Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/873 um breytingar á reglugerð (ESB) 2019/331 um úthlutun losunarheimilda án endurgjalds. - 32024R0873
Commission Delegated Regulation (EU) 2024/873 of 30 January 2024 amending Delegated Regulation (EU) 2019/331 as regards transitional Union-wide rules for harmonised free allocation of emission allowances
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/873 frá 30. janúar 2024 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2019/331 að því er varðar umbreytingarreglur á vettvangi Sambandsins um samræmda úthlutun losunarheimilda án endurgjalds
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 20 Umhverfismál, 20.03 Loft |
| Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 108/2025 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Reglugerð (ESB) 2024/873 setur fram breytingar á reglugerð (ESB) 2019/331 sem fjallar um úthlutun endurgjaldslausra losunarheimilda til rekstraraðila staðbundins iðnaðar sem fellur undir viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir. Breytingarnar eru m.a. settar fram í kjölfar þess að tilskipun (ESB) 2023/959 breytti tilskipun (ESB) 2003/87, þ. á m. er varðar úthlutun endurgjaldslausra losunarheimilda til rekstraraðila og ákvæði sem tengjast reglugerð (ESB) 2023/956 um aðlögunarkerfi við landamæri vegna kolefnis.
Helstu breytingar eru:
Skila skal inn vottunarskýrslu fyrir skýrslu um grunngögn með umsókn um úthlutun.
Reiknireglum fyrir sögulegt starfsemisstig er breytt svo að miðað er við miðgildi í stað meðaltals starfsemisstigs á viðmiðunartímabili.
Nýjum ákvæðum er bætt við sem varða orkuúttekt og orkustjórnunarkerfi, og kolefnishlutleysisáætlun.
Innihald NIMs lista breytist að einhverju leiti.
Ákvæði er tengjast CBAM koma inn, þar bætast við ákveðnar kröfur á rekstraraðila.
Helstu breytingar eru:
Skila skal inn vottunarskýrslu fyrir skýrslu um grunngögn með umsókn um úthlutun.
Reiknireglum fyrir sögulegt starfsemisstig er breytt svo að miðað er við miðgildi í stað meðaltals starfsemisstigs á viðmiðunartímabili.
Nýjum ákvæðum er bætt við sem varða orkuúttekt og orkustjórnunarkerfi, og kolefnishlutleysisáætlun.
Innihald NIMs lista breytist að einhverju leiti.
Ákvæði er tengjast CBAM koma inn, þar bætast við ákveðnar kröfur á rekstraraðila.
Nánari efnisumfjöllun
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/873 setur fram breytingar á reglugerð (ESB) 2019/331 sem fjallar um úthlutun endurgjaldslausra losunarheimilda til rekstraraðila staðbundins iðnaðar (FAR) sem fellur undir viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir. Breytingarnar eru m.a. settar fram í kjölfar þess að tilskipun (ESB) 2023/959 breytti tilskipun (ESB) 2003/87 (ETS tilskipunin), þ. á m. er varðar úthlutun endurgjaldslausra losunarheimilda til rekstraraðila og ákvæði sem tengjast reglugerð (ESB) 2023/956 um aðlögunarkerfi við landamæri vegna kolefnis (e. Carbon Border Adjustment Mechanism, CBAM). Reglugerð ESB um CBAM hefur ekki verið tekin upp í EES samninginn þegar þetta er skrifað. Helstu breytingar á á FAR reglugerð eru eftirfarandi: (1)2. gr. SkilgreiningarTveimur skilgreiningum er breytt, annars vegar fyrir undirstöð með varmaviðmiðun og hins vegar fyrir undirstöð með eldsneytisviðmiðun. 3. tölulið er skipt út: Undirstöð með varmaviðmiðun (e. heat benchmark sub-installation) þýðir ílag, frálag og samsvarandi losun gróðurhúsalofttegunda sem fellur ekki undir undirstöð með vöruviðmiðun fyrir framleiðslu eða innflutning á mælanlegum hita frá rekstraraðila í ETS kerfinu, öðrum en þeim sem eru aðeins í ETS kerfinu í tilgangi 14. gr. (vöktun og skýrslugjöf um losun) og 15 gr. (sannprófun og faggilding) ETS tilskipunarinnar, sem er annaðhvort notaður innan marka undirstöðvar til framleiðslu á vöru, framleiðslu á vélrænni orku, ekki notaðrar til raforkuframleiðslu, til hitunar eða kælingar, að undanskilinni notkun til raforkuframleiðslu, eða er fluttur til rekstrareiningar sem fellur ekki undir ETS kerfið að fjarhitun undanskilinni, að undanskildum útflutningi til raforkuframleiðslu.Breytingin á skilgreiningunni felst í því að bætt hefur verið við að innflutningur mælanlegs varma frá rekstraraðilum sem eru aðeins í ETS kerfinu í tilgangi 14. og 15. gr. ETS tilskipunarinnar fellur ekki undir undirstöð með varmaviðmiðun. 6. tölulið er skipt út: Undirstöð með eldsneytisviðmiðun þýðir ílag, frálag og samsvarandi losun gróðurhúsalofttegunda sem fellur ekki undir undirstöð með vöruviðmiðun, fyrir framleiðslu á ómælanlegan varma frá bruna eldneytis eða rafmagni til framleiðslu á vörum eða vélrænni orku sem ekki nýtist við framleiðslu rafmagns, til hitunar eða kælingar, að undanskilinni notkun til raforkuframleiðslu, þ.m.t. brennsla gass í afgasloga af öryggisástæðum.Breytingin á skilgreiningunni er að nú nær notkun rafmagns til framleiðslu á ómælanlegum varma einnig undir hana. (2)4 gr. Umsókn rekstraraðila starfandi stöðva (e. incumbent installations) um endurgjaldslausa úthlutun Breytingar eru gerðar á 2. mgr. sem snýr að því hvaða upplýsingar skulu fylgja umsókn um úthlutun losunarheimilda án endurgjalds. Lið ba er bætt við og c-lið er skipt út. (ba) Þar sem við á, skal fylgja umsókn, kolefnishlutleysisáætlun í samræmi við ákvæði 5. undirgreinar 1. mgr. 10. gr. a og 4. mgr. 10. gr. b í ETS tilskipun.(c) Vottunarskýrslu fyrir skýrslu um grunngögn (e. baseline data report) skal skila í samræmi við ráðstafanir í 15. gr. ETS tilskipunarinnar. (3)6. gr. Almenn vöktunarskyldaTexta 6. gr. er skipt út. Í henni kemur fram að rekstraraðili, sem sækir um eða hlýtur úthlutun án endurgjalds, skuli vakta þau gögn (e. data) sem skila skal inn og listuð eru í viðauka IV við FAR, byggt á áætlun um aðferðafræði vöktunar, sem lögbært stjórnvald hefur samþykkt. Breytingin frá fyrri texta greinarinnar felst í því að dagsetning um hvenær lögbært stjórnvald skyldi samþykkja áætlunina (var 31. desember 2020) var tekin út. (4)10. gr. Skipting í undirstöðvar Nýrri málsgrein er bætt við, 2. mgr. a, texta 3. mgr. er skipt út og 4. og 5. mgr. taka breytingum. Í nýrri 2. mgr. a kemur fram hvað varðar undirstöðvar sem framleiða vörur með tilgreinda vöruviðmiðun, að rekstraraðili skuli greina á milli (e. distinguish) á skýran hátt og sýna lögbæru stjórnvaldi fram á með fullnægjandi hætti, með notkun CN kóða, hvort að viðeigandi ferli þjóni (e. serves) framleiðslu vara sem listaðar eru í viðauka I í reglugerð ESB 2023/956 um aðlögunarkerfi við landamæri vegna kolefnis (e. Carbon Border Adjustment Mechanism, CBAM). 3. mgr. er skipt út.. 1. undirgrein 3. mgr. hefur engum breytingum tekið að öðru leyti en því að orðið „umtalsverðri“ (e. exposed to a significant) hefur verið tekið út. 2. og 3. undirgrein voru teknar út. Í nýrri 2. undirgrein kemur fram að því er varðar undirstöðvar með varmaviðmiðanir (e. heat benchmark), eldneytisviðmiðanir (e. fuel benchmark) og undirstöðvar með losun frá ferlum (e. process emissions sub-installations) skulu rekstraraðilar aðgreina með skýrum hætti, með CN kóðum, hvort að viðeigandi ferli séu notuð til framleiðslu vara er falla undir viðauka I í reglugerð (ESB) 2023/956 um CBAM. Hún er sambærileg 2. mgr. a 10. gr. en gildir fyrir aðrar undirstöðvar en þær sem framleiða vörur með vöruviðmiðanir. 4. mgr. Texta 1. undirgreinar er skipt út og nýrri 3. undirgrein er bætt við. 1. undirgrein 4. mgr. er eins og áður að öðru leyti en því að tekið hefur verið út orðið „umtalsverðri“ varðandi áhættu á kolefnisleka, líkt og í 1. undirgrein 3. mgr. Nýrri 3. undirgrein er bætt við 4. mgr. 10. gr. Þar kemur fram að ef starfsstöð sem fellur undir ETS hefur framleitt mælanlegan varma og flutt til rekstraraðila sem eru ekki í ETS kerfinu, skal rekstraraðili sýna fram á hversu mikið af honum sé notaður til framleiðslu á vörum sem falla undir viðauka I í reglugerð (ESB) 2023/956 um CBAM. Ef ekki er sýnt fram á það skal gert ráð fyrir því að allur varminn sé nýttur til framleiðslu vara er falla undir viðauka I í reglugerð (ESB) 2023/956 um CBAM. 5. mgr. Breytingar á málsgreininni eru að nýir liðir d og j koma í stað þeirra sem áður voru og f- og k-liðir eru felldir á brott. Í texta d liðar segir að fyrir allan mælanlegan varma sem er framleiddur, fluttur til eða frá undirstöð skuli skrásetja hvort varminn hafi verið framleiddur hjá ETS starfsstöð, sé innfluttur frá öðrum ferlum er mynda hita, innfluttur frá aðila (e. entity) sem er utan ETS eða innfluttur frá starfsstöð sem fellur undir ETS einungis í tilgangi 14. gr. og 15. gr. ETS tilskipunarinnar. Breytingar á liðnum felast í því að orðin „með brennsluferli“ (e. in a combustion process) hafa verið tekin út og að tilvísun í starfsstöðvar sem falla undir ETS kerfið einungis í tilgangi 14. og 15. gr. ETS tilskipunarinnar hefur verið bætt við, að öðru leyti er hann eins. f-liður um skiptanleika eldsneytis og raforku er fjarlægður. j-liður segir að vörur í framleiðsluferli sem eru settar aftur í ferlið skuli dregnar frá árlegu starfsemisstigi líkt og útlistað er í skilgreiningum í viðauka I. Þetta er gert til að koma í veg fyrir tvítalningu. Breytingin á liðnum felst í því að orðin „eftir því sem við á“ (e. as appropriate) hafa verið tekin út. k-liður um endurheimtan mælanlegan varma er fjarlægður. (5)14. gr. Framkvæmdarráðstafanir á landsvísu Breytingar á greininni felast í að 1. og 6. mgr. var skipt út fyrir nýjar, 2. og 8. mgr. tóku breytingum og nýrri 9. mgr. var bætt við. 1. mgr. fjallar um skrá með lista yfir starfsstöðvar í ETS kerfinu sem lögbært stjórnvald skal skila til framkvæmdastjórnar, skv. 1. mgr. 11. gr. í ETS tilskipun. Á listanum skal tilgreina allar starfsstöðvar sem að falla undir ETS, þar á meðal starfsstöðvar sem falla einungis undir ETS kerfið í tilgangi 14. og 15. gr. í ETS tilskipun, litlar stöðvar sem má undanskilja frá kerfinu skv. 27. gr. og 27. gr. a sömu tilskipunar og stöðvar sem koma til með að falla undir ETS kerfið skv. 24. gr. ETS tilskipunarinnar. Breytingin á málsgreininni felst í því að hún tilgreinir ekki lengur raforkuframleiðendur sérstaklega og nú skal einnig auðkenna stöðvar sem falla einungis undir ETS kerfið í tilgangi 14. og 15. gr. ETS tilskipunarinnar. 2. mgr. fjallar um hvaða upplýsingar skráin sem um getur í 1. mgr. skal innihalda fyrir hverja starfandi stöð (e. incumbent installation) sem sækir um úthlutun losunarheimilda án endurgjalds. Þar hefur (a) lið verið breytt, í stað þess að vísað sé til auðkenniskóða stöðvarinnar í viðskiptadagbók Evrópusambandsins (e. EUTL) er vísað til skrár sambandsins (e. Union Registry). Liðum (da) og (db) hefur verið bætt við. Í (da) kemur fram að skráin skuli innihalda mat lögbærs stjórnvalds á skerðingu úthlutunar endurgjaldslausra losunarheimilda um 20% í samræmi við 22. gr. a og 1. mgr. 22. gr. b. Samkvæmt (db) skulu koma fram upplýsingar um hvort skilyrði tengd auka 30% úthlutun í samræmi við 3. mgr. 22. gr. b um úthlutun til fjarhitunarstöðva (e. district heating sub installations) séu uppfyllt ef við á.Í liði (e) kemur fram að á listanum skulu koma fram upplýsingar um hvort undirstöð tilheyri geira eða undirgeira sem teljist vera í áhættu á kolefnisleka. Orðin „í umtalsverðri áhættu“ hafa verið tekin út og nú stendur aðeins „í áhættu“.Lið (ea) hefur verið bætt við sem segir að á listanum skuli koma fram upplýsingar um hvort að vörur sem framleiddar eru falli undir viðauka I í reglugerð (ESB) 2023/956 um CBAM fyrir hverja undirstöð, ásamt CN kóðum framleiddra vara, þar sem það á við.Texta 6. mgr. er skipt út. Breytingar á málsgreininni felast annars vegar í að í stað orðanna „með því að beita stuðlunum“ (e. with application of the factors) stendur „með beitingu stuðlanna“ (e. applying the factors). Og hins vegar að til viðbótar við að taka skuli tillit til viðkomandi hlutdeildar í árlegum heildarfjölda losunarheimilda innan Sambandsins, eins og það er ákvarðað skv. 1. mgr. 10. gr. og 5. mgr. 10. gr. a ETS tilskipunarinnar, við samanburð við bráðabirgðatölu um árlega úthlutun endurgjaldslausra losunarheimilda, skal einnig taka tillit til undanþágu 10% skilvirkustu undirstöðva líkt og ákvarðað er í samræmi við 2. undirgrein 8. mgr. 16. gr. þessarar reglugerðar. Texta 8. mgr. er skipt út. Hún fjallar um að aðildarríki skulu gera skýrslur og áætlanir, sem þau fá í samræmi við 2. mgr. 4. gr., aðgengilegar fyrir framkvæmdastjórnina, ef beiðni berst þess efnis. Breytingin felur í sér að nú getur framkvæmdastjórn beðið um aðgang að áætlunum frá aðildarríkjum, ekki aðeins skýrslum. 9. mgr. um umframlosunarheimildir til rekstraraðila er bætt við. Hún segir að aðildarríki skuli sjá til þess að umframlosunarheimildum sem rekstraraðilar fái úthlutað sé skilað. Þegar rekstraraðilar skila ekki umframheimildum skal lögbært stjórnvald fara fram á við landstjórnanda skráningarkerfisins að hann dragi umframlosunarheimildir frá því magni sem úthlutað verður til rekstraraðila. Aðildarríkjum er gert að upplýsa framkvæmdastjórnina um slíkt. (6)15. gr. Sögulegt starfsemisstig starfandi stöðva (e. incumbent installations)Breytingar á 15. gr. felast í því að nýjar málsgreinar koma í stað 1. og 3. – 8. mgr. Stærstur hluti breytinganna er aðeins á orðalagi en breytingar á 3. – 8. mgr. felast einnig í því að ekki skal lengur miða sögulegt starfsemisstig út frá meðaltali starfsemisstigs grunntímabilsins heldur miðgildi. 1. mgr. segir að aðildarríki skulu leggja mat á skýrslur um grunngögn og sannprófunarskýrslur sem skilað er inn í samræmi við 2. mgr. 4. gr. til að tryggja samræmi (e. conformity) við kröfur FAR reglugerðarinnar. Þar sem við á skal lögbært stjórnvald tryggja að öll frávik og/eða villur sem hafa áhrif á gögn um sögulegt starfsemisstig séu leiðrétt. Lögbært stjórnvald getur farið fram á að rekstraraðilar skili inn fleiri gögnum en útlistuð eru í 2. mgr. 4. gr. FAR reglugerðarinnar. Breytingin á málsgreininni felst í því að nú skal lögbært stjórnvald tryggja að öll frávik og villur sem hafi áhrif á sögulegt starfsemisstig séu leiðréttar en áður stóð að lögbært stjórnvald skyldi óska eftir því að slík frávik og villur yrðu leiðréttar. 3. – 8. mgr. fjalla um sögulegt starfsemisstig fyrir undirstöðvar með ólíkar viðmiðanir, þ.e. sem framleiða vörur sem hafa vöruviðmiðanir og undirstöðvar sem hafa varmaviðmiðanir, eldsneytisviðmiðanir eða hafa losun frá ferlum. Sama breytingin hefur verið gerð á öllum málsgreinunum úr því að sögulegt starfsemisstig skuli ákvarðað út frá meðaltali starfsemisstigs þeirra ára sem grunntímabilið nær yfir í að það skuli ákvarðað út frá miðgildi.Auk þess hafa eftirfarandi breytingar verið gerðar á málsgreinunum sem um ræðir: 4. mgr: Breytingar á málsgreininni undanskilja starfsstöðvar sem tilheyra ETS kerfinu aðeins í tilgangi 14. og 15. gr. ETS tilskipunar frá útreikningum á sögulegu starfsemisstigi varma og fjarhitunar. 5. mgr. fjallar um eldsneytistengt, sögulegt starfsemisstig. Breytingar á málsgreininni felast í því að orðinu eldsneyti (e. fuel) hefur verið skipt út fyrir orku (e. energy) og orðunum „með þann aðaltilgang“ (e. for the primary purpose) hefur verið bætt við á undan upptalningu á því sem fellur undir starfsemisstig undirstöðva með eldsneytisviðmiðun. 7. mgr. segir til um hversu mikil starfsemi þarf að hafa átt sér stað yfir almanaksár (í a.m.k. einn dag) til þess að tekið sé tillit til viðkomandi almanaksárs við útreikninga á sögulegu starfsemisstigi. Málsgreinin útlistar einnig hvernig sögulegt starfsemisstig skuli ákvarðað fyrir undirstöðvar sem hafa verið með starfsemi í minna en tvö almanaksár annars vegar og minna en eitt almanaksár hins vegar. Breytingar á málsgreininni eru að í stað þess að það eigi að miða sögulegt starfsemisstig nýrra undirstöðva við fyrsta almanaksárið sem kemur eftir að starfsemi hefst segir að það skuli miðað við fyrsta almanaksárið eftir almanaksárið sem starfsemi hófst á. Um er að ræða orðalagsbreytingar en ekki efnislegar breytingar. (7)16. gr. Úthlutun til stöðva fyrir starfandi stöðvar (e. incumbent installations)Breytingar á 16. gr. felast í breytingum á 1., 2., 3., 4. og 8. mgr. Bæði er um að ræða efnislegar breytingar og breytingar á orðalagi auk þess sem nýrri 4. mgr. a, um útreikninga á úthlutun endurgjaldslausra losunarheimilda til undirstöðva sem framleiða vörur sem falla undir viðauka I í reglugerð (ESB) 2023/956 um CBAM, er bætt við. Texta 1. mgr. er skipt út. Þar kemur fram að þegar rekstraraðili starfandi stöðvar hefur lagt fram gilda umsókn um endurgjaldslausa úthlutun í samræmi við 4. gr., skal viðkomandi aðildarríki reikna fyrir hvert ár fjölda losunarheimilda sem úthlutað er án endurgjalds frá árinu 2021 fyrir fyrsta úthlutunartímabilið og á 5 ára fresti eftir það. Breytingar á málsgreininni felast í því að textanum eftir ártalið 2021 hefur verið bætt við, um fyrsta úthlutunartímabilið og að það sama skuli gert á fimm ára fresti. Í 2. mgr. eru gerðar breytingar á d- og e-liðum . Þær breytingar sem gerðar eru á d- lið felast í því að næstsíðasta orðinu, „eldsneyti“, er skipt út fyrir „orku“. Bráðabirgðatölur yfir árlega úthlutun endurgjaldslausra losunarheimilda skulu því samsvara gildi eldsneytisviðmiðunar fyrir viðkomandi fimm ára tímabil, í samræmi við 2. mgr. 10. gr. a ETS tilskipunarinnar, margfaldað með eldsneytistengdu, sögulegu starfsemisstigi fyrir orkuna sem var notuð. Breytingar á e-lið felast í nýjum margföldunarstuðli sem skal taka gildi frá 1. janúar 2028 og þá lækka úr 0,97 í 0,91 í samræmi við árlega lækkun vöruviðmiðana, þ.e.bráðabirgðatölur yfir árlega úthlutun endurgjaldslausra losunarheimilda skal samsvara vinnslutengdu (e. process related), sögulegu starfsemisstigi, margfaldað með 0,97 til 31. desember 2027 og margfaldað með 0,91 fyrir árið 2028 og þar á eftir. 1. undirgrein 3. mgr. er breytt, í stað orðanna „umtalsverð áhætta á kolefnisleka“ stendur „í áhættu á kolefnisleka“. Undirmálsgreinin segir til um hvernig skal reikna úthlutun endurgjaldslausra losunarheimilda út frá bráðabirgðatölum til undirstöðva sem varða geira eða undirgeira sem teljast ekki vera í áhættu á kolefnisleka. Texta 4. mgr. er skipt út. Þar segir að nota skuli stuðulinn 1 þegar ferli (e. process) undirstöðva, sem getið er í 2. mgr. þjóna geirum eða undirgeirum sem teljast vera í áhættu á kolefnisleka. Líkt og í 3. mgr. hefur orðunum „umtalsverð áhætta á kolefnisleka“ verið breytt í „í áhættu á kolefnisleka“. Nýrri 4. mgr. a er bætt við:Þegar ferlar í undirstöðvum sem vísað er til í 2. mgr. eru til framleiðslu á vörum sem útlistaðar eru í viðauka I í reglugerð (ESB) 2023/956 um CBAM, þá eru bráðabirgðatölur um úthlutun endurgjaldslausra losunarheimilda fyrir hverja undirstöð ár hvert margfaldaðar með CBAM stuðli sem útlistaður er í 2. undirgrein 1. mgr. a 10. gr. a í ETS tilskipuninni.Málsgreininni er bætt við í kjölfar þess að reglugerð um CBAM var sett sem hluti af útfösun endurgjaldslausra losunarheimilda, til leiðbeininga um hvernig skuli hátta útreikningum á úthlutun endurgjaldslausra losunarheimilda til geira sem falla undir CBAM. 8. mgr. er skipt út:Endanleg árleg úhlutun endurgjaldslausra losunarheimilda til hverrar starfandi stöðvar (e. incumbent installation) skal vera bráðabirgðatala fyrir úthlutun hverrar stöðvar, eins og ákvarðað er í samræmi við 6. mgr. 16. gr., margfölduð með stuðlinum sem er ákvarðaður í samræmi við 6. mgr. 14. gr. FAR. Undanþága frá 1. undirgrein, 8. mgr. gildir fyrir hvern rekstraraðila sem rekur undirstöð þar sem losun gróðurhúsalofttegunda er minni en meðallosun 10% skilvirkustu undirstöðva fyrir viðeigandi viðmiðanir yfir tímabilið, sem vísað er til í c-lið 3. undirgreinar 2. mgr. 10. gr. a, og sú undirstöð fær meira en 60% af bráðabirgðaúthlutun endurgjaldslausra losunarheimilda rekstraraðilans. Í þeim tilvikum þar sem þetta á við skal endanlegt heildarmagn úthlutunar á endurgjaldslausum losunarheimildum vera 100% af bráðabirgðafjölda úthlutaðra losunarheimilda. Breytingar á málsgreininni eru nokkuð miklar. Tilvísun í texta sem undanskilur starfsstöðvar sem falla undir 3. mgr. 10. gr. a ETS tilskipunarinnar, sem felld var úr gildi með tilskipun (ESB) 2023/959, var fjarlægður úr 1. undirgrein sem og sérákvæði um úthlutun til þeirra starfsstöðva sem kom fram í 2. og 3. undirgrein greinarinnar fyrir breytingar. Í stað þeirra kemur í 2. undirgrein fram undanþága frá 1. undirgrein fyrir úthlutun endurgjaldslausra losunarheimilda til skilvirkustu stöðva fyrir hverja viðmiðun, sem fá úthlutun í samræmi við bráðabirgðafjölda úthlutaðra losunarheimilda. (8)17. gr. Sögulegt starfsemisstig fyrir nýja aðila.Stafliðum a)-f) er skipt út fyrir nýja, en sama breyting er gerð á þeim öllum. Hver punktur segir til um hvernig skuli ákvarða sögulegt starfsemisstig nýrra þátttakenda í viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir með ólíka framleiðslu. Sögulegt starfsemisstig nýrra þáttakenda skal byggt á starfsemisstigi fyrsta almanaksárs eftir það almanaksár sem venjuleg framleiðsla hófst á. Áður stóð að sögulegt starfsemisstig skyldi byggt á starfsemisstigi fyrsta almanaksár eftir upphaf venjulegrar framleiðslu. Um er að ræða orðalagsbreytingar en ekki efnislegar. (9)18. gr. Úthlutun til nýrra aðilaGerðar eru eftirfarandi breytingar á 1. mgr. 18. gr.: Í 1. undirgrein er b-lið skipt út:fyrir hverja undirstöð með losun frá ferlum skulu bráðabirgðatölur yfir árlegan fjölda losunarheimilda sem er úthlutað án endurgjalds á tilteknu ári samsvara vinnslutengdu (e. process related), sögulegu starfsemisstigi, margfaldað með 0,97 til 31. desember 2027 og með 0,91 fyrir árið 2028 og síðar.Breyting á liðnum felst í því að síðasta hluta málsgreinarinnar hefur verið bætt við, þ.e. að sögulegt starfsemisstig sé margfaldað með 0,97 til og með 31. desember 2027 en svo breytist margföldunarstuðullinn í 0,91. Margföldunarstuðullinn er uppfærður til að endurspegla árlegan samdrátt í vöruviðmiðunum um 0,3% hvað varðar úthlutun til undirstöðva með losun frá ferlum. 2. undirgrein er skipt út: Ákvæði 3., 4., 5. og 7. mgr. og 4. mgr. a 16. gr. skulu gilda mutatis mutandis um útreikninga á bráðabirgðatölum fyrir árlegan fjölda endurgjaldslausra losunarheimilda sem er úthlutað til nýrra aðila (e. new entrants). (10)19., 20. og 21. gr. er skipt út: 19. gr. Úthlutun að því er varðar gufusundrun (e. steam cracking) Sem undanþága frá a-lið 2. mgr. 16. gr. og a-lið 1. mgr. 18. gr. skal bráðabirgðatala yfir árlegan fjölda losunarheimilda, sem er úthlutað án endurgjalds fyrir undirstöð með vöruviðmiðun í tengslum við framleiðslu á hágæðaíðefnum (e. high value chemicals), samsvara gildi vöruviðmiðunar fyrir gufusundrun fyrir viðkomandi úthlutunartímabil, margfaldað með sögulegu starfsemisstigi sem er ákvarðað í samræmi við viðauka III. Við niðurstöðurnar úr þessum útreikningum skal bæta við 1,78 tonnum af koltvísýringi á hvert tonn af vetni, margfaldað með miðgildi sögulegrar framleiðslu af vetni úr viðbótarhráefni, gefið upp í tonnum af vetni, 0,24 tonn af koltvísýringi á hvert tonn af etýleni margfaldað með miðgildi sögulegrar framleiðslu á etýleni úr viðbótarhráefni, gefið upp í tonnum af etýleni, og 0,16 tonnum af koltvísýringi á hvert tonn af hágæðaíðefnum, margfaldað með miðgildi sögulegrar framleiðslu á öðrum hágæðaíðefnum en vetni og etýleni úr viðbótarhráefni, gefið upp sem tonn af hágæðaíðefnum.Breytingar á greininni felast í því að tekinn hefur verið út texti í miðri greininni sem sagði að sögulegt starfsemisstig í samræmi við viðauka III skyldi vera margfaldað með hlutfalli beinnar heildarlosunar, þ. á m. losunar frá innfluttum varma á grunntímabili. Að auki hefur meðaltali sögulegrar framleiðslu verið breytt í miðgildi sögulegrar framleiðslu á báðum stöðum þar sem það á við. 20. gr. Úthlutun að því er varðar vínylklóríðeinliður (e. vinyl chloride monomer) Sem frávik frá a-lið 2. mgr. 16. gr. og a-lið 1. mgr. 18. gr. skulu bráðabirgðatölur fyrir fjölda endurgjaldslausra losunarheimilda fyrir undirstöðvar í tengslum við framleiðslu á vínýlklóreinliðum (VCM), samsvara viðmiðun VCM fyrir viðeigandi úthlutunartímabil margfaldað með sögulegu starfsemisstigi framleiðslu á VCM í tonnum og margfaldað með stuðli fyrir beina losun frá VCM framleiðslu, þ. á m. losun frá innfluttum nettóvarma, sem skal reiknaður út frá sögulegum heildarinnflutningi í terajúlum margfaldað með gildi varmaviðmiðunar fyrir viðeigandi úthlutunartímabil, yfir grunntímabilið sem vísað er til í 2. mgr. 15. gr. eða fyrsta almanaksár eftir almanaksárið sem starfsemi hófst á eins og vísað er til í a-lið 17. gr., eftir því sem við á, sett fram sem tonn af koltvíoxíðígildum og summa beinnar losunar og vetnistengdrar losunar við framleiðslu VCM yfir grunntímabilið sem vísað er til í 2. mgr. 15. gr. eða fyrsta almanaksár eftir almanaksárið sem starfsemi hófst líkt og vísað er til í a-lið 17. gr., eftir því sem við á, sett fram í tonnum af koltvíoxíðígildum reiknað á grundvelli sögulegrar varmanotkunar sem kemur frá brennslu vetnis sett fram sem terajúl margfölduð með varmaviðmiðun fyrir viðeigandi úthlutunartímabil.Breytingarnar á greininni felast í því að bætt hefur verið við texta um hvernig reikna skuli losun gróðurhúsalofttegunda frá innfluttum nettóvarma. Að auki var tekin út tilvísun í 22. gr., en henni hefur verið eytt. 21. gr. Varmaflæði milli undirstöðva Ef undirstöð með vöruviðmiðun nær yfir mælanlegan varma sem er fluttur inn frá stöð eða annarri einingu sem fellur ekki undir viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir eða falla einungis undir kerfið í tilgangi 14. og 15. gr. í ETS tilskipun skal bráðabirgðatalan fyrir árlegan fjölda losunarheimilda sem er úthlutað án endurgjalds fyrir viðkomandi undirstöð með vöruviðmiðun, ákvörðuð skv. a-lið 2. mgr. 16. gr. eða a-lið 1. mgr. 18. gr., eins og við á, lækkuð um sem nemur sögulegu magni af varma sem er fluttur inn frá stöð eða annarri einingu sem fellur ekki undir viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir eða undirstöð sem fellur einungis undir kerfið í tilgangi 14. og 15 gr. í ETS tilskipun. Þetta gildir á viðkomandi ári, margfaldað með gildi varmaviðmiðunar fyrir mælanlegan varma fyrir viðkomandi úthlutunartímabil.Breytingar á greininni felast í því að vísað er til stöðva eða annarra eininga sem einungis falla undir ETS kerfið á grundvelli 14. og 15. gr. ETS tilskipunarinnar. Fyrir breytingarnar var aðeins vísað til stöðva eða annarra eininga sem ekki falla undir ETS kerfið í þessari grein. (11)22. gr. um skiptanleika á milli eldsneytis og rafmagns er fjarlægð. (12)Eftirfarandi greinum er bætt við reglugerðina: 22. gr. a. Skilyrði um innleiðingu á ráðstöfunum til aukinnar orkunýtni fyrir úthlutun endurgjaldslausra losunarheimilda Þessari grein er bætt við til að skýra betur hvernig úthlutun á endurgjaldslausum losunarheimildum breytist ef rekstraraðilar hafa undirgengist orkuúttekt eða eru með vottað orkustjórnunarkerfi og fengið í þeim tilmæli um úrbætur til að bæta orkunýtni í rekstrinum. Í greininni kemur fram að hafi rekstraraðilar ekki framkvæmt tilmæli sem fengin voru í orkuúttekt eða úr vottuðu orkustjórnunarkefi skuli lögbært stjórnvald skerða úthlutun á endurgjaldslausum losunarheimildum um 20%. Til viðbótar er farið yfir hverjar undanþágur frá slíkri skerðingu eru og verklag fyrir rekstraraðila, vottunaraðila og lögbært stjórnvald hvað þetta varðar. Ákvæði um orkuúttektir og vottað orkustjórnunarkerfi komu inn í ETS tilskipunina með tilskipun (ESB) 2023/959. Í 1. mgr. 22. gr. a. kemur fram að endanlegt árlegt magn losunarheimilda sem úthlutað er endurgjaldslaust, ákvarðað á grundvelli 8. mgr. 16. gr. FAR, fyrir stöð sem vísað er til í 3. undirgrein 1. mgr. 10. gr. a í ETS tilskipun, skuli vera skert um 20% í samræmi við 1. mgr. 10. gr. a í sömu tilskipun ef að rekstraraðili getur ekki sýnt lögbæru stjórnvaldi fram á innleiðingu á öllum tilmælum í samræmi við 8. gr. tilskipunar (ESB) 2012/27, þ.e. sem varða orkuúttektir og orkustjórnunarkerfi. Ákveðnar undanþágur eru frá 1. mgr. 22. gr. er varðar skerðingu á úthlutun endurgjaldslausra losunarheimilda ef að rekstraraðili getur sýnt lögbæru stjórnvaldi fram á eitthvað af eftirfarandi: (a) endurgreiðslutími fyrir þær fjárfestingar sem mælt er með er meiri en þrjú ár;(b) fjárfestingakostnaður vegna innleiðingar tilmæla fer yfir annað hvort eftirfarandi marka:(i) 5% af árlegri veltu eða 25% af hagnaði stöðvar, reiknað á grundvelli árlegs meðaltals síðustu þriggja almanaksára fyrir þá dagsetningu sem umsókn um endurgjaldslausa úthlutun skal skilað inn í samræmi við 4. gr.;(ii) 50% af árlegu meðalfjárhagslegu ígildi (e. average economic equivalent) skerðingar á úthlutun endurgjaldslausra losunarheimilda í samræmi við 8. mgr. 16. gr., byggt á meðalverði heimilda á uppboðsvettvangi almanaksársins áður en umsóknin, sem vísað er í 2. mgr. 4. gr., er send inn;(c) aðrar ráðstafanir hafa verið innleiddar á eða eftir viðeigandi grunntímabil sem leiða til samdráttar á losun gróðurhúsalofttegunda innan stöðvar sem jafngildir tilmælum úr orkuúttektarskýrslu eða vottuðu orkustjórnunarkerfi skv. 8. gr. tilskipunar (ESB) 2012/27;(d) tilmæli leiða ekki til orkusparnaðar innan kerfismarka iðnaðarferla stöðvarinnar.(e) sérhæfð rekstrarskilyrði fyrir stöðina, þ. á m. viðhald, sama hvort það sé áformað eða ekki, sem endurgreiðslutíminn sem vísað er til í a-lið er byggður á, hafa ekki átt sér stað;(f) tilmæli í orkuúttektarskýrslu eða vottuðu orkustjórnunarkerfi voru ekki gefin út á fyrstu fjórum árum viðeigandi grunntímabils. Í 2. mgr. kemur fram að rekstraraðilar skulu koma á og innleiða, skrá og viðhalda ferlum til að innleiða tilmæli og, þegar við á, sýna fram á beitingu þeirra skilyrða (e. conditions) sem útlistuð eru í 1. mgr. Í 3. mgr. kemur fram að vottunaraðili skuli, sem hluti af vottun á skýrslu um grunngögn (e. baseline data report) sem vísað er til í 2. mgr. 4. gr., athuga hvort að tilmæli sem vísað er til í 1. undirgrein 1. mgr. hafi verið innleidd og hvort að skilyrði sett fram í 2. undirgrein 1. mgr. séu uppfyllt, þegar við á.Þar sem við á skal vottunaraðili athuga, sem hluta af vottun á árlegri skýrslu um starfsemisstig í samræmi við 7. gr. reglugerðar (ESB) 2018/2067, hvort tilmæli sem vísað er til í 1. undirgrein 1. mgr. hafi verið innleidd og hvort að skilyrði sett fram í 2. undirgrein 1. mgr. séu uppfyllt, þegar við á. Í 4. mgr. kemur fram að lögbært stjórnvald skuli aðeins líta svo á að þau tilmæli sem vísað er til í 1. mgr. hafi verið innleidd ef öll eftirfarandi skilyrði eru uppfyllt:a) rekstraraðili sýnir fram á fulla innleiðingu tilmælanna;b) vottunaraðili staðfestir að rekstraraðili hafi innleitt tilmælin, sbr. a. lið 4. mgr. og í samræmi við 3. mgr. 22. gr. a. 22. gr. b. Skilyrði um kolefnishlutleysisáætlanir fyrir úthlutun endurgjaldslausra losunarheimildaGreinin fjallar um það hvernig tekið er tillit til skila á kolefnishlutleysisáætlunum við úthlutun endurgjaldslausra losunarheimilda. Rekstraraðili þarf aðeins að skila inn kolefnishlutleysisáætlun ef losun gróðurhúsalofttegunda frá a.m.k. einni undirstöðva hans sem lítur vöruviðmiðun er meiri en 80 hundraðshlutamark (e. percentile) losunar viðeigandi vöruviðmiðunar áranna 2016 og 2017. Ef hann gerir það ekki er úthlutun endurgjaldslausra losunarheimilda skert um 20% í samræmi við 10. gr. a ETS tilskipunarinnar. Leiðbeiningar um hvað skal vera í kolefnishlutleysisáætlun kemur fram í 3. undirgrein 4. mgr. 10. gr. b. þeirrar tilskipunar.Í greininni er jafnframt fjallað um hvaða undanþágur gilda varðandi skil á kolefnishlutleysisáætlun þ.a. skortur á skilum valdi ekki skerðingu á úthlutun endurgjaldslausra losunarheimilda. Í 1. mgr. 22. gr. b. kemur fram að í tilgangi 5. undirgreinar 1. mgr. 10. gr. a í ETS tilskipuninni skuli árlegur lokafjöldi endurgjaldslausra losunarheimilda, ákvarðaður í samræmi við 8. mgr. 16. gr. FAR, skertur um 20% fyrir starfstöð með undirstöðvar með vöruviðmið ef losun gróðurhúsalofttegunda frá a.m.k. einni undirstöð sem lítur vöruviðmiðun er hærri en 80 hundraðshlutamark (e. percentile) losunar viðeigandi vöruviðmiðunar á árunum 2016 og 2017.Ákveðnar undanþágur gilda frá 1. undirgrein og ekki skal ekki koma til skerðingar ef eftirfarandi skilyrðum er fullnægt:(a) rekstraraðili stöðvar sem vísað er til í 1. undirgrein hefur skilað inn kolefnishlutleysisáætlun er snýr að starfsemi sem útlistuð er í ETS tilskipun til lögbærs stjórnvalds fyrir 30. maí 2024, eða ef við á, sem hluta af umsókn sinni um úthlutun endurgjaldslausra losunarheimilda í samræmi við 4. gr. FAR reglugerðarinnar;(b) staðfest hefur verið með vottun í samræmi við 4. undirgrein 4. mgr. 10. gr. b. að markmiðum og áföngum sem vísað er til í b-lið 3. undirgreinar 4. mgr. 10. gr. b sömu tilskipunar hafi verið náð;(c) lögbært stjórnvald hefur yfirfarið og samþykkt sniðmát og innihald kolefnishlutleysisáætlunarinnar (e. deemed compliant), í samræmi við 4. mgr.Í 2. mgr. kemur fram að 1. undirgrein 1. mgr. gildir ekki ef viðeigandi undirstöð sem lítur vöruviðmiðun leggur ekki af mörkum (e. contribute) meira en 20% af árlegum bráðabirgðaheildarfjölda endurgjaldslausra losunarheimilda allra undirstöðva rekstraraðilans fyrir tímabilið 2021-2025, reiknað í samræmi við 2. – 5. mgr. 16. gr. Í 3. mgr. kemur fram, í tilgangi 2.-4. undirgreinar, 4. mgr. 10. gr. b. ETS tilskipunarinnar, að árlegur bráðabirgðafjöldi losunarheimilda sem úthlutað er endurgjaldslaust til undirstöðva sem sinna fjarhitun, reiknaður í samræmi við 2. og 3. mgr. 16. gr. FAR reglugerðarinnar, skuli hækkaður um 30% af þeirri tölu sem reiknuð var skv. 2. mgr. 16. gr. ef rekstraraðili undirstöðvar er sinnir fjarhitun hefur lagt inn umsókn í samræmi við 4. gr. og hvað varðar tímabilið fram til loka ársins 2025 eða tímabilið 2026-2030 öll eftirfarandi skilyrði eru uppfyllt:(a) stöð eða fjarhitunarfyrirtæki (e. district heating company) er staðsett í aðildarríki sem uppfyllir þær kröfur sem eru útlistaðar eru í 2. undirgrein 4. mgr. 10. gr. b í ETS tilskipun og í viðauka VII.(b) stöðin eða fjarhitunarfyrirtækið fjárfesti í það minnsta sem jafngildir efnahagslegu gildi (e. invested a volume at least equivalent to the economic value) viðbótarlosunarheimilda fyrir tímabilið 2026-2030, í samræmi við áfanga og markmið sem sett eru fram í kolefnishlutleysisáætlun til að mæla, fyrir 31. desember 2025 og fyrir 31. desember á fimm ára fresti, framfarir í átt að kolefnishlutleysi.(c) fjárfestingar sem vísað er til í b-lið leiða af sér umtalsverðan samdrátt í losun fyrir árið 2030.(d) rekstraraðili eða fjarhitunarfyrirtæki skilar inn kolefnishlutleysisáætlun fyrir 30. maí 2024 skv. 1. mgr. 4. gr., eða eins og við á, fyrir starfsemi sem fellur undir ETS tilskipunina.(e) framkvæmd markmiða og áfanga sem vísað er til í b-lið 3. undirgreinar 4. mgr. 10. gr. b í ETS tilskipuninni hefur verið staðfest með vottun í samræmi við 4. undirgrein 4. mgr. 10. gr. b sömu tilskipunar.(f) lögbært stjórnvald hefur yfirfarið og samþykkt sniðmát og innihald kolefnishlutleysisáætlunarinnar (e. deemed compliant), í samræmi við 4. mgr. Í 2. undirgrein 3. mgr. kemur fram, að því er varðar b-lið, hvernig skuli meta fjárhagslegt virði 30% viðbótarheimilda. Í 3. undirgrein, 3. mgr. kemur fram, að því er varðar c-lið, hvenær samdráttur skal teljast umtalsverður. Í 4. mgr. kemur fram að lögbært stjórnvald skuli athuga, fyrir 31. september 2024, hvort að innihald og form kolefnishlutleysisáætlunar, sem vísað er til í 1. og 3. mgr. 22. gr. b. uppfylli ákvæði framkvæmdarreglugerðar (ESB) 2023/2441. 22. gr. c. 20% skerðing skv. 22. gr. a. og 22. gr. b. skal ekki safnast saman (e. non cumulative).20% skerðing í samræmi við 22. gr. a og 22. gr. b. skal aðeins lögð á stöð einu sinni á viðeigandi úthlutunartímabili. 22. gr. d. Uppfærsla kolefnishlutleysisáætlunar.Í greininni kemur fram að rekstraraðilar skulu meta árangur kolefnishlutleysisáætlunar, hvað varðar samdrátt á losun gróðurhúsaloftegunda og fara í leiðréttandi framkvæmdir, eins og við á, til að tryggja að áföngum og markmiðum sé náð. Slíkt mat skal eiga sér stað reglulega í samræmi við þau tímabil sem tiltekin eru í 22. gr. b. Ef kolefnishlutleysisáætlunin er uppfærð hvað varðar áfanga og markmið skal rekstraraðili án tafar skila uppfærðri áætlun til lögbærs stjórnvalds. 22. gr. e. Birting kolefnishlutleysisáætlunar.Lögbært stjórnvald skal birta kolefnishlutleysisáætlanir sem skilað er. Innihaldi þær viðkvæmar upplýsingar sem gætu skaðað viðskiptahagsmuni rekstraraðila getur hann óskað eftir því að lögbært stjórnvald birti þær upplýsingar ekki. Sé beiðnin réttlætanleg skal lögbært stjórnvald birta áætlunina án þeirra upplýsinga. (13)23. gr. Breytingar á úthlutun til stöðvar.4. mgr. er skipt út fyrir nýja. Ein breyting er á málsgreininni þar sem vísað er til viðskiptadagbókar (e. transaction log) í stað viðskiptadagbókar Evrópusambandsins (e. EUTL). (14)25. gr. Samruni og uppskipting4. mgr. greinarinnar, sem fjallar um úthlutun losunarheimilda án endurgjalds til stöðva eftir samruna eða uppskiptingu, er tekin út. (15)26. gr. Rekstri stöðvar hætt.Greinin fjallar um hvenær stöð er talin hafa hætt rekstri en ekki skal úthluta endurgjaldslausum losunarheimildum til stöðva sem hætt hafa rekstri. Gerðar eru eftirfarandi breytingar á greininni:A- lið 1. mgr. er skipt út fyrir nýjan. Breytingar á liðnum felast í því að bætt hefur verið við orðunum „runnið út“ (e. expired) og segir þá liðurinn að rekstri stöðvar telst vera hætt hafi losunarleyfi runnið út eða verið dregið til baka, þ. á m. ef að starfsstöð nær ekki lengur mörkum þeirrar starfsemi sem fellur undir viðauka I í ETS tilskipuninni. 2. mgr. er skipt út fyrir nýja sem segir: Þegar starfsstöð hættir starfsemi skal aðildarríki ekki gefa út losunarheimildir fyrir það almanaksár frá þeim degi sem starfsemi er hætt (e. following the day of cessation). Slíkar aðlaganir skulu gerðar pro rata. Breytingin á málsgreininni felst í því að áður stóð að stöðin skyldi ekki fá úthlutað endurgjaldslausum losunarheimildum frá árinu eftir að rekstri var hætt en nú er það frá þeim degi sem rekstri er hætt. (16)Viðauki I er uppfærður í samræmi við viðauka I við reglugerðina. I. Viðauki – ViðmiðanirTitli 1. hluta er breytt þ.a. í stað fyrra heitisins, Skilgreining á vöruviðmiðunum og kerfismörkum án tillits til skiptanleika eldsneytis og raforku, heitir hann nú Skilgreining á vöruviðmiðunum og kerfismörkum án gagnasöfnunar um raforkunotkun.Til viðbótar eru nokkrar raðir í töflunni, þar sem vöruviðmiðanir fyrir ólíkar vörur eru taldar upp, uppfærðar. Engum nýjum vöruviðmiðunum hefur verið bætt við. Nýr 2. hluti er settur inn í stað þess sem var á undan. Titill hlutans er uppfærður í samræmi við titil 1. hluta (titlarnir eru þeir sömu). Annar dálkur töflunnar í 2. hluta, þar sem fram koma skilgreiningar á vörum sem falla undir vöruviðmiðanir, hefur verið uppfærð fyrir nokkrar vöruviðmiðanir og sömuleiðis þriðji dálkur, þar sem fram koma skilgreiningar á ferlum og losun sem fellur þar undir (kerfismörk). Engum nýjum vöruviðmiðunum hefur verið bætt við. (17)Viðauka III er skipt út, sbr. viðauka II í reglugerð þeirri sem hér er til greiningar.Í viðaukanum eru ýmsar formúlur til að reikna sögulegt starfsemisstig fyrir viðmiðanir sem um getur í 8. mgr. 15. gr. og f-lið 17. gr. Allar formúlurnar snúa að því hvernig reikna skal sögulegt starfsemisstig fyrir framleiðslu vara með vöruviðmiðanir, þ.a. ekki er um að ræða formúlur til grundvallar sögulegs starfsemisstigs fyrir undirstöðvar sem eru með varmaviðmiðun, eldsneytisviðmiðun eða losun frá ferlum.Allar formúlur hafa verið uppfærðar þannig að í stað meðaltals skal reikna miðgildi. Til viðbótar hefur tveimur formúlum verið bætt við, annars vegar til að reikna út raunlosun gróðurhúsalofttegunda frá framleiðslu vetnis og hins vegar viðbótarlosun sem tengist framleiðslu vetnis frá fræðilega tilbúnum koxgasumskiptahreyfli (e. theoretical complete water gas shift). (18)Viðauki IV er uppfærður í samræmi við viðauka III reglugerðar þeirrar er hér er til greiningar.Viðaukinn fjallar um hvaða gögnum skuli safna fyrir skýrslu um grunngögn (e. baseline data report).Í 1. hluta skulu koma fram almenn gögn um stöðvar.Punkti (d) um heildarnafnvarmaafl er bætt við í kafla 1.3. þar sem fram koma upplýsingar um starfsemi stöðvar.Kafla 1.4. skipt út. Áður fjallaði hann um rétt til úthlutunar án endurgjalds en nú um innleiðingu skilyrða í samræmi við 22. gr. a og 22. gr. b. Í honum kemur fram að í skýrslu um grunngögn skuli koma fram upplýsingar um hvort skilyrði í samræmi við fyrrnefndar greinar séu uppfyllt eða ekki, þ.e. um orkuúttekt og kolefnishlutleysisáætlun þar sem það á við. Í 2. hluta skulu koma fram nákvæm ársgögn fyrir hvert ár á grunntímabilinu. Þar hafa kaflar 2.3. um árlega stöðu innflutnings, framleiðslu, notkunar og útflutnings á varma í stöðinni, 2.4. um árlega skiptingu orku niður á undirstöðvar, 2.5. um árlega stöðu innflutnings, framleiðslu, notkunar og útflutnings á raforku í stöðinni, 2.6. um frekari gögn fyrir undirstöðvar, og 2.7. um árleg gögn um starfsemi fyrir undirstöðvar með vöruviðmiðun verið uppfærðir. Bæði hefur ýmsum liðum verið skipt út fyrir nýja og einhverjum nýjum liðum bætt við.3. hluti telur upp gögn sem skulu koma fram fyrir uppfærslu viðmiðunar. Þar taka kaflar 3.1. um ársgögn fyrir undirstöðvar með vöruviðmiðun og 3.2. um ársgögn fyrir undirstöðvar með varmaviðmiðun og undirstöðvar með fjarhitun breytingum. (19)Viðauki VI er uppfærður í samræmi við viðauka IV þessarar reglugerðar.Viðaukinn telur upp lágmarksinnihald áætlunar um aðferðafræði við vöktun (e. monitoring methodology plan). Tveir liðir, d-liður 1. liðar og a-liður 2. liðar, hafa verið uppfærðir. (20)Viðauki VII er uppfærður í samræmi við viðauka V þessarar reglugerðar.Viðaukinn fjallar um aðferðir til að vakta gögn.Kafli 4.2. um óhóflegan kostnað hefur verið uppfærður að því er varðar skilyrði til að lögbært stjórnvald telji kostnað vera óhóflegan. Ekki skal lengur miða við 20 evru kostnað við hverja losunarheimild heldur viðmiðunarverð sem kemur fram í 1. mgr. 18. gr. reglugerðar (ESB) 2018/2066.Kafla 9, um aðferðir til að rekja kóða vara í vöruskrá ESB, er uppfærður þannig að rekja skal CN kóða vara til viðbótar við kóða vara í vöruskrá ESB (e. PRODCOM code).10. kafla, um reglur til að ákvarða losun í undirstöð í þeim tilgangi að uppfæra viðmiðunargildi, er nokkuð breytt. Hvað varðar kafla 10.1. er b-lið í undirkafla 10.1.5. um skiptingu losunar til framleiðslu og notkunar á úrgangslofttegundum skipt út og þremur undirköflum er bætt við, 10.1.6. um losun vegna framleiðslu hágæðaíðefna vegna viðmiðunar fyrir gufusundrun, 10.1.7. um losun frá vetni fyrir vimiðun fyrir vínýlklóreinliður og 10.1.8. um losun fyrir viðmiðun vetnis. Hvað varðar kafla 10.2. um losun sem er skipt niður á undirstöðvar er e-lið bætt við 1. mgr. um ákvörðun rekstraraðila um skiptingu losunar frá hverri undirstöð. (21)Bætt er við viðauka VIII í samræmi við viðauka VI þessarar reglugerðar.Titill viðaukans er Ákvörðun hæfra sambandsríkja samkvæmt 3. mgr. 22. gr. b. Viðaukinn setur fram jöfnu um hvernig ákvaðað skuli hvaða sambandsríki geti fengið aukna úthlutun endurgjaldslausra heimilda í samræmi við 3. mgr. 22. gr. b til fjarhitunarstöðva og hvaða sambandsríki uppfylla viðmið til aukinnar úthlutunar. Ríkin sem geta fengið viðbótarúthlutun til fjarhitunarstöðva að uppfylltum skilyrðum 3. mgr. 22. gr. b skv. viðaukanum eru Búlgaría, Tékkland, Lettland og Pólland. 2. gr.Reglugerð þessi tekur gildi þegar hún er birt í lögbirtingarblaði Evrópusambandsins. Hún gildir um úthlutanir sem tengjast tímabilinu frá 1 janúar 2024. Eftirfarandi liðir 1. gr. reglugerðar þeirrar sem hér er til greiningar skulu þó gilda um úthlutun sem tengist tímabilinu frá 1. janúar 2026 fyrir nýja þátttakendur (e. new entrants) sem að skiluðu inn umsókn fyrir 31. desember 2023 og fyrir starfandi stöðvar (e. incumbent installations) en það eru:(1) um breytingar á 2. gr. í FAR, 4(a) um viðbót 2. mgr. a í 10. gr., 4(b) um nýja 3. mgr. 10. gr., 4(c)(ii) um viðbót 3. undirgreinar í 4. mgr. 10. gr., 4 (d)(i) um nýjan d-lið 5. mgr. 10. gr., 4 (d) ii um brottfall f-liðar 5. mgr. 10. gr., 4 (d)(iv) um brottfall k-liðar 5. mgr. 10. gr., 6 um breytingar á 15. gr., 7 um breytingar á 16. gr., 10 um nýjar 19., 20. og 21. gr., 11 um brottfall 22. gr., 16 um breytingar á viðauka I og 17 um nýjan viðauka III.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Efnislegri aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Á ekki við |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta |
Gera þarf breytingar á reglugerð nr. 606/2021 um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir, sbr. 10. gr. og 11. gr. laga nr. 96/2023 um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir. Heildaruppfærsla á reglugerð 606/2021 er í vinnslu. Athuga þarf hvort að þörf sé á breytingum á lögum nr. 96/2023 um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir, sér í lagi í tengslum við CBAM og mögulega upptöku CBAM reglugerðarinnar í EES samninginn. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur |
Með þeim breytingum sem að gerðar eru á reglugerð (ESB) 2019/331 með reglugerð (ESB) 2024/873 bætast ákveðin ný verkefni við störf lögbærs stjórnvalds, þ.e. Umhverfisstofnunar. Við umsóknir rekstraraðila um endurgjaldslausa úthlutun losunarheimilda, sem skilað er inn á fimm ára fresti, bætist vottunarskýrsla er varðar skýrslu um grunngögn, sem fara þarf yfir og meta. Á árinu 2024 er í fyrsta skipti þörf á samþykkt lögbærs stjórnvalds, þ.e. Umhverfisstofnunar, á skýrslu um grunngögn, en vegna tímaþröngar var slíks samþykkis ekki þörf þegar skýrslunni var síðast skilað inn árið 2019. Í þessu sambandi skal lögbært stjórnvald þegar við á, tryggja að öll frávik og/eða villur sem hafa áhrif á gögn um sögulegt starfsemisstig séu leiðrétt. Lögbært stjórnvald getur einnig farið fram á að rekstraraðilar skili inn fleiri gögnum en útlistuð eru í 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar. Í ákveðnum tilfellum þurfa rekstraraðilar að skila inn kolefnishlutleysisáætlun, sem er yfirfarin af lögbæru stjórnvaldi. Engir íslenskir rekstraraðilar þurfa að skila inn slíkri áætlun þegar þetta er skrifað. Ákveðin aukin verkefni fylgja skilum á kolefnishlutleysisáætlun fyrir rekstraraðila og lögbært stjórnvald en þau verða ekki listuð hér þar sem að þetta mun ekki eiga við um íslenska rekstraraðila að sinni. Í ákveðnum tilvikum þarf lögbært stjónvald að yfirfara og meta hvort að ferli ákveðinna undirstöðva þjóni framleiðslu vara sem teljast vera í áhættu á kolefnisleka eða falla undir reglugerð ESB 2023/956 um CBAM, en hún hefur ekki verið tekin upp í EES samninginn eða innleidd í íslenskan rétt þegar þetta er skrifað. Sjá frekari umfjöllun í kaflanum að ofan um mat á áhrifum. Á fimm ára fresti skulu aðildarríki skila inn lista til Framkvæmdastjórnar ESB í samræmi við 1. mgr. 11 gr. ETS tilskipunarinnar, á þennan lista bætast nú ákveðin atriði svo sem: starfsstöðvar sem að aðeins eru í ETS kerfinu í tilgangi 14. gr. og 15. gr. ETS tilskipunarinnar; mat lögbærs stjórnvalds á skerðingu úthlutunar endurgjaldslausra losunarheimilda um 20% í samræmi við 22. gr. a og 1. mgr. 22. gr. b. í reglugerðinni; upplýsingar um hvort skilyrði tengd auka 30% úthlutun í samræmi við 3. mgr. 22. gr. b um úthlutun til fjarhitunarstöðva (e. district heating sub installations) séu uppfyllt ef við á; upplýsingar um hvort upplýsingar um hvort að framleiddar vörur séu tilteknar í viðauka I við CBAM reglugerðina, ef við á. Líkt og áður segir hefur CBAM reglugerðin ekki verið tekin upp í EES samninginn eða verið innleidd í íslenskan rétt þetta er skrifað. Framkvæmdastjórn ESB gat farið fram á að fá aðgang að ákveðnum skýrslum frá aðildarríkjum, nú bætast við þetta ákveðnar áætlanir. Aðildarríki skulu nú sjá til þess að umframheimildum sem úthlutað er sé skilað. Ef þeim er ekki skilað skal lögbært stjórnvald fara fram á við landstjórnanda skráningarkerfisins að umframheimildirnar séu dregnar frá þeim heimildum sem úthlutað verður til rekstraraðila. Í samræmi við ákvæði ETS tilskipunarinnar skal úthlutun endurgjaldslausra losunarheimilda skert um 20% ef að rekstraraðili getur ekki sýnt fram á að hann hafa uppfyllt þau skilyrði sem sett eru fram í 8. gr. tilskipunar (ESB) 2012/27. Líkt og áður segir hefur tilskipunin ekki verið tekin upp í EES samninginn eða innleidd í íslenskan rétt. Ákveðnar undantekningar eru á þessu sem kalla á frekari verkefni lögbærs stjórnvalds, sbr. nýja 22. gr. a. í FAR. Ljóst er að frekari skoðunar er þörf á ákvæðum er tengjast orkuúttekt og orkustjórnunarkerfi og hvort að gæti komið til skerðingar í því sambandi á árinu 2024 eða ekki. Nánara kostnaðarmat vegna þeirrar heildaraukningar sem verður á verkefnum Umhverfisstofnunar vegna breytinga á ETS kerfinu verður tekið saman síðar. |
|---|---|
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Aukakostnaður |
| Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands |
Þær breytingar sem gerðar eru á reglugerð (ESB) 2019/331 með reglugerð (ESB) 2024/873 munu hafa áhrif á rekstraraðila á Íslandi. Helst má nefna eftirfarandi atriði: Með umsókn um úthlutun endurgjaldslausra losunarheimilda skulu rekstraraðilar nú skila inn vottunarskýrslu vegna skýrslna um grunngögn (e. baseline data report) og í ákveðnum tilvikum skulu rekstraraðilar einnig skila inn kolefnishlutleysisáætlun í samræmi við 22. gr. b. Engir rekstraraðilar á Íslandi þurfa að skila inn kolefnishlutleysisáætlun þegar þetta er skrifað. Ákveðin aukin verkefni fylgja skilum á kolefnishlutleysisáætlun, bæði fyrir rekstraraðila og lögbært stjórnvald en þau verða ekki listuð hér þar sem að þetta mun ekki eiga við um íslenska rekstraraðila að sinni. Íþyngjandi er fyrir rekstraraðila og vottunaraðila á þessum tímapunkti að skila inn vottaðri skýrslu um grunngögn þar sem skilafresturinn til að sækja um úthlutunarheimildir er til 30. maí nk. Lögbært stjórnvald hefur svigrúm til að flýta eða fresta skilafrestinum um einn mánuð og hefur Umhverfisstofnun ákveðið að fresta honum til 30. júní. Það bætist við hvað varðar undirstöðvar með varmaviðmiðanir, eldneytisviðmiðanir (e. fuel benchmark) eða losun frá ferlum, að rekstraraðilar skulu greina á milli, með notkun (e. based on) CN kóða á skýran hátt og sýna lögbæru stjórnvaldi fram á með fullnægjandi hætti, hvort að viðeigandi ferli þjóni (e. serves) framleiðslu vara sem listaðar eru í viðauka I í reglugerð ESB 2023/956 um CBAM. Það sama á við um undirstöðvar með vöruviðmiðanir. Reglugerð um CBAM ekki verið tekin upp í EES samningin eða innleidd í íslensk lög þegar þetta er skrifað. Einnig bætist við reglugerðina að ef starfsstöð sem fellur undir ETS hefur framleitt mælanlegan varma og flutt til rekstraraðila sem eru ekki í ETS kerfinu, skal rekstraraðili sýna fram á hversu mikið af honum sé notað til framleiðslu á vörum sem falla undir viðauka I í reglugerð (ESB) 2023/956 um CBAM. Ef ekki sýnt fram á það skal gert ráð fyrir því að allur varminn sé nýttur til framleiðslu vara er falla undir viðauka I í reglugerð (ESB) 2023/956 um CBAM. Í samræmi við ákvæði ETS tilskipunarinnar skal úthlutun endurgjaldslausra losunarheimilda skert um 20% ef að rekstraraðili getur ekki sýnt fram á að hann hafi uppfyllt þau skilyrði sem sett eru fram í 8. gr. tilskipunar (ESB) 2012/27 um orkuúttekt og orkustjórnunarkerfi. Sú tilskipun hefur ekki verið tekin upp í EES samninginn eða innleidd í íslenskan rétt þegar þetta er skrifað. Ákveðnar undaþágur eru frá þessari skerðingu um 20%, sem tilgreindar eru í nýrri 22. gr. a. FAR. Í því sambandi skal rekstraraðili koma á og innleiða, skrá og viðhalda ferlum til að innleiða tilmæli og, þegar við á, sýna fram á beitingu þeirra skilyrða sem útlistuð eru hvað varðar undanþágur frá skerðingu heimilda um 20%. Í samræmi við ákvæði ETS tilskipunarinnar skal úthlutun endurgjaldslausra losunarheimilda einnig skert um 20% ef rekstraraðili er skyldugur til að skila inn kolefnishlutleysisáætlun skv. 22. gr. b en gerir það ekki. Einhverjar undanþágur eru frá þessari skerðingu um 20%, sem tilgreindar eru í 22. gr. b. Í 3. mgr. sömu greinar koma fram skilyrði til rekstraraðila fjarhitunarstöðva (e. district heating sub-installations) til að þeir geti sótt um 30% viðbótarúthlutun, en skv. nýjum viðauka VIII, sem bætt er við í samræmi við viðauka VI þessarar reglugerðar, geta aðeins rekstraraðilar fjarhitunarstöðva í Búlgaríu, Tékklandi, Litháen og Póllandi sótt um slíka viðbótarúthlutun endurgjaldslausra losunarheimilda. Engir rekstraraðilar á Íslandi falla undir skyldu til að skila inn kolefnishlutleysisáætlun í samræmi við 1. eða 3. mgr. 22. gr. b, að minnsta kosti ekki eins og er, og mun hún því ekki hafa áhrif á rekstraraðila hér á landi. Ef starfsstöð hættir starfsemi skal aðildarríki gefa út losunarheimildir fyrir það almanaksár frá þeim degi sem starfsemi er hætt (e. following the day of cessation), en ekki frá árinu eftir að starfsemi var hætt líkt og áður var. Ákveðnum reiknireglum fyrir sögulegt starfsemisstig og úthlutun endurgjaldslausra losunarheimilda út frá því er breytt. Hvað varðar sögulegt starfsemisstig undirstöðva er það nú reiknað út frá miðgildi starfsemisstigs á viðmiðunartímabilinu (síðustu fimm almanaksár áður en úthlutun fyrir næsta úthlutunartímabil fer fram) en ekki meðaltali eins og áður var. Hvað varðar úthlutun endurgjaldslausra losunarheimilda til undirstöðva með losun frá ferlum (e. process emissions sub-installation) verður stuðullinn sem notaður er til að reikna út úthlutun byggða á sögulegu starfsemisstigi lækkaður úr 0,97 í 0,91 frá 2028, þannig að lægra hlutfall af losunarheimildum verður úthlutað endurgjaldslaust til þeirra undirstöðva. |
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Umhverfis- og orkustofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32024R0873 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2024/873, 4.4.2024 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| Dagsetning tillögu ESB | |
|---|---|
| C/D numer | C(2024)0441 |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
|---|---|
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 46, 24.7.2025, p. 28 |
| Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2025/1368, 24.7.2025 |
Breytir (Modifies)
| 32019R0331 | amends | Commission Delegated Regulation (EU) 2019/331 of 19 December 2018 determining transitional Union-wide rules for harmonised free allocation of emission allowances pursuant to Article 10a of Directive 2003/87/EC of the European Parliament and of the Council | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 32003L0087 | based on | Directive 2003/87/EC of the European Parliament and of the Council of 13 October 2003 establishing a scheme for greenhouse gas emission allowance trading and amending Council Directive 96/61/EC | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
