32025R1234

Commission Implementing Regulation (EU) 2025/1234 of 25 June 2025 amending Implementing Regulation (EU) 2021/2226 as regards the medical devices for which the instructions for use may be provided in electronic form


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn
Svið (EES-samningur, viðauki) 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.13 Lyf

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Framkvæmdareglugerð (ESB) 2025/1234 breytir eldri reglugerð (ESB) 2021/2226 um rafrænar notkunarleiðbeininga fyrir lækningatæki. Helstu breytingar miða að því að útvíkka gildissvið reglugerðarinnar til að auðvelda rafræna afhendingu leiðbeininga til fagfólks í heilbrigðisþjónustu.

Nánari efnisumfjöllun

Í kjölfar könnunar sem framkvæmd var meðal heilbrigðisstarfsfólks haustið 2024, kom fram skýr vilji til að fá leiðbeiningar í rafrænu formi fremur en á pappír. Reglugerðin endurspeglar þessa þróun og miðar að því að styðja við hraðari og skilvirkari þjónustu innan heilbrigðisgeirans.Meðal helstu breytinga eru:Útvíkkað gildissvið: Reglugerðin gildir nú fyrir öll lækningatæki og fylgihluti þeirra sem falla undir reglugerð (ESB) 2017/745 og eru ætluð fagfólki, einnig þau tæki sem falla undir bráðabirgðaákvæði reglugerðarinnar. Einnig nær hún nú til tækja án lækningalegs tilgangs sem talin eru upp í XVI. viðauka við reglugerð (ESB) 2017/745, að því tilskildu að þau séu ætluð til notkunar af fagmönnum.Skylda til pappírsforms fyrir almenna notendur: Ef tæki, sem ætluð eru fagfólki, eru fyrirsjáanlega einnig notuð af almenningi (t.d. sjúklingum), skal samt sem áður afhenda notkunarleiðbeiningar á pappír fyrir þá.Tengsl við Eudamed: Þegar skráning í Eudamed gagnagrunninn verður skylda, þurfa framleiðendur að skrá vefslóð þar sem rafrænar leiðbeiningar eru aðgengilegar.Lagfæringar á orðalagi og einföldun: Fjarlægðar eru óþarfar eða tvítekningar í texta, m.a. þar sem kröfur um upplýsingagjöf voru þegar hluti af samræmismati samkvæmt aðalreglugerðinni.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar
Alþingi hefur lokið mati sínu Á ekki við
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Verður innleidd með breytingum á reglugerð um notkunarleiðbeiningar sem fylgja lækningatækjum, nr. 630/2022, með stoð í 4. mgr. 12. gr. og 4. mgr. 48. gr. laga um lækningatæki, nr. 132/2020.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing í vinnslu

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Heilbrigðisráðuneytið

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32025R1234
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2025/1234, 26.6.2025
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer D107550/02
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB