32024R1487

Commission Regulation (EU) 2024/1487 of 29 May 2024 defining data requirements for the approval of safeners and synergists and establishing a work programme for the gradual review of safeners and synergists on the market in accordance with Regulation (EC) No 1107/2009 of the European Parliament and of the Council


iceland-flag
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1487 frá 29. maí 2024 um að skilgreina gagnakröfur vegna samþykkis fyrir eiturdeyfum og samverkandi efnum og um að koma á vinnuáætlun um endurskoðun í áföngum á eiturdeyfum og samverkandi efnum sem eru á markaðnum í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1107/2009
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 285/2024
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu Já

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Með þessari reglugerð er verið að koma á fót vinnuáætlun varðandi endurskoðun í áföngum á eiturdeyfum og samverkandi efnum, sbr. 26. gr. reglugerðar (EB) nr. 1107/2009. Einnig eru skilgreindar kröfur sem gögn sem fylgja umsókn um samþykki fyrir eiturdeyfum og samverkandi efnum í plöntuverndarvörum þurfa að uppfylla. Í I. viðauka við reglugerðina er vinnuáætlunin fyrir endurskoðun í áföngum á eiturdeyfum og samverkandi efnum, sem voru í notkun í plöntuverndarvörum þann 19. júní 2024.
Reglugerðin tók gildi á 20. degi eftir birtingu hennar í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins, sem var 29. maí 2024.

Nánari efnisumfjöllun

Listi, sem ekki er tæmandi, af eiturdeyfum og samverkandi efnum í plöntuverndarvörum með markaðsleyfi í aðildarríkjum þegar reglugerðin tók gildi, hefur verið aðgengilegur á vef Evrópusambandsins frá 19. júlí 2024. Hver sem er sem hefur í hyggju að sækja um samþykki eiturdeyfis eða samverkandi efnis á listanum getur sent inn beiðni um að viðkomandi eiturdeyfir eða samverkandi efni verði færð inn í vinnuáætlunina til 19. júní 2025. Þegar sá frestur er liðinn mun framkvæmdastjórnin ákvarða með reglugerð að þeir eiturdeyfar og samverkandi efni, sem engin beiðni barst fyrir, munu ekki verða færð í vinnuáætlunina. Framkvæmdastjórnin skal samþykkja vinnuáætlunina fyrir 19. desember 2025 með því að gera breytingu á I. viðauka við reglugerðina þannig að þeir eiturdeyfar og samverkandi efni sem eru í vinnuáætluninni færist yfir á listann í I. viðauka. Jafnframt verða tilnefnd skýrslugjafaraðildarríki og meðskýrslugjafaraðildarríki fyrir hvert þeirra.Umsókn um samþykki eiturdeyfa og samverkandi efna í I. viðauka við reglugerðina er hægt að senda til tilnefndra skýrslugjafaraðildarríkja og meðskýrslugjafaraðildarríkja hvenær sem er til og með 19. júní 2028. 

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Já

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Innleiða þarf þessa framkvæmdarreglugerð með tilvísunaraðferð með því að breyta reglugerð nr. 544/2015 um plöntuverndarvörur.
Lagaheimild er í 3. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur Aukakostnaður við greiningu gerða, sem fellur á Umhverfisstofnun.
Mögulega aukakostnaður vegna þjálfunar starfsmanns við mat á eiturdeyfum og samverkandi efnum.
Áætlaður kostnaður hins opinbera Aukakostnaður
Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands Innleiðing reglugerðarinnar felur í sér að mat á eiturdeyfum og samverkandi efnum til notkunar í plöntuverndarvörum. Slíkt mat mun leiða til samþykkis eða synjunar á notkun efnanna, sem mun líklega verða gert með reglugerð eða ákvörðun, sem þarf að innleiða hér á landi. Það mun hafa í för með sér aukakostnað við greiningar gerða, sem fellur á Umhverfisstofnun.
Vinna við að meta eiturdeyfa og samverkandi efni til samþykktar til notkunar í plöntuverndarvörum verður unnin af aðildarríkjum ESB/EFTA svo hugsanlega mun Ísland fá beiðni um að vinna slíkt mat. Þekkingin til að vinna slíka vinnu er ekki fyrir hendi hjá Umhverfisstofnun. Þjálfa þyrfti upp nýjan starfsmann til að geta sinnt verkefninu. Það myndi hafa í för með sér aukinn kostnað við þjálfunina en vinna við sjálft matið yrði greidd af umsækjanda.

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfis- og orkustofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32024R1487
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2024/1487, 30.5.2024
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 25, 24.4.2025, p. 61
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2025/553, 24.4.2025

Breytt af (Modified by)

32025R2274 amends Commission Regulation (EU) 2025/2274 of 12 November 2025 amending Regulation (EU) 2024/1487 as regards the adoption of the work programme for the gradual review of safeners and synergists Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

Breytir (Modifies)

32009R1107 based on Regulation (EC) No 1107/2009 of the European Parliament and the Council of 21 October 2009 concerning the placing of plant protection products on the market and repealing Council Directives 79/117/EEC and 91/414/EEC Tekin upp í EES-samninginn og í gildi