Breyting á reglugerð 2019/1009 varðandi fjölliður í efnisþáttaefniviðaflokki 1 - 32024R2790

Commission Delegated Regulation (EU) 2024/2790 of 23 July 2024 amending Annex II to Regulation (EU) 2019/1009 of the European Parliament and of the Council as regards the polymers in Component Material Category 1


iceland-flag
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2790 frá 23. júlí 2024 um breytingu á II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1009 að því er varðar fjölliður í efnisþáttaefniviðaflokki 1
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Tegund gerðar Reglugerð
Nánari tegund gerðar Framseld reglugerð
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.14 Áburður
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 091/2025
Samþykktardagur ákvörðunar sameiginlegu nefndarinnar
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu Já

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2790 frá 23. júlí 2024 um breytingu á II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1009 að því er varðar fjölliður í efnisflokki 1

Nánari efnisumfjöllun

Í reglugerð (ESB) 2019/1009 er mælt fyrir um reglur um að bjóða ESB-áburðarvörur fram á markaði. Samkvæmt kröfunum sem varða efnisþáttaefniviðaflokka 8 og 9, sem mælt er fyrir um í II. hluta II. viðauka reglugerðarinnar, mega ESB-áburðarvörur innihalda tilteknar fjölliður.Örsmáir hlutar tilbúinna eða efnafræðilega umbreyttra náttúrulegra fjölliðna, sem eru óleysanlegar í vatni, brotna mjög hægt niður og auðvelt er fyrir lífverur að neyta þeirra. Þetta veldur áhyggjum af almennum áhrifum þeirra á umhverfið og hugsanlega á heilbrigði manna. Þetta á sérstaklega við um fjölliður sem er bætt af ásetningi í ESB-áburðarvörur sem eru síðan losaðar út í umhverfið. Þess vegna er sett fram skuldbinding framkvæmdastjórnarinnar í reglugerð (ESB) 2019/1009 um að meta, eigi síðar en 16. júlí 2024, viðmiðanir fyrir lífbrjótanleika tveggja flokka fjölliðna sem tilheyra efnisþáttaefniviðaflokki 9: fjölliður sem stjórna gegnflæði vatns yfir í næringarefnaagnir og þar með losun næringarefna („húðunarefna“) og fjölliður sem auka vatnsheldni eða væti vörunnar („vatnsheldnifjölliður“).Framkvæmdastjórnin samþykkti 23. júní 2021 framselda reglugerð (ESB) 2021/1768 um að bæta við nýjum fjölliðum í 1. og 11. undirflokk. Þær fjölliður eru oftast notaðar sem tæknileg aukefni, til að auka landbúnaðarfræðilega skilvirkni eða öryggi varanna. Í því skyni að greina hvaða fjölliður valda engum umhverfisvandamálum og því ætti að fella þær inn í efnisþáttaefniviðaflokka 1 og 11 tók framkvæmdastjórnin tillit til vísindalegra álita sem áhættumatsnefndin gaf út og nefndar um félagshagfræðilega greiningu Efnastofnunar Evrópu í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um hvers konar örplastagnir sem bætt er við vörur til neytenda eða faglegra nota. Því má einungis nota náttúrulegar fjölliður, sem hafa ekki verið efnafræðilega umbreyttar, lífbrjótanlegar fjölliður eða leysanlegar fjölliður, sem efni í efnisþáttaefniviðaflokki 1 eða 11.Framkvæmdastjórnin samþykkti reglugerð (ESB) 2023/2055 þar sem innleiddar eru almennar takmarkanir í reglugerð (EB) nr. 1907/2006 um að setja tilbúnar öragnir fjölliða á markað. Tilteknir flokkar fjölliða og fjölliða, sem uppfylla viðmiðanir um lífbrjótanleika eða leysni sem settar eru fram í reglugerð (EB) nr. 1907/2006, eru undanskildir almennu takmörkuninni.Nauðsynlegt er að samræma kröfur um efni, sem tilheyra efnisþáttaefniviðaflokki 1, við kröfurnar í reglugerð (EB) nr. 1907/2006, bæði til að tryggja samfellu með því að beita sömu reglum á svipuð efni, sem eru annaðhvort í samhæfðum eða ósamræmdum vörum, og til að ná þeim markmiðum sem stefnt er að með því að innleiða almennu takmörkunina í reglugerð (EB) nr. 1907/2006, sem hægt væri að tefla í tvísýnu með því að viðhalda vægari reglum í reglugerð (ESB) 2019/1009.Reglugerð (ESB) 2023/2055 á að byrja að gilda um landsbundnar áburðarvörur frá 17. október 2028.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Nei
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Gerðin verður innleidd með breytingu á reglguerð nr. 543/2024, sem sett er með stoð í lögum um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Atvinnuvegaráðuneytið
Ábyrg stofnun Matvælastofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32024R2790
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2024/2790, 31.10.2024
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer C(2024)5142
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Samþykktardagur
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 46, 24.7.2025, p. 3
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2025/1381, 24.7.2025

Staða innleiðingar samkvæmt ESA

Staða innleiðingar á Íslandi samkvæmt ESA Græn: Innleitt
Viðeigandi lög/reglugerði
  • Reglugerð nr. 566/2024 um (3.) breytingu á reglugerð nr. 543/2024 um áburðarvörur.

Breytir (Modifies)

32019R1009 amends, based on Tekin upp í EES-samninginn og í gildi