Hámarksgildi varnarefnaleifa í matvælum og fóðri - D107990/02
Commission Regulation (EU) …/… of XXX amending Annexes II and III to Regulation (EC) No 396/2005 of the European Parliament and of the Council as regards maximum residue levels for acequinocyl, chlormequat, metalaxyl-M, pyraclostrobin, sulfoxaflor and trifloxystrobin in or on certain products
Þýðing EES-gerðar birtist hér á íslensku við upptöku í EES-samninginn og birtingu í EES-viðbæti.

Gerð ekki til á íslensku
-
Tillaga sem gæti verið EES-tæk
-
Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum
-
Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun
-
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
-
Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi
Staða og svið tillögu/gerðar
| Staða tillögu/gerðar | Tillaga ESB sem gæti verið EES-tæk |
|---|---|
| Svið (EES-samningur, viðauki) | 02 Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun, 02.12 Matvæli |
Almennar upplýsingar
Útdráttur
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) .../... frá XXX um breytingu á II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir asekínósýl, klórmekvat, metalaxýl-M, pýraklóstróbín, súlfoxaflór og trífloxýstróbín í eða á tilteknum afurðum
Nánari efnisumfjöllun
Breytingar á hámarksgildum varnarefnaleifa (MRL) fyrir sex virk efni: asekínósýl, klórmekvat, metalaxýl-M, pýraklóstróbín, súlfoxaflór og trífloxýstróbín. Breytingarnar fela í sér hækkuð eða ný hámarksgildi fyrir þessi efni í tilteknum afurðum, meðal annars jarðarberjum, höfrum, hunangi, sætmaís, jurtum, ólífum og hörfræjum. Fyrir súlfoxaflór eru ný hámarksgildi sett fyrir fjölmargar jurtir og salattegundir sem áður höfðu engin viðmið og fyrir klórmekvat var tímabundið hámarksgildi hækkað og gert varanlegt. Fyrir hin efnin (asekínósýl, metalaxýl-M, pýraklóstróbín og trífloxýstróbín) eru gerðar afmarkaðar hækkanir á gildum í tilteknum afurðum, þar á meðal jarðarberjum (asekínósýl), hunangi (metalaxýl-M), sætmaís (pýraklóstróbín), ólífum, sellerí, lauk, krónuþistlum og hörfræjum (trífloxýstróbín).Breytingarnar byggja á áhættumati Matvælaöryggisstofnunar Evrópu (EFSA), sem staðfestir að nýju gildin séu innan öryggismarka fyrir neytendur.
Staða innan stjórnsýslunnar
| Stofnun hefur lokið yfirferð | Já |
|---|---|
| Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Ekki þörf á aðlögun |
| Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar | Já |
| Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB | Nei |
Innleiðing
| Innleiðing | Reglugerð - breyting eða ný |
|---|---|
| Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta | Gerðin verður innleidd með breytingu á reglugerð nr. 672/2008 sem innleiðir ESB/396/2005, sett með stoð í 18. og/eða 31. gr. a laga um matvæli, nr. 93/1995. |
| Staða innleiðingarvinnu | Innleiðing ekki hafin |
Samráð
| Samráð | Nei |
|---|
Áhrif
| Áætlaður kostnaður hins opinbera | Innan fjárhagsáætlunar |
|---|
Vinnslustig (pipeline stage)
| Dagsetning tillögu ESB | |
|---|---|
| C/D numer | D107990/02 |
| Dagsetning tillögu |
