Útdráttur
Reglugerðin setur fram kröfur um þjálfun og staðfestingu vegna þjálfunar fyrir einstaklinga sem þjónusta loftkælikerfi og varmadælur sem innihelda flúoraðar gróðurhúsalofttegundir eða staðgengla þeirra í tilteknum farartækjum. Jafnframt eru sett skilyrði fyrir gagnkvæmri viðurkenningu slíkra staðfestinga milli aðildarríkja og eldri reglugerð, reglugerð (EB) nr. 307/2008, er felld úr gildi.
Nánari efnisumfjöllun
Í grunnreglugerðinni, reglugerð (ESB) 2024/573 um flúoraðar gróðurhúsalofttegundir, er í 2. mgr. 1. tl. 10. gr. kveðið á um að einstaklingar sem sinna framkvæma viðgerðir, viðhald, þjónustu og endurheimt lofttegunda úr loftkælibúnaði og varmadælum í ýmsum farartækjum skuli hafa staðfestingu vegna þjálfunar. Þessi reglugerð setur fram ítarlegar kröfur um hvað þarf til að öðlast slíkt vottun. Reglugerðin tekur til einstaklinga sem sinna viðgerðum, viðhaldi, þjónustu, lekaleit og endurheimt flúoraðra gróðurhúsalofttegunda eða staðgönguefna þeirra, þ.m.t. koltvísýring (CO2), í tilteknum farartækjum. Reglugerðin kveður á um fjóra flokka staðfestinga vegna þjálfunar sem afmarka hvaða störf handhafar þeirra mega sinna á færanlegum búnaði sem inniheldur flúoraðar gróðurhúsalofttegundir eða staðgönguefni þeirra: M1: Heimilar alla þá starfsemi sem fellur undir gildissvið reglugerðarinnar vegna búnaðar sem inniheldur flúoraðar gróðurhúsalofttegundir og vetniskolefni. M2: Heimilar sömu starfsemi og M1, en aðeins þegar notuð er sjálfvirk endurheimtar- og áfyllingarstöð fyrir loftkælingu. M3: Heimilar þjónustu, viðhald og viðgerðir á loftkælikerfum í fólksbílum og léttum sendibílum, sem og loftkælikerfum og varmadælum í þungum ökutækjum, sendibílum, ökutækjum sem ekki eru notuð á vegum og vélum sem notaðar eru í landbúnaði, námuvinnslu og byggingariðnaði, sem og í lestum, neðanjarðarlestum og sporvögnum sem innihalda koltvísýring (CO2). M4: Heimilar endurheimt flúoraðra gróðurhúsalofttegunda úr kælirásum kælieininga í léttum ökutækjum, gámum, þ.m.t. kæligámum og lestum, sem og úr kælirásum loftkælikerfa og varmadæla í þungaflutningabílum, sendibílum, ökutækjum sem ekki eru notuð á vegum og vélum sem notaðar eru í landbúnaði, námuvinnslu og byggingariðnaði, lestum, neðanjarðarlestum og sporvögnum. Flokkurinn heimilar jafnframt endurheimt flúoraðra gróðurhúsalofttegunda sem taldar eru upp í I. viðauka og í I. hluta II. viðauka við reglugerð (ESB) 2024/573 úr loftkælikerfum ökutækja sem falla utan gildissviðs tilskipunar 2006/40/EB um um losun frá loftjöfnunarkerfum í vélknúnum ökutækjum. Í I. viðauka reglugerðarinnar eru tilgreindar lágmarkskröfur um bóklega og verklega þjálfun fyrir hvern flokk staðfestinga vegna þjálfunar. Jafnframt eru settar fram kröfur til tilnefnds aðila sem annast þjáalfun, útgáfu á staðfestingu vegna þjálfunar, auk þess sem gerðar eru kröfur um aðstöðu og búnað sem notaður er við verklega þjálfun og öryggi. Reglugerðin kveður jafnframt á um að aðildarríki skuli viðurkenna staðfestingar vegna þjálfunar sem gefin eru út í öðrum aðildarríkjum, enda uppfylli þau kröfur reglugerðarinnar. Með reglugerðinni er framkvæmdarreglugerð (EB) nr. 307/2008 felld úr gildi frá gildistöku nýju reglugerðarinnar. Reglugerðin var birt 17. september 2025, öðlaðist gildi á tuttugasta degi eftir birtingu hennar í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins og kemur til framkvæmda frá 12. október 2025.