Útdráttur
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/3084 setur reglur um starfsemi upplýsingakerfisins sem komið var á fót á grundvelli reglugerðar (ESB) 2023/1115 (EUDR). Reglugerðin mælir meðal annars fyrir um notkun kerfisins við skil og meðferð yfirlýsinga um áreiðanleikakönnun, sjálfvirkt áhættumat, aðgangsheimildir notenda og yfirvalda og gagnaskipti milli lögbærra yfirvalda og tollyfirvalda.
Nánari efnisumfjöllun
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/3084 setur nánari reglur um starfsemi upplýsingakerfisins sem komið var á fót á grundvelli EUDR. Meginmarkmið EUDR er að draga úr framlagi Evrópusambandsins til eyðingar og hnignunar skóga á heimsvísu. Upplýsingakerfinu er ætlað að styðja við framkvæmd og eftirlit samkvæmt EUDR með því að halda utan um upplýsingar um þær vörur sem falla undir gildissvið reglugerðarinnar. Kerfið er sjálfstæð eining innan TRACES-vettvangsins og framkvæmdastjórn ESB annast þróun þess, rekstur og viðhald. Í reglugerðinni eru afmörkuð hlutverk og ábyrgð rekstraraðila, kaupmanna, viðurkenndra fulltrúa þeirra, lögbærra yfirvalda, tollyfirvalda og framkvæmdastjórnarinnar við notkun kerfisins. Samkvæmt EUDR skulu rekstraraðilar og stærri kaupmenn framkvæma áreiðanleikakönnun áður en þeir setja viðkomandi vörur á markað og skila yfirlýsingu um könnunina. Upplýsingakerfið er vettvangur fyrir skil og meðferð þessara yfirlýsinga og gerir notendum kleift að halda utan um þær. Kerfið úthlutar hverri yfirlýsingu tilvísunarnúmeri og staðfestingarnúmeri. Notendum er jafnframt heimilt, að tilteknum skilyrðum uppfylltum, að breyta yfirlýsingum eða afturkalla þær innan tilskilins frests. Upplýsingakerfið styður lögbær yfirvöld við áhættumiðað eftirlit samkvæmt EUDR. Allar innsendar yfirlýsingar sæta sjálfvirkri rafrænni greiningu á áhættu og er hverri þeirra úthlutað áhættustöðu. Lögbær yfirvöld geta síðan endurskoðað einstakar yfirlýsingar og úthlutað þeim nýrri áhættustöðu. Kerfið gerir þeim einnig kleift að beina eftirliti að þeim aðilum og vörum þar sem talin er mest hætta á að kröfur EUDR séu ekki uppfylltar. Í tilteknum tilvikum geta yfirvöld frestað því að tilvísunarnúmer verði gert aðgengilegt eða hafnað yfirlýsingu til að koma í veg fyrir að vara sem uppfyllir ekki kröfur EUDR verði sett á markað. Kerfið veitir lögbærum yfirvöldum, tollyfirvöldum og framkvæmdastjórninni jafnframt aðgang að þeim upplýsingum sem nauðsynlegar eru vegna framkvæmdar og eftirlits samkvæmt EUDR og auðveldar upplýsingaskipti þeirra á milli. Reglugerðin mælir einnig fyrir um aðgangsheimildir, vinnslu og varðveislu persónuupplýsinga og öryggi og trúnað þeirra upplýsinga sem skráðar eru í kerfið.