Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2024/3214 um breytingar á reglugerð (ESB) 2015/757 um vöktun á losun gróðurhúsalofttegunda frá aflandsskipum og eldsneyti með losunarstuðulinn núll. - 32024R3214
Commission Delegated Regulation (EU) 2024/3214 of 16 October 2024 amending Regulation (EU) 2015/757 of the European Parliament and of the Council as regards the rules for the monitoring of greenhouse gas emissions from offshore ships and the zero-rating of sustainable fuels
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/3214 frá 16. október 2024 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/757 að því er varðar reglur um vöktun á losun gróðurhúsalofttegunda frá grunnsævisskipum og núllmat á sjálfbæru eldsneyti
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 20 Umhverfismál, 20.03 Loft |
| Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 055/2026 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/3214 setur fram breytingar á reglugerð (ESB) 2015/757 um vöktun, skýrslugjöf og sannprófun á losun koltvísýrings frá sjóflutningum. Breytingarnar tengjast innleiðingu skipa í ETS og því að frá 1. janúar 2025 fellur vöktun og skýrslugjöf vegna losunar gróðurhúsalofttegunda frá aflandsskipum (e. offshore ships) undir gildissvið reglugerðar (ESB) 2015/757. Einnig eru gerðar breytingar á því hvernig losun gróðurhúsalofttegunda vegna notkunar sjálfbærs skipaeldsneytis skal skráð í losunarskýrslum. Gerðar eru breytingar á viðaukum I og II við reglugerð (ESB) 2015/757 í þessu skyni.
Nánari efnisumfjöllun
Með framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/3214 sem hér er til greiningar voru gerðar breytingar á reglugerð (ESB) 2015/757 sem fjallar um vöktun, skýrslugjöf og sannprófun á losun koltvísýrings frá sjóflutningum sem fellur undir viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir. Viðaukar við reglugerð (ESB) 2015/757 eru tveir, viðauki I setur fram aðferðir við vöktun á losun gróðurhúsalofttegunda byggt á eldsneytisnotkun og viðauki II setur fram reglur varðandi vöktun annarra viðeigandi upplýsinga. Með reglugerð ESB 2024/3214 eru gerðar breytingar á fyrrnefndum viðaukum, annars vegar til að setja fram skilgreiningar á þeim aflandsskipum (e. offshore ships) sem vakta skal losun gróðurhúsalofftegunda frá og hins vegar til að tryggja að reglur er varða skráningu sjálfbærs eldsneytis með losunarstuðulinn núll (e. zero-rated fuels) séu í samræmi við aðra geira sem falla undir ETS-kerfið. Skilgreiningar á aflandsskipumMeð reglugerð (ESB) 2023/957 voru gerðar þær breytingar á reglugerð (ESB) 2015/757 að vakta skyldi losun gróðurhúsalofttegunda frá aflandsskipum frá 1. janúar 2025. Losun gróðurhúsalofttegunda frá aflandsskipum yfir 5000 brúttótonnum mun falla undir ETS-kerfið frá 1. janúar 2027. Aftur á móti voru ekki settar fram frekari skilgreiningar á því hvers konar skip teldust sem aflandsskip. Þessu er bætt úr með þeirri reglugerð sem hér er til greiningar með því að bæta við kafla í viðauka I við reglugerð (ESB) 2015/757, hluta AA, sem kemur á eftir hluta A.Í þessum nýja hluta viðauka I kemur fram að losun gróðurhúsalofttegunda frá aflandsskipum skuli ná yfir losun gróðurhúsalofttegunda frá síðustu viðkomuhöfn til viðkomuhafnar innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) og frá viðkomuhöfn innan EES til næstu viðkomuhafnar, auk losunar sem á sér stað í höfnum innan EES frá þeim skipum sem talinn er upp í liðum (a) til (ae), annarra en ísbrjóta sem eru hannaðir eða vottaðir til að gegna þjónustuhlutverki af landi eða á aflandsstöðvum (e. service activities offshore or at offshore installations).Þessar breytingar taka gildi frá 1. janúar 2025, í samræmi við það að vöktun og skýrslugjöf vegna losunar gróðurhúsalofttegunda frá aflandsskipum (e. offshore ships) fellur undir gildissvið reglugerðar (ESB) 2015/757 frá þeirri dagsetningu. Eldsneyti með losunarstuðulinn núllUppfæra þurfti reglur í viðauka II í reglugerð (ESB) 2015/757 til að þær væru í samræmi við þær reglur sem gilda fyrir aðra geira sem falla undir ETS-kerfið hvað varðar eldsneyti sem fullnægir skilyrðum til að hafa losunarstuðulinn núll, sérstaklega til að bjóða upp á möguleikann að tilbúið lágkolefnaeldsneyti (e. synthetic low-carbon fuel) geti fengið losunarstuðulinn núll.Í þessu skyni voru, með reglugerð þeirri sem hér er til greiningar, gerðar breytingar á 2. mgr. liðar 1.2. í C-hluta viðauka II við reglugerð ESB 2015/757. Breytingarnar fela í sér að undanþágur frá hinni almennu meginreglu til vöktunar á uppsafnaðri heildarlosun gróðurhúsalofttegunda frá skipi, sem sett er fram í lið 1.1., nær nú einnig til tilbúins lágkolefnaeldsneytis til viðbótar við endurnýjanlegt eldsneyti af ólífrænum uppruna (e. Renewable Fuels of Non-Biological Origin, RFNBO) og endurunnið kolefnaeldsneyti (e. Recycled Carbon Fuel, RCF). Í 1.2. lið kemur fram að í stað þess að almennu meginreglunni sé beitt skuli losunarstuðlar koltvísýrings fyrir þessar tegundir eldsneytis vera ákvarðaðir í samræmi við reglugerð (EU) 2018/2066 um vöktun og skýrslugjöf, með þeim breytingum sem gerðar hafa verið á henni með reglugerð (ESB) 2024/2493, sbr. formálsorð 8 í þeirri reglugerð sem hér er til greiningar. Reglugerð (ESB) 2024/2493 hefur ekki verið tekin upp í EES samninginn þegar þetta er skrifað.Sjóflutningar féllu undir ETS frá 1. janúar 2024. Þær reglur sem gilda um aðra um aðra geira innan ETS hvað varðar eldsneyti sem fullnægir skilyrðum til að hafa losunarstuðulinn núll samkvæmt reglugerð (ESB) 2018/2066 og þeim breytingum sem gerðar voru á henni með reglugerð (ESB) 2024/2493, gilda frá 1. janúar 2024. Til að tryggja samræmi taka þær breytingar sem gerðar eru á viðauka II við reglugerð 2015/757, með þeirri reglugerð sem hér er til greiningar, gildi afturvirkt frá 1. janúar 2024.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Á ekki við |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Gera þarf breytingar á reglugerð 606/2021 um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir. Lagastoð er að finna í 4. mgr. 11. gr. laga nr. 96/2023 um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Enginn |
|---|---|
| Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands | Reglugerðin er ekki talin hafa nein sérstök áhrif á Íslandi eða hagsmuni landsins. Umhverfis- og orkustofnun veit ekki til þess að nein aflandsskip séu skráð hjá íslenskum skipafélögum eða þeim skipafélögum sem falla undir Ísland hvað varðar ETS-kerfið. Þær breytingar sem snúa að skráningu tilbúins lágkolefnaeldsneytis verði í samræmi við aðra geira sem falla undir ETS-kerfið og munu aðeins hafa áhrif ef skip, sem falla undir Umhverfis- og orkustofnun sem ábyrgt stjórnvald, nýta slíkt eldsneyti. Enn sem komið er er það ekki raunin miðað við vöktunaráætlanir þeirra skipa sem hafa skilað inn vöktunaráætlunum þegar þetta er skrifað. |
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Umhverfis- og orkustofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32024R3214 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2024/3214, 27.12.2024 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| Dagsetning tillögu ESB | |
|---|---|
| C/D numer | C(2024)7210 |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
|---|---|
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 34, 21.5.2026, p. 80 |
| Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2026/963, 21.5.2026 |
Breytir (Modifies)
| 32015R0757 | amends, based on | Regulation (EU) 2015/757 of the European Parliament and of the Council of 29 April 2015 on the monitoring, reporting and verification of carbon dioxide emissions from maritime transport, and amending Directive 2009/16/EC | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
