32024R0996
Commission Regulation (EU) 2024/996 of 3 April 2024 amending Regulation (EC) No 1223/2009 of the European Parliament and of the Council as regards the use of Vitamin A, Alpha-Arbutin and Arbutin and certain substances with potential endocrine disrupting properties in cosmetic products
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/996 frá 3. apríl 2024 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 að því er varðar notkun á A-vítamíni, alfaarbútíni og arbútíni og tilteknum efnum með hugsanlega innkirtlatruflandi eiginleika í snyrtivörur
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
|---|---|
| Tegund gerðar | Reglugerð |
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.16 Snyrtivörur |
| Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 209/2024 |
| Samþykktardagur ákvörðunar sameiginlegu nefndarinnar | |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Reglugerðin breytir reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur. Breytingar fela í sér að uppfæra skrá í III. viðauka yfir efni sem eru háð takmörkunum varðandi notkun sem innihaldsefni í snyrtivörum á þann hátt að færslum er bætt við skrána og uppfæra skrá í V. viðauka yfir leyfileg rotvarnarefni á þann hátt að tveim færslum var skipt út til að herða skilyrði um notkun fyrir börn og bæta við varnaðarorðum. Einnig er einu efni eytt úr skrá í VI. viðauka yfir leyfilegar útblámasíur (UV-síur) og sama efni er bætt við skrá í II. viðauka yfir efni sem eru ekki leyfileg innihaldsefni í snyrtivörum.
Nánari efnisumfjöllun
Reglugerðin breytir reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur.Breytingarnar fela í sér að :1. Efni sem þekkt eru sem A-vítamín, nánar tiltekið Retinól (CAS nr. 11103-7-4/68-26-8), Retinýl Asetat (CAS nr. 127-47-9) og Retinýl Palmíat (CAS nr. 79-81-2) er bætt við í III. viðauka yfir efni sem eru háð takmörkunum og hámarksstyrkur þeirra takmarkaður við 0,05 % jafngildi retínóls (Reotinol equivalent (RE)) í húðkremi, 0,03 % RE í öðrum vörum. Einnig er skylt að merkja snyrtivörur sem innihalda Retinól, Retinýl Asetat, Retinýl Palmíat með eftirfarandi varnaðarorðum „ Inniheldur A vítamín. Íhugaðu daglega neyslu þína fyrir notkun.“ (Contains Vitamin A. Consider your daily intake before use).2. Efnin Alfa-arbútín (4-Hýdroxýfenýl-alfa-D-glúkópýranósíð,CAS nr. 84380-01-8) og Arbútín (4-Hýdroxýfenýl-beta-D-glúkópýranósíð, CAS nr. 497-76-7), sem notuð eru í snyrtivörum meðal annars til húðhvítunar er bætt við í III. viðauka yfir efni sem er háð takmörkunum þar sem hámarksstyrkur Alfa-arbútíns er takmarkaður við 2% í andlitskremum og 0,5% í húðkremum og hámarksstyrkur Arbútíns takmarkaður við 7% í andlitskremum. Einnig er tekið fram að Hýdrókínón styrk skuli haldið í lágmarki í efnablöndum sem innihalda Alfa-arbútín og Arbútín, ekki hærri en óhjákvæmileg snefilefni. Einnig er efnunum Genistein (CAS nr. 446-72-0), Daidzein (CAS nr. 486-66-8) og Kojic acid (CAS nr. 501-30-4) bætt við í III. viðauka yfir efni sem eru háð takmörkunum þar sem hámarksstyrkur Genistein er takmarkaður við 0,07% í snyrtivörum og hámarksstyrkur Daidzein er takmarkaður við 0,02% í snyrtivörum. Hámarksstyrkur Kojic acid sem er m.a notað til húðhvítunar er takmarkaður við 1% í snyrtivörum fyrir andlit og hendur.3. Efnið 4´-metýlbenzýlíden-kamfóra (CAS 36861-47-9/38102-62-4) hefur áhrif á starfsemi skjaldkirtils og estrógens og er fjarlægt úr skrá í VI. viðauka yfir leyfilegar útblámasíur (UV-síur). Einnig er 4´-metýlbenzýlíden-kamfóru bætt við skrá í II. viðauka yfir efni sem eru ekki leyfileg sem innihaldsefni í snyrtivörum.4. Skipt er út færslu 23 (Tríklókarban (1-(4-Klórfenýl)-3-(3,4-díklórófenýl)úrea, CAS nr. 101-20-2)) og færslu 25, Tríklósan (5-klór-2-(2,4-díklórófenoxý)fenól, CAS nr. 3380-34-5) í skrá yfir leyfileg rotvarnarefni í V. viðauka og bætast við skilyrði um notkun og varnaðarorð sem skylt er að bæta á merkingar vara sem innihalda efnin Tríklókarban og Tríklósan. Hámarksstyrkur Tríklókarban er takmarkaður við 0,2% í snyrtivörum, og notkun efnisins verður ekki leyfileg í munnskoli. Einnig verður notkun ekki leyfileg í tannkremi sem er ætluð börnum yngri en 6 ára. Skylt verður því að merkja tannkrem sem innihalda tríklókarban með eftirfarandi: „ Má ekki nota fyrir börn yngri en 6 ára“. Tríklósan verður ekki leyft í munnskoli né tannkremi sem ætlað er börnum yngri en 3 ára. Skylt verður því að merkja tannkrem sem innihalda tríklósan: „Má ekki nota fyrir börn yngri en 3 ára“.Reglugerðin tekur gildi á 20. degi eftir birtingu hennar í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins og á fyrsta degi mánaðar, 12 mánuðum eftir að reglugerðin tekur gildi, lýkur aðlögunartíma og það tekur gildi að 4´-metýlbenzýlíden-kamfóra er ekki lengur á skrá yfir leyfilegar útblámasíur í snyrtivörum.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Nei |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta |
Breyta þarf reglugerð nr. 577/2031 um snyrtivörur sem innleiðir reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur hér á landi. Reglugerðin er innleidd með tilvísunaraðferð. Lagastoð er að finna í 7. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013 |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur | Þessi reglugerð bætir við nýjum takmörkunum varðandi markaðssetningu. Í ljósi þess víkkar eftirlitssviðið með móðurgerðinni sem kallar á aukið fjármagn til eftirlits og efnagreininga. |
|---|---|
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Aukakostnaður |
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
|---|---|
| Aðrar stofnanir sem hafa aðkomu | Lyfjastofnun, Neytendastofa, Matvælastofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32024R0996 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2024/996, 4.4.2024 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| Dagsetning tillögu ESB | |
|---|---|
| C/D numer | D093281/01 |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
|---|---|
| Samþykktardagur | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 92, 19.12.2024, p. 52 |
| Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2024/3054, 19.12.2024 |
Staða innleiðingar samkvæmt ESA
| Staða innleiðingar á Íslandi samkvæmt ESA | Græn: Innleitt |
|---|---|
| Viðeigandi lög/reglugerði |
Breytir (Modifies)
| 32009R1223 | amends, based on | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
Lagagrundvöllur (Legal basis)
Acts, treaties and agreements this act is based on, according to EUR-Lex.
| 32009R1223 | Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 frá 30. nóvember 2009 um snyrtivörur Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
Flokkun (Classifications)
| EUROVOC | consumer information, chemical product, cosmetic product, health risk, labelling, product safety, endocrine disruptor, vitamin |
|---|---|
| Subject matter | Technical barriers, Approximation of laws, Cosmetics, toys |
