Hlutfall stöðugrar fjármögnunar lánastofnana vegna fjármögnunarviðskipta með verðbréf - 32025R1215
Regulation (EU) 2025/1215 of the European Parliament and of the Council of 17 June 2025 amending Regulation (EU) No 575/2013 as regards requirements for securities financing transactions under the net stable funding ratio
Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2025/1215 frá 17. júní 2025 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar kröfur vegna fjármögnunarviðskipta með verðbréf samkvæmt hlutfalli stöðugrar fjármögnunar
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 09 Fjármálaþjónusta, 09.02 Bankar og aðrar fjármálastofnanir |
| Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) | 091/2026 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu | |
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Í gildi á EES-svæðinu | Já |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Reglugerðin fellir brott ákvæði í reglugerð (ESB) nr. 575/2013 um hækkun kröfu um hlutfall stöðugrar fjármögnunar lánastofnana vegna fjármögnunarviðskipta með verðbréf.
Nánari efnisumfjöllun
Í reglugerð (ESB) nr. 575/2013 frá 26. júní 2013, um varfærniskröfur að því er varðar lánastofnanir, eru ýmsar reglur sem er ætlað að auka viðnámsþrótt lánastofnana og treysta fjármálastöðugleika. Meðal þeirra er krafa um hlutfall stöðugrar fjármögnunar (e. net stable funding ratio) sem er ætlað að takmarka tímamisræmi á milli eigna og skulda lánastofnana með því að setja skorður við möguleika þeirra á að fjármagna langtímaeignir, svo sem veitt fasteignalán, með óstöðugri skammtímafjármögnun, á borð við skammtímalán frá öðrum lánastofnunum. Slíkt misræmi gæti skapað vandkvæði ef að aðgangur lánastofnana að skammtímafjármögnun takmarkaðist óvænt, svo sem í fjármálakreppu. Lánastofnanir gætu þá staðið frammi fyrir því að hafa ónægt laust fé til að standa í skilum á skuldbindingum sínum, jafnvel þótt að eiginfjárstaða þeirra væri jákvæð. Hversu mikil krafan um hlutfall stöðugrar fjármögnunar er tekur mið af því hversu miklar eignir lánastofnunar eru og hversu erfitt er að innheimta þær eða koma þeim í verð á skömmum tíma án verulegra affalla. Einstakir eignaflokkar fá vægistuðul frá 0 til 100% eftir því hversu erfitt það er. Meðal eigna sem fá lágan stuðul eru kröfur í tengslum við svonefnd fjármögnunarviðskipti með verðbréf (e. securities financing transactions), svo sem endurhverf viðskipti með verðbréf og lán á verðbréfum. Um slík viðskipti gilda lög um fjármögnunarviðskipti með verðbréf, nr. 41/2023. Samkvæmt reglugerð (ESB) nr. 575/2013 getur stuðull slíkra krafna verið 0%, 5% eða 10%, sbr. g-lið 1. mgr. 428. gr. r, b-lið 1. mgr. 428. gr. s og a-lið 428. gr. v reglugerðarinnar. Samkvæmt 8. mgr. 510. gr. reglugerðarinnar hækka þessir stuðlar í 10% eða 15% 28. júní 2025. Það hefði í för með sér aukna kröfu um stöðuga fjármögnun þeirra lánastofnana sem eiga slíkar eignir. Reglugerð (ESB) 2025/1215 fellir brott 8. mgr. 510. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013. Það felur í sér að stuðlarnir hækki ekki 28. júní 2025. Því er ætlað að stuðla að samkeppnishæfni evrópskra lánastofnana gagnvart lánastofnunum utan Evrópska efnahagssvæðisins, sem sæta ekki sömu kröfum, og styðja við skilvirkni og dýpt markaða fyrir fjármögnunarviðskipti með verðbréf.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
| Alþingi hefur lokið mati sínu | Já |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Já |
| Sent til Alþingis |
Innleiðing
| Innleiðing | Lagasetning/lagabreyting |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Gerðin var innleidd með lögum nr. 102/2025, um breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002 (CRR III). |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðingarvinnu lokið (tilkynnt til ESA – form 1) eða þarfnast ekki innleiðingar |
Samráð
| Samráð | Já |
|---|---|
| Samráðsgátt | https://island.is/samradsgatt/mal/4030 |
| Niðurstöður samráðs | Engin umsögn barst. Drög að frumvarpi þar sem gert er ráð fyrir því að reglugerðin verði lögfest voru birt í samráðsgáttinni 16. september 2025 (mál nr. S-171/2025). |
Áhrif
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Ekki vitað |
|---|
Ábyrgðaraðilar
| Ábyrgt ráðuneyti | Fjármála- og efnahagsráðuneytið |
|---|
Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB
| CELEX-númer | 32025R1215 |
|---|---|
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB | |
| Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2025/1215, 25.6.2025 |
| Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB |
Vinnslustig (pipeline stage)
| COM numer | COM(2025) 146 |
|---|---|
| Dagsetning tillögu ESB | |
| Dagsetning tillögu | |
| Samþykktardagur i ESB |
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
| Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar | |
|---|---|
| Staðfestur gildistökudagur | |
| Tilvísun í EES-viðbæti | EEA Supplement No 41, 25.6.2026, p. 78 |
| Tilvísun í stjórnartíðindi ESB | OJ L, 2026/1294, 25.6.2026 |
Breytir (Modifies)
| COM(2025) 146 52025PC0146 |
adopts | Regulation (EU) 2025/1215 of the European Parliament and of the Council of 17 June 2025 amending Regulation (EU) No 575/2013 as regards requirements for securities financing transactions under the net stable funding ratio | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
| 32013R0575 | amends | Regulation (EU) No 575/2013 of the European Parliament and of the Council of 26 June 2013 on prudential requirements for credit institutions and investment firms and amending Regulation (EU) No 648/2012 - CRR | Tekin upp í EES-samninginn og í gildi |
