Útdráttur
Reglugerðin setur fram valkvætt umhverfismerkingakerfi fyrir flugferðir. Markmiðið er að skapa traustan, samræmdan og gagnsæjan ramma fyrir umhverfismerkingar í flugi. Með því er neytendum gert kleift að taka upplýstar ákvarðanir og flugrekendum skapaður hvati til að draga úr losun. Kerfið skapar hvata fyrir flugrekendur til að draga úr kolefnislosun, meðal annars með notkun eldsneytis nýtnari flugvéla og bættu skipulagi flugleiða. Þannig er jafnframt hvatt til orkuskipta í flugi. Jákvæð áhrif. Ekki kostnaður fyrir hið opinbera. Kostnaður fyrir flugrekendur velji þeir að beita kerfinu.
Nánari efnisumfjöllun
Markmið sem að er stefnt: Markmið reglugerðarinnar er að bæta upplýsingagjöf til neytenda með því að kveða á um staðlaða og vísindalega byggða aðferðafræði við mat á losun gróðurhúsalofttegunda frá flugferðum. Með þessu er tryggt að farþegar hafi aðgang að áreiðanlegum upplýsingum um umhverfisáhrif flugs. Stuðlað er að gagnsæi og samræmingu með því að leggja grunn að samræmdum aðferðum við útreikning og miðlun upplýsinga um losun frá flugi. Þannig verður unnt að bera saman umhverfisáhrif mismunandi flugrekenda og flugleiða á skýran og samanburðarhæfan hátt.Einnig er lögð áhersla á að hvetja til orkuskipta og betri nýtingar flugvéla. Það er gert með því að skapa hvata fyrir flugrekendur til að draga úr kolefnislosun, meðal annars með notkun eldsneytisnýtnari flugvéla og bættu skipulagi flugleiða.Til þess að tryggja skýrar reglur um losunarmerkingar kveður reglugerðin á um skilyrði fyrir útgáfu og birtingu svokallaðs „Flight Emissions Label“, þar sem upplýsingar um losun einstakra flugferða eru settar fram á stöðluðu formi.Jafnframt er lögð áhersla á að minnka stjórnsýslubyrði fyrir flugrekendur með því að einfalda notkun stafrænnar skýrslugerðar og samræma upplýsingagjöf við núverandi reglur um losunarbókhald. Þannig er leitast við að lágmarka viðbótarálag á atvinnugreinina án þess að skerða gæði upplýsinga.Til að auka traust neytenda á sjálfbærnimerkingum er tryggt að einungis gildar og sannreyndar merkingar séu birtar, sem kemur í veg fyrir villandi upplýsingar um umhverfisáhrif flugferða.Markmiðið er einnig að tryggja samræmi við aðrar reglugerðir Evrópusambandsins, einkum ReFuel Aviation-reglugerðina, (EU) 2023/2405, ásamt annarri viðeigandi löggjöf um losun gróðurhúsalofttegunda í samgöngum.Samandregið felst tilgangur reglugerðarinnar í því að skapa traustan, samræmdan og gagnsæjan ramma fyrir umhverfismerkingar í flugi. Með því er neytendum gert kleift að taka upplýstar ákvarðanir og flugrekendum skapaður hvati til að draga úr losun.Gildistaka: Tuttugu dögum eftir birtingu í Stjórnartíðindum ESB. Reglugerðinni verður beitt gagnvart flugrekendum sem starfa í farþegaflugi frá upphafi en taka gildi gagnvart fraktflugrekendum frá og með 1. janúar 2028. Aðdragandi: Reglugerð (EU) 2024/3170 er hluti af stefnu Evrópusambandsins til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda í samgöngum og styðja við orkuskipti í flugi. Aðdragandinn felur í sér nokkur lykilskref og stefnumótandi markmið:Reglugerðin byggir á ReFuelEU Aviation-reglugerðinni (EU) 2023/2405, sem var samþykkt 31. október 2023 og hefur það að markmiði að auka notkun á endurnýjanlegu og kolefnislágu eldsneyti í flugi. Meðal lykilákvæða þeirrar reglugerða er krafa um aukið gagnsæi um kolefnisspor flugferða, sem leiddi til þess að Evrópusambandið ákvað að setja á fót Flight Emissions Label, sem gefur farþegum betri innsýn í umhverfisáhrif flugs.Árið 2021 birti Evrópusambandið grænbók um sjálfbærar flugsamgöngur, þar sem kallað var eftir því að neytendur fengju auknar upplýsingar um kolefnisspor flugferða. Þessi umræða var hluti af stærri loftslagsáætlun ESB Fit for 55, sem miðar að því að draga úr losun um 55% fyrir 2030 miðað við 1990.Reglugerðin samræmist alþjóðlegri þróun innan ICAO, International Civil Aviation Organization, þar sem verið er að þróa staðla fyrir losunarútreikninga í flugi. ESB hefur einnig þurft að laga sig að CORSIA-kerfinu, e. Carbon Offsetting and Reduction Scheme for International Aviation, sem krefst þess að flugrekendur greini frá losun og grípi til aðgerða til að draga úr henni.Evrópusambandið hefur frá árinu 2022 átt í samtali við flugrekendur, neytendaverndarsamtök, umhverfissamtök og flugvelli til að tryggja að kerfið yrði bæði áreiðanlegt og ekki of íþyngjandi fyrir flugiðnaðinn. Sérstök áhersla var lögð á að fækka stjórnsýsluhindrunum fyrir smærri flugrekendur og tryggja að flugfarþegar fengju auðskiljanlegar upplýsingar við bókun flugferða.Á meðan á undirbúningsferlinu stóð komu fram ýmsar áskoranir og mótmæli frá aðilum innan fluggeirans. Sumir hagsmunaaðilar gagnrýndu reglugerðina fyrir að fela í sér flóknar kröfur um gagnasöfnun, sem gætu leitt til aukins kostnaðar. Hins vegar var talið nauðsynlegt að koma á fót samræmdum aðferðum við útreikning losunar, þar sem mismunandi reikniaðferðir flugfélaga hefðu að öðrum kosti getað valdið villandi umhverfismerkingum. Að lokum var ákveðið að reglugerðin tæki í fyrstu aðeins til farþegaflugs, en gildistaka hennar fyrir fraktflug var frestað til ársins 2028, til að veita iðnaðinum lengri aðlögunartíma.Umsögn: helstu breytingar, mati á umfangi, og áhrif hér á landi: Áhrifin á Samgöngustofu felast helst í kynningu á nýjum kröfum og framkvæmd eftirlits. Þá þarf að vekja athygli á þessari gerð sem er afleidd af Refuel gerðinni sem ekki hefur verið innleidd og áhrifum þeirra saman. Lagastoð fyrir innleiðingu gerðar: Lagastoð er að finna í 115. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022. Rétt væri að innleiða reglugerðina með nýrri innleiðingarreglugerð, samhliða innleiðingu reglugerðar ESB nr. 2023/2405.Mat eða tilgreining á kostnaði hins opinbera, sveitarfélaga og atvinnulífs og almennings, ef einhver er: Kostnaður verður fyrir flugrekendur vegna innleiðingar á aðferðum við að vakta losun gróðurhúsalofttegunda og innleiðingar nýrrar tækni til að draga úr losun. Starfsfólk mun þurfa þjálfun. Ekki teljandi kostnaður fyrir Samgöngustofu.Skörun við starfssvið annarra ráðuneyta: UmhverfisráðuneytiTilgreining á hagsmunaaðilum: FlugrekendurHorizontal issues: sektir, aðrar refsingar, stofnanir, lönd utan EES: Í áhrifamati vegna reglugerðar ESB 2023/2405 er vakin athygli á því að 14. gr. falli mögulega ekki undir bókun 1 við EES samninginn.Þörf fyrir EFTA-komment – aðlaganir sem þegar eru í gildi vegna undanfarandi gerða: