Útdráttur
Með reglugerðinni er miðað að því að skapa öruggan, skilvirkan og félagslega ábyrgan vegaflutningageira innan Evrópusambandsins með bættum vinnuskilyrðum fyrir ökumenn og sanngjörnum samkeppnisskilyrðum fyrir fyrirtæki. Það er gert með ýmsum aðgerðum til að tryggja nauðsynlega hvíld, nota stafrænar lausnir, samræmingu reglna auk annars. Lítil áhrif á Samgöngustofu og ekki kostnaður. Lögreglan fer með eftirlit með reglunum.
Nánari efnisumfjöllun
Stefnt er að því að bæta vinnuskilyrði ökumanna og draga úr þreytu: Það á að gera með því að aðlaga reglur um lágmarkshlé og hvíldartímabil þannig að þau taki mið af sérstökum aðstæðum í einstökum farþegaflutningum.Tryggja sanngjörn samkeppnisskilyrði: Því á að ná með því að samræma reglur fyrir innlenda og alþjóðlega farþegaflutninga. Þannig á að tryggja að refsingar fyrir brot séu samræmdar í öllum aðildarríkjunum og stuðla þannig að sanngjörnum viðskiptaskilmálum fyrir flutningafyrirtæki.Auka öryggi á vegum: Það á að gera með því að tryggja að ökumenn taki nauðsynleg hlé og hvíldir.Einfalt og skilvirkt eftirlit: Því á að ná með því að nota stafrænar lausnir fyrir ferðaskráningar og eftirlit.Stuðla að jafnvægi milli sveigjanleika og öryggis: Því á að ná með því að veita meiri sveigjanleika í skipulagningu hléa og hvílda en án þess að skerða öryggi ökumanna eða öryggi á vegum.Með reglugerðinni er miðað að því að skapa öruggan, skilvirkan og félagslega ábyrgan vegaflutningageira innan Evrópusambandsins með bættum vinnuskilyrðum fyrir ökumenn og sanngjörnum samkeppnisskilyrðum fyrir fyrirtæki.Efnisútdráttur: Helstu breytingar sem reglugerð (ESB) 2024/1258 hefur í för með sér:Sveigjanleiki í hléum: Ökumenn sem sinna einstaka farþegaflutningum mega skipta 45 mínútna hléi í tvö hlé, hvort um sig að minnsta kosti 15 mínútur.Sveigjanleiki í daglegri hvíld: Ökumenn mega fresta daglegri hvíld um allt að eina klukkustund, að því gefnu að aksturstími þess dags fari ekki yfir sjö klukkustundir. Þennan sveigjanleika má aðeins nota einu sinni í sex daga ferð eða tvisvar á átta daga ferð.Sveigjanleiki í vikulegri hvíld: Vikulegri hvíld má fresta í allt að 12 samfelld 24 tíma tímabil eftir að regluleg vikulega hvíld hefur verið tekin. Þetta á við bæði innlenda og alþjóðlega farþegaflutninga.Nýtt ferðaskráningarkerfi: Ökumenn skulu hafa með sér ferðaskrá með lykilupplýsingum um ferðina. Frá 31. desember 2024 skulu þeir hafa bæði pappírs- og rafrænar útgáfur af ferðaskrám fyrir síðustu 56 daga.Stafræn verkfæri fyrir eftirlit: Í reglugerðinni er lögð áhersla á þróun stafrænna lausna til að bæta framkvæmd og eftirlit með reglunum, þar á meðal möguleikann á að þróa nýjar einingar fyrir innri markaðsupplýsingakerfið (IMI).Viðurlög fyrir brot í öðrum löndum: Aðildarríki geta lagt á viðurlög fyrir brot sem framin eru á yfirráðasvæði annars aðildarríkis eða þriðja ríkis, ef það ef ekki hefur þegar verið refsað fyrir þau.Samræmdar skilgreiningar: Skilgreiningar á reglulegum og einstökum farþegaflutningum eru uppfærðar og samræmdar við gildandi reglugerðir.Framtíðarmat og nýjar tillögur: Framkvæmdastjórnin skal meta áhrif reglugerðarinnar á vegöryggi og félagsleg atriði, einkum vinnuskilyrði ökumanna. Framkvæmdastjórnin skal leggja fram skýrslu til Evrópuþingsins og ráðsins fyrir 31. desember 2028, með tillögum að breytingum ef nauðsyn krefur.Þessar breytingar miða að því að bæta vinnuskilyrði ökumanna, tryggja sanngjarna samkeppni og auka vegöryggi, ásamt því að einfalda og bæta eftirlit með reglunum.Umsögn: helstu breytingar, mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Breytingar á aksturs og hvíldartíma í óreglubundnum farþegaflutningum. Hefur ekki bein áhrif á Samgöngustofu en þarf að kynna fyrir atvinnubílstjórum. Óskað var umsagnar lögreglunnar: Óskað var umsagnar lögreglunnar. Lögreglan lagði áherslu á það í umsögn sinni að nauðsynlegt sé að innleiðing stafrænna lausna og vegaeftirlit þurfa að vera fjármögnuð að fullu. Í dag sé eftirlit á vegum ekki að fullu fjármagnað.Þá benti embættið á að mikilvægt sé að vel sé skilgreint hver sé merking einstakra farþegaflutninga og óreglubundinna farþegaflutninga þar sem gert er ráð fyrir að ökumenn sem annast einstaka farþegaflutninga mega skipta 45 mínútna hléi í hvort um sig að minnsta kosti 15 mínútur. Jafnframt þarf að vera ljóst hvað felst í sveigjanleika á vikulegri hvíld.Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Lagaheimild er að finna í umferðarlögum nr. 77/2019. Tillagan yrði innleidd í reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 605/2010 um aksturs- og hvíldartíma ökumanna, notkun ökurita og eftirlit.