32024R1281
Commission Implementing Regulation (EU) 2024/1281 of 7 May 2024 amending Implementing Regulation (EU) 2020/1208 on structure, format, submission processes and review of information reported by Member States pursuant to Regulation (EU) 2018/1999 of the European Parliament and of the Council
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.

Gerð ekki til á íslensku
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, bókun) | 31 um samvinnu á sérstökum sviðum utan marka fjórþætta frelsisins |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Reglugerð ESB 2024/1281 breytir reglugerð ESB 2020/1208 sem fjallar um umgjörð og framkvæmd losunarbókhaldsins en hún gildir að hluta til um EES EFTA ríkin, sbr. JCD 223/2021. Vegna þessa eiga ekki allar þær greinar sem taka breytingum með reglugerð ESB 2024/1281 við um Ísland, þ.e. 5. gr. reglugerðar ESB 2020/1208 og viðauki II.
Breytingar sem fram koma í reglugerð 2024/1281 eru að mestu leiti tæknilegar og hafa ekki bein áhrif á framkvæmd og utanumhald losunarbókhalds, né á núverandi skuldbindingar Íslands.

Nánari efnisumfjöllun
Reglugerð ESB 2024/1281 er sett á grundvelli 19., 26. og 38 . gr. reglugerðar ESB 2018/1999, sem hefur verið tekin upp í EES samninginn að hluta til, 19. gr. hefur t.d. ekki verið tekin upp í samninginn, sbr. JCD 269/2019.Reglugerð ESB 2024/1281 breytir reglugerð ESB 2020/1208 sem fjallar um umgjörð og framkvæmd losunarbókhaldsins en hún gildir einnig að hluta til um EES EFTA ríkin, sbr. JCD 223/2021. Vegna þessa eiga ekki allar þær greinar sem taka breytingum með reglugerð ESB 2024/1281 við um Ísland, þ.e. 5. gr. reglugerðar ESB 2020/1208 og viðauki II.Breytingar sem fram koma í reglugerð 2024/1281 eru að mestu leiti tæknilegar og hafa ekki bein áhrif á framkvæmd og utanumhald losunarbókhalds, né á núverandi skuldbindingar Íslands. Breytingar sem eiga við fyrir Ísland eru m.a. eftirfarandi: Nýrri ítarlegri úttekt árið 2025 var bætt við í reglugerð ESB 2018/1999, þegar henni var breytt með reglugerð ESB 2023/839 sem ekki hefur verið tekin upp í EES samninginn. Vegna þessa er nú vísað í þessa úttekt á árinu 2025 í 30. og 32. gr. reglugerðar ESB 2020/1208, með þeirri gerð sem hér er til greiningar.Samræming á orðalagi við uppfærða reglugerð ESB 2018/842 (ESR Reglugerð – e. Effort Sharing Regulation ) og tilskipun 2003/87/EB (ETS tilskipun).Annex XV reglugerðar 2020/1281, þar sem settar eru fram reiknireglur til að ákveða ESR hluta losunar, er breytt með því að bæta við línu fyrir neikvæða losun sem kemur til vegna föngunar og förgunar á koldíoxíð vegna bruna á lífmassa eða vegna föngunar og förgunar á koldíoxíð af lífrænum uppruna. Eins og er fellur þess háttar tækni ekki undir gildissvið ESR reglugerðarinnar og þarf því að taka tillit til hennar þegar ESR talan er reiknuð. Að svo stöddu er engin slík starfsemi á Íslandi og þ.a.l. hefur þessi breyting ekki áhrif á skuldbindingar Íslands eins og er. Þó er vert að nefna að starfsemi eins og Direct Air Capture fellur ekki undir ETS tilskipunina, né reglugerðir ESB 2018/842 og 2018/841, sbr. 19. gr. formálsorða reglugerðar ESB 2024/1281, því gæti Ísland ekki nýtt sér slíka föngun og förgun til tekna í losunarbókhaldi, eins og staðan er núna.
Yfirlit yfir allar helstu breytingar: Uppfærð tilvisun í UNFCCC ákvörðun vegna skilgreiningaMeð 1. mgr. 1. gr. reglugerðar ESB 2024/1281 er uppfærð tilvísun í ákvörðun Rammasamningsins um loftslagsbreytingar (e. UNFCCC) þar sem það kom ný ákvörðun (Ákvörðun 5/CMA.3) á COP28 árið 2021, sem setur fram hvernig eigi að útfæra losunarbókhaldið skv. Parísarsamningnum.Breytingar á skilum á upplýsingum um notkun uppboðsteknaMeð 2. og 5. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar eru gerðar breytingar á orðalagi og uppsetningu á töflum varðandi upplýsingar sem aðildaríkjum ESB ber að skila til Framkvæmdastjórnar ESB um notkun uppboðstekna. Þessar breytingar varða 5. gr. og í II. viðauka við reglugerð (ESB) 2020/1208, en sú grein og sá viðauki voru ekki tekin upp í EES samninginn, sbr. JCD 223/2021. Ítarleg úttekt (e. Comprehensive review) árið 2025Reglugerð (ESB) 2018/1999 (e. Governance Regulation) var breytt með reglugerð ESB 2023/839 og var þá m.a. bætt við að á árið 2025 verður framkvæmd ítarleg úttekt (e. Comprehensive Review) á losunartölum til að reikna árlegar losunarúthlutanir skv. reglugerðum ESB 2018/842 (Effort Sharing Regulation – eins og henni var breytt með reglugerð 2023/857) og ESB 2018/841 (LULUCF Regulation – eins og henni var breytt með reglugerð 2023/839). Með 3. og 4. mgr. 1. gr. reglugerðar 2024/1281 er verið að bæta við tilvísunum í ítarlega úttekt árið 2025. Hér má þó benda á að reglugerð ESB 2023/839 hefur ekki verið tekin í EES samningnum þegar þetta er skrifað og því hefur ítarleg úttekt 2025 ekki verið innleidd fyrir EES EFTA ríkin. Því er óljóst hvað gerist varðandi úttekt árið 2025 ef ekki verður búið að taka reglugerð 2023/839 upp í EES samninginn þegar úttektin á að fara fram.Samræming við uppfærða Tilskipun 2003/87/EB Með uppfærslu á ETS tilskipuninni innan „Fit for 55“ rammans var gildissvið ETS tilskipunar breytt til að ná yfir losun frá sjóflutningum (e. maritime transport). Hins vegar breytist gildissvið ESR reglugerðarinnar ekki og telst því losun frá innanlandssiglingum enn undir ESR; einnig er bætt við skýringu á að CO2 losun vegna notkunar lífmassa í starfsemi sem fellur undir ETS tilskipunina teljist sem núll í tilgangi viðauka XII (e. for the purposes of Annex XII) við reglugerð ESB 2020/1281. Þessum tveimur atriðum er bætt við í neðanmálsgrein í viðauka XII og XV við reglugerð ESB 2020/1281 skv. 6. og 7. mgr. 1. gr. reglugerðar 2024/1281. Einnig er búið að bæta við nákvæmum dagsetningum sem á að miða við varðandi upplýsingar úr viðskiptadagbók ESB (e. EU Transaction Log).Neikvæð losun frá föngun á koldíoxið vegna brennslu lífmassa og á koldíoxíð af lífrænum uppruna í iðnaðarferlum – áhrif á ESR losunÞegar verið er að fanga CO2 frá brennslu lífmassa eða frá CO2 af lífrænum uppruna í iðnaðarferlum og geyma það varanlega eru áhrifin þannig að heildarlosun minnkar því kolefnið er tekið úr kolefnishringrás - og þetta telst sem neikvæð losun í losunarbókhaldinu. Hins vegar er upptaka (e. removals) hvorki innan gildissviðs ETS tilskipunar né innan gildissviðs ESR reglugerðar en verið er að móta nýjan lagaramma í kringum það. Á meðan sá rammi er ekki kominn til framkvæmdar er ekki leyfilegt að draga neikvæða losun frá ESR og þetta er sett skýrt fram með 7. mgr. 1. gr. reglugerðar 2024/1281, með uppfærslu á viðauka XV við reglugerð 2020/1208, þar sem bætt er við einni línu (Ca), og útreikningar á ESR (í línu F) breytast.Upplýsingar sem varða uppgjör á losun frá landnotkun, breyttri landnotkun og skógræktReglugerð (ESB) 2018/841 setur fram uppgjörsreglur fyrir mismunandi landnýtingarflokka. Með 8. mgr 1. gr reglugerðar ESB 2024/1281 eru gerðar breytingar á viðauka XX. Þar er gerð breyting á neðanmálsgrein 1 við töflu 1a, nú kemur þar fram að aðildarríki eru hvött til að gefa árlega þær upplýsingar sem tilteknar eru í viðauka XX, þar með talið upplýsingar í töflu 1b. Slíkar upplýsingar myndu auðvelda Framkvæmdarstjórninni að meta framvindu aðildarríkja við að ná markmiðum sínum samkvæm 4. gr. reglugerðar ESB 2018/841. Eins er verið að bæta við neðanmálsgrein í töflu 1a í viðaukanum, í henni kemur fram að ríkjum er heimilt að sleppa því að setja losunartölur í þessar töflur, og megi í stað þess vísa í tölulegar upplýsingar sem hægt er að finna í sameiginlegum skýrslugjafatöflum (e. Common Reporting Tables (CRT). Einnig er einni línu bætt í töflu 1a í þessum viðauka en sú lína varðar tölur vegna skógarhöggsafurðar sem notaðar eru í pappírsframleiðslu, en þar sem engin pappírsframleiðsla fer fram á Íslandi hefur þessi breyting engan áhrif á Ísland.Tímalína fyrir ítarlega úttekt og atriði varðandi tæknilegar leiðréttingar (e. technical corrections) sem hluti af ítarlegri úttektEins og nefnt er hér að ofan bættist við ítarleg úttekt árið 2025; Viðauka XXII við reglugerð 2020/1208 er því breytt með 9. mgr. 1. gr. reglugerðar ESB 2024/1281 hvað þetta varðar. Einnig eru skilyrði varðandi tæknilegar leiðréttingar umorðaðar en hefur það engin efnisleg áhrif á gerðina.Skil á upplýsingum um framreikningaMeð breytingu sem gerð var á LULUCF reglugerðinni, með reglugerð ESB 2023/839, verða uppgjörsreglur mismunandi á fyrra og á seinna tímabilinu (2021-2025 vs. 2026-2030). Á fyrra tímabili er notast við sér „accounting categories“, sem endurspegla ekki beint undirflokka sem notaðir eru í UNFCCC kerfinu, en á seinna tímabili mun uppgjörið hverfa frá þeim og einungis nota flokkunarkerfi UNFCCC. Vegna þessa eru gerðar smávægilegar breytingar á orðalagi í töflum 1a og 5b í viðauka XXV við reglugerð ESB 2020/1281 (sbr. 10. mgr. 1. gr. reglugerðar 2024/1281). Töflum 1b og 5a verður eytt frá og með 1 Janúar 2028 (sbr. 11. mgr. 1. gr og 2. gr. reglugerðar ESB 2024/1281.

Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Tæknilegri aðlögun, Efnislegri aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Nei |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Nei |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Nei |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Það er ekki með öllu skýrt hvort eða hvernig reglugerð ESB 2020/1208 var innleidd hér á landi, en henni er breytt með reglugerð ESB 2024/1281, sem hér er til greiningar. Réttast væri að innleiða báðar þessar reglugerðir á sama hátt, þ.e. í reglugerð. Í því sambandi þarf að tryggja að lagastoð í 3. mgr. 6. gr. laga nr. 70/2012 um loftslagsmál sé fullnægjandi. Um þetta er fjallað með ágætum hætti í greiningu Umhverfisstofnunar á reglugerð ESB 2020/1208, sem finna má í EES gagnagrunninum. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Innan fjárhagsáætlunar |
|---|
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Umhverfis- og orkustofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32024R1281 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2024/1281, 17.5.2024 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| Samþykktardagur i ESB |
|---|
Breytir (Modifies)
| 32020R1208 | amends | Commission Implementing Regulation (EU) 2020/1208 of 7 August 2020 on structure, format, submission processes and review of information reported by Member States pursuant to Regulation (EU) 2018/1999 of the European Parliament and of the Council and repealing Commission Implementing Regulation (EU) No 749/2014 | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 32018R1999 | based on | Regulation (EU) 2018/1999 of the European Parliament and of the Council of 11 December 2018 on the Governance of the Energy Union and Climate Action, amending Regulations (EC) No 663/2009 and (EC) No 715/2009 of the European Parliament and of the Council, Directives 94/22/EC, 98/70/EC, 2009/31/EC, 2009/73/EC, 2010/31/EU, 2012/27/EU and 2013/30/EU of the European Parliament and of the Council, Council Directives 2009/119/EC and (EU) 2015/652 and repealing Regulation (EU) No 525/2013 of the European Parliament and of the Council | Gerð í skoðun hjá EES EFTA-ríkjunum |