32025R0656

Commission Delegated Regulation (EU) 2025/656 of 2 April 2025 amending Regulation (EU) 2023/1804 of the European Parliament and of the Council as regards standards for wireless recharging, electric road system, vehicle-to-grid communication and hydrogen supply for road transport vehicles


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun hjá ESB og EFTA-ríkjunum innan EES
Svið (EES-samningur, viðauki) 13 Flutningar, 13.02 Flutningar á vegum

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Reglugerðin er afleidd gerð af reglugerð (ESB) 2023/1804 (AFIR) og felur í sér breytingar á II. viðauka hennar um tækniforskriftir fyrir innviði fyrir óhefðbundið eldsneyti. Með gerðinni eru uppfærðir og nánar útfærðir tæknistaðlar fyrir hleðslu rafknúinna ökutækja, þráðlausa hleðslu, rafvædda vegi, samskipti milli ökutækja og hleðslustöðva og áfyllingu vetnis. Kröfurnar taka eftir atvikum til opinberra og einkarekinna hleðslustöðva og miða að því að tryggja tæknilegt samhæfi innviða og ökutækja. Gerðin skilgreinir jafnframt hvað telst uppsetning og endurnýjun hleðslustöðva og kveður á um mismunandi kröfur og aðlögunartímabil fyrir nýja, endurnýjaða og eldri innviði.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Á ekki við
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Á ekki við
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Já

Innleiðing

Innleiðing Engar laga- eða reglugerðabreytingar
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Gerðin verður innleidd samhliða reglugerð (ESB) 2023/1804 (AFIR) og er fyrirhugað að taka hana upp í landsrétt með stjórnvaldsfyrirmælum á grundvelli lagaheimilda vegna innleiðingar móðurgerðarinnar. Ekki er á þessu stigi talin þörf á sérstakri lagabreytingu eða EES-aðlögun vegna gerðarinnar. Innleiðing hennar er háð því að nauðsynlegur lagagrundvöllur vegna AFIR verði fyrir hendi.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Önnur ráðuneyti sem hafa aðkomu Innviðaráðuneytið
Ábyrg stofnun Samgöngustofa

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32025R0656
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2025/656, 18.6.2025
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer C(2025)1918
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar

Breytir (Modifies)

32023R1804 amends, based on Regulation (EU) 2023/1804 of the European Parliament and of the Council of 13 September 2023 on the deployment of alternative fuels infrastructure, and repealing Directive 2014/94/EU Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun