Breyting á CSDR L1 (stytting uppgjörstíma í T+1) - 32025R2075
Regulation (EU) 2025/2075 of the European Parliament and of the Council of 8 October 2025 amending Regulation (EU) No 909/2014 as regards a shorter settlement cycle in the Union
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.

Gerð ekki til á íslensku
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð hefur ekki öðlast gildi þar sem beðið er afléttingar stjórnskipulegs fyrirvara |
|---|---|
| Tegund gerðar | Reglugerð |
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 09 Fjármálaþjónusta, 09.03 Kauphöll og verðbréf |
| Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 312/2026 |
| Samþykktardagur ákvörðunar sameiginlegu nefndarinnar |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Breyting á CSDR L1 (reglugerð ESB nr. 909/2014), þ.e. stytting á uppgjörstíma í T+1. Með uppgjörstíma er átt við tímann frá því að viðskipti með fjármálagerninga eru gerð (viðskiptadegi eða T) og þar til búið er að ganga frá afhendingu þeirra til kaupenda og greiðslu til seljenda. Meginreglan er nú T+2 á Evrópska efnahagssvæðinu, en frá október 2027 verður hann að meginreglu T+1.
Nánari efnisumfjöllun
Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2025/2075 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 909/2014 að því er varðar styttingu uppgjörstíma í Sambandinu var samþykkt nýverið. Hún breytir þremur ákvæðum reglugerðar (ESB) nr. 909/2014 (e. Central Securities Depository Regulation eða CSDR) sem var innleidd hér á landi með lögum um verðbréfamiðstöðvar, uppgjör og rafræna eignarskráningu fjármálagerninga, nr. 7/2020.Með uppgjörstíma er átt við tímann frá því að viðskipti með fjármálagerninga eru gerð (viðskiptadegi eða T) og þar til búið er að ganga frá afhendingu þeirra til kaupenda og greiðslu til seljenda. Meginreglan er nú T+2 á Evrópska efnahagssvæðinu, en frá október 2027 verður hann að meginreglu T+1. Hún á ekki við um viðskipti utan skipulegra markaða, afleiðuviðskipti og fjármögnunarviðskipti með verðbréf enda séu þau auðkennd sem stök viðskipti sem samanstanda af tveimur tengdum aðgerðum.Reglugerðin tengist stefnumótun um sparnaðar- og fjárfestingasamband Evrópusambandsins (e. Savings and Investment Union), sem aftur er hluti af áætlun um uppbyggingu hins sameiginlega fjármagnsmarkaðar (CMU). Breytingunni er ætlað að styrkja samkeppnishæfni Evrópu, sem þykir hafa dregist aftur úr öðrum markaðssvæðum. Í Bandaríkjunum til dæmis eru miðlægir innviðir verðbréfamarkaðar mun stærri og færri, sem eykur hagkvæmni og skilvirkni uppgjörs.Reglugerðin verður innleidd með breytingum á lögum nr. 7/2020. Hún er ekki mikil að umfangi og frá sjónarhóli löggjafar er innleiðing einföld. Það að stytta uppgjörstíma er hins vegar viðamikið verkefni í framkvæmd, hvað þá þvert á sameiginlegan innri markað Evrópu, sem krefst samvinnu allra haghafa. Verkefnið krefst breytinga á ferlum og tæknilegrar uppfærslu fjármálainnviða sem við sögu koma í eftirviðskiptum (e. post trade), með tilheyrandi kostnaði og áskorunum við samhæfingu þvert á ólíka innviði og starfsemi. Óhjákvæmilegt er að undirbúa breytinguna vel og tímanlega.Evrópska verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunin (ESMA) gaf út skýrslu um áhrif styttingar uppgjörstíma í árslok 2024. Mat hennar er að um flókið og tæknilegt úrlausnarefni verði að ræða, sem komi til með að hafa áhrif á virkni markaða. Fjárfestinga verður þörf til að auka skilvirkni og viðnámsþrótt eftirviðskipta-innviða, sem líkur eru til að verði meira íþyngjandi fyrir smærri aðila en stærri. ESMA telur heildaráhrif styttingar verða til góðs og til þess fallin að draga úr áhættu. Mótaðila- og uppgjörsáhætta verði takmarkaðri og dragi úr kröfum um veðsetningu vegna slíkra viðskipta. Skemmri uppgjörstími getur þó einnig falið í sér áhættu, sem hugsa þarf fyrir og mæta með viðeigandi hætti. Framkvæmd gjaldeyrisviðskipta í tengslum við uppgjör viðskipta með fjármálagerninga á skemmri tíma kann t.d. að fela í sér áskorun hér á landi, líkt og í öðrum ríkjum sem ekki tilheyra evrusvæðinu. Þá er horft til rekstraráhættu í þessu sambandi. Hugsa þarf fyrir viðeigandi ferlum og ráðstöfunum.Eins og fram kemur í ársáætlun ESMA fyrir árið 2026 hefur stofnunin tekist á herðar miðlægt aðhaldshlutverk með undirbúningi styttingar uppgjörstímans ásamt framkvæmdastjórn ESB og Seðlabanka Evrópu, í því skyni að stuðla að vel heppnaðri og samhæfðri innleiðingu.Svonefnd EU T+1 Industry Committee var sett á fót til að undirbyggja innleiðingu T+1 tímanlega þvert á allt Evrópska efnahagssvæðið. Nefndinni er ætlað að leiða samhæfingu og undirbúning, útbúa leiðbeiningar, forgangsraða breytingum/ólíkum þáttum og vera vettvangur úrlausna á vandamálum sem upp kunna að rísa. Í júní 2025 birti nefndin vegvísi og tillögur um vegferðina sem framundan er. Í honum er fjallað um þær fjölþættu áskoranir sem fyrir hendi eru og haghafar þurfa að sameinast um að greiða úr.Langflest ríki á Evrópska efnahagssvæðinu eru komin af stað í þessa vinnu. Öll gera þau ráð fyrir virku samráði við haghafa og sum stofnað stóra vinnuhópa í því skyni, enda er almennt gert ráð fyrir að sameiginlegt átak stjórnsýslu og markaðarins þurfi til.Seðlabanki Íslands hefur stofnað vinnuhóp þvert á starfsemi sína til að undirbúa breytinguna, en ólík svið bankans hafa snertiflöt við viðfangsefnið. Gert er ráð fyrir virku samstarfi við markaðsaðila og -innviði.Þess má geta að áður en meginreglan um T+2 var innleidd hér á landi voru viðskipti með skuldabréf til skamms tíma gerð upp næsta bankadag (T+1), en með hlutabréf á T+3. Íslenskt fjármálakerfi býr að þeirri reynslu, að einhverju leyti.Að öðru óbreyttu er gengið út frá að stefnt verði að breytingu í T+1 á sama eða svipuðum tíma í EFTA-ríkjunum á Evrópska efnahagssvæðinu og í ríkjum Evrópusambandsins.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Já |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
| Sent til Alþingis |
Innleiðing
| Innleiðing | Lagasetning/lagabreyting |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Breyta þarf lögum nr. 7/2020 um verðbréfamiðstöðvar, uppgjör og rafræna eignarskráningu fjármálagerninga. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Já |
|---|---|
| Samráðsgátt | https://island.is/samradsgatt/mal/4125 |
| Niðurstöður samráðs | Umsagnaraðilar styðja upptöku og innleiðingu gerðarinnar og taka undir mikilvægi tímanlegs undirbúnings. Tryggja beri nægan undirbúning og skýra tímalínu. Umbætur á kerfum og ferlum geti orðið kostnaðarsamar. Ávinningur af T+1 fyrir íslenskan markað er talinn felast í aukinni skilvirkni og bættri lausafjárstýringu, minni mótaðilaáhættu og samræmi við alþjóðlega markaði. Æskilegt er talið að innleiðing gerðarinnar verði samhliða annarri breytingu á CSDR, þ.e. með reglugerð (ESB) 2023/2845 sem kölluð er CSDR Refit. |
Áhrif
| Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur | Umbætur á kerfum og ferlum geta orðið kostnaðarsamar, en aukin skilvirkni verður markaðnum jafnframt til hagsbóta. Þróun og viðhald markaðsinnviða er viðvarandi verkefni rekstraraðila þeirra, sem og að stuðla stöðugt að skilvirkni, hagkvæmni og öryggi |
|---|---|
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Ekki vitað |
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Fjármála- og efnahagsráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Seðlabanki Íslands |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32025R2075 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2025/2075, 14.10.2025 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| COM numer | COM(2025) 38 |
|---|---|
| Dagsetning tillögu ESB | |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Stjórnskipulegur fyrirvari skv. 103. grein (Ísland) | Ísland |
|---|
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
|---|---|
| Samþykktardagur |
Breytir (Modifies)
| COM(2025) 038 52025PC0038 |
completes | Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi |
| 32014R0909 | amends | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
