Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1393 frá 8. júlí 2025 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2025/1184 til að setja inn endurskoðunarákvæði. - 32025R1393

Commission Delegated Regulation (EU) 2025/1393 of 8 July 2025 amending Delegated Regulation (EU) 2025/1184 to introduce a review clause

  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Tegund gerðar Reglugerð
Nánari tegund gerðar Framseld reglugerð
Svið (EES-samningur, viðauki) 09 Fjármálaþjónusta, 09.02 Bankar og aðrar fjármálastofnanir
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 242/2025
Samþykktardagur ákvörðunar sameiginlegu nefndarinnar
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu Já

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Tilgangur reglugerðarinnar er að bæta við endurskoðunarákvæði um þau lönd sem talin eru áhættusöm eða ósamvinnuþýð, í framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1184, frá 8. júlí 2025 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2025/1184 til að setja inn endurskoðunarákvæði.

Nánari efnisumfjöllun

Um er að ræða gerð til breytinga á reglugerð (ESB) 2025/1184 um  áhættusöm þriðju lönd samkvæmt framseldri reglugerð (ESB) 2016/1675, sbr. reglugerð um áhættusöm þriðju lönd vegna aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka nr. 105/2020, með því að viðbætt er endurskoðunarákvæði til að bregðast við ábendingum frá alþjóðlega fjármálaaðgerðarhópnum FATF um framkvæmdastjórn ESB meti árlega hvort breyta þurfi listanum í viðauka yfir þau lönd sem talin eru ógna fjármálakerfi ESB. Framseld reglugerð (ESB) 2016/1675 er innleidd hér á landi með reglugerð nr. 105/2020 um áhættusöm þriðju lönd vegna aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Með reglugerðinni fylgdi listi yfir þau ríki sem talin eru glíma við vankanta á vörnum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og hafa annað hvort skuldbundið sig til að vinna að úrbótum á þeim vörnum í samráði við alþjóðlega aðgerðahópinn FATF eða hefur mistekist við þær úrbætur og eru tilgreind sem slík í opinberri yfirlýsingu samtakanna.   

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Á ekki við
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Já

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Breyta þarf reglugerð nr. 105/2020. Lagastoð er í 56. gr. laga nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Dómsmálaráðuneytið

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32025R1393
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2025/1393, 21.8.2025
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer C(2025)4724
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Samþykktardagur
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 9, 12.2.2026, p. 22
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2026/200, 12.2.2026

Staða innleiðingar samkvæmt ESA

Breytir (Modifies)

32025R1184 amends Tekin upp í EES-samninginn og í gildi