reglugerð um breytingu á reglugerðum 10/2011, 2022/1616 og 2023/2006 - 32025R0351
Commission Regulation (EU) 2025/351 of 21 February 2025 amending Regulation (EU) No 10/2011 on plastic materials and articles intended to come into contact with food, amending Regulation (EU) 2022/1616 on recycled plastic materials and articles intended to come into contact with foods, and repealing Regulation (EC) No 282/2008, and amending Regulation (EC) No 2023/2006 on good manufacturing practice for materials and articles intended to come into contact with food as regards recycled plastic and other matters related to quality control and manufacturing of plastic materials and articles intended to come into contact with food
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/351 frá 21. febrúar 2025 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 10/2011 um efnivið og hluti úr plasti sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli, um breytingu á reglugerð (ESB) 2022/1616 um efniviði og hluti úr endurunnu plasti sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli og um niðurfellingu á reglugerð (EB) nr. 282/2008 og um breytingu á reglugerð (EB) nr. 2023/2006 um góða framleiðsluhætti að því er varðar efni og hluti sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli að því er varðar endurunnið plast og önnur mál sem varða gæðaeftirlit og framleiðslu á efniviðum og hlutum úr plasti sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.12 Matvæli |
| Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 128/2025 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) …/…frá XXX um leiðréttingu á reglugerð (ESB) nr. 10/2011 um efnivið og hluti úr plasti sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli, leiðréttingu á reglugerð (ESB) nr. 2022/2016 um efnivið og hluti úr endurunnu plasti sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli og um niðurfellingu á reglugerð (ESB) 282/2008, og um leiðréttingu á reglugerð (ESB) nr. 2023/2006 um góða framleiðsluhætti fyrir efnivið og hluti sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli að því er varðar endurunnið plast og aðra þætti sem tengjast gæðaeftirliti og framleiðslu á efnivið og hlutum úr plasti sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli.
Nánari efnisumfjöllun
Gerðin varðar breytingar á reglugerðum (ESB) nr. 10/2011 um efnivið og hluti úr plasti sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli, 2022/2016 um efnivið og hluti úr endurunnu plasti sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli og 2023/2006 um góða framleiðsluhætti fyrir efnivið og hluti sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli.Í breytingareglugerðinni eru gerðar breytingar á orðalagi í reglugerð 10/2011 og skilgreiningum, m.a. um hvenær innihaldsefni í plasti er aukefni og hvenær grunnefni.Einnig um efni af náttúrulegum uppruna sem notuð eru í plastefni en nákvæm samsetning er ekki þekkt. Um þau er fjallað í reglugerð 1907/2006 um efnavörur (REACH reglugerð) þar sem þau kallast UVCB efni (substances of unknown or variable composition, complex reaction products or biological materials). Til að tryggja betri samræmi reglugerðar 10/2011 við reglugerð 1907/2006 og um áhættumat og leyfisveitingu fyrir slík efni er þetta hugtak „UVCB-efni“ tekið inn í reglugerð 10/2011.Sæfiefni sem notuð eru í plast þurfa að hafa leyfi framkvæmdastjórnarinnar eða að vera á brábyrgða lista efna sbr. 7. gr. í 10/2011. Í reglugerð 10/2011 ætti að vísa til reglugerðar (ESB) nr. 528/2012, en í henni er fjallað um leyfi fyrir notkun sæfiefna, þ.á.m. þeirra sem notuð eru í matvælasnertiefni. Því ætti að vísa til þeirrar gerðar í reglugerð 10/2011 varðandi sæfiefni sem notuð eru í plastefni sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli.Við framleiðslu á plastefnum fellur til afskurður og annað rusl sem ekki verður að lokaafurð. Ef hægt er að endurnýta þetta efni í framleiðsluferlinu telst það ekki vera úrgangur. Í reglugerð 1022/1616 er ekki fjallað um þessar aukaafurðir og öryggi þeirra. Setja þarf reglur um notkun þeirra og skilgreiningu á endurvinnslu (reprocessing) til að hafa skýra afmörkun á milli þeirra vara sem falla undir reglugerð 10/2011 og 2022/1616.Í gr. 14(4) í reglugerð 10/2011 kemur fram að plastlög í marglaga fjölefnum falla ekki undir 11. og 12. gr. í sömu reglum, þ.e. ákvæði um flæði efna. Í tilbúnum marglaga fjölefnum, þar sem plastlag er í beinni snertingu við matvæli er hætta á að óæskileg efni geti flætt yfir í matvæli. Þetta plastlag ætti því að hlíta sömu reglum og gilda almennt um flæði úr plasti í reglugerð 10/2011.Til þess að tryggja að farið sé eftir ákvæðum reglugerðar 10/2011 þarf að hafa eftirlit með framleiðslu m.a. með sýnatökum á tilbúnum vörum og einnig á mismunandi framleiðslustigum. Framleiðendur þurfa að tryggja að eftirlitsmenn hafi aðgang fyrir slíka sýnatöku.Þegar notað er endurunnið plast í framleiðslu á efnum og hlutum á það að koma fram í samræmisyfirlýsingu.Til þess að tryggja betur öryggi plastefna á samræmisyfirlýsing einnig að innihalda upplýsingar um efni sem ekki er bætt í af ásetningi (NIAS), s.s. óhreinindi, efni sem myndast tímabundið, niðurbrotsefni o.fl.Í reglugerð 2022/1616 er gert ráð fyrir gæðakerfi til þess að tryggja öryggi í framleiðslu á endurunnu plasti. Til þess að tryggja matvælaöryggi betur ætti að setja ýtarlegar reglur um góða framleiðsluhætti er varðar endurunnið plast.Reglugerðum (ESB) nr. 10/2011, nr. 2022/1616 og 2023/2006 skal því breytt í samræmi við ofangreindar athugasemdir.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Á ekki við |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Reglugerðin verður innleidd með breytingu á reglugerðum (ESB) nr. 10/2011, 2022/1616 og 2023/2006, með stoð í lögum um matvæli nr. 93/1995. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Innan fjárhagsáætlunar |
|---|---|
| Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands | Reglugerðin hefur ekki áhrif á sérstaka hagsmuni Íslands |
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Atvinnuvegaráðuneyti |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Matvælastofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32025R0351 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2025/351, 24.2.2025 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| Dagsetning tillögu ESB | |
|---|---|
| C/D numer | D099887/03 |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
|---|---|
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 61, 2.10.2025, p. 24 |
| Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2025/1863, 2.10.2025 |
Breytir (Modifies)
| 32022R1616 | amends | Commission Regulation (EU) 2022/1616 of 15 September 2022 on recycled plastic materials and articles intended to come into contact with foods, and repealing Regulation (EC) No 282/2008 | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 32011R0010 | amends | Commission Regulation (EU) No 10/2011 of 14 January 2011 on plastic materials and articles intended to come into contact with food | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 32006R2023 | amends | Commission Regulation (EC) No 2023/2006 of 22 December 2006 on good manufacturing practice for materials and articles intended to come into contact with food | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 32004R1935 | based on | Regulation (EC) No 1935/2004 of the European Parliament and of the Council of 27 October 2004 on materials and articles intended to come into contact with food and repealing Directives 80/590/EEC and 89/109/EEC | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
