32025R2457
Regulation (EU) 2025/2457 of the European Parliament and of the Council of 26 November 2025 amending Regulations (EC) No 178/2002, (EC) No 401/2009, (EU) 2017/745 and (EU) 2019/1021 as regards the reattribution of scientific and technical tasks and improving cooperation among Union agencies in the area of chemicals
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.

Gerð ekki til á íslensku
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn |
|---|---|
| Tegund gerðar | Reglugerð |
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Reglugerðin miðar að því að breyta reglugerðum (EB) nr. 178/2002, reglugerð (EB) nr. 401/2009, reglugerð (ESB) 2017/745 og reglugerð (ESB) nr. 2019/1021 í því skyni að efla samvinnu stofnana ESB á sviði efna og samræma öryggismat efna þannig að þau séu samanburðar- og nothæf á milli staða.
Nánari efnisumfjöllun
Reglugerðin snýr að því að taka á ósamræmi og óhagkvæmni í efnalöggjöf ESB með því að bæta samræmingu og samvinnu á milli hinna ýmsu stofnana sambandsins á sviði efna, m.a. Efnastofnunar Evrópu (ECHA), Matvælaöryggisstofnunar Evrópu (EFSA), Umhverfisstofnunar Evrópu (EEA) og Lyfjastofnunar Evrópu (EMA). Áætlað er að leggja áherslu á vísindaleg gæði, gagnsæi og samanburðarhæfi á öryggismati efna.Þetta kemur m.a. til framkvæmda vegna efnastefnu Evrópu um sjálfbærni (e. Chemical Strategy for Sustainability) og Græna samkomulagsins í Evrópu (e. European Green Deal), en þar er að finna hugtakið og markmiðið „eitt efni – eitt mat“. Sú nálgun á að hagræða og straumlínulaga mat á efnum í gegnum regluverk ESB ásamt því að tryggja vernd fyrir heilsu manna og umhverfið. Eftirfarandi breytingar eru gerðar á reglugerð (EB) nr. 178/2002:- nýjum staflið, m, er bætt við 23. gr. sem snýr að því að auka samvinnu á milli stofnana sambandsins á sviði efna.- B-liður 4. mgr. 27. gr. er leiðréttur m.t.t. vísunar í 30. gr. sömu reglugerðar.- texta 30. gr. er skipt út fyrir nýjan texta sem snýr að því hvað skal gera ef upp kemur ágreiningur um vísindaleg álit.Eftirfarandi breytingar eru gerðar á reglugerð (EB) nr. 401/2009:- Nýjum staflið, p, er bætt við 2. gr. sem snýr að því að útbúa aðferðafræði við mat á efnum.- Texta 1. mgr. 15. gr. er breytt og snýr að því að auka samvinnu Efnastofnunar Evrópu við framkvæmdarstjórnina, stofnana sambandsins á sviði efna og rannsóknar- og þróunaráætlana sambandsins á sviði umhverfismála.- Texta 4. mgr. 15. gr. er breytt og áhersla er lögð á að auka samræmi og samlegðaráhrif samvinnunnar og að forðast tvíverknað.Eftirfarandi breytingar eru gerðar á I. viðauka við reglugerð (ESB) 2017/745:- Texti b-liðar í lið 10.4.1 sem snýr að efnum sem eru flokkuð sem innkirtlatruflandi og efni sem hafa innkirtlatruflandi eiginleika er uppfærður.- Texti d-liðar í liði 10.4.2 er breytt þar sem orðið nefnd (e. committee) er tekin út.- Texti liðar 10.4.3 er uppfærður m.t.t. leiðbeininga um þalöt.- Texti liðar 10.4.4. er uppfærður m.t.t. leiðbeininga fyrir efni sem eru flokkuð sem krabbameinsvaldandi, stökkbreytandi eða hafa eiturhrif á æxlun (CMR) eða eru innkirtlatruflandi.Eftirfarandi breytingar eru gerðar á reglugerð (ESB) 2019/1021:- Nýjum staflið, i, er bætt við 1. mgr. 8. gr. er snýr að skyldum ECHA.- Nýjum lið, 1a, er bætt við 8. gr. og fjallar um skýrslugjöf.- Texti 2. mgr. 13. gr. er uppfærður varðandi upplýsingagjöf.- Texti 2. mgr. 15. gr. er uppfærður m.t.t. breytinga á IV. og V. viðauka.- Textar 2. mgr., 3. mgr. og 6. mgr. 18. gr. eru uppfærðir m.t.t. texta um framseldar reglugerðir.- Nýrri grein, 21b, er bætt við sem felur framkvæmdarstjórninni það verk að fylgjast með því hversu vel ramminn um vísindalegt og tæknilegt samstarf sem settur er fram í þessari reglugerð virki og leggi til breytingar ef þess þarf.- IV. viðauka er breytt þannig að þegar fjallað er um að framkvæmdarstjórnin eigi að leggja fram löggjafartillögu til að lækka styrkleikamagn ákveðinna efna í úrgangi eigi þeir nú að leggja fram framselda reglugerð þess í stað.Reglugerðin hefur þegar tekið gildi.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Nei |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Nei |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Nei |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta |
Athugið að hér er aðeins um athugun Umhverfis- og orkustofnunar að ræða. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur verið upplýst um að æskilegt væri að leita aðkomu fleiri ráðuneyta/stofanana að greiningu þessarar tillögu. Breyta þarf reglugerð nr. 102/2010 vegna breytinga á reglugerð (EB) 178/2002. Reglugerðarheimild er tilgreind í 31. gr. a laga nr. 93/1995, um matvæli og 7. gr. laga nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, með síðari breytingum. Hugsanlega þarf að gera breytingar á stjórnvaldsfyrirmælum sem sett voru til innleiðingar á reglugerð (EB) nr. 401/2009. Breyta þarf lögum nr. 132/2020 um lækningartæki vegna breytinga á reglugerð (ESB) 2017/745. Breyta þarf reglugerð nr. 954/2013 vegna breytinga á reglugerð (ESB) 2019/1021. Reglugerðarheimild er tilgreind í 11. tl. 1. mgr. 11. gr. efnalaga. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Innan fjárhagsáætlunar |
|---|
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Umhverfis- og orkustofnun |
| Aðrar stofnanir sem hafa aðkomu | Lyfjastofnun, Matvælastofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32025R2457 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2025/2457, 12.12.2025 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| COM numer | COM(2023) 783 |
|---|---|
| Dagsetning tillögu ESB | |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Breytir (Modifies)
| 32019R1021 | amends | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 32017R0745 | amends | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 32009R0401 | amends | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 32002R0178 | amends | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
Lagagrundvöllur (Legal basis)
Acts, treaties and agreements this act is based on, according to EUR-Lex.
