32024R2729

Commission Implementing Regulation (EU) 2024/2729 of 22 October 2024 authorising an exemption pursuant to Regulation (EU) 2024/573 of the European Parliament and of the Council, with regard to the use of fluorinated greenhouse gases in certain environmental simulation devices, laboratory spray-drying or freeze-drying equipment, and laboratory centrifuges


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn
Svið (EES-samningur, viðauki) 20 Umhverfismál, 20.03 Loft

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Þessi reglugerð veitir undanþágur fyrir þrenns konar búnaði frá banni við markaðssetningu sjálfstæðs kælibúnaðar sem inniheldur flúoraðar gróðurhúsalofttegundir með hnatthlýnunarmátt upp á 150 eða meira sem sett er fram með reglugerð (ESB) 2024/573. Undanþágan gildir frá 1. janúar 2025 til 31. desember 2028.

Nánari efnisumfjöllun

Í lið 4 í IV. viðauka við reglugerð (ESB) 2024/573 er sett fram bann við að setja á markað sjálfstæðan kælibúnað, annan en vökvakæla, sem inniheldur flúoraðar gróðurhúsalofttegundir með hnatthlýnunarmátt upp á 150 eða meira frá og með 1. janúar 2025 nema að ákveðnum skilyrðum uppfylltum.Í samræmi við 5. mgr. 11. gr. reglugerðar (ESB) 2024/573 lagði þýska lögbæra yfirvaldið fram beiðni til framkvæmdastjórnarinnar um undanþágu sem heimilar markaðssetningu innan Sambandsins á þrenns konar búnaði. Framkvæmdastjórnin telur að beiðnin uppfylli skilyrði sem sett eru fram í a- og b-lið 5. mgr. 11. gr. og heimilar því eftirfarandi undanþágur frá 1. janúar 2025 til 31. desember 2028 að því gefnu að búnaðurinn sem um ræðir sé merktur samkvæmt 2. mgr. 12. gr. sömu reglugerðar. Þetta eru:umhverfishermibúnaður sem samanstendur af prófunarklefa sem notaður er til að endurskapa margvíslegar umhverfisaðstæður t.d. tímaháð hitastig og rakastig, fyrir notkun undir – 50 °C;þurrkunarbúnaður á rannsóknarstofu sem notaður er til að þurrka vökvasýni, með úðaþurrkun eða frostþurrkun;skilvindur á rannsóknarstofu sem notaðar eru til að aðskilja vökva með mismunandi eðlismassa eða vökva frá föstum efnum í íláti sem snýst hratt.Þessi framkvæmdarákvörðun tók gildi þann 23. október 2024.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Reglugerð (ESB) 2024/573 hefur ekki verið tekin upp í EES-samninginn og ekki verið innleidd hér á landi. Þessi reglugerð leyfir undanþágur frá ákvæðum í reglugerð (ESB) 2024/573 og því ekki hægt að innleiða hér á landi fyrr en samhliða móðurgerðinni.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32024R2729
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2024/2729, 23.10.2024
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB