32024D2950

Commission Implementing Decision (EU) 2024/2950 of 29 November 2024 postponing the expiry date of the approval of N,N-diethyl-meta-toluamide for use in biocidal products of product-type 19 in accordance with Regulation (EU) No 528/2012 of the European Parliament and of the Council

  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.15 Hættuleg efni
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 276/2025
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Ákvörðunin felur í sér frestun að því er varðar lokadag samþykkis fyrir N,N-díetýl-meta-tólúamíð til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 19 eins og fram kemur í I. viðauka við tilskipun 98/8/EB til 31. janúar 2027. Ákvörðunin öðlaðist gildi á 20. degi eftir birtingu hennar í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.

Nánari efnisumfjöllun

Sótt var um endurnýjun á samþykki fyrir N,N-díetýl-meta-tólúamíð til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 19 þann 26. janúar 2021 í samræmi við 1. tl. 13. gr. reglugerðar (ESB) nr. 528/2012. Frakkland, sem lögbært matsyfirvald, hefur ákveðið að nauðsynlegt sé að vinna fullnaðarmat á umsókninni. Lokadegi samþykkis fyrir N,N-díetýl-meta-tólúamíð til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 19 var áður frestað til 31. janúar 2025 með framkvæmdarákvörðun (ESB) 2021/2146. Mat á umsókninni er enn ekki lokið og líklegt er að ekki náist að taka ákvörðun um endurnýjun áður en lokadagur samþykkis rennur upp. Því þykir rétt að fresta honum aftur, nú til 31. janúar 2027.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Alþingi hefur lokið mati sínu Á ekki við
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Innleiða þarf ákvörðunina með tilvísunaraðferð í reglugerð nr. 878/2014 um sæfivörur.
Lagaheimild er í 3. tl. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur Kostnaður fælist í vinnu sérfræðings Umhverfis- og orkustofnunar við að framlengja leyfunum og félli á stofnunina.
Áætlaður kostnaður hins opinbera Aukakostnaður
Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands Það eru þrjár vörur, sem innihalda N,N-díetýl-meta-tólúamíð og flokkast í vöruflokk 19 með markaðsleyfi á Íslandi. Ákvörðunin hefur þau áhrif að framlengja þarf gildistíma þeirra.

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfis- og orkustofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32024D2950
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2024/2950, 3.12.2024
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 26, 16.4.2026, p. 40
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2026/656, 16.4.2026