Breyttir úrgangsflokkar fyrir rafhlöður og rafgeyma. - 32025D0934

Commission Delegated Decision (EU) 2025/934 of 5 March 2025 amending Decision 2000/532/EC as regards an update of the list of waste in relation to battery-related waste


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn
Svið (EES-samningur, viðauki) 20 Umhverfismál, 20.05 Úrgangur

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Með tækninýjungum í rafhlöðuframleiðslu hefur orðið til þörf á að halda rafhlöðuúrgangi aðskildum eftir efnainnihaldi rafhlaðna. Framselda ákvörðunin felur í sér breytingar á lista yfir úrgangsflokka þannig að rafhlöðum og rafgeymum er skipt upp í fleiri úrgangsflokka eftir efnainnihaldi rafhlaðna, sérstaklega liþíumrafhlaðna.

Nánari efnisumfjöllun

Nýjungar í rafhlöðutækni eru nauðsynlegur undanfari sjálfbærrar þróunar, grænnar nýsköpunar og kolefnishlutleysis en slíkar tækninýjungar, einkum í framleiðslu liþíum-, natríum- og nikkelrafhlaðna hafa valdið því að breyta þarf úrgangsmeðhöndlun rafhlaðna til að stuðla að aukinni endurnýtingu hráefna.Breyttir endurnýtingarferlar kalla á breytta skráningu á úrgangi til að tryggja rekjanleika úrgangsins því meðal þeirra efna sem finnast í rafhlöðum eru þýðingarmikil hráefni (e. Critical raw materials) og önnur efni sem auðvelt er að endurnýta eða sem geta verið hættuleg umhverfinu og heilsu manna ef þau eru ekki meðhöndluð á réttan hátt.Það er einnig mikilvægt að halda ólíkum straumum úrgangs aðskildum svo mögulegt sé að endurnýta innihaldsefni rafhlaðnanna og stuðla þannig að markmiðum er varða hringrásarhagkerfi og úrgangsmál. Ný reglugerð Evrópusambandsins um rafhlöður og rafgeyma (ESB) 2023/1542, sem ekki hefur verið innleidd á Íslandi enn, kveður sömuleiðis á um ítarlegri flokkun og endurnýtingu hráefna úr rafhlöðum.Einnig er þörf á nýjum úrgangskóðum fyrir rafhlöður til þess að geta kveðið nákvæmar á um hvaða starfsemi er heimil samkvæmt starfsleyfum fyrir meðhöndlun úrgangs. Sömuleiðis kveður reglugerðin á um hvaða úrgangsflokkar teljast sem spilliefni og hverjir ekki. Hvort tveggja skiptir máli þegar kemur að tilkynningum á flutningi hættulegs úrgangs á milli landa.Alkalírafhlöður (e. Alkaline batteries) voru áður skilgreindar sem hættulaus úrgangur en eru nú skilgreindar sem hættulegur úrgangur. Liþíumrafhlöður fá sinn eigin úrgangskóða vegna sérstakrar hættu við söfnun og meðhöndlun þeirra.Helstu breytingar á úrgangskóðum felast í útvíkkun á kóða 16 06 sem nær yfir rafhlöður og rafgeyma.Ákvörðunin tekur gildi þann 9. nóvember 2026. 

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Nei
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Breyta þarf reglugerð nr. 1040/2016 um skrá yfir úrgang og mat á hættulegum eiginleikum úrgangs.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Já
Hvaða hagsmunaaðilar Úrvinnslusjóður, Hringrás ehf., Terra umhverfisþjónusta hf., Íslenska gámafélagið ehf., Málmaendurvinnslan ehf.
Niðurstöður samráðs Haft var samráð við aðila sem eru með virkar flutningstilkynningar fyrir úrgang á þeim úrgangskóðum sem taka breytingum vegna ákvörðunarinnar og Úrvinnslusjóð.
Hagsmunaaðilar sem flytja út úrgang hafa helst áhyggjur af því að þurfa að senda inn nýjar tilkynningar til samþykktar fyrir úrgangssendingar sem hafa þegar fengið samþykki. Slíkt er bæði kostnaðarsamt og tímafrekt. Þegar úrgangskóðum hefur áður verið breytt hefur ekki verið gerð krafa um að eldri tilkynningar séu uppfærðar með nýjum tilkynningum vegna breytinganna. Úrgangskóðar 20 01 33* og 20 01 34 voru sérstaklega nefndir í því samhengi þar sem nú er verið að flytja út úrgang á þeim úrgangskóðum en þeir falla út við breytinguna. Kominn er nýr kóði fyrir blandaðar rafhlöður16 06 13* sem ætti að geta komið í stað þeirra kóða sem notaðir voru áður.
Útflutningsaðilar hafa lent í því að fá ekki að setja marga kóða á tilkynningar. Fjölgun kóða má því ekki verða til þess að torvelda samþykktarferli tilkynninga. Ef kóði 16 06 13* er í boði fyrir blandaðar sendingar af rafgeymum og rafhlöðum ætti þetta ekki að vera vandamál.
Hagaðilar veltu einnig fyrir sér hvort til stæði að gera auknar kröfur um flokkun rafhlaðna og rafgeyma vegna úrgangskóðanna. Ekkert bendir til þess að slík krafa verði gerð þar sem í aðfararorðum ákvörðunarinnar er tekið fram að breytingin sé til að auðvelda flokkun, ekki auka flokkun.
Úrvinnslusjóður gerir ekki athugasemdir.
Úr samráði Evrópusambandsins:
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hafði áður ráðist í fýsileikagreiningu á því hvernig best væri að hafa úrgangskóðana fyrir rafhlöður og rafgeyma. Þar var haft samráð við hagaðila. Sjá nánari umfjöllun í skýrslu JRC: https://dx.doi.org/10.2760/7560598
Ákvörðunin var einnig auglýst til samráðs í samráðsgátt Evrópusambandsins. Þar bárust 38 umsagnir. Meirihluti umsagna var frá fyrirtækjum eða samtökum fyrirtækja. Engin umsögn barst frá Íslandi og ein frá öðrum EES-ríkjum. Það var umsögn frá endurvinnslufyrirtækinu Hydrovolt AS í Noregi og var sú umsögn efnislega jákvæð. Umsögnin fjallaði um auðveldari flokkun, flutning, og samkeppni á markaði með úrgangsrafgeyma.
Aðrar umsagnir úr samráðsgátt Evrópusambandsins eru að langmestu leyti jákvæðar. Á nokkrum stöðum eru gerðar tillögur að útfærslum við innleiðingu og eitthvað erum ákall eftir ítarlegri eða minna ítarlegri reglusetningu. Þau andmæli sem bárust sneri nánast eingöngu að nákvæmri flokkun einstakra úrgangsstrauma sem hættulaus eða hættulegur úrgangur. Dæmi um slíkan ágreining er flokkun svartmassa (e. black mass) sem hættulegur úrgangur óháð því úr hvaða gerð rafhlaðna hann kemur, flokkun zinc-rafhlaðna sem eru kadmíum og kvikasilfurslausar sem hættulegur úrgangur sem þykir gera endurheimt þýðingarmikilla hráefna úr þeim erfiðari og hvernig flokka eigi rafgeymaúrgang sem inniheldur þrávirk lífræn efni (POPs).

Áhrif

Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur Tilfærsla á úrgangsflokki úr hættulausum í hættulegan er líkleg til að valda lítillega auknum kostnaði við söfnun, flutning, leyfisveitingar og úrvinnslu. Sá kostnaður fellur til hjá úrgangsmeðhöndlunaraðilum og birtist líklega í lítillega hærri úrvinnslugjöldum.
Ítarlegri útlistun á úrgangsflokkum veldur skilvirkari innviðanýtingu og auðveldar beitingu viðeigandi öryggisráðstafana. Þetta sparar pening við söfnun, flutning og aðra meðhöndlun.
Umhverfis- og orkustofnun þarf að uppfæra samsvörunartöflur milli úrgangsflokka.
Áætlaður kostnaður hins opinbera Enginn
Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands Áhrif á Íslandi lítil en jákvæð vegna samræmingar og einföldunar við flutning rafhlaðna til meðhöndlunar erlendis.
Ísland hefur enga sérhagsmuni.

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfis- og orkustofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32025D0934
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2025/934, 20.5.2025
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer C(2025)1360
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Breytir (Modifies)

32008L0098 based on Directive 2008/98/EC of the European Parliament and of the Council of 19 November 2008 on waste and repealing certain Directives Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32000D0532 amends Commission Decision 2000/532/EC of 3 May 2000 replacing Decision 94/3/EC establishing a list of wastes pursuant to Article 1(a) of Council Directive 75/442/EEC on waste and Council Decision 94/904/EC establishing a list of hazardous waste pursuant to Article 1(4) of Council Directive 91/689/EEC on hazardous waste Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

Flokkun (Classifications)