Breyting á ETS-reglum um vottun og faggildingu vottunaraðila (2025/1192) - 32025R1192

Commission Implementing Regulation (EU) 2025/1192 of 18 June 2025 amending Implementing Regulation (EU) 2018/2067 as regards certain aspects on the verification of data and on the accreditation of verifiers


iceland-flag
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð í skoðun hjá Íslandi, Liechtenstein og Noregi til upptöku í EES-samninginn
Tegund gerðar Reglugerð
Nánari tegund gerðar Framkvæmdarreglugerð
Svið (EES-samningur, viðauki) 20 Umhverfismál, 20.03 Loft

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Reglugerð ESB 2025/1192 breytir framkvæmdareglugerð ESB 2018/2067 um vottanir á gögnum og um faggildingu vottunaraðila samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/87/EB. Meginmarkmið breytinganna eru að setja samræmdar reglur um vottun á kolefnishlutleysisskýrslum (e. climate-neutrality reports) og mat á því hvort áfangar og markmið í kolefnishlutleysisáætlunum (e. climate-neutrality plans) hafi náðst, sem tengist skilyrðum fyrir úthlutun endurgjaldlausa losunarheimilda. Jafnframt eru innleiddar reglur um vottun skýrslna um önnur áhrif frá flugstarfsemi en frá koldíoxíði (e. non-CO2 aviation effects) (sjá m.a. nýjan punkt 12b í viðauka).  Einfaldari vottun er heimiluð þegar skýrslur eru sjálfvirkt myndaðar úr annaðhvort NEATS eða öðrum viðurkenndum IT-verkfærum og uppfærðar kröfur um vottun á sjálfbærni- og sparnaðarskilyrðum fyrir tiltekið eldsneyti. Að auki eru skýrð atriði um vottun vegna flutnings CO2/N2O og CO2 sem telst varanlega efnafræðilega bundið í vöru.  

Nánari efnisumfjöllun

Reglugerð ESB 2025/1192 breytir framkvæmdareglugerð ESB 2018/2067 um vottun á gögnum og um faggildingu vottunaraðila samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/87/EB.  1.Lagagrundvöllur og samhengi:  - Sett á grundvelli ETS-tilskipunar 2003/87/EB, einkum 3. mgr. 15. gr.  og 1. mgr. 30. gr. f í tilskipuninni. - Breytingarnar koma í kjölfar breytinga á ETS tilskipuninni, sem gerðar voru með tilskipunum (ESB) 2023/959 og 2023/958 og breytingum á reglugerðum (ESB) 2018/2066 um vöktun og skýrslugjöf og reglugerð ESB 2023/2441 um kolefnishlutleysisáætlanir.   2. Helstu breytingar á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2018/2067: A. Kolefnishlutleysisskýrslur (climate-neutrality reports):  - Gildissvið og skilgreiningar eru víkkaðar svo reglurnar taki einnig til vottunar á kolefnishlutleysisskýrslum og mat á áföngum og markmiðum í kolefnishlutleysisáætlunum.  - Mjög ólíklegt að rekstraraðilar í staðbundnum iðnaði á Íslandi þurfa að skila kolefnishlutleysisskýrslu. UOS bendir þó á að skylda til að skila slíkum skýrslum er sett fram í reglugerð ESB 2025/772, sem breytir reglugerð ESB 2019/1842. Reglugerð ESB 2025/772 hefur ekki verið tekin upp í EES samninginn þegar þetta er skrifað og því er hvergi minnst á slíkar skýrslur í lögum nr. 96/2023.  - Ný grein 17c skilgreinir athuganir vottunaraðila á gögnum frá rekstraraðila til að votta kolefnishlutleysisáætlun þ.á.m. samræmi við áætlun, uppfærslum á áætlun og samræmi við aðrar staðfestar skýrslur (losunarskýrslur, skýrsla um grunngögn og virkni-skýrslur). - Kveðið er á um að óreglur/non-compliance við 2023/2441 skuli koma fram í vottunarskýrslu. - Sett eru samræmd veruleikamörk (e. materiality) fyrir kolefnishlutleysisskýrslur: 5% af viðeigandi stærð eftir því hvort markmið eru algild losunarmarkmið eða styrkleikamarkmið o.fl.  B. önnur áhrif frá flugstarfsemi en frá koldíoxíði (e. non-CO2 aviation effects):  - Tekin er upp skilgreining og ferli við vottun skýrslna vegna annarra áhrifa en frá koldíoxíði frá flugstarfsemi (e. non-CO2 aviation effects report) sem fylgir árlegri losunarskýrslu flugrekanda. - Sett eru ítarleg ákvæði um hvaða gögn vottunaraðili þarf að skoða og athuganir sem hann  þarf að framkvæma við vottun (m.a. flugleiðir, eiginleika loftfara, frammistöðu, gagnagöt og notkun staðgengilsgagna). - Einfaldari vottun er heimiluð þegar skýrslur eru sjálfvirkt myndaðar úr NEATS eða viðurkenndum IT-verkfærum, með tilteknum skilyrðum. - Mikilvægisstig (e. materiality level) fyrir non-CO2 skýrslur eru 5% af heildar CO2(e) sem skráð er. - Viðauka I sem fjallar um gildissvið faggildingar fyrir vottunaraðila er breytt. Við hann bætast tveir punktar:  12a (flugsstarfsemi - losunargögn) og 12b (flugsstarfsemi – önnur áhrif en CO2). - Þar sem skýrslur um önnur áhrif frá flugstarfsemi en frá koldíoxíð eru hluti af árlegri losunarskýrslu (e. Annual Emission Report) sem skilað er til Umhverfis og orkustofnunar er ólíklegt að þær leiði til verulegs aukins álags fyrir stofnunina.  - Vottunaraðili verður að tryggja að núll metið lífeldsneyti er rétt skráð og öll nauðsynleg gögn lögð fram. Nauðsynleg gögn eru meðal annars sjálfbærnisönnun (e. Proof of sustainability) eða sönnun á hlítni (e. proof of compliance). Gagnagrunnur (e. Union Database), sem settur hefur verið upp með tilskipun ESB 2018/2001 sem ætlaður er til gagnasöfnunar og sannprófunarer ekki kominn í gagnið og því er erfitt að meta vinnuálag. Þá ríkir enn óvissa um hvort Ísland fái aðgang að gagnagrunninum ef reglugerð ESB 2023/2405 (ReFuelEU Aviation) er ekki tekin upp í EES samninginn.  UOS bendir á að skylda til að skila skýrslum um önnur áhrif frá flugstarfsemi en frá koldíoxíð, er sett fram í reglugerð ESB 2024/2493, sem breytir reglugerð ESB 2018/2066. Sú fyrrnefnda hefur verið tekin upp í EES samninginn en hefur ekki verið sérstaklega innleidd á Íslandi þegar þetta er skrifað.   C. Eldsneyti, flutningur CO2/N2O og aðrar tæknilegar uppfærslur:  - Uppfærðar kröfur um vottun á því hvort sjálfbærni- og sparnaðarskilyrði gildi og séu uppfyllt fyrir núll metið lífeldsneyti, Endurunnið eldsneyti af ólífrænum uppruna (e. Renewable fuel of non biological origin - RFNBO), endurunnið kolefniseldsneyti (e. Recycled carbon fuel - RCF) og tilbúið lágkolefniseldsneyti (e. synthetic low carbon fuels), í samræmi við tilskipun (ESB) 2018/2001 og (ESB) 2024/1788. - Skýrari athuganir vottunaraðila í tengslum við flutning á CO2 til til varanlegrar geymslu í jörðu eða til varanlegrar efnafræðilegrar bindingar í vöru þar sem CO2 er dregið frá losun starfsstöðva í ETS kerfinu, og í tenglum við flutning á N2O frá starfsstöð sem fellur undir ETS.- Breytingar ná einnig til vottunar skýrslna eftirlitsskyldra aðila (e. regulated entities) sem falla undir gildissvið ETS 2 (kafla IVa í tilskipun 2003/87/EB), m.a. einfaldanir fyrir 2025-2026.  3. Gildistaka og beiting:  Reglugerðin tók gildi í ESB í júní 2025. Ákveðin ákvæði hennar gilda frá 1. janúar 2025 hvað varðar vottun á losun sem átti sér stað frá 1.janúar 2024.   

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Tæknilegri aðlögun, Efnislegri aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Nei
Alþingi hefur lokið mati sínu Nei
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Nei

Innleiðing

Innleiðing Lagasetning/lagabreyting
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Almenna reglugerðarheimild til að innleiða reglugerð ESB 2025/1192 er að finna í 11. gr. laga nr. 96/2023 (ETS lög). Í reglugerð ESB 2025/1192 er þó að finna a.m.k. vísanir í eftirfarandi atriði sem þarf að athuga með tilliti til lagastoðar í ETS lögunum:

- í gerðinni er að finna vísanir í eftirlitsskylda aðila, sem tengjast ETS 2. ETS 2 kerfið hefur ekki verið innleitt á Íslandi þegar þetta er skrifað.

- Í gerðinni er töluvert vísað í kolefnishlutleysisskýrslur, sem tengjast kolefnishlutleysisáætlunum, sem tilteknar eru í reglugerðarheimild 10. gr. ETS laganna. Aðilum ber, ef við á, m.a. að afhenta vottunaraðilum slíkar skýrslur og þær ber að votta. Skylda til að skila slíkum skýrslum er sett fram í reglugerð ESB 2019/1842 eins og henni var breytt með reglugerð ESB 2025/772. Sú síðarnefnda hefur ekki verið tekin upp í EES samninginn þegar þetta er skrifað og skil á slíkum skýrslum því hvergi tiltekin í ETS lögum. Þörf á breytingum á ETS lögum hvað það varðar ætti að skoða í tengslum við innleiðingu á reglugerð ESB 2025/772, sem svo tengist þeirri reglugerð sem hér er til greiningar.

Þegar fullnægjandi lagastoð er fyrir hendi er mögulegt að innleiða gerðina með breytingum á reglugerð nr. 606/2021 um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei
Hvaða hagsmunaaðilar Faggildingarsvið Hugverkastofu (Icelandic Accreditation (ISAC)), sem faggildingaraðili. Engin vottunaraðili í ETS er með faggildingu á Íslandi., Vottunaraðilar (e. verifiers) sem starfa á ETS-sviði (staðfesting losunarskýrslna, skýrsla um grunngögn o.fl.)., A.m.k. rekstaraðilar sem flytja og geyma CO2 hvað varðar upplýsingaöflun fyrir vottunaraðila, Flugrekendur sem heyra undir Ísland vegna skýrslna um áhrif frá flugstarfsemi önnur en frá co2. og eldsneytistilkynninga., Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið., Samgöngustofa og/eða Isavia (eftir atvikum) vegna flugmála og gagnaflæðis.
Niðurstöður samráðs Samráð hefur ekki farið fram á þessu stigi (EES-greining). Ef/þegar innleiðing hefst er ráðlegt að eiga samráð við ISAC, vottunaraðilar og helstu ETS-aðila/flugrekendur um framkvæmd og tímafresti.

Áhrif

Nánari útskýring á kostnaði, þ.á.m. á hvern hann fellur Áhrif á opinberan kostnað eru metin að mestu innan fjárhagsáætlunar.

- UOS: aukin vinna við leiðbeiningar, yfirferð og samskipti vegna nýrra skýrslutegunda (kolefnishlutleysisskýrslur, non-CO2 áhrif flugs) og nýrra vottunarkrafna.

-Óbeinn kostnaður fellur fyrst og fremst á ETS-rekstraraðila og flugrekendur (aukinn undirbúningur gagna og greiðslur til vottunaraðila).
Áætlaður kostnaður hins opinbera Innan fjárhagsáætlunar
Mat á áhrifum og sérstökum hagsmunum Íslands Gerðin hefur áhrif á framkvæmd ETS á Íslandi að því leyti að:

- Rekstraraðilar sem falla undir skilyrði um kolefnishlutleysisáætlanir og -skýrslur þurfa að tryggja vottun samkvæmt uppfærðu regluverki, þ.e. að vottunaraðilar sem notir séu séu samþykktir af Umhverfis- og orkustofnun og haldi faggildingaskírteini í samræmi við þá vottun sem skal framkvæma, ólíklegt er þó að íslenskir rekstraraðilar myndu falla undir þetta

- Flugrekendur þurfa að gera ráð fyrir skýrslu um önnur áhrif frá flugstarfsemi en frá CO2sem, skal fylgja losunarskýrslu frá 2025 og að vottun/kerfi (NEATS eða sambærileg viðurkennd verkfæri) verði notuð, einfaldanir geta átt við fyrir smærri aðila.

- UOS þarf að fara yfir faggildingu vottunaraðila sem votta fyrir íslenska aðila sem falla undir ETS og ganga úr skugga um að faggilding haldist í takt við samræmdar ESB-reglur.

- Sérstakir hagsmunir Íslands: tryggja að aðgengi að hæfum vottunaraðilum sé nægjanlegt (markaðsstærð er lítil) og að faggildingar- og vottunarferli leiði ekki til óhóflegs kostnaðar eða tafar fyrir ETS-aðila og flugrekendur.

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Ábyrg stofnun Umhverfis- og orkustofnun

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32025R1192
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2025/1192, 19.6.2025
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Samþykktardagur i ESB

Breytir (Modifies)

32018R2067 amends Tekin upp í EES-samninginn og í gildi