32025R0627
Commission Implementing Regulation (EU) 2025/627 of 28 March 2025 establishing, pursuant to Regulation (EU) 2024/573 of the European Parliament and of the Council, minimum requirements for certificates of natural persons and the conditions for the mutual recognition of such certificates, as regards the installation, maintenance or servicing, repair or decommissioning of stationary electrical switchgear containing fluorinated greenhouse gases and recovery of fluorinated greenhouse gases from stationary electrical switchgear and repealing Commission Implementing Regulation (EU) 2015/2066
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.

Gerð ekki til á íslensku
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 20 Umhverfismál, 20.03 Loft |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Gerðin varðar kröfur sem liggja að baki vottunar einstaklinga að því er varðar staðbundin rafknúinn rofbúnað svo og um gagnkvæma viðurkenningu skírteina vegna slíkrar vottunar milli aðildarríkjanna. Gerðin kemur í stað eldri gerðar (ESB) 2015/2066 um sama efni.
Nánari efnisumfjöllun
Gerðin byggir á ákvæði í 8. mgr. 10. gr. reglugerðar (ESB) 2024/573 um flúoraðar gróðurhúsalofttegundir sem kveður á um að framkvæmdastjórn ESB skuli fastsetja lágmarkskröfur varðandi kerfi til útgáfu skírteina og staðfestingu vegna þjálfunar.Megin breytingin sem á sér stað frá eldri gerð sem þessi gerð fellir úr gildi (reglugerð (ESB) 2015/2066) er að þessi gerð tekur til fleiri efna og gildissvið hennar því víðara. Kröfur um þekkingu og færni sem fram koma í viðauka við gerðina eru sambærilegar við kröfur í eldri gerð.Mat og vottun skv. eldri reglugerð sem þessi fellir brott hefur ekki verið framkvæmt á Íslandi. Í ljósi líklegs skorts á eftirspurn eftir útgáfu slíkra skírteina væri að líkindum ráðlegt að nýta ákvæði í 13. mgr. 10. gr. reglugerðar (ESB) 2024/573 sem heimilar fámennum ríkjum að uppfylla kröfurnar án þess að setja upp slíkt mat/vottun en vísa þess í stað til viðurkenningar á skírteinum sem gefin eru út af öðrum aðildarríkjum.Gerðin hefur tekið gildi í ESB.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Nei |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Nei |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Nei |
Innleiðing
| Innleiðing | Lagasetning/lagabreyting |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta |
Breyta þarf efnalögum nr. 61/2013. Í ljósi breytinga á því hvað teljast flúoraðar gróðurhúsalofttegundir skortir lagastoð fyrir innleiðingu þessarar gerðar. Núverandi skilgreining flúoraðra gróðurhúsalofttegunda í efnalögum nær ekki til allra þeirra efna sem ákvæði þessarar reglugerðar vísa til sem slíkra. Eðlilegast væri að innleiða þessa gerð á sama tíma og reglugerð (ESB) 2024/573. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Ekki vitað |
|---|---|
| Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands | Mat og vottun skv. eldri reglugerð sem þessi fellir brott hefur ekki verið framkvæmt á Íslandi. Í ljósi líklegs skorts á eftirspurn eftir útgáfu slíkra skírteina væri að líkindum ráðlegt að nýta ákvæði í 13. mgr. 10. gr. reglugerðar (ESB) 2024/573 sem heimilar fámennum ríkjum að uppfylla kröfurnar án þess að setja upp slíkt mat/vottun en vísa þess í stað til viðurkenningar á skírteinum sem gefin eru út af öðrum aðildarríkjum. |
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
|---|---|
| Ábyrg stofnun | Umhverfis- og orkustofnun |
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32025R0627 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2025/627, 31.3.2025 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| Samþykktardagur i ESB |
|---|
