32024R0994

Commission Implementing Regulation (EU) 2024/994 of 2 April 2024 laying down operational details of the product database established under Regulation (EU) 2017/1369 of the European Parliament and of the Council


iceland-flag
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/994 frá 2. apríl 2024 um rekstrarleg atriði varðandi vörugagnagrunninn sem komið var á fót samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/1369
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.04 Heimilistæki
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 269/2025
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu Já

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Þetta er ný reglugerð þar sem mælt er fyrir um rekstrarupplýsingar vörugagnagrunnsins sem komið er á fót samkvæmt reglugerð (ESB) 2017/1369. Hún setur fram upplýsingar um virkni vörugagnagrunnsins sem stofnaður var í samræmi við 12. gr. reglugerðar (ESB) 2017/1369 og veitir nákvæmar reglur sem gilda um birgja sem setja á markað Sambandsins:

Orkutengdar vörur sem falla undir framseldar gerðir til viðbótar við reglugerð (ESB) 2017/1369 og tilskipun Evrópuþingsins 2010/30/ESB og ráðsins,
Hjólbarða sem falla undir reglugerð Evrópuþingsins (ESB) 2020/740 og frá ráðinu eða með framseldum gerðum til viðbótar við hana.

Nánari efnisumfjöllun

Þessar virkniupplýsingar og reglur tengjast:Sannprófunarferlinu sem gerir einstaklingum og lögaðilum kleift að staðfesta birgja og til að tryggja trúnað og áreiðanleika upplýsinga skráða af þeim,Upplýsingar sem þarf til að skrá vörur,Gagnaskiptalíkön og stjórnun hugbúnaðarútgáfu,Aðgengi að kerfinu og gögnunum.Í samræmi við 12. grein reglugerðar (ESB) 2017/1369 setti framkvæmdastjórnin í gagnið EPREL-vörugagnagrunninn. Hann samanstendur af tveimur hlutum: opnum hluta sem veitir frjálsan aðgang að opinberum upplýsingum um vörur sem settar eru á markað Sambandsins, og samræmiskerfi þar sem birgjar veita bæði almennar og tæknilegar upplýsingar um þessar vörur. Markaðseftirlitsyfirvöld aðildaríkjanna geta nálgast þessar upplýsingar í vörugagnagrunninum. EPREL veitir upplýsingar um orkutengdar vörur sem falla undir framseldar gerðir samþykktar samkvæmt reglugerð (ESB) 2017/1369, samkvæmt tilskipun 2010/30/ESB Evrópuþingsins og ráðsins og um hjólbarða undir reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/740.Til að tryggja áreiðanleika upplýsinga og til að tryggja að þær komi frá traustum heimildum, þarf að setja upp kerfi til að sannreyna auðkenni vara í EPREL. Vegna þúsunda birgja í ólíkum aðildaríkjum sem skrá vörur í EPREL ætti sannprófun á auðkenni þeirra að vera í samræmi við viðeigandi löggjöf ESB og alþjóðlega staðla og ætti að vera rafræn. Eins og skilgreint er í 2. grein reglugerðar (ESB) 2017/1369 verða birgjar að verða stofnaðir í Sambandinu. Sönnun um stofnun birgis innan Sambandsins ætti einnig að vera rafræn. Aðeins birgjar sem hafa lokið sannprófunarferlinu í EPREL og sannað auðkenni sitt og land, ættu að geta skráð nýjar vörur, breytt núverandi skráningum eða framkvæmt aðrar aðgerðir á vörum sem skráðar eru af þeim.Skilyrði  þess að birgir sé annað hvort einstaklingur eða lögaðili ætti að vera staðfest í samræmi við landslög. birgir ætti að framkvæma rafrænt sannprófunarferli með það fyrir augum að leggja fram staðfestingu fyrir auðkenni þeirra og starfsstöð í Sambandinu til að skrá viðkomandi vöru áður en þær eru settar á markað.Viðurkenndir þjónustuaðilar ættu að hafa hæfilegan tíma frá gildisdagssetningu þessarar reglugerðar til að laga, ef nauðsyn krefur, verklagsreglur og hugbúnað til að búa til fullgild vottorð fyrir rafræn innsigli sem innihalda nauðsynlegar upplýsingar til að sannreyna bæði auðkenni birgja og staðsetningu þeirra innan ESB.Til að styrkja virkni EPREL geta innlend markaðseftirlitsyfirvöld haft beint samband við birgja til að biðja um frekari tæknilegar upplýsingar eða til að ráða bót á vanefndum. Birgjar ættu því að gefa upp sérstaka tengiliði í samræmishluta EPREL fyrir hverja vörutegund. Við skráningu vöru þarf birgir ekki að gefa upp lokadagsetningu þegar setja á hana á markað. Hins vegar, í samræmi við 4. mgr. 4. gr. reglugerðar (ESB) 2017/1369 ætti birgjar að gefa til kynna í gangagrunninum hvenær þeir eru ekki lengur á markaði. Skráning vörunnar ætti því að vera uppfærð með þeim upplýsingum innan hæfilegs tíma eftir að birgir hefur tekið ákvörðun um að setja ekki lengur einingar af þeirri gerð á markað.Í 5. gr. reglugerðar (ESB) 2017/1369 er gerð krafa um að söluaðilar sýni orkumerkingar birgja, þar á meðal fyrir fjarsölu á netinu og að hafa vöruupplýsingablöð aðgengileg fyrir viðskiptavini. Sérstakar kröfur í tengslum við upplýsingarnar sem veita skal í sjónrænum auglýsingum, í tæknilegu kynningarefni, í fjarsölu, þar með talið fjarsölu í gegnum internetið, eru einnig sett á hvern vöruflokk fyrir sig. Til að auðvelda að uppfylla þessar skyldur ættu birgjar að senda söluaðilum eða dreifingaraðilum EPREL skráningarnúmer sem er nauðsynlegt til á fá rafrænt réttan orkumerkimiða og vöruupplýsingablað sem er fáanlegt á öllum opinberum tungumálum í EPREL. 

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Nei
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Setja þarf nýja reglugerð sem innleiðir ofangreinda reglugerð. Lagastoð er í lögum nr. 72/1994 um merkingar og upplýsingaskyldu varðandi vörur sem tengjast orkunotkun.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32024R0994
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2024/994, 2.4.2024
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D093413/02
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 26, 16.4.2026, p. 28
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2026/670, 16.4.2026

Breytir (Modifies)

32017R1369 based on Regulation (EU) 2017/1369 of the European Parliament and of the Council of 4 July 2017 setting a framework for energy labelling and repealing Directive 2010/30/EU Tekin upp í EES-samninginn og í gildi