32024R3128

Commission Implementing Regulation (EU) 2024/3128 of 16 December 2024 amending Implementing Regulation (EU) 2019/317 as regards new and revised monitoring indicators for the performance and charging scheme in the single European sky


iceland-flag
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/3128 frá 16. desember 2024 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2019/317 að því varðar nýja og endurskoðaða vöktunarvísa fyrir frammistöðu- og gjaldtökukerfið fyrir samevrópska loftrýmið
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Tegund gerðar Reglugerð
Nánari tegund gerðar Framkvæmdarreglugerð
Svið (EES-samningur, viðauki) 13 Flutningar, 13.06 Almenningsflug
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 047/2026
Samþykktardagur ákvörðunar sameiginlegu nefndarinnar
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu Já

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Frammistöðu- og gjaldtökukerfi sam-evrópska loftrýmisins að innihalda mælanleg markmið og tryggja vöktun á frammistöðu flugleiðsöguþjónustu og netstarfsemi í fjórum lykilsviðum: öryggi, umhverfisvernd, afkastagetu og hagkvæmni. Með breytingunni á að bæta frammistöðukerfi og eftirlit með flugleiðsöguþjónustu og netstarfsemi innan sam-evrópska loftrýmisins. Lögð er áhersla á að styðja við umhverfismarkmið ESB, án þess að auka skýrslugjöf eða stjórnsýslubyrði. Ekki áhrif hér á landi. Ekki kostnaður.

Nánari efnisumfjöllun

Samkvæmt framkvæmdarreglugerð ESB nr. 2019/317 á frammistöðu- og gjaldtökukerfi sam-evrópska loftrýmisins að innihalda mælanleg markmið og tryggja vöktun á frammistöðu flugleiðsöguþjónustu og netstarfsemi í fjórum lykilsviðum: öryggi, umhverfisvernd, afkastagetu og hagkvæmni.Markmiðið með breytingunni á framangreindri reglugerð er að bæta frammistöðukerfi og eftirlit með flugleiðsöguþjónustu og netstarfsemi innan sam-evrópska loftrýmisins. Lögð er áhersla á að styðja við umhverfismarkmið ESB, án þess að auka skýrslugjöf eða stjórnsýslubyrði.Í frammistöðu- og gjaldtökukerfið sam-evrópska loftrýmisins eru bæði árangursvísar með bindandi markmiðum og aðrir mælikvarðar til að fylgjast með frammistöðu, fyrir flugleiðsöguþjónustu, á flugvöllum og fyrir netþjónustur. Framfarir í gagnaöflun og mælingartækni hafa gert mögulegt að bæta núverandi vísa og bæta við nýjum mælikvörðum. Þessir nýju mælikvarðar gera stjórnvöldum kleift að greina betur frammistöðu og eru taldir nauðsynlegir til að þróa kerfið.Samkvæmt vinnu árangurseftirlitsnefndarinnar, e. Performance Review Body, sem kveðið er á um í 11. gr. reglugerðar nr. 549/2004, er mikilvægt að bæta umhverfisárangur flugnetsins til að styðja við markmið Græna samkomulagsins í Evrópu. Fyrri mælikvarðar náðu aðeins yfir hluta af flugleiðinni. Reglugerðin leggur áherslu á að nýir mælikvarðar leiði ekki til aukinnar skýrslubyrði, þar sem þeir byggja á gögnum sem Eurocontrol hefur þegar yfir að ráða.Viðauka I var skipt út fyrir nýjan. Breytingarnar fela í sér nýja árangursvísa, endurbættar skilgreiningar og skýrari og betri uppbyggingu.Einungis ein breyting var gerð á viðauka VI í grein 3 a) en þar var ártalið 2018 leiðrétt í 2019.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Á ekki við
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Á ekki við
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Já

Innleiðing

Innleiðing Engar laga- eða reglugerðabreytingar
Staða innleiðingarvinnu Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Enginn
Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands Engin áhrif

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Innviðaráðuneytið
Ábyrg stofnun Samgöngustofa

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32024R3128
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2024/3128, 17.12.2024
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Samþykktardagur
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 34, 21.5.2026, p. 68
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2026/991, 21.5.2026

Staða innleiðingar samkvæmt ESA

Staða innleiðingar á Íslandi samkvæmt ESA Græn: Innleitt
Viðeigandi lög/reglugerði

Breytir (Modifies)

32019R0317 amends Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

Flokkun (Classifications)