögnum og drög að ákvörðun frá mati á vöktunaráætlun til óháðs rýnis án tafar og án samskipta um gögnin til skipafélagsins. Óháði rýnirinn skal endurskoða matið á vöktunaráætluninni til að tryggja að það sé í samræmi við þessa reglugerð og taka tillit til alls þess sem kemur fram í 4. – 9. gr. þessa reglugerðar. Niðurstöður endurskoðunarinnar skulu vera hluti af innri vottunargögnum vottunaraðila. 9. gr. Niðurstöður vottunaraðila um mat á vöktunaráætlun.Greinin er nokkuð breytt frá fyrri reglugerð. Hún segir að eftir að mat á vöktunaráætlun er lokið skuli vottunaraðili undir eins upplýsa skipafélag um niðurstöður sínar og þær skulu innihalda:(a) hvort vöktunaráætlunin sé í samræmi við reglugerð 2015/757, framkvæmdarreglugerð 2016/1927 og þar sem við á, ETS-tilskipunina, eða hvort hún innihaldi eitthvað ósamræmi við þessar reglur,(b) lýsingu á óleiðréttu ósamræmi ef slíkt er til staðar,(c) samantekt um verklag vottunaraðila,(d) samantekt á breytingum sem vísað er til í 2. mgr. 7. gr. reglugerðar 2015/757 ef einhverjar eru,(e) annað viðeigandi efni sem fannst við mat á vöktunaráætlun. Hluti 2 – Vottun losunarskýrslna og skýrslna um hluta losunar (e. partial emissions report) 10. gr. Upplýsingar sem skipafélög skulu veita.Greinin fjallar um þær upplýsingar sem skipafélög skulu veita vottunaraðila við vottun losunarskýrslna og skýrslna um hluta losunar. Breytingar á greininni frá fyrri reglugerð felast í því að aukinna upplýsinga er krafist til samræmis við breytingar á reglugerð (ESB) 2015/757 og þeirrar breytingar á þessari reglugerð að vöktunaráætlanir séu samþykktar af stjórnvaldi.Upplýsingar sem skipafélög þurfa að skila af sér sem bæst hafa við frá fyrri reglugerð eru listi yfir ferðir sem skip var á þeirra ábyrgð fyrir skýrslu um hluta losunar (a-liður 1. mgr.), hvar gögn vantar fyrir skýrslutímabilið, þ.e. fjöldi ferða sem gögn vantar fyrir, matsaðferð fyrir staðgengilsgögn til samræmis við lið 2 C hluta viðauka II reglugerðar (ESB) 2015/757 og losun byggð á staðgengilsgögnunum (b-liður 1. mgr.), sönnun á því að matsáætlun hafi verið samþykkt af stjórnvaldi (d-liður 1. mgr.) og afrit af viðeigandi eldsneytisvottorði til útreikninga á losun (c-liður 2. mgr.). Aðrar upplýsingar sem skipafélög þurfa að veita vottunaraðila eru m.a. listar yfir allar ferðir skipa, afrit af losunarskýrslu fyrri árs, upplýsingar um fjölda farþega og þar sem við á, yfirlit yfir tölvukerfi og afrit af gögnum úr losunarmælum. 11. gr. Stefnumiðuð greining (e. strategic analysis).Greinin er ný.1. mgr. segir að vottunaraðili skuli meta flækjustig og stærðargráðu vottunarverkefna með stefnumiðaðri greiningu við upphaf vottunarferlis.2. mgr. segir að vottunaraðili skuli safna og endurskoða allar upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að tryggja að vottunarteymið sé hæft til vottunarinnar, að rétt tímamörk séu gefin í samningi og að hægt sé að framkvæma viðeigandi áhættugreiningu. Upplýsingarnar skulu að minnsta kosti innihalda upplýsingarnar sem koma fram í 1. og 2. mgr. 10. gr. um nauðsynlegar upplýsingar og þær upplýsingar sem hafa verið veittar við vottun síðustu ára ef um sama vottunaraðila skipafélags er að ræða.3. mgr. segir að við yfirferð upplýsinganna sem vísað er til í 2. mgr. skuli vottunaraðili a.m.k. meta vélar skipsins, eldsneytistegundir og fjölda ferða yfir skýrslutímabilið, vöktunaráætlunina og gagnaflæðis- og eftirlitsstarfsemi.4. mgr. segir að við stefnumiðuðu greininguna skuli vottunaraðili a.m.k. athuga hvort að vöktunaráætlunin sé nýjasta útgáfan og hvort hún hafi verið samþykkt af stjórnvaldi ef við á og hvort breytingar hafi verið gerðar á vöktunaráætlun yfir skýrslutímabilið. 12. gr. Áhættugreining framkvæmd af vottunaraðila.Greinin er sambærileg 11. gr. fyrri reglugerðar og er eins fyrir utan orðalagsbreytingar í 3. mgr., sem koma til vegna þess að sjóflutningar hafa verið færðir undir ETS-kerfið, og viðbættri undirmgr. í 1. mgr. sem segir til um að við mat á eðlislægri áhættu skuli vottunaraðili hafa í huga niðurstöður stefnumiðaðrar greiningar. Greinin segir til um hvaða þætti vottunaraðili skal hafa í huga við áhættugreiningu. 13. gr. Vottunaráætlun (e. verification plan).Greinin er sambærileg 12. gr. fyrri reglugerðar. Hún segir að vottunaraðili skuli gera drög að vottunaráætlun í samræmi við upplýsingar og áhættur greindar við gerð áhættugreiningar sem skal innihalda (a) skipulag fyrir vottunina sem lýsir umfangi vottunarstarfa, (b) áætlun fyrir prófanir sem lýsir umfangi og aðferðum við prófun á eftirlitsstarfsemi og verklagi hennar og (c) áætlun fyrir gagnasöfnun sem lýsir umfangi og aðferðum gagnasöfnunar að baki samantekinnar heildarlosunar gróðurhúsalofttegunda, eldsneytisnotkunar og annarra viðeigandi upplýsinga. Frá fyrri reglugerð hefur b-lið verið bætt við og orðalagi í c-lið verið breytt úr aðeins koldíoxíði í gróðurhúsalofttegundir. 14. gr. Vottunarstörf sem varða losunarskýrsluna og skýrsluna um hluta losunar.Greinin er sambærileg 13. gr. fyrri reglugerðar en 2. mgr. þeirrar greinar hefur verið skipt út fyrir nýja í þessari grein.1. mgr. segir að vottunaraðili skuli notast við vottunarskýrsluna til að votta hvort vöktunar- og tilkynningarkefi sem lýst er í vöktunaráætlun séu fullnægjandi t.d. með því að ræða við viðeigandi starfsfólk, skjalaskoðun og öðrum athugunum.2. mgr. segir að vottunaraðili eigi að votta (a) gagnaflæðistarfsemi og allt sem notað er við gagnaflæði, (b) að eftirlitsstarfsemi sé við hæfi og fær um að draga úr áhættu, (c) hvort aðferðir í vöktunaráætlun séu áhrifaríkar til að draga úr áhættu og til staðar. 15. gr. Vottun uppgefinna gagna.Greinin er sambærileg 14. gr. fyrri reglugerðar og er lítið breytt frá þeirri grein.1. mgr. telur upp með hvaða hætti gögn sem uppgefin eru í losunarskýrslu eða skýrslu um hluta losunar skuli vera vottuð af vottunaraðila. Hér hefur skýrslu um hluta losunar verið bætt við og hvernig aðferðirnar eru listaðar upp verið breytt úr lista í sömu málsgreininni í liði a-e.2. mgr. telur upp hvaða gögn vottunaraðili skuli sannreyna með þeim aðferðum sem taldar eru upp í 1. mgr. Hér hefur c-lið verið bætt við frá fyrri reglugerð, sem segir að vottunaraðili skuli sannreyna heildstæðni og samræmi gagna sem tengjast losun sem fellur undir ETS-tilskipunina, m.a. m.t.t. 3. gr. ga, 3. gr. gb og frávika frá 12. gr. 3 sem talin eru upp í 12. gr. 3a, 12. gr. 3b og 12. gr. (3-e) til 12. gr. (3-b) þeirrar tilskipunar. 16. gr. Vottun aðferða sem beitt er ef gögn vantar (e. verification of methods applied for missing data).Um er að ræða nýja grein.1. mgr. segir að vottunaraðili skuli sannreyna hvort að aðferðir í vöktunaráætlun til að bæta upp fyrir gögn sem vantar, sem hafi verið metnar af vottunaraðila og samþykktar af stjórnvaldi, hafi verið notaðar við viðeigandi tilefni og á réttan hátt.2. mgr. segir að ef aðferðirnar sem vísað er til í 1. mgr. hafi ekki verið metnar eða samþykktar fyrirfram skuli vottunaraðili sannreyna að aðferðin sem skipafélagið notaði tryggi að losun sé ekki vanmetin eða leiði af sér efnislegt ósamræmi. 17. gr. Mikilvægisstig.Greinin er sambærileg 15. gr. fyrri reglugerðar og hefur aðeins orðalagi verið breytt, þ.e. koltvísýringi hefur verið skipt út fyrir gróðurhúsalofttegundir og skýrslu um hluta losunar hefur verið bætt við. Greinin segir að þegar ýmis atriði, m.a. eldsneytisnotkun, losun gróðurhúsalofttegunda, vegalengd og tími á sjó, eru sannreynd fyrir losunarskýrslu og skýrslu um hluta losunar skuli mikilvægisstig vera 5% af samanlögðu heildargildi sem er gefið upp fyrir hvert atriði fyrir sig á skýrslutímabilinu. 18. gr. Vettvangsheimsóknir.Greinin er sambærileg 16. gr. fyrri reglugerðar og setur að miklu leyti fram sömu skilyrði og leiðbeiningar fyrir vettvangsheimsóknir og 6. gr. þessar reglugerðar setur fram.1. mgr. segir að vottunaraðili skuli sinna vettvangsheimsóknum til að öðlast skilning á skipafélaginu og vöktunar- og tilkynningakerfi sem lýst er í vöktunaráætlun.2. mgr. er nákvæmlega eins og 2. mgr. 6. gr. nema tekið er fram að staðsetningar vettvangsheimsókna skulu líka taka mið af áhættugreiningu.3. mgr. segir að vottunaraðili megi ákveða að heimsækja skip sé talið að slík heimsókn sé nauðsynleg til að draga úr áhættu á rangfærslum eða ósamræmi í losunarskýrslu eða skýrslu um hluta losunar.4. mgr. er nákvæmlega eins og 3. mgr. 6. gr.5. mgr. er nákvæmlega eins og 4. mgr. 6. gr.6. mgr. er að miklu leyti eins og 5. mgr. 6. Liðir a, b og d eru nákvæmlega eins. Í c-lið 6. mgr. 18. gr. er tekið fram að vottunaraðili þurfi einnig að geta metið hvort aðferðafræði lýst í vöktunaráætlun sé rétt beitt og vottun gagna í losunarskýrslu og skýrslu um hluta losunar.2. undirliður þessarar mgr. er nákvæmlega eins og 2. undirl. 5. mgr. 6. gr.3. undirliður 5. mgr. 6. gr. er nákvæmlega eins og 4. undirliður þessarar mgr.Í þessari mgr. er til viðbótar 3. undirl. sem segir að þrátt fyrir d-lið skuli vottunaraðili ekki sinna vettvangsheimsókn í fjarfundabúnaði ef ekki hefur átt sér stað vettvangsheimsón á staðnum yfir síðustu þrjú skýrslutímabil.7. mgr. er að öllu leyti eins og 6. mgr. 6. gr. nema að vísað er til ólíkra mgr. innan greinanna og vísað er til losunarskýrslna og skýrslna um hluta losunar í 18. gr. en til vöktunaráætlana í 6. gr.8. mgr. er sambærileg 7. mgr. 6. gr. að því leyti að a-liður er eins, nema vísað er annars vegar til vöktunaráætlunar og hins vegar til losunarskýrslna og skýrslna um hluta losunar. Liður b er ólíkur og segir að ekki megi hætta við vettvangsheimsókn ef vottunaraðili hefur ekki sinnt vettvangsheimsókn síðustu tvö skýrslutímabil strax á undan.9. mgr. segir að skipafélag skuli tilkynna ábyrgu stjórnvaldi tafarlaust hafi vottunaraðili ákveðið að fara ekki í vettvangsheimsókn á skip sem falla undir ETS-tilskipunina. Ábyrgt stjórnvald má mótmæla ákvörðuninni m.t.t. niðurstaðna áhættugreiningar, upplýsinga um að hægt sé að nálgast allar upplýsingar og meta úr fjarlægð og sönnur á því að öll skilyrði þess að sleppa vettvangsheimsókn séu uppfyllt. Sé um mótmæli af hendi ábyrgs stjórnvalds að ræða skal það tilkynna skipafélaginu um þau og ástæður þeirra ekki seinna en tveimur mánuðum eftir ákvörðun vottunaraðila um að sleppa vettvangsheimsókn.10. mgr. er eins og 8. mgr. 6. gr. nema vísað er til 6. og 7. mgr. 19. gr. Tekið á rangfærslum og ósamræmi í losunarskýrslu og skýrslu fyrir hluta losunar.Greinin er sambærileg 17. gr. fyrri reglugerðar. Hún fjallar um viðbrögð vottunaraðila ef rangfærslur eða ósamræmi finnst í losunarskýrslu eða skýrslu um hluta losunar. Breytingarnar frá fyrri reglugerð felast í að bætt hefur verið við skýrslu fyrir hluta losunar og lið hefur verið bætt við 1. og 4. mgr. Viðbótin við 1. mgr. segir að skipafélag skuli leiðrétta allar rangfærslur og ósamræmi sem vottunaraðili lætur það vita af og viðbótin við 4. mgr. segir að vottunaraðili skuli meta hvort að óleiðrétt ósamræmi, eitt og sér eða með öðru ósamræmi, hafi áhrif á uppgefin gögn og hvort það leiði af sér rangfærslu. 20. gr. Niðurstaða á vottun losunarskýrslu og skýrslu um hluta losunar.Greinin er sambærileg 18. gr. fyrri reglugerðar og fjallar um hvað vottunaraðili þurfi að gera til að klára vottun losunarskýrslu eða skýrslu um hluta losunar. Vottunaraðili skal (a) staðfesta að öll vottunarverk hafi verið kláruð, (b) framkvæma lokagreiningaraðferðir á samanteknum heildargögnum til að tryggja að þau séu án rangfærslna, (c) votta hvort upplýsingarnar í skýrslunni séu í samræmi við kröfur reglugerðar 2015/757 og ETS-tilskipunarinnar þar sem við á, (d) undirbúa innri vottunargögn og skila til óháða rýnisins áður en vottunarskýrslan er gefin út í samræmi við 23. gr. og (e) gefa leyfi til manneskju til að staðfesta (e. authenticate) skýrsluna á grunni niðurstaðna óháðs rýnis og sönnunar fyrir innri vottunargögnum og tilkynna skipafélagi um það. F-liður 18. gr. fyrri reglugerðar er ekki í þessari grein, en hefur verið bætt við 3. mgr. 23. gr., sem fjallar um að vottunaraðili skuli tilkynna framkvæmdastjórninni og fánaríki skipsins hvort að skilyrði til að gefa út samræmingarskjal séu uppfyllt. 21. gr. Tillögur að úrbótum.Greinin er sambærileg 19. gr. fyrri reglugerðar. 1. – 3. mgr. eru óbreyttar frá fyrri reglugerð og fjalla um að vottunaraðili skuli leggja fyrir skipafélagið tillögur að úrbótum sem tengjast óleiðréttum rangfærslum og ósamræmi sem leiða ekki af sér efnislegar rangfærslur og aðrar tillögur eftir því sem vottunaraðili telji þörf á en vottunaraðili skal gæta að hlutleysi og ekki gefa ráð eða þróa hluta af vöktunar- og tilkynningarverklagi skipafélagsins. 4. mgr. er ný og segir að við vottun ári eftir að tillögur um úrbætur voru settar fram í vottunarskýrslu skuli vottunaraðili athuga hvort að skipafélag hafi leiðrétt í samræmi við þær. Ef ekki skuli vottunaraðili meta hvort að þetta auki eða geti aukið líkur á rangfærslum. 22. gr. Vottunarskýrsla losunarskýrslu eða skýrslu um hluta losunar.Greinin er sambærileg 20. gr. fyrri reglugerðar en hefur tekið einhverjum breytingum frá þeirri reglugerð.1. mgr. segir að vottunaraðili skuli gera vottunarskýrslu fyrir hverja losunarskýrslu eða skýrslu um hluta losunar og skila til skipafélags. Hér hafa verið gerðar orðalagsbreytingar til að bæta við skýrslum um hluta losunar.2. mgr. er ekki í fyrri reglugerð. Hún segir að þegar skipafélag hefur fengið vottunarskýrslu skv. 1. mgr. skuli það skila henni til stjórnvalds ef við á.3. og 4. mgr. eru saman sambærilegar 2. mgr. sambærilegrar greinar í fyrri reglugerð. Þær segja að vottunarskýrslan skuli innihalda yfirlýsingu sem staðfestir að losunarskýrslan sé viðunandi eða óviðunandi og að hún skuli aðeins vera staðfest viðunandi ef hún er án efnislegra rangfærslna.5. mgr. telur upp í liðum a-q tæmandi lista um hvað skal vera í vottunarskýrslu.6. mgr. er ekki í fyrri reglugerð og segir til um að vottunaraðili skuli lýsa rangfærslum og misræmi á greinargóðan hátt og hvernig það skuli gert, þ.e. m.a. með (a) stærð og eðli þeirra, (b) af hverju rangfærsla hefur efnisleg áhrif eða ekki, (c) hvaða hlutar skýrslna skipafélagsins eða vöktunaráætlunar innihalda rangfærslur eða til hvaða lagakrafna ósamræmið nær. 23. gr. Óháð endurskoðun á losunarskýrslu.Greinin er sambærileg 21. gr. fyrri reglugerðar.1. og 2. mgr. segja að óháður rýnir skuli endurskoða innri vottunarskjölin og uppkast að vottunarskýrslu til að staðfesta að vottunarferlið hafi verið í samræmi við þessa reglugerð og nái utan um allt vottunarferlið sem kemur fram í 10. – 22. gr.3. mgr. segir að eftir staðfestingu á vottunarskýrslunni, skv. e-lið 20. gr. skuli vottunaraðili hafa niðurstöður óháðu endurskoðunarinnar í innri vottunargögnum og tilkynna framkvæmdastjórninni og fánaríki skipsins um hvort skilyrði til að gefa út samræmingarskjal séu uppfyllt. Síðari hluti 3. mgr. hefur verið bætt við hér og er sambærilegur f-lið 17. gr. fyrri reglugerðar. Hluti 3 – Vottun skýrslna innan félags Allar greinar í hluta 3 eru nýjar. Hlutinn er þó að mestu leyti sambærilegur hluta 2 um vottun losunarskýrslna og skýrslna um hluta losunar en á við um á skýrslur innan félags. 24. gr. Upplýsingar sem skipafélög skulu veita.1. mgr. segir hvaða upplýsingar skipafélag þarf að veita vottunaraðila áður en vottun á sér stað. Þær samanstanda af:(a) skýrslu innan félags sem skal votta og afrit af vottaðri skýrslu og vottunarskýrslu fyrra árs ef ekki var um sama vottunaraðila að ræða,(b) losunarskýrslur og skýrslur um hluta losunar með vottunarskýrslum fyrir öll skip á ábyrgð skipafélagsins fyrir skýrslutímabilið,(c) losunarskýrslur og skýrslur fyrir hluta losunar með vottunarskýrslum fyrir öll skip á ábyrgð skipafélagsins á fyrra ári ef ekki var um sama vottunaraðila að ræða,(d) lista með öllum skipum skipafélagsins sem eru yfir 5,000 tonn ásamt IMO númeri þess sem eru eða voru á ábyrgð skipafélagsins á skýrslutímabilinu.2. mgr. segir að vottunaraðilar megi óska eftir frekari upplýsingum frá skipafélagi. 25. gr. Stefnumiðuð greining.1. mgr. segir að vottunaraðili skuli meta umfang og flækjustig vottunar við upphaf hennar með stefnumiðaðri greiningu.2. mgr. segir að vottunaraðili skuli safna og skoða nauðsynlegar upplýsingar til að meta hvort vottunarteymið sé hæft fyrir vottunina, að tímamörk í samningi séu við hæfi og tryggja að hægt sé að gera nauðsynlega áhættugreiningu. Þessar upplýsingar skulu innihalda (a) upplýsingar vísað til í 1. mgr. 24. gr. og (b) upplýsingar frá vottunum fyrri ára ef vottunaraðili er sá sami. 26. gr. Áhættugreining sem vottunaraðili skal framkvæma.1. mgr. segir að vottunaraðili skuli hafa í huga hvar gæti verið meiri vottunaráhætta við mat á heildstæðni og samræmi í birtum gögnum, m.a. með því að skoða þætti líkt og (a) fjölda skipa sem skipafélagið ber ábyrgð á, (b) fjölda breytinga á fyrirtækjum fyrir skip sem skipafélagið ber ábyrgð á, (c) fjölbreytni skipa og eldsneytisgjafa, (d) fjölda ólíkra fánaríkja, (d) ólíka vottunaraðila sem hafa vottað losunarskýrslur skipa sem skipafélagið ber ábyrgð á, (f) fjölda vöktunaráætlana fyrir skip sem skipafélagið ber ábyrgð á og voru ekki samþykktar af ábyrgu stjórnvaldi fyrir útgáfu vottunarskýrslu fyrir viðeigandi losunarskýrslu eða skýrslu um hluta losunar og (g) fjölda, eðli og umfang misræmis og rangfærslna sem tengjast losunarskýrslum eða skýrslum um hluta losunar líkt og kemur fram í viðeigandi vottunarskýrslum.2. mgr. segir að vottunaraðili skuli endurskoða áhættugreiningu og breyta eða endurtaka atriði vottunar ef upp koma atriði við vottun sem krefjast þess. 27. gr. Vottunaráætlun vegna skýrslu innan félags.Vottunaraðili skal gera drög að vottunaráætlun sem svarar til þeirra upplýsinga sem aflað hefur verið og greindrar áhættu við gerð áhættugreiningar. Áætlunin skal innihalda áætlun fyrir skipulag vottunarinnar sem lýsir umfangi vottunarverks, tímasetningu og háttalagi við framkvæmd þess og þar sem við á áætlun um gagnasöfnun. 28. gr. Vottunaraðferð fyrir skýrslu innan félags.Á grundvelli áhættugreiningar skal vottunaraðili íhuga að (a) ræða við viðeigandi starfsfólk, (b) skoða skjöl og (c) notast við aðferðir við athugun og yfirferð kerfa (e. walkthrough procedure). 29. gr. Vottun uppgefina gagna vegna skýrslu innan félags.1. mgr. segir að vottunaraðili skuli meta heildstæðni og samræmi uppgefinna gagna í skýrslu innan félags með (a) nákvæmum prófum, (b) milligátun (e. cross-checking) gagna við gögn úr vottuðum losunarskýrslum, (c) framkvæmd afstemmingar og (d) endurútreikningum.2. mgr. segir að sem lið í vottun gagnanna vísað til í 1. mgr. skuli vottunaraðili votta (a) heildstæðni skýrslu innan félags, þ. á m. að öll skip skipafélagsins sem falla undir ETS-tilskipunina séu í henni og (b) réttmæti útreikninga á bak við samantekin losunargögn félags. 30. gr. Mikilvægisstig skýrslna innan félags.Við vottun skýrslna innan félags skal mikilvægisstig vera 2% ef samantekin heildarlosun allra skipa skipafélagsins sem falla undir ETS-tilskipunina er yfir 500.000 tonn CO2 ígilda, en 5% ef losunin fer ekki yfir 500.000 tonn CO2 ígilda. 31. gr. Vettvangsheimsóknir.Greinin er að miklu leyti sambærileg 6. og 18. gr. um vettvangsheimsóknir.1. mgr. segir að vottunaraðili skuli fara í vettvangsheimsóknir til að votta skýrslur innan félags, byggt á niðurstöðum áhættugreiningar (skv. 26. gr.) og taka tillit til hvar stór hluti viðeigandi gagna er.2. og 3. mgr. eru alveg eins og 3. og 4. mgr. 6. gr.4. mgr. a og b-liðir eru alveg eins og c-d liðir 5. mgr. 6. gr. og 2. og 3. málsliður 4. mgr. er alveg eins og 2. og 3. málsliður 5. mgr. 6. gr. Viðbót við 1. málslið 4. mgr. þessarar greinar er að ákvörðunin skuli tekin á grundvelli niðurstaðna áhættugreiningar.5. mgr. segir að vottunaraðili megi hætta við vettvangsheimsókn, á grundvelli niðurstaðna áhættugreiningar vísað til í 1. – 4. mgr. ef (a) vottunaraðili getur nálgast og metið allar upplýsingar án þess að mæta, (b) þetta er ekki í fyrsta skipti sem vottunaraðili vottar skýrslu innan félags fyrir skipafélagið og (c) hægt er að sinna vottuninni með ásættanlegri vissu án slíkrar heimsóknar. 2. og 3. málsliðir eru alveg eins og 2. og 3. málsliðir 6. mgr. 6. gr.6. mgr. segir að skipafélag skuli tafarlaust tilkynna ábyrgu stjórnvaldi ef vottunaraðili ákveður að sinna ekki vettvangsheimsókn fyrir skip sem falla undir ETS-tilskipunina. Ábyrgt stjórnvald getur mótmælt ákvörðuninni að teknu tilliti til upplýsinga frá vottunaraðila um niðurstöður áhættugreiningar og sannana um að öll skilyrði fyrir því að sinna ekki vettvangsheimsókn séu uppfyllt. Ábyrgt stjórnvald hefur 2 mánuði til að mótmæla og færa rök fyrir mótmælum sínum. 32. gr. Tekið á rangfærslum og misræmi í skýrslu innan félags.Greinin er sambærileg 19. gr. um rangfærslur og misræmi í losunarskýrslum og skýrslum um hluta losunar. Eini munurinn á greinunum er að í 32. gr. er talað um skýrslu innan félags í 1. mgr. og vísað til 30. gr. í 5. mgr. Á nokkrum stöðum hefur röð setninga innan málsgreina verið breytt en að öðru leyti eru greinarnar nákvæmlega eins. 33. gr. Niðurstöður vottunar skýrslu innan félags.Greinin er nákvæmlega eins og 20. gr. um niðurstöður vottunar losunarskýrsla og skýrsla um hluta losunar nema í 1. mgr. er vísað til skýrslu innan félags og í d-lið er vísað til 36. gr. 34. gr. Tillögur að úrbótum.Greinin er nákvæmlega eins og 21. gr. um tillögur að úrbótum við losunarskýrslur eða skýrslur um hluta losunar. 35. gr. Vottunarskýrsla um skýrslu innan félags.1. – 4. mgr. og 6. mgr. eru nákvæmlega eins og 1. – 4. mgr. og 6. mgr. 22. gr. fyrir utan að alls staðar þar sem minnst er á losunarskýrslu eða skýrslu um hluta losunar í 22. gr. er hér minnst á skýrslu innan félags.5. mgr. telur upp hvað vottunarskýrsla um skýrslu innan félags skuli innihalda í liðum a-n. Þetta nær m.a. utan um upplýsingar um skipafélagið og vottunaraðilann, upplýsingar um samantekna heildarlosun og lýsingu á misræmi og rangfærslum. 36. gr. Óháð endurskoðun skýrslu innan félags.1. og 2. mgr. eru nákvæmlega eins og 1. og 2. mgr. 23. gr. um óháða endurskoðun á losunarskýrslu utan þess að í 2. mgr. þessarar greinar er vísað til 24. – 35. gr. 3. mgr. segir að eftir að skýrslan hefur verið staðfest skv. e-lið 33. gr. skuli niðurstöður óháðrar endurskoðunar vera hluti af innri vottunargögnum vottunaraðila. Kafli 3 – Skilyrði fyrir vottunaraðilaKaflinn fjallar um þau skilyrði sem vottunaraðilar og starfsfólk þeirra sem sinnir vottunarstörfum skulu uppfylla til að sinna vottunarstörfum samkvæmt 4. – 36. gr. þessarar reglugerðar. 37. gr. Áframhaldandi hæfniferli (e. competence process).Fyrri hluti greinarinnar er sambærilegur 22. gr. fyrri reglugerðar en 4. – 7. mgr. eru nýjar.1. og 2. mgr. segja að vottunaraðili þurfi að hafa til staðar ferli sem tryggir hæfni alls starfsfólks sem sinnir vottunarverkum sem felst í almennum hæfniviðmiðum, sértækum hæfniviðmiðum fyrir hvert hlutverk, sér í lagi yfirmatsmann, matsmann, óháðan rýni og tæknisérfræðing, auk þess að tryggja áframhaldandi hæfni og reglulegt frammistöðumat starfsfólks, tryggja símenntun starfsfólks og meta hvort vottunarverkefni falli undir umfang faggildingar vottunaraðila og hvort vottunaraðilinn geti sinnt verkefninu sem skildi.3. mgr. segir að vottunaraðili skuli meta a.m.k. árlega frammistöðu starfsfólks til að staðfesta áframhaldandi hæfni þess og 4. mgr. að vottunaraðili skuli reglulega yfirfara áframhaldandi hæfniferli sem vísað er til í 1. mgr., m.a. að það sé í samræmi við þessa reglugerð.Skv. 5. mgr. skal vera til staðar skráningarkerfi fyrir niðurstöður þess sem gert er í hæfniferlinu sem lýst er í 1. mgr.6. mgr. segir að nægjanlega hæfur matsaðili skuli meta hæfni og frammistöðu matsmanns og yfirmatsmanns við vottun losunarskýrslu eða skýrslu um hluta losunar.7. mgr. segir að ef starfsfólk stenst ekki hæfniviðmiðin fyrir ákveðin verk skuli vottunaraðili skipuleggja viðbótarþjálfun fyrir það starfsfólk og vakta þar til hæfniviðmið hafa verið uppfyllt. 38. gr. Vottunarteymi.Greinin er sambærileg 23. gr. fyrri reglugerðar en 3. og 5. mgr. eru nýjar.Greinin fjallar um samsetningu vottunarteymis sem skal sett saman af vottunaraðila og vera fært um að sinna öllum vottunarverkefnum sem vísað er til í 4. – 36. gr. Í teyminu skal vera yfirmatsmaður og fleiri matsmenn og/eða tæknisérfræðingar eftir því sem þarf og skulu allir meðlimir teymisins vera meðvitaðir um sitt hlutverk og geta átt í samskiptum við skipafélagið á viðeigandi tungumáli. Óháður rýnir skal ekki vera hluti af vottunarteyminu. Ef aðeins einn aðili er í vottunarteyminu skal sú manneskja uppfylla allar hæfniskröfur fyrir matsmann og yfirmatsmann auk þeirra krafa sem settar eru fram í 4. gr. 39. gr. Hæfnikröfur fyrir matsmenn og yfirmatsmenn.Greinin er sambærileg 24. gr. fyrri reglugerðar.1. – 3. mgr. lýsa hæfnikröfum fyrir matsmenn, sem felast í því að geta metið þær skýrslur og áætlanir sem skipafélag þurfa að fá vottun á, þekkja til viðeigandi Evrópureglugerða og tilskipana sem og annarra viðeigandi laga og reglna, þekkingu og reynslu af endurskoðun gagna og upplýsinga auk sértækrar þekkingar og reynslu af atvinnugreininni eins og fram kemur í viðauka I þessarar reglugerðar. Til viðbótar við þessar hæfnikröfur, þarf yfirmatsmaður að hafa hæfni til að leiða og bera ábyrgð á vottun skv. 4. mgr. 40. gr. Hæfnikröfur fyrir óháða rýna.Greinin er sambærileg 25. gr. fyrri reglugerðar.1. og 2. gr. segja að óháður rýnir skuli hafa viðeigandi heimild til að rýna drög að niðurstöðu um mat á vöktunaráætlun, drög að vottunarskýrslu og innri vottunargögn skv. 8., 23. og 36. gr. auk þess að uppfylla hæfniskröfur fyrir yfirmatsmann.3. mgr. segir að til að geta fyllilega metið innri vottunargögn og hvort nægum gögnum hafi verið safnað við vottunarstörf skuli óháður rýnir geta rýnt gögnin, séð hvort upplýsingar vanti eða séu mótsagnakenndar og geta metið innri vottunargögn út frá gagnaslóð (e. data trail). 41. gr. Notkun tæknisérfræðinga.Greinin er sambærileg 26. gr. fyrri reglugerðar og fjallar um hvenær má og skal óska eftir aðstoð tæknilegra sérfræðinga við vottunarstörf og hæfniskröfur þeirra. Við vottun má vottunaraðili nýta sér tæknisérfræðing til stuðnings við matsmann og yfirmatsmann og ef óháður rýnir hefur ekki getu til að meta ákveðin mál við endurskoðunarferlið skal vottunaraðili óska eftir stuðningi tæknisérfræðings. Tæknisérfræðingurinn skal vera hæfur til að aðstoða matsmann, yfirmatsmann og óháðan rýni við þau mál sem óskað er eftir sérþekkingu hans fyrir auk þess að hafa nægan skilning á þeim málum sem vísað er til í 39. gr. Sértæk störf sem tæknisérfræðingur sinnir skulu vera undir leiðsögn og á fulla ábyrgð óháðs rýnis eða yfirmatsmanns vottunarteymisins sem hann aðstoðar. 42. gr. Ferli fyrir vottunarstörf.Greinin er sambærileg 27. gr. fyrri reglugerðar.1. og 2. mgr. segja að vottunaraðilar skuli hafa a.m.k. eitt verklag eða feril fyrir vottunarstörf sem lýst er í 4. – 36. gr. og að útfærsla þeirra skuli vera í samræmi við samræmdan staðal skv. reglugerð 765/2008.3. mgr. segir að vottunaraðilar skuli hafa gæðastjórnunarkerfi, í samræmi við samræmdan staðal vísað til í 2. mgr., sem inniheldur (a) stefnur og skyldur, (b) yfirferð stjórnunar, (c) innri endurskoðun, (d) aðgerðir til úrbóta, (e) aðgerðir sem taka á áhættu og tækifærum og til aðgerða til forvarna og (e) stjórn á skráðum upplýsingum.4. mgr. segir að til viðbótar skuli vottunaraðilar hafa ýmsa ferla, verklag og tilhögun í samræmi við samræmdan staðal vísað til í 2. mgr., svo sem samskiptastefnu við skipafélag, tilhögun sem tryggir trúnað við skipafélag, verklag um að útvista vottunarstörfum til annarra félaga og feril til að taka á kvörtunum. 43. gr. Innri vottunargögn.Greinin er sambærileg 28. gr. fyrri reglugerðar.1. mgr. segir að í innri vottunargögnum vottunaraðila skulu a.m.k. vera niðurstöður vottunarstarfa, vottunaráætlun, stefnumiðuð greining og áhættugreining auk nægjanlegra upplýsinga til að styðja við matið á vöktunaráætlun og drögum að vottunarskýrslu.2. mgr. segir að innri vottunargögn skulu vera á þann hátt að óháður rýnir og faggildingarstofa aðildarríkis geti metið þau.3. mgr. segir að að fenginni beiðni skuli vottunaraðili veita stjórnvaldi aðgang að vottunargögnum og öðrum viðeigandi upplýsingum til að stjórnvald geti metið vottunina. 44. gr. Skjöl og miðlun.Greinin er sambærileg 29. gr. fyrri reglugerðar.Vottunaraðilar skulu hafa skjöl sem sýna fram á samræmi við þessa reglugerð og skulu þau reglulega vera aðgengileg fyrirtækjum samkvæmt samræmdum stöðlum vísað til í 2. mgr. 42. gr. Vottunaraðilar skulu gæta að trúnaði hvað varðar upplýsingar sem þeir safna við vottun skv. 2. mgr. 42. gr. 45. gr. Óhlutdrægni og óhæði.Greinin er sambærileg 30. gr. fyrri reglugerðar en miklu hefur verið bætt við eða 1., 3., 5., 9. og 10. mgr. Að auki hefur töluverðu verið bætt við 7. mgr. (sambærileg 5. mgr. fyrri reglugerðar).1. mgr. segir að vottunaraðili skuli vera óháður skipafélagi og hlutlaus við vottunarstörf og telur upp hvaða tengsl geti komið í veg fyrir það, m.a. að vottunaraðili eða hluti af sama lögaðila skuli ekki vera skipafélag, eigandi slíks félags eða í eigu þess eða eiga í öðrum samböndum við skipafélagið sem hefur áhrif á hlutleysi. Vottunaraðili skal jafnframt vera óháður aðilum sem versla með kolefniseiningar innan ETS-kerfisins.2. mgr. segir að vottunaraðilar skuli vera skipulagðir þannig að þeir standi vörð um óhlutdrægni og óhæði sitt sbr. viðeigandi kröfur í 2. mgr. 42. gr.3. mgr. segir að vottunaraðili skuli ekki sinna vottunarstörfum fyrir skipafélag sem hefur í för með sér óviðundandi áhættu fyrir óhlutdrægni eða ef hætta er á hagsmunaárekstri og vakta áhættur sem geta vegið að óhlutdrægni hans.4. mgr. segir að óviðunandi áhætta fyrir óhlutdrægni eða hagsmunaárekstra sé til staðar ef vottunaraðili eða hluti af sama lögaðila veiti (a) ráðgjöf vegna vöktunaráætlunar eða skýrslna sem votta þarf eða (b) tæknilega aðstoð til þróunar eða viðhalds vöktunar og tilkynningar losunar eða annarra viðeigandi upplýsinga skv. reglugerð 2015/757.5. mgr. segir að hagsmunaárekstur sé til staðar á milli vottunaraðila og skipafélags ef (a) sami eigandi, stjórn, sameiginlegt starfsfólk, auðlindir, fjárhagur, samningar eða markaðsmál eru eða (b) ef skipafélagið hefur fengið ráðgjöf eða tækniaðstoð skv. 4. mgr. frá félagi sem á í sambandi við vottunaraðilann og getur haft áhrif á óhlutdrægni vottunaraðila sbr. þá punkta sem talið er upp í b-lið 5. mgr.6. mgr. segir að vottunaraðilar skuli ekki útvista óháða matinu eða útgáfu vottunarskýrslna.7. mgr. segir að ef vottunaraðilar útvisti öðrum vottunarverkum skuli þeir mæta viðeigandi kröfum 2. mgr. 42. gr. Þetta á þó ekki við um verktaka þegar vottunaraðili tekur fulla ábyrgð á vottunarverkum verktakans.8. mgr. segir að vottunaraðilar skuli hafa verkferla sem tryggja áframhaldandi óhlutdrægni og óhæði þeirra og þeirra sem eru hluti af sama lögaðila auk allra sem taka þátt í vottuninni.9. mgr. segir að ef vottunaraðili votti sama skipafélag og árið áður skuli hann meta áhættu sem kynni að draga úr óhlutdrægni og taka til viðeigandi ráðstafana.10. mgr. segir að ef yfirmatsmaður votti skýrslur innan félags sama skipafélags sex ár í röð skuli hann taka þriggja ára pásu frá vottun skýrslna innan félags fyrir það félag. Þetta gildir um skýrslur sem gefnar eru út eftir að þessi reglugerð tók gildi. Kafli 4 – Faggilding vottunaraðilaKaflinn fjallar um hvernig faggilding vottunaraðila skuli fara fram, hvaða kröfur eru gerðar til vottunaraðila við faggildingu þeirra og til hvaða ráðstafana hægt er að taka uppfylli vottunaraðili ekki lengur kröfur eða brýtur í bága við þessa reglugerð eða önnur viðeigandi lög og reglur. Allar greinar kaflans eru sambærilegar greinum úr fyrri reglugerð. 46. gr. Faggilding vottunaraðilaGreinin er sambærileg 33. gr. fyrri reglugerðar og tekur fram (1. mgr.) að ef engar sérstakar ráðstafanir séu til staðar fyrir faggildingu vottunaraðila í þessari reglugerð eða reglugerð 2015/757 skuli viðeigandi ráðstafanir í reglugerð 765/2008 gilda og (2. mgr.) að samræmdir staðlar í reglugerð 765/2008 gildi um lágmarkskröfur fyrir faggildingu og faggildingarstofur. 47. gr. Umfang faggildingar.Greinin er sambærileg 31. gr. fyrri reglugerðar.Umfang faggildingar vottunaraðila nær utan um mat á vöktunaráætlun og vottun losunarskýrslna, skýrslna um hluta losunar og skýrslna innan félags. 48. gr. Markmið faggildingarferlis.Greinin er sambærileg 32. gr. fyrri reglugerðar.Greinin segir að við faggildingarferlið og árlegt eftirlit með faggiltum vottunaraðilum skuli faggildingarstofa aðildarríkis meta hvort vottunaraðilinn og starfsfólk sem sinnir vottunarstörfum (a-b) sé hæft til og sé í raun að sinna mati á vöktunaráætlun og vottun viðeigandi skýrslna í samræmi við þessa reglugerð, (c) standist kröfur fyrir vottunaraðila sem vísað er til í 37. – 45. gr. 49. gr. Beiðnir um faggildingu.Greinin er sambærileg 35. gr. fyrri reglugerðar og fjallar um þær upplýsingar sem skulu vera í beiðnum um faggildingu.1. mgr. segir að beiðnirnar skuli innihalda upplýsingar sem krafist er í samhæfðum staðli sem vísað er til í í 2. mgr. 46. gr.2. mgr. telur upp aðrar upplýsingar sem vottunaraðili skal veita faggildingarstofu aðildarríkis aðgang að áður en faggilding hefst. Þær eru (a) verklag og aðferðir vísað til í 1. mgr. 42. gr. og gæðastjórnunarkerfi vísað til í 3. mgr. 42. gr., (b) hæfnikröfur vísað til í 2. mgr. 37. gr., niðurstöður hæfnisverklags og annað sem tengist hæfni starfsfólks sem tekur þátt í vottunarferlinu sem vísað er til í 39. og 40. gr., (c) verklagið til að tryggja áframhaldandi óhlutdrægni og óhæði (8. mgr. 45. gr.), (d) tæknisérfræðinga og lykilstarfsfólk sem tekur þátt í mati á vöktunaráætlun og vottun viðeigandi skýrslna, (d) verklag og aðferðir til að tryggja viðeigandi vottun, m.a. sem tengjast innri vottunargögnum (43. gr.), (f) viðeigandi skjöl (44. gr.) og (g) allar aðrar upplýsingar sem faggildingarstofa aðildarríkis óskar eftir. 50. gr. Mat.Greinin er sambærileg 36. gr. fyrri reglugerðar.1. mgr. segir að fyrir mat faggildingarstofu aðildarríkis á vottunaraðilum skv. 48. gr. skuli matsteymi (skipað í samræmi við 57. gr.) a.m.k. (a) meta öll viðeigandi gögn frá umsækjanda, (b) fara í vettvangsheimsókn til að meta dæmi um innri vottunargögn, meta gæðastjórnunarkerfi og verkferla á bak við vottunarferli vísað til í 42. gr. og (c) vitna um frammistöðu og hæfni hluta af starfsfólki umsækjanda sem tekur þátt í mati á vöktunarskýrslum og vottun viðeigandi skýrslna.2. og 3. mgr. segja að matsteymið skuli gera verkin sem tekin eru fram í 1. mgr. og tilkynna niðurstöður sínar og frávik til umsækjanda og óska eftir svari, samkvæmt samræmdum staðli vísað til í 2. mgr. 46. gr.4. mgr. segir að umsækjandi skuli leiðrétta frávik og láta matsteymi vita af aðgerðum sínum.5. mgr. segir að faggildingarstofa aðildarríkis skuli fara yfir svör umsækjanda skv. 4. mgr.6. og 7. mgr. segja að ef faggildingarstofu finnist svör umsækjanda eða aðgerðir ófullnægjandi skuli það óska eftir frekari upplýsingum eða aðgerðum og að faggildingarstofan megi óska eftir sönnunum þess efnis að leiðréttingar hafi átt sér stað. 51. gr. Ákvörðun um faggildingu og faggildingarskírteini.Greinin er sambærileg 37. gr. fyrri reglugerðar.1. mgr. segir að við ákvörðun um að veita, framlengja eða endurnýja faggildingu umsækjanda skuli faggildingarstofa aðildarríkis hafa í huga kröfur sem fram koma í samræmdum staðli vísað til í 2. mgr. 46. gr.2. mgr. segir að ef faggildingarstofa aðildarríkis ákveði að veita eða endurnýja faggildingu umsækjanda skuli það gefa út faggildingarskírteini sem skal gilda um öll vottunarstörf sem tengjast reglugerð 2015/757.3. og 4. mgr. segja að faggildingarskírteinið skuli a.m.k. innihalda þær upplýsingar sem fram koma í samræmdum staðli sem vísað er til í 2. mgr. 46. gr. og gilda í fimm ár að hámarki. 52. gr. Árlegt eftirlit (e. surveillance).Greinin er sambærileg 38. gr. fyrri reglugerðar.1. og 2. mgr. segja að faggildingarstofa aðildarríkis skuli árlega fara í eftirlit hjá þeim vottunaraðilum sem það hefur faggilt sem samanstendur a.m.k. af vettvangsheimsókn (b-liður 1. mgr. 50. gr.) og vitnisburði um frammistöðu og hæfnismat starfsfólks vottunaraðila (c-liður 1. mgr. 50. gr.). Fyrsta eftirlitið skal vera innan við 12 mánuðum frá útgáfu faggildingarskírteinis.3. mgr. segir að eftirlitsáætlun skuli gera faggildingarstofu aðildarríkis kleift að meta hluta af vottunarstörfum innan umfangs faggildingarskírteinis og starfsfólkið sem sinnir þeim.4. mgr. segir að faggildingarstofa aðildarríkis skuli byggja ákvörðun sína um áframhaldandi faggildingu á niðurstöðum eftirlitsins.5. mgr. segir að þegar vottunaraðili sinnir vottun fyrir skipafélag sem fellur undir stjórnvald annars aðildarríkis en þar sem hann fékk faggildingu megi faggildingarstofa aðildarríkisins sem faggilti vottunaraðilann óska eftir því að faggildingarstofa hins aðildarríkisins sinni eftirlitinu fyrir sína hönd. 53. gr. Endurmat.Greinin er sambærileg 39. gr. fyrri reglugerðar.Greinin segir að fyrir lok gildistíma faggildingarskírteinis skuli faggildingarstofa aðildarríkis endurmeta vottunaraðila til að meta hvort leyfið verði framlengt með því að nota áætlun um endurmat sem metur viðeigandi hluta af vottunarstörfum í samræmi við samræmda staðla vísað til í 2. mgr. 46. gr. 54. gr. Sérstakt aukamat.Greinin er sambærileg 40. gr. fyrri reglugerðar.Greinin segir að faggildingarstofa aðildarríkis megi hvenær sem er framkvæma sérstakt aukamat á vottunaraðila til að tryggja að hann uppfylli áfram kröfur þessarar reglugerðar. Til þess að faggildingarstofa geti metið þörf á sérstöku aukamati skal vottunaraðili upplýsa stofuna um allar verulegar breytingar sem eru viðeigandi fyrir faggildinguna. 55. gr. Stjórnvaldsráðstafanir.Greinin er sambærileg 41. gr. fyrri reglugerðar.1. – 3. mgr. segja að faggildingarstofa aðildarríkis megi svipta eða afturkalla faggildingu vottunaraðila lúti hann ekki kröfum þessarar reglugerðum, skuli gera það óski vottunaraðili eftir því og að stofan skuli hafa verkferla um sviptingu eða afturköllun faggildingar.4. mgr. segir að faggildingarstofa skuli svipta vottunaraðila faggildingu hafi hann (a) alvarlega brotið í bága við þessa reglugerð, (b) endurtekið ekki uppfyllt kröfur þessarar reglugerðar eða (c) brotið í bága við aðra skilmála faggildingarstofunnar.5. mgr. segir að faggildingarstofa skuli afturkalla faggildingu vottunaraðila hafi hann (a) ekki ráðið bót á ástæðum sviptingar, (b) einstaklingur í stjórn eða starfsfólk í vottunarstörfum skv. þessari reglugerð hafi gerst sekt um misferli (e. fraud) eða (c) vottunaraðili hefur viljandi veitt rangar upplýsingar eða hulið upplýsingar.6. mgr. segir að hægt sé að áfrýja ákvörðun faggildingarstofu aðildarríkis um sviptingu eða afturköllun faggildingar.7. mgr. segir að ákvarðanir faggildingarstofu aðildarríkis um sviptingu eða afturköllun faggildingar taki gildi við tilkynningu til vottunaraðila og skuli höfð í huga áhrif á störf sem framkvæmd voru fyrir þá ákvörðun.8. mgr. segir að faggildingarstofa skuli taka til baka ákvörðun um sviptingu leyfir hafi hún fengið nægar upplýsingar og ákvarði að vottunaraðili mæti kröfum þessarar reglugerðar. Engin grein í reglugerðinni er sambærileg 34. gr. fyrri reglugerðar um skilyrði til að óska eftir faggildingu frá faggildingarstofum aðildarríkja. Kafli 5 – Skilyrði fyrir faggildingarstofu aðildarríkis56. – 59. gr. eru sambærilegar greinum úr fyrri reglugerð en 60. – 63. gr. eru nýjar. Kaflinn fjallar um skilyrði fyrir faggildingarstofur aðildarríkja, hæfniskröfur þeirra sem gegna faggildingarstörfum og fleira tengt störfum faggildingarstofa aðildarríkja. 56. gr. Skilyrði fyrir faggildingarstofu aðildarríkis.Greinin fjallar um þau skilyrði sem gilda fyrir faggildingarstofu aðildarríkis og segir að ef engin sérstök ákvæði eru til staðar í þessari reglugerð eða reglugerð 2015/757 gildi viðeigandi ákvæði í reglugerð 765/2008. Faggildingarstofur skulu skipaðar í samræmi við 1. mgr. 4. gr. reglugerðar 765/2008 og starfa samkvæmt samhæfðum staðli sem vísað er til í 2. mgr. 46. gr. 57. gr. Matsteymi (e. assessment team).Greinin er sambærileg 43. gr. fyrri reglugerðar. Breytingar felast í vísun í reglugerðir (ETS-reglugerð bætt við) og hefur b-lið 3. mgr. verið breytt.Greinin segir að (1. mgr.) faggildingarstofa skuli skipa matsteymi fyrir hvert mat sem framkvæmd er samkvæmt samhæfðum staðli (2. mgr. 46. gr.) sem (2. mgr.) samanstendur af yfirmatsmanni sem ber ábyrgð á mati skv. þessari reglugerð og fleiri matsmönnum og tæknisérfræðingum ef þarf með viðeigandi kunnáttu og reynslu fyrir matið. (3. mgr.) A.m.k. ein manneskja í teyminu skal hafa (a) næga þekkingu á þessari reglugerð, reglugerð 2015/757, ETS-tilskipuninni og öðrum viðeigandi reglugerðum sem vísað er í í a-lið 2. mgr. 39. gr. og (b) hafa þá hæfni og skilning sem nauðsynlegur er til að meta vottunarstarfsemi sem vísað er til í 4. – 36. gr., þekkingu á ólíkum einkennum mismunandi skipa og skýrslugjöf um losun gróðurhúsalofttegunda, eldsneytisnotkun og annarra viðeigandi upplýsinga skv. reglugerð 2015/757. 58. gr. Hæfniviðmið fyrir matsmenn.Greinin er sambærileg 44. gr. fyrri reglugerðar og eins að mestu leyti.1. mgr. fjallar um hæfniviðmið matsmanna og segir að þeir þurfi að geta gert allt sem kemur fram í 50. – 55. gr. og þar að auki (a) uppfylla kröfur samhæfðs staðals vísað í í 2. mgr. 46. gr., (b) hafa næga þekkingu á gagna- og upplýsingaendurskoðun (sjá b-lið 2. mgr. 39. gr.) og (c) hafa þekkingu á viðeigandi reglugerðum og viðmiðunarreglum (sjá a-lið 2. mgr. 39. gr.).2. mgr. setur frekari hæfniviðmið fyrir yfirmatsmenn, sem skulu að auki við það sem kemur fram í 1. mgr. sýna hæfni til að leiða matsteymi og bera ábyrgð á mati skv. þessari reglugerð.3. mgr. setur frekari hæfniviðmið fyrir innri endurskoðanda og þær manneskjur sem veita nýtt, áframhaldandi eða endurnýjað leyfi til faggildingar, sem skulu að auki við það sem kemur fram í 1. mgr. hafa næga þekkingu til að meta faggildingu. 59. gr. Tæknisérfræðingar.Greinin er sambærileg 45. gr. fyrri reglugerðar en 2. mgr. var bætt við.Greinin segir að (1. mgr.) faggildingarstofa aðildarríkis megi hafa tæknisérfræðing í matsteymi sem veitir sérþekkingu um ákveðið málefni sem þarf til að styðja við yfirmatsmann eða matsmann sem (2. mgr.) skal hafa hæfni til að styðja við yfirmatsmann eða matsmann við málefnið auk (a) nægrar þekkingar á viðeigandi lögum og reglugerðum auk viðmiðunarreglna skv. a-lið 2. mgr. 29. gr. og (b) þekkingar á vottunarstarfsemi. Tæknisérfræðingar skulu (3. mgr.) sinna sértækum verkefnum undir yfirsjón og á fulla ábyrgð yfirmatsmanns matsteymisins. 60. gr. Kvartanir.Greinin segir að ef faggildingarstofa aðildarríkis fær kvörtun vegna vottunaraðila frá stjórnvaldi, skipafélagi, fánaríki skips eða öðrum aðilum skuli faggildingarstofan innan þriggja mánaða frá kvörtuninni (a) ákvarða um lögmæti kvörtunar, (b) tryggja að vottunaraðilinn sem um ræðir fái tækifæri til að skila inn athugasemdum, (c) taka til viðeigandi ráðstafana vegna kvörtunarinnar, (d) skjalfesta kvörtunina og viðbrögð við henni og (e) svara kvörtuninni. 61. gr. Jafningjamat.1. mgr. segir að þegar faggildingarstofa aðildarríkis er háð reglulegu jafningjamati skv. 10. gr. reglugerðar 765/2008, skuli Evrópustofnun um samvinnu á sviði faggildinga, viðurkennd skv. 14. gr. reglugerðar 765/2008, innleiða viðeigandi viðmið fyrir jafningjamat og áhrifaríkt og óháð jafningjamat. Viðmiðin skulu meta hvort (a) faggildingarstofan hafi sinnt faggildingarstörfum í samræmi við 46. – 55. gr. þessarar reglugerðar og (b) faggildingarstofan uppfylli kröfur í samræmi við 56. – 63. gr. þessarar reglugerðar. Viðmiðin skulu innihalda hæfnikröfur fyrir aðila sem sinna jafningjamati sem eru sértæk fyrir reglugerð 2015/757 og ETS-reglugerðina.2. mgr. segir að Evrópustofnun um samvinnu á sviði faggildinga skuli gefa út niðurstöðu jafningjamats á faggildingarstofu aðildarríkis og miðla til framkvæmdarstjórnar, landsstjórnar viðeigandi aðildarríkis og stjórnvalds viðeigandi fyrir skipafélag eða tengiliðs sem vísað er til í 64. gr. þessarar reglugerðar.3. mgr. segir að ef faggildingarstofa aðildarríkis hefur staðist jafningjamat Evrópustofnunar um samvinnu á sviði faggildinga áður en þessi reglugerð kom út þurfi hún ekki að standast annað jafningjamat geti hún sýnt fram á samræmi við þessa reglugerð, þrátt fyrir 10. gr. reglugerðar 765/2008 um jafningjamat faggildingarstofa aðildarríkja. Til þess skal faggildingarstofa aðildarríkis senda beiðni og nauðsynleg gögn til Evrópustofnunar um samvinnu á sviði faggildinga sem skal ákvarða hvort skilyrði til að veita undanþágu séu uppfyllt. Undanþágan skal ekki gilda lengur en þrjú ár eftir ákvörðun faggildingarstofu aðildarríkis. 62. gr. Gagnkvæm viðurkenning vottunaraðila.Aðildarríki skulu samþykkja faggildingu vottunaraðila sem faggiltir hafa verið af faggildingarstofu aðildarríkis sem ekki hefur lokið jafningjamati að því gefnu að Evrópustofnun um samvinnu á sviði faggildinga hafi hafið jafningjamatið og hafi ekki komist að misræmi faggildingarstofunnar við þessa reglugerð, þrátt fyrir þau ákvæði sem sett eru fram í 2. mgr. 11. gr. reglugerðar 765/2008. 63. gr. Vöktun á veittri þjónustu.Ef aðildarríki, við eftirlit skv. 4. mgr. 31. gr. Evróputilskipunar 2006/123/EC, kemst að því að vottunaraðili starfi ekki í samræmi við þessa reglugerð skal viðeigandi stjórnvald eða faggildingarstofa þess aðildarríkis tilkynna faggildingarstofu þess aðildarríkis sem faggilti vottunaraðilann. Sú faggildingarstofa skal líta á þær upplysingar sem kvörtun skv. 60. gr. þessarar reglugerðar, gera viðeigandi ráðstafanir og svara stjórnvaldi eða faggildingarstofu þess aðildarríkis sem sendi tilkynninguna skv. annarri undirmálsgrein 2. mgr. 67. gr. Kafli VI – UpplýsingaflæðiAllar greinar kaflans eru nýjar utan 70. gr., sem er sambærileg 46. gr. fyrri reglugerðar. Kaflinn fjallar um upplýsingaflæði á milli faggildingarstofa aðildarríkja og stjórnvalds, innan og á milli aðildarríkja, um vottunaraðila og faggildingu þeirra. 64. gr. Upplýsingaflæði og tengiliðir.1. mgr. segir að aðildarríki skuli tryggja virkt flæði viðeigandi upplýsinga og virkt samstarf milli faggildingarstofu aðildarríkis og stjórnvalds.2. mgr. segir að þegar fleira en eitt stjórnvald er útnefnt skv. 18. gr. ETS-tilskipunarinnar í aðildarríki skuli aðildarríkið leyfa einu þeirra að vera tengiliður fyrir upplýsingaflæði, til að samræma samvinnuna vísað til í 1. mgr. og fyrir störfin sem vísað er til í 64. – 71. gr. 65. gr. Vinnuáætlun fyrir faggildingu (e. accreditation work programme) og rekstrarskýrsla.1. mgr. segir að fyrir 31. desember ár hvert skuli faggildingarstofa aðildarríkis veita stjórnvaldi aðgang að vinnuáætlun fyrir faggildingu sem innihaldi lista yfir þá vottunaraðila sem hafi fengið faggildingu. Vinnuáætlunin skal innihalda upplýsingar um hvern vottunaraðila þ.e. (a) upplýsingar um þau störf sem faggildingarstofan hefur ætlað vottunaraðilanum, þ. á m. eftirlit og endurmat, (b) dagsetningar viðbúinna úttekta (e. witnessing audits) sem faggildingarstofan mun fara í til að meta vottunaraðilann og (c) upplýsingar um hvort faggildingarstofan hefur beðið faggildingarstofu annars aðildarríkis um að sinna eftirliti skv. 5. mgr. 52. gr.Ef breytingar verða á upplýsingunum sem vísað er til í fyrstu undirmálsgrein skal faggildingarstofa aðildarríkis skila uppfærðri vinnuáætlun fyrir faggildingu til stjórnvalds fyrir 31. janúar.2. mgr. segir að stjórnvald skuli veita faggildingarstofu aðildarríkis aðgang að viðeigandi upplýsingum, þ. á m. viðeigandi landslögum og viðmiðum að lokinni móttöku vinnuáætlun fyrir faggildingu.3. mgr. segir að fyrir 1. júní hvers árs skuli faggildingarstofa aðildarríkis veita stjórnvaldi aðgang að rekstrarskýrslu sem skal innihalda eftirfarandi upplýsingar fyrir hvern vottunaraðila sem hefur fengið faggildingu hjá stofunni: (a) faggildingarupplýsingar nýfaggiltra vottunaraðila, (b) samanteknar niðurstöður eftirlits og endurmats faggildingarstofunnar, (c) samanteknar niðurstöður sérstaks aukamats sem hefur átt sér stað, þ. á m. ástæður fyrir slíku mati, (d) allar kvartanir sem hafa verið sendar inn vegna vottunaraðilans frá síðustu rekstrarskýrslu og (e) upplýsingar um aðgerðir faggildingarstofu aðildarríkis vegna upplýsinga sem stjórnvald hefur deilt. 66. gr. Upplýsingaflæði um stjórnsýsluráðstafanir (e. administrative measures).Ef faggildingarstofa aðildarríkis hefur lagt stjórnsýsluráðstafanir á vottunaraðila, ákvörðun um brottrekstur faggildingarleyfis hefur verið dregin til baka eða áfrýjun hefur snúið við ákvörðun faggildingarstofu um stjórnsýsluráðstafanir skv. 55. gr. skal faggildingarstofan tilkynna stjórnvaldi m.t.t. skipafélaga og faggildingarstofum annarra aðildarríkja. 67. gr. Upplýsingaflæði stjórnvalds.1. mgr. fjallar um upplýsingar sem stjórnvald skal árlega miðla til faggildingarstofu aðildarríkis sem faggilti vottunaraðila sem vottar skipafélag sem stjórnvaldið ber ábyrgð á. Stjórnvaldið skal miðla upplýsingum um a.m.k.(a) viðeigandi niðurstöður úr skoðunum á losunarskýrslum, skýrslum um hluta losunar, skýrslum innan félags og vottunarskýrslur, sér í lagi ef til staðar voru tilkynnt gögn sem uppfylltu ekki ákvæði undir reglugerðum 2015/757, 2016/1927, 2016/1928, ETS-tilskipuninni eða þessari reglugerð,(b) niðurstöður úr eftirliti hjá skipafélaginu ef niðurstöður eru viðeigandi fyrir faggildingarstofuna um faggildingu vottunaraðila og eftirlit eða þar sem niðurstöðurnar innihalda gögn sem uppfylla ekki reglugerðirnar sem vísað er til í a-lið,(c) niðurstöður mats á innri vottunargögnum vottunaraðila þar sem stjórnvald hefur metið þau í samræmi við 3. mgr. 43. gr.,(d) kvartanir sem stjórnvald hefur fengið um þann vottunaraðila.2. mgr. segir að faggildingarstofa aðildarríkis skuli túlka sem kvörtun ef upplýsingarnar sem vísað er til í 1. mgr. sanna að stjórnvald hafi fundið vandamál í tilkynntum gögnum sem ekki uppfylla kröfur reglugerðanna sem vísað er til í a-lið 1. mgr. Faggildingarstofan skal í kjölfarið taka til viðeigandi ráðstafana og tilkynna stjórnvaldi um þær ráðstafanir og stjórnvaldsráðstafanir sem gerðar eru gagnvart vottunaraðila ef við á. 68. gr. Upplýsingaflæði um eftirlit (e. surveillance).Greinin fjallar um upplýsingaflæði um eftirlit á milli faggildingarstofa aðildarríkja.1. mgr. segir að ef faggildingarstofa aðildarríkis þar sem vottunaraðili starfar sér ástæðu til að sinna eftirliti skal það tilkynnt til faggildingarstofunnar sem faggilti vottunaraðilann.Í 2. mgr. kemur fram að faggildingarstofan sem faggilti vottunaraðilann skuli taka niðurstöðurnar sem vísað er til í 1. mgr. til álits þegar metið er hvort vottunaraðili mæti kröfum þessarar reglugerðar.3. mgr. segir að ef niðurstöður 1. mgr. sýni að vottunaraðili starfi ekki í samræmi við þessa reglugerð skuli faggildingarstofan sem faggilti vottunaraðilann taka til viðeigandi ráðstafana í samræmi við þessa reglugerð og tilkynna faggildingarstofunni sem sinnti eftirliti hverjar þær eru. 69. gr. Upplýsingaflæði við aðildarríki þar sem vottunaraðili er staðsettur.Þegar vottunaraðili fékk faggildingu faggildingarstofu annars aðildarríkis en hann er staðsettur í skulu bæði vinnuáætlun fyrir faggildingu og rekstrarskýrsla vera aðgengileg stjórnvaldi þess aðildarríkis sem vottunaraðili er í. 70. gr. Gagnagrunnur um faggilta vottunaraðila.Greinin er sambærileg 46. gr. fyrri reglugerðar og fjallar um hvaða upplýsingar skulu vera í gagnagrunni um faggilta vottunaraðila og hvernig skal haldið utan um þær. Faggildingarstofur aðildarríkja skulu halda utan um slíkan gagnagrunn sem er aðgengilegur öllum og er með viðeigandi upplýsingar um vottunaraðila. Ef breytingar verða á vottunaraðilum skal tilkynna framkvæmdastjórn um það. Evrópustofnun um samvinnu á sviði faggildinga skal samræma aðgang að landsgagnagrunnum til að auðvelda samskipti á milli viðeigandi aðila og má sameina gagnagrunna. Kafli VII – Samþykkt stjórnvalds á vöktunaráætlunumKaflinn er nýr og kemur í kjölfar þess að vöktunaráætlanir skipafélaga eru nú háðar samþykki stjórnvalds eftir að losun frá þeim var felld undir ETS kerfið. Ferlið í kringum samþykkt stjórnvalds á vöktunaráætlunum skipafélaga er sambærilegt ferlinu um samþykkt lögbærs stjórnvalds á vöktunaráætlunum rekstraraðila og flugrekenda. Hluti 1 – Samþykkt vöktunaráætlana72. gr. Almennar reglur fyrir samþykkt vöktunaráætlana af hendi ábyrgra stjórnvalda.Greinin segir að ábyrgt stjórnvald skuli taka til viðeigandi ráðstafana við yfirferð vöktunaráætlana til samþykktar til að tryggja að þær séu gerðar samkvæmt kröfum sem settar eru fram í 8. mgr. 6. gr. og viðaukum I og II reglugerðar 2015/757 auk þess að taka tillit til niðurstaðna vottunaraðila. 73. gr. Upplýsingar sem skipafélög skulu veita ábyrgu stjórnvaldi.Greinin segir að skipafélög skuli veita ábyrgu stjórnvaldi aðgang að niðurstöðum vottunaraðila við mat á vöktunaráætlun og öðrum upplýsingum sem gera stjórnvaldi kleift að samþykkja hana. 74. gr. Samþykktarferli.1. mgr. segir að ábyrgt stjórnvald skuli tilkynna skipafélagi um samþykkt á vöktunaráætlun án tafar með notkun sjálfvirkra kerfa og kerfa til að skiptast á rafrænum gögnum (e. data exchange format).2. mgr. segir að ef ábyrgt stjórnvald samþykkir ekki vöktunaráætlun skuli skipafélag látið vita án tafar með útskýringum um af hverju ekki fékkst samþykki til að veita skipafélagi möguleika á endurskoðun og skal skipafélag endurskoða vöktunaráætlun í samræmi við athugasemdir stjórnvalds og skila aftur til vottunaraðila með athugasemdum til endurmats. Eftir að vöktunaráætlunin er metin vera í samræmi við 6. og 7. gr. reglugerðar 2015/757 af vottunaraðila skal skipafélag skila aftur til stjórnvalds til samþykktar. Hluti 2 – Samþykkt breytinga á vöktunaráætlunum75. gr. Almennar reglur fyrir samþykkt á breytingum á vöktunaráætlunum af hendi ábyrgra stjórnvalda.1. mgr. skyldar skipafélag til að skila inn breyttri vöktunaráætlun án tafar ef að vottunaraðili hefur sagt hana eða breytingar á henni vera í samræmi við kröfur eða ef breytingar eru gerðar á skipafélagi skv. a-lið 2. mgr. 7. gr. reglugerðar 2015/757 eftir að vottunaraðili hefur verið látinn vita af þeim breytingum skv. 3. mgr. 7. gr. sömu reglugerðar.2. mgr. segir að við samþykkt á breytingum á vöktunaráætlun skv. 5. mgr. 7. gr. reglugerðar 757/2015 skuli ábyrgt stjórnvald tryggja að breytingar á vöktunaráætlun séu í samræmi við sömu kröfur og settar eru fram í 72. gr. við yfirferð til samþykktar. 76. gr. Upplýsingar sem skipafélög skulu veita ábyrgu stjórnvaldi.1. mgr. segir að skipafélag skuli veita ábyrgu stjórnvaldi aðgang að niðurstöðum vottunaraðila við yfirferð á breyttri vöktunaráætlun og öðrum viðeigandi upplýsingum fyrir samþykktina.2. mgr. segir að ef breytingar á vöktunaráætlun falla undir a-lið 2. mgr. 7. gr. reglugerðar 2015/757, þ.e. að breytingar hafi verið gerðar á skipafélagi, skuli skipafélag skila til ábyrgs stjórnvalds sönnun á breytingum á félaginu auk vísbendinga um hvort vöktunaráætlunin hafi verið samþykkt af ábyrgu stjórnvaldi fyrir breytingu á skipafélaginu, sé stjórnvald annað. 77. gr. Samþykktarferli.Greinin er nákvæmlega eins og 74. gr. að öllu leyti fyrir utan að rætt er um breytingar á vöktunaráætlun en ekki vöktunaráætlun. 78. gr. Innleiðing og skjalavarsla um breytingar.1. mgr. segir að skipafélag megi notast við breytta vöktunaráætlun við vöktun áður en samþykki ábyrgs stjórnvalds berst ef vöktun með upprunalegri vöktunaráætlun getur leitt af sér ófullnægjandi losunargögn. Ef vafi er skal nota báðar vöktunaráætlanir.2. mgr. segir að eftir að breytingar á vöktunaráætlun hafi verið samþykktar skuli skipafélag aðeins notast við gögn í samræmi við þá vöktunaráætlun þar eftir.3. mgr. segir að skipafélag skuli halda utan um öll skjöl sem tengjast breytingum á vöktunaráætlun, þ. á m. lýsingu og ástæðum fyrir breytingum, niðurstöðum vottunaraðila, hvenær breytingum var skilað til ábyrgs stjórnvalds og hvaða dag innleiðing breyttrar vöktunaráætlun hófst. 79. grein fellir úr gildi reglugerð (ESB) 2016/2072 frá 1. janúar 2024 og segir að vísanir í þá reglugerð skulu vera vísanir í þessa reglugerð skv. töflu í viðauka II þessarar reglugerðar. 80. grein segir að þessi reglugerð taki gildi 1. janúar 2024. Viðauki I – Sértæk þekking og reynsla af sjávartengdum atvinnugreinum sem vísað er til í 3. mgr. 39. gr.Viðaukinn telur upp þá þekkingu og reynslu sem vísað er til í 3. mgr. 39. gr. sem yfirmatsmenn og matsmenn í vottunarteymi þurfi að búa yfir til að sinna vottunarverkum í samræmi við þessa reglugerð. Viðauki II – SamsvörunartaflaÍ viðaukanum er tafla sem sýnir hvernig greinar í reglugerð 2016/2072, sem felld var úr gildi með 79. gr. þessarar reglugerðar, samsvara hvaða greinum í þessari reglugerð.