Reglugerð um breytingu á reglugerð um áhættusöm þriðju lönd (Rússland) - 32026R0046

Commission Delegated Regulation (EU) 2026/46 of 3 December 2025 amending Delegated Regulation (EU) 2016/1675 to add Russia to the list of high-risk third countries with strategic deficiencies


iceland-flag
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/46 frá 3. desember 2025 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2016/1675 um að bæta Rússlandi á skrá yfir áhættusöm þriðju lönd með annmarka í stefnu
  • Tillaga sem gæti verið EES-tæk

  • Gerð í skoðun hjá EES-EFTA ríkjunum

  • Drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar í skoðun

  • Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar samþykkt en hefur ekki öðlast gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn og í gildi

  • Tekin upp í EES-samninginn en ekki lengur í gildi

Staða og svið tillögu/gerðar

Staða tillögu/gerðar ESB gerð sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er í gildi
Svið (EES-samningur, viðauki) 09 Fjármálaþjónusta, 09.02 Bankar og aðrar fjármálastofnanir
Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar (JCD) 034/2026
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt á EES-svæðinu
Staðfestur gildistökudagur
Í gildi á EES-svæðinu Já

Almennar upplýsingar

Útdráttur

Reglugerð sem breytir lista yfir áhættusöm þriðju lönd samkvæmt framseldri reglugerð (ESB) 2016/1675, sbr. reglugerð um áhættusöm þriðju lönd vegna aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka nr. 105/2020, og bætir Rússlandi á lista yfir áhættusöm þriðju lönd samkvæmt framseldri reglugerð (ESB) 2016/1675, sbr. reglugerð um áhættusöm þriðju lönd vegna aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka nr. 105/2020.

Nánari efnisumfjöllun

Framseld reglugerð (ESB) 2016/1675 er innleidd hér á landi með reglugerð nr. 105/2020 um áhættusöm þriðju lönd vegna aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Með reglugerðinni fylgir listi yfir þau ríki sem talin eru glíma við kerfisbundna ágalla í varnar­kerfi gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og geta þannig skapað verulega áhættu fyrir fjármálakerfi Evrópusambandsins og EES-ríkjanna. Breytingar á listanum eru innleiddar hér á landi með breytingarreglugerðum við reglugerð nr. 105/2020.Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar sem hér um ræðir byggir á 9. gr. tilskipunar (ESB) 2015/849 og á endurskoðunarákvæði sem var tekið upp með framseldri reglugerð (ESB) 2025/1393. Sú reglugerð, sem innleidd var í íslenskan rétt með reglugerð nr. 1221/2025 um (8.) breytingu á reglugerð um áhættusöm þriðju lönd nr. 105/2020, kveður á um að framkvæmdastjórnin ljúki fyrir árslok 2025 sjálfstæðri rýni á þriðju löndum sem ekki hafa verið skilgreind af alþjóðlega fjármálaaðgerðahópnum FATF sem ríki sem sæta aðgerðum eða auknu eftirliti, en hafa verið svipt eða hafa ógilda aðild að FATF um stundarsakir, til að meta hvort breyta þurfi viðaukanum við framseldu reglugerðina (ESB) 2016/1675 í samræmi við það.Í kjölfar þeirrar endurskoðunar er niðurstaða framkvæmdastjórnarinnar sú að Rússland búi við verulega kerfisbundna ágalla í regluverki og framkvæmd aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Sérstaklega er bent á skort á sjálfstæði fjármálaupplýsingasviðs landsins og takmarkaða alþjóðlega samvinnu þess, skort á i gagnsæi og aðgengi að upplýsingum um raunverulega eigendur lögaðila og vanskil á innleiðingu tilmæla FATF um reglusetningu og eftirlit með þjónustu sem tengist sýndareignum. Telur framkvæmdastjórnin að ágallarnir feli í sér verulega áhættu fyrir fjármálakerfi Evrópusambandsins og EES og skuli skilgreint sem áhættusamt þriðja land.Ólíkt mörgum fyrri breytingum á listanum leiðir þessi breyting því ekki af nýrri ákvörðun FATF  heldur sjálfstæðri rýni framkvæmdastjórnarinnar samkvæmt framseldri reglugerð (ESB) 2025/1393, eins og hún hefur verið innleidd í íslenskan rétt með reglugerð nr. 1221/2025. Með reglugerðinni var viðauka við framseldu reglugerðina (ESB) 2016/1675 breytt þannig að tekin er upp ný flokkun fyrir þriðju lönd sem hafa verið svipt aðild að FATF án þess að vera á lista samtakanna, og Rússland fært í þann flokk. Þetta hefur í för með sér að Rússland bætist á lista reglugerðar nr. 105/2020 yfir áhættusöm þriðju lönd og að íslenskir tilkynningarskyldir aðilar skulu beita hertu áreiðanleikakönnunum í viðskiptum sem tengjast landinu.

Staða innan stjórnsýslunnar

Stofnun hefur lokið yfirferð Já
Þörf á aðlögun í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Ekki þörf á aðlögun
Fagráðuneyti hefur lokið vinnu við upplýsingablað og samþykkir drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar Já
Alþingi hefur lokið mati sínu Á ekki við
Utanríkisráðuneyti hefur veitt samþykki fyrir því að drög að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar séu send til ESB Já

Innleiðing

Innleiðing Reglugerð - breyting eða ný
Tilgreinið hvaða lög eða reglugerð þarf að setja eða breyta Breyta þarf reglugerð nr. 105/2020. Lagastoð er í 56. gr. laga nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
Staða innleiðingarvinnu Innleiðing ekki hafin

Samráð

Samráð Nei

Áhrif

Áætlaður kostnaður hins opinbera Ekki vitað

Ábyrgðaraðilar

Ábyrgt ráðuneyti Dómsmálaráðuneytið
Önnur ráðuneyti sem hafa aðkomu Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Samþykktar gerðir birtar í Stjórnartíðindum ESB

CELEX-númer 32026R0046
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB
Samþykkt tilvísun í Stjórnartíðindi ESB OJ L, 2026/46, 9.1.2026
Þennan dag skulu skilyrði uppfyllt í ESB

Vinnslustig (pipeline stage)

Dagsetning tillögu ESB
C/D numer C(2025)8435
Dagsetning tillögu
Samþykktardagur i ESB

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar

Sendingardagur EFTA á drögum að ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar til framkvæmdastjórnarinnar
Staðfestur gildistökudagur
Tilvísun í EES-viðbæti EEA Supplement No 34, 21.5.2026, p. 51
Tilvísun í stjórnartíðindi ESB OJ L, 2026/946, 21.5.2026

Breytir (Modifies)

32016R1675 amends Commission Delegated Regulation (EU) 2016/1675 of 14 July 2016 supplementing Directive (EU) 2015/849 of the European Parliament and of the Council by identifying high-risk third countries with strategic deficiencies - suppl. AMLD IV Tekin upp í EES-samninginn og í gildi
32015L0849 based on Directive (EU) 2015/849 of the European Parliament and of the Council of 20 May 2015 on the prevention of the use of the financial system for the purposes of money laundering or terrorist financing, amending Regulation (EU) No 648/2012 of the European Parliament and of the Council, and repealing Directive 2005/60/EC of the European Parliament and of the Council and Commission Directive 2006/70/EC - AMLD IV Tekin upp í EES-samninginn og í gildi